Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Skráning á trúnaðarmannanámskeið í haust hafin

29.6.2010

Skráning á trúnaðarmannanámskeið BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu í haust er hafin. Námskeiðið er í 6 þrepum eins og verið hefur og stendur hvert þrep í þrjá daga. Hægt er að taka eitt þrep eða fleiri, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. 1. þrep er dagana 14. til 16. september. 2. þrepið er dagana 20. til 22. september og síðan koll af kolli vikulega þar til 6. þrepið sem stendur einungis í tvo daga er 18. og 19. október. Skráning fer fram í gegnum heimasíðu BSRB hér . Trúnaðarmenn skrái sig í samráði við sitt stéttarfélag.

LSS samþykkti verkfallsboðun

29.6.2010

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti að boða til verkfalls þeirra félagsmanna sem starfa hjá þeim sveitarfélögum sem Launanefnd sveitarfélaga fer með samningsumboð fyrir. Mjög góð þátttaka var í atkvæðagreiðslunni og var boðun verkfalls samþykkt með 95% greiddra atkvæða.

Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa mótmæla launafrystingu

21.6.2010

Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa (FRS) mótmælir harðlega hugmyndum félagsmálaráðherra um launafrystingu opinberra starfsmanna. Ráðgjafar og stuðningsfulltrúar eru fjölmenn stétt þar sem konur eru í miklum meirihluta og launin óásættanlega lág fyrir, þótt þau séu ekki fryst.

Málefnin

Stöðugleikasáttmáli Hér má nálgast fréttir og greinar um stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisins.
Ísland og ESB: Hér má nálgast fréttir og upplýsingar sem varða aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.
Efnahagsþrengingar Hér má finna upplýsingar tengdar þeim efnahagsþrengingum sem þjóðin gengur nú í gegnum.
42. þing BSRB Hér birtast upplýsingar, gögn og fréttir sem varða 42. þing BSRB sem haldið var 21. - 23. október 2009.
Aðalfundir BSRB eru haldnir árlega á haustmánuðum. Hér má finna upplýsingar um fundina og fréttir af þeim.
Skattbyrði hefur aukist mest hjá lægri tekjuhópum.

Forsíða

Póstlistaskráning


Á döfinni


nýsköpun

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta