Beint á leiðarkerfi vefsins

Vatn fyrir alla

 

Yfirlýsing: Vatn fyrir alla   

Undirrituð samtök vilja með sameiginlegri yfirlýsingu þessari vekja athygli ríkisstjórnar, sveitarstjórna, stofnana, fyrirtækja og almennings á mikilvægi og sérstöðu vatns fyrir land, þjóð og lífríki. Þótt enginn vatnsskortur sé á Íslandi þá er staðan önnur víðast hvar í heiminum. Gnótt vatns gefur því ekki tilefni til skeytingarleysis af okkar hálfu. Þvert á móti ber okkur að færa lagaumgjörð um vatn í þann búning að hún tryggi rétta forgangsröðun varðandi vatnsvernd og nýtingu og geti verið öðrum þjóðum til fyrirmyndar. Hugsa verður til framtíðar og hafa almannahagsmuni og náttúruvernd að leiðarljósi.

Vatn er takmörkuð auðlind og almannagæði sem er undirstaða alls lífs og heilbrigðis. Vatn er frábrugðið öðrum efnum að því leyti að það finnst náttúrulega í föstu, fljótandi og loftkenndu formi og er aldrei kyrrt á einum stað eða einu eignarlandi heldur á stöðugri hringrás um heiminn.

Undirrituð samtök telja að aðgangur að vatni sé grundvallarmannréttindi, eins og kveðið er á um í samþykktum Sameinuðu þjóðanna sem Ísland hefur undirgengist. Sérhver maður á því rétt á aðgengi að hreinu drykkjarvatni og vatni til hreinlætis og heimilishalds.

Líta ber á vatn sem félagsleg, menningarleg og vistfræðileg gæði sem ekki má fara með eins og hverja aðra verslunarvöru.

Nýting vatns skal vera sjálfbær og aðgengi að því tryggt með lögum fyrir núlifandi kynslóð og kynslóðir framtíðarinnar. Það er skylda stjórnvalda að tryggja þegnum sínum þennan rétt án mismununar.

Það er hlutverk stjórnvalda að tryggja verndun vatns sem náttúruverðmæta sem og að tryggja hollustu og dreifingu vatns til allra þjóðfélagsþegna með fjárfestingu í mannvirkjum og mengunarvörnum. Vatnsveitur verði því reknar á félagslegum grunni, taki mið af almannahagsmunum og tryggi rétt einstaklinga til nægilegs hreins vatns til drykkjar og hreinlætis á viðráðanlegu verði. Það er jafnframt hlutverk stjórnvalda að tryggja að við nýtingu vatns verði öðrum náttúruverðmætum ekki spillt.

Stjórnvöldum ber að tryggja almenningi aðgengi að öllum upplýsingum er varða verndun og nýtingu vatns og stuðla að aukinni virkni almennings og meðvitund um mikilvægi vatns, náttúru og réttrar umgengni við landið.

Vegna mikilvægis vatns fyrir íslenska þjóð og lífríki landsins telja undirrituð samtök nauðsynlegt að fest verði í stjórnarskrá Íslands ákvæði um skyldur og réttindi stjórnvalda og almennings hvað varðar réttindi, verndun og nýtingu vatns. Lög og reglugerðir um nýtingu vatns taki því mið af ákvæðum sem viðurkenna rétt einstaklinga til vatns sem og lögum er varða verndun vatns og náttúru.

Til að tryggja skilvirka verndun og nýtingu vatns ber stjórnvöldum að skipuleggja stjórnsýslu þannig að eðlilegt jafnvægi sé á milli þessara þátta og réttar einstaklinga til aðgengis að vatni.

BSRB, Kennarasamband Íslands, Landvernd, MFÍK, Náttúruverndarsamtök Íslands, SÍB, Þjóðkirkjan, Ungmennafélag Íslands, Unifem á Íslandi, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Öryrkjabandalag Íslands, Landssamband eldri borgara, ASÍ.

ASÍ skrifar upp á vatn fyrir alla

Alþýðusamband Íslands ákvað í dag 5.desember 2005 að verða 14. samtökin sem skrifa upp á yfirlýsinguna “Vatn fyrir alla”. Þá er mikill meirihluti verkalýðshreyfingarinnar búinn að skrifa upp, helstu umhverfissamtök landsins, mannréttindasamtök og samtök tengd Sameinuðu þjóðunum, UMFÍ, Öryrkjabandalagið að ógleymdri Þjóðkirkjunni. Hefur krafan um að fylgt verði áherslum yfirlýsingarinnar Vatn fyrir alla, nú eflst til muna með undirskrift ASÍ.

LEB skrifar undir Vatn fyrir alla

Landssamband eldri borgara samþykkti á stjórnarfundi í gær, fimmtudaginn 24. nóvember 2005, að gera undirskriftaraðili að yfirlýsingunni Vatn fyrir alla. Þar með hafa 13 samtök á landsvísu skrifað undir yfirlýsinguna. Hin 12 eru BSRB, KÍ, SÍB, Náttúruverndarsamtök Íslands, Landvernd, MFÍK, Þjóðkirkjan, Unifem á Íslandi, Mannréttindaskrifstofa Íslands, UMFÍ, Öryrkjabandalag Íslands og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

 

Frásögn og myndir af ráðstefnunni Vatn fyrir alla

Erindi flutt á ráðstefnunni Vatn fyrir alla:

Pétur Gunnarsson: Lifandi vatnið  

Páll H. Hannesson: Vatn og samfélag  

Ingibjörg E. Björnsdóttir: Er vatn sem hver önnur auðlind? 

Nigel Dower: Réttindi til vatns 

Hilmar Malmquist: Vatnið í náttúrunni - náttúran í vötnunum  

Í upphafi var vatnið - vangaveltur um trú og vatn
Grein eftir séra Kristínu Þórunni Tómasdóttur

 

Dagskrá ráðstefnunnar Vatn fyrir alla 29. október 2005 

Vatn til að lifa

Ein af fyrstu ályktununum sem samþykkt var á 9. heimsþingi Alkirkjuráðsins (World Council of Churches) snýr að nýtingu vatnsauðlinda. Þar eru kirkjur hvattar til að beita sér fyrir því að öllum sé tryggður aðgangur til vatns og að þess sé gætt að vatnslindir séu ekki markaðsvara.

 

World Water Forum í Mexíkó     

Um starf PSI á WWF  

Fjölmiðlaumfjöllun um WWF 

Viðtal við fulltrúa Unison á WWF

Alþjóðlegi vatnsdagurinn 2006 - grein frá Mexikó

Opinberar vatnsveitur lykillinn að lausninni

 

Vatn fyrir alla

Aðgangur að hreinu og ódýru vatni er nauðsynlegur fyrir allt líf á jörðinni. Því hefur verið spáð að næstu styrjaldir muni ekki verða um olíu heldur aðgang að vatni. Sameinuðu þjóðirnar hafa nú skilgreint vatn sem grunnmannréttindi og lagt ríkjum heims þá skyldu á herðar að allir geti notið þeirra réttinda. Á sama tíma ásælast alþjóðlegir auðhringir vatnsveitur og vatnsréttindi og hyggjast græða með því að gera mannréttindi að arðvænlegri söluvöru. Fara þeir fram í skjóli samninga eins og GATS og annarra samninga WTO og með atbeina stofnana eins Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðisins. Einkavæðing er lykilorðið og hugmyndin að “vatn er verslunarvara” er hinn siðferðilegi grunnur. Á móti þessari þróun hefur hin alþjóðlega verkalýðshreyfing staðið og eru þar PSI eða Samtök opinberra starfsmanna á alþjóðavettvangi framarlega í flokki. Þau standa í fylkingu með fjölda mannréttindasamtaka, grasrótarhópa, frjálsra félagasamtaka, kirkjulegra samtaka og ótal annarra aðila sem allir vinna að því að tryggja fólki aðgang að þessari grunnforsendu lífsins, vatninu.

Á þessari síðu er að finna tengla inn á síður sem fjalla um vatn í víðu samhengi, rannsóknarskýrslur og úttektir af ýmsu tagi ásamt umræddri samþykkt nefndar Sameinuðu þjóðanna. Auk þess er hér að finna tillögur BSRB sem lagðar voru fram í tilefni lagafrumvarps ríkisstjórnarinnar um hlutafélagavæðingu vatnsveitna á Íslandi.

Fyrirlestur David Hall, 18.nóv.2005, Einkavæðing vatns

Erindi BSRB til Stjórnarskrárnefndar

Vatn og GATS 2006

Er vatnið að renna úr greipum GATS? 2006

Afköst opinbera og einkageirans í vatni, okt. 2005

Rétturinn til vatns- WHO bæklingur

Reclaiming public water 2005

The impact of international service and investment agreements on public policy and law concerning water. Eftir Schrybman

Vatnsveitustarfsmenn í verkfalli vegna svikinna samninga    

Alþjóða vatnsdagurinn - Vatn og hörmungar

Áhrif innri markaðar EES á vatn og almannaþjónustu

EES vill samkeppni um vatn

Áhrif GATS á auðlindina vatn

Athugasemdir BSRB við frumvarp ríkisstjórnarinnar um vatnsveitur

Kranavatnið í boði kóka - kóla? Grein úr BSRB-tíðindum maí 2003

Sameinuðu þjóðirnar skilgreina vatn sem grundvallarmannréttindi

Publications

Cover Reclaiming Public Water

Tenglar inn á áhugaverðar heimasíður:

http://www.psiru.org/reportsindex.asp Safn skýrslna sem PSIRU, rannsóknardeild PSI við Greenwich háskóla hefur unnið og safnað. Hér er að finna rannsóknir m.a. um hvaða afleiðingar einkavæðing vatnsveitna hefur haft í för með sér ásamt fjölmörgum öðrum rannsóknum sem snúa að almannaþjónustu, einkavæðingu og fjölþjóðlegum fyrirtækjum.

http://www.citizen.org/cmep/Water/ Heimasíða Public Citizen, sjálfstæð upplýsingasíða um flestar hliðar málsins. Aðgerðir, skýrslur o.fl.

http://www.icij.org/dtaweb/water/

Heimasíða The Center for public integrity . The Water barons: Fréttir frá öllum heimshornum um umsvif stórfyrirtækja á vatnsmarkaði og viðbrögð við þeim.

http://www.waterobservatory.org/  Upplýsingasíða um réttinn til vatns, um vatn og samninga Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar o.m.fl.

http://www.waterobservatory.org/Library/listContent.cfm Skýrslur um vatn.

http://www.unesco.org/water/wwap/wssd_2002/ Heimasíða S.Þ.stofnunarinnar UNESCO um vatn.

http://www.wdm.org.uk/cambriefs/gatsdemo.pdf  Seattle to Brussel network. Um GATS-samninginn og lýðræði. Kafli um GATS og vatn.

http://www.canadians.org/browse_categories.htm?COC_token=23@@759a676072df78ecdd5bc39343bd5bc6&step=2&catid=217&iscat=1 Listi yfir skýrslur um vatn unnar á vegum Council of Canadians.

http://www.blueplanetproject.net/english/ Alþjóðlegt verkefni á vegum Council of Canadians.

http://www.world-psi.org/psi.nsf/6e53a54ebe88ae01c12568270037cc33/b972147dc8e69a1dc1256867001807ed?OpenDocument  PSI – Public Service International, síða með útgáfum um vatnsmál.

http://www.cupe.ca/www/Research/  Mjög öflug heimasíða CUPE, Sambands opinberra starfsmanna í Kanada. Rannsóknarskýrslur um vatn, einkavæðingu o.m.fl.

Áhugaverðar greinar, skýrslur, samþykktir o.fl. er varða vatn.

 

 

  1. United Nations. Committee on economic, social and cultural rights. Geneva, 11 –29 nóvember 2002. Texti sem skilgreinir vatn sem mannréttindi – ekki verslunarvöru. http://www.waterobservatory.org/library/uploadedfiles
    /right_to_water_Articles_11_and_12_of_the_Inter.pdf
  2. Ríkisstjórn Hollands tryggir opinber yfirráð yfir vatnsveitum.   Vatnsveitur í Hollandi
  3. Water in public hands. Júní 2001. Skýrsla eftir David Hall, háskólanum við Greenwich, unnin fyrir Public Services International Research Unit , PSIRU. Kostir og gallar vatnsveitna í höndum opinbera geirans vs. einkageirans. Ítarleg yfirferð með raunverulegum dæmum. http://www.world-psi.org/psi.nsf/Publications/A348F0664B950B88C1256AB700348439?OpenDocument
  4. The Water multinationals – financial and other problems.Ágúst 2002. Skýrsla eftir David Hall, háskólanum við Greenwich, unnin fyrir Public Services International Research Unit , PSIRU. Skýrsla um framgöngu og stöðu fjölþjóðafyrirtækja í vatnsviðskiptum. Fjallar um fjármál og aðferðafræði þeirra, samþjöppun, um vandamál sem komið hafa upp vegna slælegrar þjónustu við hina fátækari og spillingarmál. http://www.psiru.org/reports/2002-08-W-MNCs.doc
  5. Water multinationals in retreat – Suez withdraws investment. Janúar 2003. Skýrsla eftir David Hall, háskólanum við Greenwich, unnin fyrir Public Services International Research Unit , PSIRU.Hvernig vatnsauðhringir hafa lent í fjárhagslegum vandamálum og hvernig þeir heimta opinbera styrki og aðstoð frá þróunarbankastofnunun eigi þeir að veita hinum fátæku sama aðgang að vatni og sömu þjónustu og þeim ríkari. http://www.psiru.org/reports/2003-01-W-Suez.doc
  6. Thirst for control. Janúar 2002. Skýrsla unnin af einum helsta sérfræðingi Kanada um GATS-samninginn, lögfræðingnum Steven Shrybman fyrir The Council of Canadians. Fjallar um hinn alþjóðlega vatnsiðnað og hvernig kröfur þær sem GATS-samningurinn gerir geta haft úrslitaáhrif á rétt þjóðríkja til að halda vatni í almenningseign, og hvernig hægt er að halda áfram uppi almennum kröfum um hreinleika vatns auk ýmissa annarra hliða á málinum. Rekur fjölmörg dæmi. http://www.canadians.org/display_document.htm?COC_token=COC_token&id=235&isdoc=1&catid=78
  7. The impact of international services and investment agreements on public policy and law concerning water. Janúar 2002. Skýrsla unnin af einum helsta sérfræðingi Kanada um GATS-samninginn, lögfræðingnum Steven Shrybman fyrir The Council of Canadians. Stuttur útdráttur á íslensku fylgir. Rekur hver hugsanleg áhrif GATS-samningsins geta verið varðandi möguleika stjórnvalda á hverjum stað að setja eigin reglur og lög og hvernig gengið er á þetta vald. Einnig hvaða neikvæð áhrif GATS-samningurinn getur haft á möguleika stjórnvalda að setja stranga staðla varðandi hreinlæti vatns, umhverfisvernd og önnur svið sem hingað til hafa verið talin eðlileg umráðasvið innlendra stjórnvalda. Fjallar einnig um sókn alþjóðlegra vatnsfyrirtækja á mörkuðum, þar sem þau stefna að tveimur meginmarkmiðum; að ná undir sig vatnsréttindum og vatnsveitum. http://www.robarts.yorku.ca/pdf/doha_shrybman.pdf
  8. Blue Gold. The Global Water Crises and the Commodification af the World’s Water Supply. Vor 2001. Skýrsla unnin af Maude Barlow fyrir The Council of  Canadians. Fjallar um hversu takmörkuð auðlind vatn er, að neysla vatns tvöfaldist á hverjum tuttugu árum sem er helmingi hraðar en fólksfjölgun í heiminum. Hins vegar skorti milljarð manna aðgang að vatni. Áætlað er að árið 2025 verði þörfin á ferskvatni 56% meiri en núverandi framboð.  Einkavæðing vatnsveitna, sem hefur verið keyrð áfram á síðustu árum, skilji hins vegar hina fátæku eftir og veiti vatni aðeins til þeirra sem geta borgað. Vatn eigi eftir að verða uppspretta stríðs og átaka í framtíðinni ef ekkert er að gert. Á sama tíma gefi ríkisstjórnir frá sér í auknum mæli vald sitt með undirritun alþjóðlegra verslunarsamninga, sem allir hafa það sameiginlegt að ganga út frá markaðnum og réttindum einkafyrirtækja sem grundvallarforsendu. Í raun þjóna þessir samningar helst stórfyrirtækjum sem vilja líta á vatn sem verslunarvöru sem megi hagnast á. Þetta viðhorf standi þvert á þá skoðun að vatn sé grundvallarmannréttindi og forsenda annarra mannréttinda. http://www.canadians.org/display_document.htm?COC_token=COC_token&id=245&isdoc=1&catid=78
  9.   Secret reports and public concerns – a reply to the USAID paper on water privatisation “skeptics”. 07.08.2002. David Hall fyrir PSI. Svar við ásökunum í skýrslu PADCO, ráðgjafafyrirtækis sem vann fyrir vatnsfyrirtæki og aðra aðila hlynta einkavæðingu vatns. Í PADCO skýrslunni voru gagnrýnendur einkavæðingar “teknir á beinið” og reynt að sýna fram á yfirburði einkavæðingar. Í þessari skýrslu er svarað fyrir sig og bent á óvönduð vinnubrögð og misvísandi framsetningu. Áhugaverð innsýn í þau átök sem eiga sér stað um vatn í dag. http://www.psiru.org/reports/2002-08-W-Skeptics.doc
  10. Can risk really be transferred to the private sector? A reiview of experiences with utility privatisation. Nóvember 2002. Kate Bayliss and David Hall, háskólanum við Greenwich, unnin fyrir Public Services International Research Unit , PSIRU. Skýrslan fjallar um hvort einkafyrirtæki sem taka yfir opinbera þjónustu taki í raun þá áhættu eða ábyrgð þau eiga að létta af opinberum stjórnvöldum og sem oft er forsenda þess að ráðist er í einkavæðingu. Skýrslan rekur hvernig áhætta er færð frá einkageiranum og yfir á opinbera geirann. http://www.psiru.org/reports/2002-11-U-risk.doc
  11. Moncton residents dam P3 water plans. Hluti af árskýrslu CUPE (stéttarfélag opinberra starfsmanna í Kanada) um einkavæðingu. Fjallar um hvernig alþjóðafyrirtækið Vivendi ætlaði að ná samningum við Moncton bæjarstjórnina um yfirtöku á vatns- og skólpveitunni og hvernig tókst að gera þær samningaviðræður opinberar. Þegar ýmsir þættir sem áður höfðu farið leynt voru dregnir fram í dagsljósið, neyddist bæjarstjórnin til að draga áætlanir sínar til baka, enda kom í ljós að viðskiptin voru bæjarfélaginu ekki jafn hagstæð og látið hafði verið liggja að. http://www.cupe.ca/www/ARP2002Moncton
  12. The sorry saga of the Montana power company. Montana River Action. Sögð í stuttu máli saga Montana Power Company en þessi frétt var nýverið tekin til umfjöllunar í fréttaþættinum “Sixty minutes” og sýnd á Stöð 2. Segir frá hvernig stjórnendur orkuveitunnar lögðu ofurkapp á að fá lögum og reglugerðum breytt þannig að gjaldskrá fyrirtækisins yrði gefin frjáls og það fengi leyfi til að selja eignir sínar. Stjórn fyrirtækisins gerði sér lítið fyrir og seldi allar eignir orkuveitunnar og fékk álitlegar fjárhæðir í eigin vasa í kjölfarið. Því fylgdi hins vegar stórhækkað rafmagnsverð og að lykilfyrirtæki í fylkinu urðu að hætta starfsemi vegna þess og þúsundir manna misstu vinnu og ævisparnað. Sýnir hverjar afleiðingar “markaðsvæðingar” geta orðið. “Siðlaust en löglegt”. http://www.cbsnews.com/stories/2003/02/06/60minutes/main539719.shtml
  13. Canada on Tap –The environmental implications of water exports. Mars 2002. Skýrsla tekin saman af Jamie Linton fyrir the Council of Canadians. Sýnir fram á umhverfishættur samfara óhóflegri dælingu vatns í tengslum við stórsölu vatns til útflutnings. http://www.canadians.org/display_document.htm?COC_token=COC_token&id=234&isdoc=1&catid=78

 

  1. Public Water Utilities and Prviatisation in Sweden. Desember 2001.

Jan-Erik Gustafsson, erindi fyrir ráðstefnu á vegum EPSU, Evrópusamtaka verkalýðsfélaga í almannaþjónustu. Rekur sögu vatnsveitna í Svíþjóð og lagaumhverfi þeirra. Segir af tilraunum til einkavæðingar og hvernig áherslan er að færast aftur yfir á vatnveitur í opinberri eigu, enda séu þær reknar með samfélagsleg sjónarmið í huga, séu hagkvæmar og skili ódýru og hreinu vatni.

  The Water Barons. Fréttir af vatnsmálum frá The Center for Public Integrity. Segir m.a. frá að þó að Frakkland sé heimaland stærstu alþjóðlegu vatnsfyrirtækjanna að þá vilja Frakkar sjálfir ekki sjá erlenda samkeppni í vatni heima fyrir og er haft eftir Jacques Chirac Frakklandsforseta að “Water supply is very much a public service and we should pay attention that Vivendi doesn’t fall into bad hands”. http://www.icij.org/water/

  1. The Council of Canadians. Nokkur stutt skjöl og yfirlýsingar. A Water Policy for Canada. The Water Watch Summit Declaration, sept. 1999, Five things you should know about water, Our water is not for sale. http://www.canadians.org/display_document.htm?COC_token=23@@759a676072df78ecdd5bc39343bd5bc6&id=238&isdoc=1&catid=248"

Keep water and water services out of the WTO. A civil society call to governments at the WSSD. Júní 2002. Áskorunarskjal til ríkisstjórna, sem sýnir hvaða áhyggjur margir hafa af þróun vatnsmála í tengslum við ýmsa samninga WTO, Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Sjá: http://www.waterobservatory.org/Library/listContent.cfm   

Viðbót – Council of Canadians:

Brochures and Fact Sheets

·         A Water Policy for Canada (Fact Sheet)

·         Five Things You Should Know About Water (Fact Sheet)

Reports and Analysis

Articles and Letters

Viðbót: Síða Public Citizen:

Contact Water for All.

Reports from the Water for All Campaign

Corporate Profiles:

*       Corporate Profile: Bechtel. Profiting from Destruction. Why the Corporate Invasion of Iraq Must be Stopped. June 2003, 39 pages.

*       Corporate Profile: Biwater, plc. January 2003, 9 pages.

*       Corporate Profile: RWE-Thames/ American Water Works. October 2002, 10 pages.

*       Corporate Profile: Saur. September 2003. 12 pages.

*       Corporate Profile: Suez/ United Water. March 2003, 21 pages. Available in Spanish/Espanol here.

*       Corporate Profile: Vivendi/ USFilter. September 2002, 9 pages.

Case Studies:

*       Case Study: Cochabamba, Bolivia. September 2001, 4 pages.

*       Case Study: The Water Privatization "Model": A backgrounder on United Water's Atlanta fiasco. March 2003, 2 pages.

*       Report of the International Fact-Finding Mission on Water Sector Report in Ghana. August 2002. 103 pages.

Reports:

*       A Broken Promise This report presents 13 case studies of municipalities throughout the United States that have had less than positive experiences with water privatization, including inadequate service, higher rates, failure to perform under contractual obligations, and impeded economic development. October 2001, 16 pages.

*       The Big Greedy This report provides a background check on the companies vying to take over New Orleans' water system. August 2001, 8 pages.

*       Double Trouble: Thames Water and OMI - Two companies Stockton could do without This corporate profile details the history of the two companies, British-owned Thames Water and Colorado-based OMI that are partnering to control Stockton, Calif.'s water system. February 2003, 8 pages. (also see Thirsting for Profits)

*       Liquid Assets: Enron's Dip into Water Business Highlights Pitfalls of Privatization This report demonstrates how Enron’s brief tenure in the water business highlights the many risks of water privatization: poor contract performance, political corruption and influence peddling, environmental violations, prospects of water commodification, and uncertainty about the financial stability of private contractors. April 2002, 26 pages.

*       Myth of Private Sector Financing: Global Water Corporations Seek New Public Hand-outs This report analyzes "Financing Water for All," a Report of the World Panel on Financing Water Infrastructure, chaired by Michel Camdessus, former managing director of the International Monetary Fund (IMF). The report was released at the 3rd World Water Forum in Kyoto, Japan, and was harshly criticized by civil society. March 2003, 2 pages.

*       Profit Streams: World Bank and Greedy Global Water Companies This report addresses a dangerous new frontier where the World Bank’s privatization and liberalization policies are encroaching: water. The World Bank, in alliance with the global water companies, is advocating a new power grab to place a natural resource under the command of transnational corporations and market-oriented policies. September 2002, 20 pages. The report is also available in French here.

*       Public-public partnerships: A backgrounder on successful water/wastewater reengineering programs This report features four case studies of U.S. cities that kept ownership in public hands by reorganizing the operation and management of their own system successfully in order to save money, reward employees, and enhance services. November 2002, 4 pages.

*       Reclaiming Public Assets: From Private to Public Ownership of Waterworks This report documents six case studies of cities that have either purchased waterworks from a private company or are currently pursuing a buyout. From Lexington, Ky. to Peoria, Ill., strong evidence suggests that water utilities should be kept in the public trust and not treated as a commodity by private investors. September 2002, 17 pages.

*       Thirsting for Profits: A background check on the corporations vying to takeover Stockton's water system This report details the histories of Thames Water and OMI, the two companies seeking control of Stockton, Calif.'s water system, and explains how their partnership is bidding to takeover the public infrastructure. October 2001, 8 pages. (also see Double Trouble)

*       Two for the Road: An update of the companies vying for control of New Orleans' water This report examines recent developments connected to the two corporate finalists being considered by the New Orleans Sewerage and Water Board: USFilter and United Water. September 2002, 11 pages.

*       Water Privatization Fiascoes: Broken Promises and Social Turmoil This report features seven case studies of failed privatization efforts around the world, including Nelspruit, South AfricaAtlanta, GeorgiaBuenos Aires, ArgentinaManila, PhilippinesCochabamba, BoliviaJakarta, Indonesia; and the United Kingdom. March 2003, 14 pages.


Erlent

Póstlistaskráning


Á döfinni


efnahagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta