Orlofsmál

Undir liðinn orlof falla þættir sem tengjast orlofsmálum félagsmanna sem samið er um í kjarasamningum. Smellt er á viðeigandi reit sem opnar umbeðna síðu þar sem viðeigandi forsendur eru slegnar inn.

Hafa skal í huga að útreikningar þeir sem hér birtast eru aðeins til viðmiðunar og gefa ekki bindandi niðurstöðu.
Orlofsmál

Lengd orlofs

Í flestum tilfellum er lágmarksorlof félagsmanna sem gegna fullu starfi 192 stundir og hækkar það í mörgum tilfellum miðað við lífaldur starfsmanna. Orlofsárið er að jafnaði frá 1. maí til 30. apríl og safna starfsmenn orlofi á þeim tíma.

Tímabil sumarorlofs er að öllu jöfnu frá upphafi maí til miðjan september, en hægt er að semja um að taka orlof sitt út á öðrum tíma. Ef starfsmaður veikist í orlofi telst sá tími sem veikndunum nemur ekki til orlofs.

Orlofsuppbót

Starfsmaður sem er í starfi þann 30. apríl fær greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, sem miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt er hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. 3 mánaða samfellt starf skal hann fá greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall.

BSRB | GRETTISGÖTU 89 | 105 REYKJAVÍK | SÍMI: 525-8300 | FAX: 525-8309 | RI