Beint á leiðarkerfi vefsins

Erlent

31.10.2003

Evrópa ræðir saman

European Social Forum verður haldið 12.-15. nóvember, að þessu sinni í París og útborginni Saint-Denis. Búist er við um 60 þúsund virkum þátttakendum víðsvegar að úr Evrópu og annars staðar úr heiminum. Er þetta í annað sinn sem ESF er haldið í Evrópu og er óhætt að segja að hér sé á ferðinni ein allra áhugaverðasta tilraun í grasrótarlýðræði sem átt hefur sér stað í álfunni í seinni tíð.

6.10.2003

PSI: Bráð nauðsyn á nýrri stefnu í orkumálum!

PSI, Alþjóðasamtök opinberra starfsmanna krefst tímabundinnar stöðvunar á öllum einkavæðingaráformum í orkugeiranum sem og frekari markaðsvæðingu hans og vill að sett verði á fót alþjóðleg rannsóknarnefnd sem taki til skoðunar orkumál. Er þessi krafa sett fram í ljósi undangenginna hremminga í raforkumálum, þar sem raforkukerfi fjölmargra landa hafa hrunið á skömmu tímabili.

2.10.2003

Opinberir starfsmenn í spítalaslag

CUPE, félag opinberra starfsmanna í Kanada hefur tekið höndum saman við önnur verkalýðsfélög um að leita á náðir dómsstóla, svo ekki verði að afhendingu tveggja sjúkrahúsa í hendur einkaaðila. Fylkisstjórnin stefndi að því að láta sjúkrahúsin í hendur einkaaðila, áður en hún félli hugsanlega frá í kosningum sem haldnar voru nú á mánudaginn.

25.8.2003

Verkföll vegna markaðsvæðingar raforkumarkaðarins í Grikklandi

Starfsmenn hinnar grísku Landsvirkjunar – DEI, sem er fyrirtæki í eigu hins opinbera, hafa efnt til hrinu verkfalla í júní og júlí til að mótmæla yfirstandandi og fyrirhugðum breytingum á gríska raforkumarkaðinum í átt til aukinnar markaðsvæðingar. Evrópusambandið hefur hins vegar fallist á óskir starfsmanna og stjórnar Landsvirkjunar/DEI að greiða þeim bætur að upphæð 1,4 milljarði Evra til að styrkja rekstur óarðbærra eininga í raforkukerfi DEI og með þeim hætti gera fyrirtækinu kleift að takast á við breytt umhverfi.

26.2.2003

Miklar raforkuhækkanir snarhækka vísitölu neysluverðs í Noregi

Vísitala neysluverðs hækkaði um 2.3 % á einum mánuði í Noregi, frá 15. desember í fyrra til 15 janúar í ár. Þetta eru mestu vísitöluhækkanir í einum mánuði síðan 1989. Að megni til stafar þessi hækkun af mjög mikilli hækkun raforkuverðs á tímabilinu.

18.2.2003

Alþjóðabankinn uppgötvar að verkalýðsfélög borga sig!

Alþjóðabankinn (The World Bank) hefur nú uppgötvað seint og um síðir að verkalýðsfélög geta haft jákvæð áhrif! Hefur bankinn dregið saman þúsundir rannsókna á þessu sviði í skýrslu sem kom út 12. febrúar sl.

29.1.2003

Vatn eru mannréttindi

Sameinuðu þjóðirnar hafa loksins lýst yfir að aðgangur að vatni teljist til mannréttinda. Nefnd Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, menningarleg og félagsleg réttindi lýsti þessu yfir í nóvembermánuði sem leið.

27.1.2003

Samstaðan skilar árangri

Fjölþjóðafyrirtækið Nestlé féll í dag frá ítrustu kröfum sem fyrirtækið hafði gert á hendur einu fátækasta ríki veraldar, Eþíópíu, í kjölfar alþjóðlegrar herferðar sem Oxfam-samtökin stóðu að.

20.1.2003

Koma verður í veg fyrir stríð í Írak

Koma verður í veg fyrir stríð í Írak og fari svo að yfirstandandi vopnaleit sanni tilvist gereyðingarvopna í landinu, þá verður Evrópusambandið, með aukinni einurð og talandi einni röddu, að leita annarra leiða til að fá Írak til að fylgja samþykktum Sameinuðu þjóðanna.
Yfirlýsing frá Emilio Gabaglio, formanni ETUC, Evrópusambandi verkalýðsfélaga.

13.1.2003

Viðhaldi ábótavant hjá einkavæddum

Eneco, þriðja stærsta fyrirtæki Hollands í rafmagnsdreifingu á nú í vandræðum með að tryggja örugga orkudreifingu, þar sem viðhaldi er ábótavant. Þetta má lesa í NRC Handelsblad þann 11. janúar sl.

Erlent

Póstlistaskráning


Á döfinni


efnahagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta