Erlent
29.9.2006
Er þrælakistan framtíðarsýn Alþjóðabankans?
Ef að verkafólk býr við réttindi á borð við að það sé ekki hægt að reka það fyrirvaralaust, eða ef að lögboðin vinnuvikan er skemmri en 66 tímar eða ef að settar hafa verið reglur um lágmarkslaun, þá telur bankinn það vera dæmi um ríki þar sem umhverfið er óvinveitt fjárfestingum. Sama fáranlega röksemdafærslan leiðir bankann að þeirri niðurstöðu að Marshalleyjar séu til fyrirmyndar, því þar gildi engar reglur sem tryggi réttindi verkafólks!
28.9.2006
Evrópuþingið vill verja almannaþjónustuna
Í gær (27. sept. 2006) studdi mikill meirihluti þingmanna á Evrópuþinginu tillögu þess efnis að dregnar yrðu skýrar línur um almannaþjónustu innan Evrópusambandsins. Studdi þingið að skýrslu, kennd við Bernarnd Rapkay, yrði fleytt áfram til frekari umræðu. Í skýrslunni er gerð tillaga um að sett verði almenn lög um almannaþjónustu sem á að tryggja m.a.:
19.9.2006
Þjónustutilskipunin: Slær í brýnu á ný
Breytingartillögum Evelyne Gebhardt á drögum að þjónustutilskipuninni, sem hún kynnti í nefndinni um innri markaðinn (IMCO) í síðustu viku, var kuldalega tekið af fulltrúum hægri flokkanna á Evrópuþinginu sem og fulltrúum Finna, sem fara nú með embætti forseta í ráðherraráðinu.
5.9.2006
Þjónustutilskipunin á flot á ný
Í gær, 4. september, var þjónustutilskipun ESB tekin til umræðu á ný í nefnd um innri markað ESB, IMCO. Evelyne Gebhardt, verkstjóri nefndarinnar (rapporteur) í þessu máli, lýsti yfir vilja til að þjónustutilskipunin yrði afgreidd af Evrópuþinginu fyrir árslok, en tilkynnti jafnframt að hún myndi leggja fram 11 breytingartillögur.
Erlent
Á döfinni
8. júní 2012
24. ágúst 2012
21. september 2012
Leit
























