Beint á leiðarkerfi vefsins

Erlent

14.6.2009

Almannaþjónustan er lykillinn að lausn kreppunnar

Þing EPSU gagnrýndi jafnframt harðlega stefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart þeim löndum Evrópu sem þurft hafa að leita á náðir hans. Sú stefna, sem nýtur stuðnings framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur skilyrt lán sín því að lánþegar dragi úr framlögum til almannaþjónustunnar og öðrum útgjöldum hins opinbera. Skilyrði sjóðsins urðu þannig til þess að ríkisstjórn Lettlands ákvað í síðustu viku að lækka laun allra opinberra starfsmanna um 50%

8.5.2009

ETUC: Nýr félagslegur sáttmáli Evrópu

Þá gagnrýnir ETUC Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (ASG) fyrir að neyða þjóðir til að lækka laun og skera niður opinber störf og félagsleg útgjöld sem gjald fyrir að þiggja neyðarlán sjóðsins. Þessi aðferðafræði dýpki kreppuna og að meðul sjóðsins geti orðið verri en sjúkdómurinn. Þá er framkvæmdanefnd ESB gagnrýnd fyrir að setja þau skilyrði fyrir lánveitingum úr jöfnunarsjóði ESB,  að þær þjóðir sem á þeim þurfa að halda lúti skilyrðum AGS. Þannig veiki framkvæmdanefnd ESB beinlínis grundvöllinn fyrir „hinu félagslega kerfi Evrópu" (The European Social Model) í mörgum aðildarlöndum ESB.

20.3.2009

Sjávarútvegur og iðnaður hjá ESB

fyrirlesararlitilBSRB stóð fyrir opnum fundi um Evrópusambandið í dag. Þetta er annar fundurinn í röð funda sem BSRB hyggst standa fyrir um Ísland og ESB. Á fundinum var fjallað um afstöðu  ESB til sjávarútvegs og iðnaðar. Framsögumenn voru Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

18.3.2009

Sjávarútvegur og iðnaður í ESB

esb200309a
Opinn fundur verður um Evrópusambandið á vegum BSRB föstudaginn 20. mars kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stefnu ESB í sjávarútvegi og iðnaði. Framsögu hafa Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

20.2.2009

Fróðlegur fundur um Ísland og ESB

EURO-_-GESTIR-svuntaBSRB stóð fyrir opnum fundi um Evrópusambandið í dag. Þetta var fyrsti fundurinn í röð funda sem BSRB hyggst standa fyrir um Ísland og ESB. Á fundinum var fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og hvaða áhrif aðild að sambandinu gæti haft á íslenskan landbúnað. Framsögumenn voru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.

18.2.2009

Ísland og Evrópusambandið

esblitil
BSRB stendur fyrir opnum fundi um Evrópusambandið föstudaginn 20. febrúar kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og afstöðu sambandsins til landbúnaðarmála. Framsögumenn eru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal. Fundurinn er öllum opinn.

Erlent

Póstlistaskráning


Á döfinni


efnahagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta