Beint á leiðarkerfi vefsins

Erlent

11.12.2006

Doha-gáttin að lokast

Hverfandi líkur eru nú taldar á að viðsemjendur í Doha-viðræðunum nái að nýta sér þá gátt sem bjartsýnismenn töldu að væri fyrir hendi og dygði til að ljúka viðræðum fyrir lok mars-mánaðar. Þrátt fyrir lífleg fundahöld undangengnar vikur, telja heimildir nálægar viðskiptaráðuneyti (USTR) Bandaríkjanna að tíminn sé of skammur og að Bandaríkjamenn vinni ekki eftir slíkri tímaáætlun.

29.11.2006

ETUC hefur undirskriftaherferð fyrir almannaþjónustuna

ETUC, Evrópusamband verkalýðsfélaga hratt af stokkunum í vikunni undirskriftaherferð um alla Evrópu og er hún liður í yfirstandandi herferð EPSU og ETUC fyrir styrkari stöðu almannaþjónustu. Markmið herferðarinnar er einkum tvíþætt; að þrýsta á að sett verði sérstök rammalöggjöf um almannaþjónustu sem undirstriki sérstöðu hennar og verji hana um leið fyrir ágangi markaðsafla og hins vegar að vakin verði athygli á ...

22.11.2006

Sigur starfsmannaráðs Gaz de France fyrir dómstólum frestar samruna við Suez

Samruna Gaz de France og Suez hefur verið frestað í kjölfar þess að dómstóll í Frakklandi féllst á kæru Starfsmannaráðs Gaz de France

20.11.2006

Fákeppni í orkumálum Evrópu

Gaz de France og Suez að sameinast Þegar Evrópusambandið samþykkti nýja tilskipun um orkumál, gagnrýndu andstæðingar tilskipunarinnar hana fyrir að af henni myndi leiða aukin fákeppni í Evrópu á sviði orkumála, ekki aukin samkeppni. Hér væri í raun verið að færa einokunarstarfsemi sem hefði verið í höndum hins opinbera í hendur einkaaðila. Síðasta dæmið um að þessi gagnrýni hafi átt við rök að styðjast er

20.11.2006

Breska ríkisstjórnin viðurkennir vatn sem mannréttindi

Breska ríkisstjórnin hefur nú snúið frá fyrri stefnu sinni og viðurkennir nú að aðgangur að vatni tilheyri grunnmannréttindum. Hvetur nú breska ríkisstjórnin aðrar ríkisstjórnir til samstöðu um málið og að þær vinni saman að lausn þess vanda sem skortur á hreinu, ódýru og aðgengilegu vatni er fyrir stóran hluta mannkyns. Er vonandi að þessi ákvörðun bresku ríkisstjórnarinnar megi verða til að auðvelda stjórnarskrárnefnd hér heima að gera upp hug sinn, en fyrir nefndinni liggur...

15.11.2006

Evrópuþingið samþykkir þjónustutilskipunina

“Það er nú kominn tími til fyrir Evrópusambandið og sérstaklega fyrir framkvæmdastjórnina, að sinna að jafnmiklu kappi uppbyggingu hinnar félagslegu Evrópu,” sagði Carola Fischbach-Pyttel framkvæmdastjóri EPSU, Evrópusamband starfsfólks í almannaþjónustu. “Evrópusambandið verður nú að ná sambandi á ný við borgara sína með því að boða til alvöru umræðu um ákveðinn lagalegan texta um almannaþjónustu í Evrópusambandinu. Kosningin í Evrópuþinginu í dag um þjónustutilskipunina markar hér tímamót,” sagði Carola.

29.9.2006

Er þrælakistan framtíðarsýn Alþjóðabankans?

Ef að verkafólk býr við réttindi á borð við að það sé ekki hægt að reka það fyrirvaralaust, eða ef að lögboðin vinnuvikan er skemmri en 66 tímar eða ef að settar hafa verið reglur um lágmarkslaun, þá telur bankinn það vera dæmi um ríki þar sem umhverfið er óvinveitt fjárfestingum. Sama fáranlega röksemdafærslan leiðir bankann að þeirri niðurstöðu að Marshalleyjar séu til fyrirmyndar, því þar gildi engar reglur sem tryggi réttindi verkafólks!

28.9.2006

Evrópuþingið vill verja almannaþjónustuna

Í gær (27. sept. 2006) studdi mikill meirihluti þingmanna á Evrópuþinginu tillögu þess efnis að dregnar yrðu skýrar línur um almannaþjónustu innan Evrópusambandsins. Studdi þingið að skýrslu, kennd við Bernarnd Rapkay, yrði fleytt áfram til frekari umræðu. Í skýrslunni er gerð tillaga um að sett verði almenn lög um almannaþjónustu sem á að tryggja m.a.:

19.9.2006

Þjónustutilskipunin: Slær í brýnu á ný

Breytingartillögum  Evelyne Gebhardt á drögum að þjónustutilskipuninni, sem hún kynnti í nefndinni um innri markaðinn (IMCO) í síðustu viku, var kuldalega tekið af fulltrúum hægri flokkanna á Evrópuþinginu sem og fulltrúum Finna, sem fara nú með embætti forseta í ráðherraráðinu.

5.9.2006

Þjónustutilskipunin á flot á ný

Í gær, 4. september, var þjónustutilskipun ESB tekin til umræðu á ný í nefnd um innri markað ESB, IMCO. Evelyne Gebhardt, verkstjóri nefndarinnar (rapporteur) í þessu máli, lýsti yfir vilja til að þjónustutilskipunin yrði afgreidd af Evrópuþinginu fyrir árslok, en tilkynnti jafnframt að hún myndi leggja fram 11 breytingartillögur.

24.7.2006

Doha viðræðurnar hrundar

Í dag, 24. júlí 2006 bárust fréttir af því að Doha-viðræðurnar innan Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar, WTO,  hefðu hrunið. Evrópusambandið kennir ósveigjanleika Bandaríkjamanna um, en ljóst er að ástæðurnar eru fjölmargar enda hafa samningaviðræðurnar sætt harðri gagnrýni frá því þær hófust árið 2000. Þrátt fyrir að vongóð hljóð hefðu borist úr horni G8 fundarins nýverið, lýsti Pascal Lamy framkvæmdastjóri WTO því yfir í dag að frekari samningaviðræðum hefði verið hætt.

27.2.2006

Fitch: Opinber orkufyrirtæki standa sig betur

Rekstur orkufyrirtækja á vegum hins opinbera í Bandaríkjunum gengur betur en rekstur orkufyrirtækja í einkaeign. Þetta er niðurstaða matsfyrirtækisins Fitch, en það fyrirtæki skilaði fyrir skömmu mati um stöðu ríkissjóðs og stöðu íslenskra banka. Er niðurstaða Fitch að orkufyrirtæki í opinberri eigu skapi festu á þessum markaði,

17.2.2006

Almannaþjónustan sett á oddinn

“Þetta var stórt skref í rétta átt en nú verður öll áhersla sett á að undanskilja almannaþjónustu ákvæðum þjónustu-
tilskipunarinnar,” var álit Carolu Fischbach-Pyttel, framkvæmdastjóra EPSU að lokinni atkvæðagreiðslu í Evrópuþinginu í gær.

15.2.2006

Vatn á flöskum vandamál

Ef þú vilt vera umhverfisvænn og ekki eyða peningunum í vitleysu þá skaltu halda þig við vatnið úr krananum og láta vatn á flöskum eiga sig.

14.2.2006

Þjónustutilskipunin í suðupotti

Evrópsk verkalýðshreyfing efndi í dag (14.02.2006)til fjöldafundar í Strassborg til að mótmæla fyrirliggjandi frumvarpi að þjónustutilskipuninni (Service directive) og mættu ríflega 30 þúsund mótmælendur. Á sama tima var þjónustutilskipunin tekin til fyrstu umræðu á Evrópuþinginu og verður tekin til atkvæðagreiðslu á fimmtudaginn. Eru verkalýðsfélögin enn ósátt við stöðu opinberrar þjónustu

Erlent

Póstlistaskráning


Á döfinni


fræðslumál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta