|
Kaup
|
Vinna hluta úr mánuði
Þegar unninn er 8 stunda vinnudagur reglubundið, reiknast brot úr mánaðarlaunum þannig
að deilt er með 21,67 í mánaðarlaunin og margfaldað með fjölda almanaksdaga annarra en
laugardaga og sunnudaga frá upphafi eða til loka starfstíma. Kaup og álagsgreiðslur
Tímakaup í dagvinnu er 0,615% af mánaðarkaupi í hverjum launaflokki og þrepi. Yfirvinna
er greidd með tímakaupi þar sem tímakaup í hverjum launaflokki er 1,0385% af
mánaðarlaunum. Öll vinna sem unnin er á stórhátíðum greiðist með tímakaupi sem nemur
1,375% af mánaðarlaunum. Persónuuppbót í desember
Desemberuppbót fá starfsmenn sem uppfylla ákveðin skilyrði sem kveðið er á um í kjarasamningum.
Nokkuð mismunandi er eftir stéttarfélagi og launagreiðanda hvaða skilyrði þurfa að vera
uppfyllt til að fá greidda persónuuppbót í desember. Auk þess geta upphæðir verið nokkuð
mismunandi.
|