Erlent
22.12.2004
Sveitarfélög Evrópu berjast gegn GATS
Andstaða gegn GATS-samningnum eykst nú í Evrópu og ekki síst á héraða- og sveitarstjórnarstiginu. Í Frakklandi hafa 600 sveitarfélög lýst sig "Gats-free zones" og ríflega helmingur sveitarstjórna í Flæmingjalandi krafist að opinber þjónusta verði undanskilin samningnum.
3.12.2004
Einkaaðilum bannað að framleiða og dreifa drykkjarvatni
Holland:
Báðar deildir hollenska þingsins hafa nú samþykkt ný lög, þar sem bann er lagt við að aðrir en opinberir aðilar hafi rétt til að framleiða og dreifa drykkjarvatni.
Báðar deildir hollenska þingsins hafa nú samþykkt ný lög, þar sem bann er lagt við að aðrir en opinberir aðilar hafi rétt til að framleiða og dreifa drykkjarvatni.
21.9.2004
"Frjálsar" verðhækkanir í Svíþjóð
Er sú skýrsla mjög fróðleg lesning fyrir alla þá sem staðið hafa fyrir og trúað blint á einkavæðingu og haldið því fram að afskipti ríkisins væru ávísun á illa rekin fyrirtæki. Að einkavæðingin væri fyrir fólkið en ekki fyrirtækin.
24.8.2004
Opinber fjölmiðlun ómissandi fyrir lýðræðið
Opinber fjölmiðlun gegnir lykilhlutverki í mótun Evrópu nú sem endranær. Hún er ómissandi þáttur í virku lýðræði og til upplýsingar almennings á tímum sem þáttaka almennings í stjórnmálum er sögð á undanhaldi. Hún er grunnur allra áætlana um að gera Evrópu samkeppnishæfa á alheimsvísu í fjölmiðla- og skemmtanaiðnaðinum og til að tryggja menningarlega fjölbreytni á tímum aukinnar samþjöppunar í eignarhaldi og aukinnar menningarlegrar einsleitni.
30.6.2004
Sveitarfélög í Svíþjóð: Slæm viðskipti að selja orkuveitur
Þegar sveitarfélög skortir fé getur það verið freistandi að selja eignir eins og til að mynda orkuveitur, til að bjarga fjárhagnum. Gallinn fyrir íbúana er hins vegar sá að kaupendur fást ekki að eignum eða fyrirtækjum nema þeir telji sig geti þénað á því og því hækka yfirleitt orkureikningarnir í kjölfarið.
28.6.2004
Alþjóðabankinn, þumalskrúfan og rafmagnið
Alþjóðabankinn (The World Bank) hefur firrt sig allri ábyrgð af ófremdarástandi rafmagnsmála í Dómenikanska lýðveldinu, (D.l.) sem við sögðum frá hér á síðunni í síðustu viku. Lýsir bankinn yfir “miklum áhyggjum” af ástandinu en þverneitar að “seinkun” hans á greiðslu til ríkisstjórnarinnar upp á 50 milljónir dollara eins og samið hafði verið um, hafi neitt að gera með deilu ríkisstjórnar D.l. og bandaríska orkufyrirtækisins AES Dominicana.
25.6.2004
Slökkva á rafmagninu til að knýja fram greiðslu
Eigendur raforkufyrirtækisins AES Dominicana, sem er dótturfyrirtæki bandaríska stórfyrirtækisins AES Corp., lokuðu stærsta orkuveri í Dóminkanska lýðveldinu á miðnætti sl., sökum deilu við ríkisstjórn landsins um greiðslur til handa fyrirtækinu.
1.3.2004
Fischer hafnar tveggja hraða Evrópusambandi
Joschka Fisher utanríkisráðherra Þýskalands hefur snúið bakinu við eigin hugmynd frá árinu 2000 um að rétt væri að ákveðin kjarni Evrópusambandins (Þýskaland, Frakkland o.fl.) keyrði þróun sambandins áfram og önnur lönd fylgdu síðan í kjölfarið. Ráherrann hafnar þessari hugmynd í viðtali við þýska dagblaðið Berliner Zeitung og leggur nú áherslu á samþættingu og sterkari stofnanir sambandsins.
23.2.2004
Singapore- málin endanlega strand?
Svo virðist sem Evrópusambandið hafi endanlega gefist upp á að halda til streitu svokölluðum Singapore málum, en Pascal Lamy viðskiptafulltrúi ES gaf yfirlýsingu þess efnis í síðustu viku. Lítið hefur heyrst af GATS-málum síðan stór hópur þróunarríkja stóð fastur fyrir og sleit fundi Alþjóðaviðskipta-stofnunarinnar, WTO, sem haldinn var í Cancun í september sl.
Erlent
Á döfinni
8. júní 2012
24. ágúst 2012
21. september 2012
Leit
























