Beint á leiðarkerfi vefsins

PSI

BSRB er aðili að PSI, Alþjóðasambandi starfsfólks í almannaþjónustu. Ögmundur Jónasson fyrrum formaður BSRB situr í stjórn PSI en PSI hefur haldið uppi stöðugum þrýstingi á ýmsar alþjóða­stofnanir á borð við Alþjóðaviðskiptastofnunina, Alþjóðabankann og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn um að virða velferðarsjónarmið og að réttindi launafólks séu í heiðri höfð.

Á þingi PSI 2007 var formlega gengið frá því hvernig samskiptum Evrópusambands starfsfólks í almannaþjónustu, EPSU, og PSI skyldi háttað í framtíðinni. Hinn eiginlega Evrópuhluti PSI hefur verið EUREC sem tekið hefur til allrar Evrópu en ekki aðeins Evrópusambandslandanna eins og raunin hefur verið með EPSU.


Erlent

Póstlistaskráning


Á döfinni


mansal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta