Beint á leiðarkerfi vefsins

Heilbrigðis- og velferðarhópur BSRB

Stjórn BSRB ákvað á fundi sínum 10. desember 2009 að innan BSRB verði starfandi heilbrigðis- og velferðarhópur. Hlutverk hópsins er að fylgja eftir áherslum 42. þings BSRB í ályktun þingsins um opinbera almannaþjónustu og ályktun um nýsköpun í almannaþjónustu, ásamt ályktun um félagsmál. Hlutverk hópsins er einnig að vera leiðbeinandi fyrir stjórn um heilbrigðis- og velferðarmál. Hópurinn á að afla upplýsinga um aðstæður félagsmanna BSRB sem starfa innan velferðar­þjónustunnar og fylgjast með umræðum og vera bakland fyrir Velferðarvakt ríkis­stjórnar­innar þar sem BSRB á fulltrúa. Stjórn og/eða framkvæmdanefnd BSRB getur falið heilbrigðis- og velferðarhópnum önnur verkefni eftir þörfum.

Með hópnum starfar Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB.
Stjórn BSRB hefur ákveðið að eftirtaldir fulltrúar skipi hópinn 2009-2012:
Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB,Anna Atladóttir SFR, Guðrún Árnadóttir StRv, Kristín Ólafsdóttir SLFÍ, Guðrún Siglaugsdóttir Kjölur, Árni Egilsson St. Skagafjörður, Valdimar Leó Friðriksson LSS.

Félög sem ekki eiga fulltrúa í heilbrigðis- og velferðarhópi hafa tilnefnt eftirtalda aðila sem tengiliði félaganna:
Haraldur Eggertsson Sth, Jófríður Sigfúsdóttir Stk.

Tengiliðirnir fá upplýsingar jöfnum höndum um starf heilbrigðis og velferðarhópsins.


Kjaravefur

Póstlistaskráning


Á döfinni


fræðslumál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta