Erlent
29.9.2008
Opinberu björgunarfé hljóta að fylgja opinber ítök
ETUC, ásamt Alþjóðasambandi verkalýðsfélaga ITUC og Sambandi starfsmanna fjármálastofnana í Evrópu, Uni-Europe, vinnur nú að því hvernig verkalýðsfélög geta brugðist við þessari kreppu, en það er alveg skýrt að eftirfarandi þarf að gerast:
- opinberu fé sem dælt er inn í fjármálastofnanir þurfa að fylgja opinber ítök og stjórn, þannig að grundvallarbreytingar á framgöngu fylgi í kjölfarið.
- nauðsyn er á mun stífari stjórn á möguleikum fjármálastofnana til að magna upp umsvif sín, með því að styrkja hlutfall traustra eigna gagnvart skuldbindingum,
6.8.2008
Yfirlýsing PSI um Doha-viðræðurnar
Heimurinn þarf á frekari samvinnu að halda, en það að Doha-viðræðurnar fóru út af sporinu eru góðar fréttir fyrir þau okkar - og þar er PSI meðtalið, sem telja að eigi að nást árangur í baráttunni gegn fátækt og óréttlæti og eigi þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna að nást, sé eina leiðin sú að byggja upp opinbera almannaþjónustu af bestu gæðum og tryggja virðingu fyrir rétti verkafólks til sanngjarnra launa. Það hlýtur að verða kjarninn í stefnu okkar. Alþjóðaviðskiptastofnunin féll á því lokaprófi. „
1.8.2008
Doha: Engir samningar betri en slæmir
Fjölmörg verkalýðs-, félaga- og hagsmunasamtök hafa fagnað því að Doha-viðræðunum lauk án þess að fyrirliggjandi tillögur fengu samþykki. Fögnuðurinn ræðst ekki af því að viðkomandi samtök telji Doha-viðræðurnar ekki mikilvægar til að ná fram réttlátara viðskiptakerfi í heiminum, heldur af því að ekki hafi verið boðið upp á slíkt réttlátara kerfi nú af hálfu velmegandi ríkjanna. Hagsmunir stórfyrirtækja hafi verið í fyrirrúmi, en hagsmunir bænda, verkafólks og þróunarlandanna hafi verið fyrir borð bornir. Því hafi engir samningar nú verið betri en slæmir.
8.4.2008
Evrópudómstóllinn heggur í sama knérunn
Nú er þetta frelsi túlkað á þá lund að verkalýðsfélög hafa ekki rétt til að grípa til aðgerða til að verja umsamin lágmarkskjör (eins og gerðist í Laval - málinu), og nú bætist það við að lýðræðislega kjörin stjórnvöld megi ekki taka um það ákvörðun að hafa beri hliðsjón af kjarasamningum verkalýðsfélaga við útboð og samninga. Þá gerir dómurinn að engu ákvæði tilskipana á borð við þá sem gildir um opinber innkaup frá 2004 en sú tilskipun veitir opinberum aðilum svigrúm til að skilyrða samninga með ýmsum hætti.
2.4.2008
Evrópsk verkalýðshreyfing krefst réttláts hlutar
Bendir Evrópusamband verkalýðsfélaga á að hæfni og framleiðni evrópskra launþega hafi farið sívaxandi en fyrirtækin sitji hins vegar ein að ávöxtunum. Hlutfall gróða í vergri þjóðarframleiðslu hafi aukist um meira en 3% síðan 1997. Í raunverulegum tölum þýði það tilfærslu frá tekjum yfir til gróðahlutar, gróða sem nemi nú um 2.500 evrum á hvern launþega í þeim löndum sem hafa tekið upp evruna. Það jafngildir að hagnaður á hvern launþega nemur ríflega 290 þúsundum króna.
26.2.2008
Grípa þarf til varna vegna Laval-dómsins
Stefna ETUC varðandi farandverkafólk hefur alltaf verið sú að það eigi að njóta sömu kjara og tíðkast í því því landi sem það starfar í og fylgja þar ákvæðum kjarasamninga og að ákvæði þeirra megi verja með aðgerðum. Nú hafi verið dregið úr þessum rétti og ef atvinnurekendur vilji stunda félagsleg undirboð þá þurfi verkalýðsfélög að réttlæta aðgerðir, jafnvel fyrir dómstólum. Við þessari óþolandi stöðu verði að bregðast hið fyrsta og leggur ETUC til að gripið verði til bráðaaðgerða í þremur liðum.
Erlent
Á döfinni
8. júní 2012
24. ágúst 2012
21. september 2012
Leit
























