Greinar
Grein Þórveigar í Fréttablaðinu
Þórveig Þormóðsdóttir, formaður jafnréttisnefndar BSRB skrifaði grein í Fréttablaðið sem birtist 1. mars 2011. Í greininni skrifar hún um niðurskurð í velferðarkerfinu sem gangi þvert gegn yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð. Jafnréttisnefnd BSRB hafi varað við þessu og hafnað atvinnustefnu á kostnað kvenna, í ályktun sem samþykkt var í júní 2009. Nýlegt svar velferðarráðherra við fyrirspurn á Alþingi sýni að 92 konur muni missa störf sín alfarið vegna niðurskurðar í fjárlögum 2011 og 15 karlar. Þá muni 75,6 stöðugildi kvenna sæta skerðingu á starfshlutfalli á móti 11,1 stöðugildi karla.
Þórveig segir að þörfin fyrir gott velferðarkerfi hafi aldrei verið meiri og ekki megi gleyma því að það bólgnaði ekki út í góðærinu. Ekki sé því af miklu að taka þar til niðurskurðar.
"Að grípa til uppsagna þar, með tilheyrandi lokunum, gengur því þvert á markmið ríkisstjórnar um samþættingu jafnréttissjónarmiða við almenna fjárlagagerð. Þar er frekar kynleg hagstjórn og fjárlagagerð á ferð," segir Þórveig.
Grein Þórveigar má nálgast hér.
Ályktun jafnréttisnefndar má nálgast hér.
Jafnrétti
Á döfinni
Leit
























