Beint á leiðarkerfi vefsins

Erlent

30.11.2007

Flexicurity færist nær

Flexicurity virðist ætla að verða nýjasta lausnarorð Evrópusambandins á atvinnumarkaði, en í hugtakinu er slengt saman tveimur hugtökum; flexibility/sveigjanleiki og security/öryggi. Í jákvæðustu túlkun er flexicurity ætlað að leiða af sér ný samskipti á atvinnumarkaði þar sem störf eru samtímis sveigjanleg og örugg, meðan að gagnrýnendur segja þetta opna leið til að reka fólk í skiptum fyrir óljós loforð. Vinstri menn á Evrópuþinginu gagnrýna hugmyndirnar harðlega og segja að nær væri að tala um "flexploitation" eða sveigjanlegt arðrán.

30.11.2007

Einkavæðing vatns á Ítalíu stöðvuð

Andstæðingar einkavæðingar vatns á Ítalíu fögnuðu í gær sigri þegar ítalska þingið ákvað að fresta um eitt ár öllum fyrirliggjandi tillögum um einkavæðingu vatns á Ítalíu. Er þetta mikill sigur fyrir ítalskan almenning en alls skrifuðu rúmlega 400 þúsund Ítalir undir mótmæli gegn fyrirhugaðri einkavæðingu.

12.11.2007

Borgarstjóri Parísar vill vatnsveiturnar í opinberar hendur á ný

Borgarstjóri Parísar vill að sérleyfi einkafyrirtækja Veolia og Suez til rekstar vatnsveitna í borginni verði ekki endurnýjuð og að borgin taki yfir reksturinn á ný. Vill borgarstjórinn að vatnsveitan verði öll á hendi borgarinnar en hluti hennar hefur verið rekin af þessum einkafyrirtækjum samkvæmt sérleyfum frá 1985. "Ég legg til við íbúa Parísar að vatnsveitan verði opinber svo tryggja megi gæði vatnsins og viðráðanlegt verð," 

9.11.2007

Borgarstjórar Evrópu styðja almannaþjónustuna

Hvers vegna hafa borgarstjórarnir (í Brussel, París, London, Lúxemborg, Lissabon, Sofíu, Amsterdam, Tallinn, Vín og Nicosíu) undirritað yfirlýsinguna um opinbera almannaþjónustu? Vegna þess að samfélagsþjónusta á vegum opinberra aðila sinnir daglegum þörfum borgaranna best og er nauðsynleg til að viðhalda og auka á lífsgæði þeirra.

23.10.2007

Verkalýðshreyfingin ósátt við nýjan ESB-sáttmála

Enda þótt ETUC telji nýja samninginn vera framför frá Nice-samningnum er það afdráttarlaus skoðun samtakanna að með þessu samkomulagi muni fara forgörðum mikilvægt tækifæri til að leggja frekari grunn að samþættu, skilvirku Evrópusambandi með sterkum félagslegum áherslum.

20.9.2007

Frekari markaðsvæðing ESB á raforkukerfinu skref í ranga átt

Evrópusamband verkalýðsfélaga, ETUC, telur nýjar tillögur framkvæmdastjórnar Evrópusambandins um frekari markaðsvæðingu raforkukerfins í Evrópu skref í ranga átt og hvetur til samstarfs frekar en aukinnar samkeppni. Hin aukna markaðsvæðing, sem keyra á í gegn í nafni neytendaverndar, muni ekki leysa þau raunverulegu vandamál sem við blasa í orkumálum í Evrópu.

Þvert á móti telur Evrópusamband verkalýðsfélaga

11.9.2007

PSI þingið - stóru málin

Alþjóðasamtök starfsmanna í almannaþjónustu, Public Services International, PSI, fagna aldarafmæli sínu á 28. þingi samtakanna dagana 24. til 27. september í Vínarborg. Hér  er stuttlega gerð grein fyrir nokkrum þeim meginmálum sem liggja fyrir þinginu.

7.9.2007

Samstarf opinberra vatnsveitna lykilinn að vatnsvanda heimsins

Hér er því um alveg nýja tegund af útrásarmöguleikum að ræða fyrir framsækin opinber veitufyrirtæki sem eru aflögufær í þekkingu, mannauði eða fjármunum til að bæta úr einum brýnasta vanda mannkynsins. Hér er vilji allt sem þarf.

1.8.2007

Einkaframkvæmdir leiða til hærra verðs fyrir neytendur

Að meðaltali greiddu neytendur 151 Evru fyrir 120 rúmmetra af vatni frá opinberum vatnsveitum, en það verð hækkaði í 176 Evrur eða um rúm 16% þegar reksturinn var settur í hendur einkaaðila.

22.6.2007

Doha: Lífgunartilraunin mistókst

Ráðherrafundi Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Indlands og Brasilíu, (G4), sem lýst hafði verið sem lokatilraun til að koma Doha-viðræðum Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar á skrið á ný, lauk í Potsdam í Þýskalandi í gær án árangurs. Er nú talið að framhald Doha-viðræðnanna hangi á bláþræði og hafi þetta ekki verið náðarhöggið, þá sé ólíklegt að nokkuð gerist á vettvangi Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar, WTO, fyrr en í fyrsta lagi eftir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 2008.

25.4.2007

Lagarammi um opinbera þjónustu nauðsynlegur

Mikill stuðningur um nauðsyn þess að setja rammalöggjöf um almannaþjónustu innan Evrópusambandsins kom fram á sameiginlegri ráðstefnu byggðanefndar og efnahags- og félagsmálanefndar ESB sem haldin var í Brussel í síðustu viku (Committee of the Regions, European Economic and Social Committee).

16.2.2007

Doha-viðræðurnar hefjast á ný

Pascal Lamy framkvæmdastjóri Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar, WTO, lýsti því yfir á fundi aðalráðs WTO 7. febrúar sl. að Doha-viðræðurnar væru hafnar á ný. Þar með virðist vera að losna um  þann hnút sem viðræðurnar fóru í sl. sumar en þá var þeim slitið vegna deilna á milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins ... 

14.2.2007

Markaðsvæðing raforkunnar misheppnuð

Á þessi varnaðarorð var ekki hlustað, enda var trú þeirra manna, sem réðu för í Evrópusambandinu, á ágæti markaðskenninga blind. Fjölmargar rannsóknir á vegum verkalýðshreyfingarinnar og annarra hafa leitt til sömu niðurstöðu. Nú hefur enn ein skýrslan bæst í hópinn og eru niðurstöður þær sömu. Dönsku prófessorarnir Frede Hvelplund, við Álaborgarháskóla og Niels I. Meyer, heiðursprófessor við Danmarks Tekniske Universitet segja verð á rafmagni í Danmörku hafa hækkað um þriðjung, samkeppni minnkað og samþjöppun fyrirtækja aukist.

5.2.2007

Ofhitnun heimsins er af mannavöldum

Frá því fyrsta skýrsla þeirra kom út 1990 hafa vísindalegar rannsóknir um sambandið milli hækkaðs hitastigs í heiminum og losunar gróðurhúsalofttegunda sífellt leitt skýrar í ljós að breytingarnar eru fyrst og fremst af manna völdum.

25.1.2007

Aldrei fleiri atvinnulausir í heiminum

Aldrei hafa jafnmargir verið atvinnulausir í heiminum og á síðastliðnu ári segir í nýrri skýrslu frá Alþjóðavinnumála- stofnuninni ILO (Global Employment Trends). Samkvæmt skýrslunni er fjöldi atvinnulausra ríflega 195 milljónir eða um 6.3%. Er þetta hlutfall nánast óbreytt frá næsta ári á undan. Þá hefur hagur þeirra sem hafa vinnu en eru engu að síður undir fátækramörkum (sem skilgreind eru sem tekjur upp á tvo bandaríkjadali eða minna á dag) lítið batnað. Í þeirra hópi telst um 1,37 milljarður manna.

16.1.2007

Fasistar og rasistar fá styrk frá Evrópu- þinginu

Í kjölfar inngöngu Búlgaríu og Rúmeníu í Evrópu- sambandið hefur hægri öfgamönnum vaxið mjög ásmegin á Evrópuþinginu. Hafa þeir nú stofnað nýjan þinghóp, sem samkvæmt reglum Evrópuþingsins veitir þeim rétt til lengri ræðutíma, setu í nefndum og um einnar milljónar evru styrks til þinghalds og til að standa straum af kosninga- herferðum.

11.1.2007

USA og ESB reyna að leysa Doha-hnútinn

Bandaríkin og Evrópusambandið reyna nú hvað hægt er til að leysa þann rembihnút sem Doha-viðræður Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar, WTO, hafa verið í síðan á sumarmánuðum. Sendinefnd Evrópusambandsins er nýkomin frá Washington þar sem viðræður, sem lýst hefur verið sem árangursríkum, snerust einkum um hvernig mætti koma viðræðunum í gang á nýjan leik. Og nú er “óvænt” von á Susan Schwab til Genfar.

8.1.2007

Laval-Växsjö fyrir Evrópudómstólinn

Á morgun, 9. janúar hefst málflutningur fyrir Evrópudómstólnum í máli lettneska bygginga- fyrirtækisins Laval un Partneri Ltd, en Félagsdómur (Arbetsdomstolen) í Svíþjóð vísaði málinu þangað í apríl 2005. Niðurstaða Evrópudómstólsins getur haft afgerandi áhrif á stöðu verkalýðshreyfingarinnar víðs vegar í Evrópu, en ágreiningurinn snýst um hvort erlend þjónustufyrirtæki þurfa að hlýta innlendum (sænskum) kjarasamningum og hvort sænsk verkalýðsfélög hafi haft rétt til að grípa til aðgerða

Erlent

Póstlistaskráning


Á döfinni


Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta