Beint á leiðarkerfi vefsins

Erlent

25.1.2007

Aldrei fleiri atvinnulausir í heiminum

Aldrei hafa jafnmargir verið atvinnulausir í heiminum og á síðastliðnu ári segir í nýrri skýrslu frá Alþjóðavinnumála- stofnuninni ILO (Global Employment Trends). Samkvæmt skýrslunni er fjöldi atvinnulausra ríflega 195 milljónir eða um 6.3%. Er þetta hlutfall nánast óbreytt frá næsta ári á undan. Þá hefur hagur þeirra sem hafa vinnu en eru engu að síður undir fátækramörkum (sem skilgreind eru sem tekjur upp á tvo bandaríkjadali eða minna á dag) lítið batnað. Í þeirra hópi telst um 1,37 milljarður manna.

16.1.2007

Fasistar og rasistar fá styrk frá Evrópu- þinginu

Í kjölfar inngöngu Búlgaríu og Rúmeníu í Evrópu- sambandið hefur hægri öfgamönnum vaxið mjög ásmegin á Evrópuþinginu. Hafa þeir nú stofnað nýjan þinghóp, sem samkvæmt reglum Evrópuþingsins veitir þeim rétt til lengri ræðutíma, setu í nefndum og um einnar milljónar evru styrks til þinghalds og til að standa straum af kosninga- herferðum.

11.1.2007

USA og ESB reyna að leysa Doha-hnútinn

Bandaríkin og Evrópusambandið reyna nú hvað hægt er til að leysa þann rembihnút sem Doha-viðræður Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar, WTO, hafa verið í síðan á sumarmánuðum. Sendinefnd Evrópusambandsins er nýkomin frá Washington þar sem viðræður, sem lýst hefur verið sem árangursríkum, snerust einkum um hvernig mætti koma viðræðunum í gang á nýjan leik. Og nú er “óvænt” von á Susan Schwab til Genfar.

8.1.2007

Laval-Växsjö fyrir Evrópudómstólinn

Á morgun, 9. janúar hefst málflutningur fyrir Evrópudómstólnum í máli lettneska bygginga- fyrirtækisins Laval un Partneri Ltd, en Félagsdómur (Arbetsdomstolen) í Svíþjóð vísaði málinu þangað í apríl 2005. Niðurstaða Evrópudómstólsins getur haft afgerandi áhrif á stöðu verkalýðshreyfingarinnar víðs vegar í Evrópu, en ágreiningurinn snýst um hvort erlend þjónustufyrirtæki þurfa að hlýta innlendum (sænskum) kjarasamningum og hvort sænsk verkalýðsfélög hafi haft rétt til að grípa til aðgerða

Erlent

Póstlistaskráning


Á döfinni


felagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta