Beint á leiðarkerfi vefsins

Norrænt samstarf

NOFS norræn samráðsvettvangur EUREC/EPSU

Hinn norræni samráðsvettvangur EUREC/EPSU er síðan NOFS sem efnir til reglulegra funda til að samræma norrænar áherslur. Í þessum samtökum er tekið á þeim málum sem brenna heitast á samfélaginu nú um stundir, ekki síst einkavæðingu og skipulagsbreytingum á sviði almannaþjónustunnar.

NFS heildarsamtök norrænu verkalýðshreyfingarinnar

BSRB á aðild að NFS, heildarsamtökum norrænu verkalýðshreyfingarinnar. Í stjórn samtakanna eiga sæti þrír Íslendingar, tveir frá ASÍ og einn frá BSRB. Elín Björg Jónsdóttir situr í stjórn NFS fyrir hönd BSRB en Árni Stefán Jónsson er varamaður. Annar þeirra sækir að jafnaði stjórnarfundi NFS en að auki má nefna að forseti ASÍ og formaður BSRB skiptast á að sitja í framkvæmdastjórn NFS og gegnir hvor þeirri stöðu eitt ár í senn. Starf NFS hefur í vaxandi mæli beinst að því að vera undirbúningsvettvangur þar sem norrænu samtökin freista þess að samræma sjónarmið sín gagnvart Evrópusamstarfi og öðru starfi á alþjóðavettvangi.

NTR Samtök opinberra starfsmanna á Norðurlöndum

Samtök opinberra starfsmanna á Norðurlöndum, NTR (Nordiskt tjenstemannaråd), er einnig vettvangur þar sem BSRB lætur til sín taka. Innan NTR hafa farið fram umræður og skoðanaskipti um kjarasamninga, skipulag velferðarþjónustunnar og önnur málefni sem einkum snertir starfsfólk í almannaþjónustu. 


Erlent

Póstlistaskráning


Á döfinni


althjodamal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta