Kynjabókhald BSRB 2010
Jafnréttisnefnd BSRB tekur árlega saman helstu kynjatölur fyrir bandalagið og vinnur úr þeim kynjabókhald BSRB. Kynjabókhaldið var birt í fyrsta sinn á kvennafrídeginum 25. október 2010.
Samkvæmt ályktun um jafnréttismál 42. þings BSRB er haldið var í október 2009 er eitt af hlutverkum BSRB að gæta þess og fylgja því eftir að gætt sé að mannréttindum. Hugtakið felur í sér að allir eiga rétt á að njóta mannréttinda án mismununar, eins og til að mynda vegna kynferðis, kynhneigðar, kynþáttar, litarháttar, aldurs, trúar, tungumáls, búsetu, stjórnmálaskoðana, þjóðernis, félagslegrar stöðu, fötlunar eða efnahags.
Í samræmi við ályktunina um jafnréttismál hefur jafnréttisnefnd BSRB unnið að gerð kynjabókhalds. Í kynjabókhaldinu er að finna upplýsingar um hin ýmsu kynjahlutföll innan BSRB og þar gefur að líta gröf og línurit yfir kynskiptingu félagsmanna, stjórna aðildarfélaga, stjórnar og skipaðra fulltrúa á vegum BSRB. Einnig hlutfall kvenna og karla innan aðildarfélaga BSRB og hlutfallslega skiptingu félags-, stjórnar-, og nefndarmanna innan aðildarfélaga. Í annarri útgáfu kynjabókhaldsins var bætt við upplýsingum um en að þessu sinni hefur verið bætt við upplýsingum um kynjahlutföll tilnefndra fulltrúa nefnda stjórnar og ráða á vegum BSRB.
Ábyrgðarmaður kynjabókhaldsins er Sonja Ýr Þorbergsdóttir lögfræðingur BSRB og starfsmaður jafnréttisnefndar.
Kynjabókhald BSRB 2010 má finna hér.
Kynjabókhald BSRB 2011 má finna hér.
Kynjabókhald BSRB 2012 má finna hér.
Jafnrétti
Á döfinni
Leit
























