Beint á leiðarkerfi vefsins

42. þing BSRB

Ályktanir 42. þings BSRB

thingsalyktanir42svuntaKominn er út bæklingur með ályktunum 42. þings BSRB sem haldið var dagana 21. - 23. október 2009. Í bæklingnum eru allar ályktanir þingsins en þar kemur fram stefna BSRB í öllum helstu málaflokkum sem varða félagsmenn BSRB og mótun framtíðarsamfélags jöfnuðar, atvinnu, velferðar og réttlætis, eins og yfirskrift þingsins var.

Nú er þörf á réttlæti

Elin-B-J---ÞINGSLITsvuntaNú er þörf á réttlæti - þegar tekjur þjóðarinnar dragast saman þarf að jafna gæðunum. Við þurfum að virkja réttlætiskennd þjóðarinnar og við þurfum að sýna hugkvæmni til að brjótast út úr aðsteðjandi vanda. Það á ekki síst við um samtök launafólks sem standa frammi fyrir geigvænlegum niðurskurði, sagði Elín Björg Jónsdóttir nýkjörinn formaður BSRB m.a. í ræðu sinni þegar hún sleit 42. þingi BSRB.

Framkvæmdanefnd BSRB kjörin

FramkvæmdanefndsvuntaAð afloknu kjöri formanns BSRB var gengið til atkvæða um aðra fulltrúa í framkvæmdanefnd. Árni Stefán Jónsson formaður SFR var kjörinn 1. varaformaður BSRB, Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var kjörinn 2. varaformaður, Þuríður Einarsdóttir formaður Póstmannafélags Íslands var kjörin gjaldkeri og Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands var kjörin ritari. Þau voru öll sjálfkjörin.

Elín Björg Jónsdóttir er nýr formaður BSRB

Elin-BjorgsvuntaElín Björg Jónsdóttir formaður FOSS var kjörin formaður BSRB með 52,38% atkvæða rétt í þessu eða 132 atkvæði af 252. Hún náði kjöri í fyrstu umferð. Árni Stefán Jónsson formaður SFR fékk 82 atkvæði eða 32,54% og Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar fékk 38 atkvæði eða 15,08%. Snorri Magnússon dormaður Landssambands lögreglumanna dró framboð sitt til baka skömmu áður en atkvæðagreiðsla hófst.

Verja á kaupmátt launafólks

„Verja skal kaupmátt almenns launafólks en hann hefur rýrnað mikið á síðustu mánuðum. Stefna ber að kjarajöfnuði því mikill mismunur er enn fyrir hendi þrátt fyrir að dregið hafi úr ofurlaunum í samfélaginu. Mikilvægt skref í þá átt er að eyða kyn­bundnum launa­­mun og greiða sömu laun fyrir sambærilega vinnu," segir m.a. í ályktun 42. þings BSRB  um kjaramál.

Niðurskurðurinn bitni ekki á grunnþjónustunni

„Tryggja þarf að aukin greiðslubyrði hins opinbera á næstu árum bitni ekki á grunnþjónustu í samfélaginu. Almannaþjónustan er mikilvægur hluti af atvinnulífinu og skilar samfélaginu miklum arði. Niðurskurður er því skammgóður vermir, hann er kostnaðarsamur og mun þar á ofan leiða til aukins atvinnuleysis," segir m.a. í ályktun 42. þings BSRB um atvinnumál.

Skilyrði AGS verði endurskoðuð

BSRB krefst þess að skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir lánveitingum verði endurskoðuð í ályktun sem 42. þing bandalagsins hefur samþykkt.

Kosning formanns upp úr hádegi

BSRB---frambjodendursvuntaKosning formanns BSRB fer fram upp úr hádegi í dag á þingi bandalagsins. Eins og kunnugt er hefur Ögmundur Jónasson ákveðið að hætta sem formaður eftir að hafa gegnt starfinu í 21 ár. Fjórir hafa gefið kost á sér til formennsku en til þess að vera réttkjörinn formaður þarf viðkomandi að njóta stuðnings meira en helmings þingfulltrúa.

Staða mála í heiminum. Hvað er til ráða?

Pall-Skulason-42.-thing-09sÁ þingi BSRB í dag flutti Páll Skúlason prófessor fyrirlestur sem nefndist: „Staða mála í heiminum. Hvað er til ráða?" Í fyrirlestrinum fjallaði hann um orsakir kreppunnar og hvert bæri að stefna í framtíðinni.

Málefni

Póstlistaskráning


Á döfinni


felagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta