Beint á leiðarkerfi vefsins

42. þing BSRB

Nú er þörf á réttlæti

Elin-B-J---ÞINGSLITsvuntaNú er þörf á réttlæti - þegar tekjur þjóðarinnar dragast saman þarf að jafna gæðunum. Við þurfum að virkja réttlætiskennd þjóðarinnar og við þurfum að sýna hugkvæmni til að brjótast út úr aðsteðjandi vanda. Það á ekki síst við um samtök launafólks sem standa frammi fyrir geigvænlegum niðurskurði, sagði Elín Björg Jónsdóttir nýkjörinn formaður BSRB m.a. í ræðu sinni þegar hún sleit 42. þingi BSRB.

Framkvæmdanefnd BSRB kjörin

FramkvæmdanefndsvuntaAð afloknu kjöri formanns BSRB var gengið til atkvæða um aðra fulltrúa í framkvæmdanefnd. Árni Stefán Jónsson formaður SFR var kjörinn 1. varaformaður BSRB, Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var kjörinn 2. varaformaður, Þuríður Einarsdóttir formaður Póstmannafélags Íslands var kjörin gjaldkeri og Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands var kjörin ritari. Þau voru öll sjálfkjörin.

Elín Björg Jónsdóttir er nýr formaður BSRB

Elin-BjorgsvuntaElín Björg Jónsdóttir formaður FOSS var kjörin formaður BSRB með 52,38% atkvæða rétt í þessu eða 132 atkvæði af 252. Hún náði kjöri í fyrstu umferð. Árni Stefán Jónsson formaður SFR fékk 82 atkvæði eða 32,54% og Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar fékk 38 atkvæði eða 15,08%. Snorri Magnússon dormaður Landssambands lögreglumanna dró framboð sitt til baka skömmu áður en atkvæðagreiðsla hófst.

Verja á kaupmátt launafólks

„Verja skal kaupmátt almenns launafólks en hann hefur rýrnað mikið á síðustu mánuðum. Stefna ber að kjarajöfnuði því mikill mismunur er enn fyrir hendi þrátt fyrir að dregið hafi úr ofurlaunum í samfélaginu. Mikilvægt skref í þá átt er að eyða kyn­bundnum launa­­mun og greiða sömu laun fyrir sambærilega vinnu," segir m.a. í ályktun 42. þings BSRB  um kjaramál.

Niðurskurðurinn bitni ekki á grunnþjónustunni

„Tryggja þarf að aukin greiðslubyrði hins opinbera á næstu árum bitni ekki á grunnþjónustu í samfélaginu. Almannaþjónustan er mikilvægur hluti af atvinnulífinu og skilar samfélaginu miklum arði. Niðurskurður er því skammgóður vermir, hann er kostnaðarsamur og mun þar á ofan leiða til aukins atvinnuleysis," segir m.a. í ályktun 42. þings BSRB um atvinnumál.

Skilyrði AGS verði endurskoðuð

BSRB krefst þess að skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir lánveitingum verði endurskoðuð í ályktun sem 42. þing bandalagsins hefur samþykkt.

Kosning formanns upp úr hádegi

BSRB---frambjodendursvuntaKosning formanns BSRB fer fram upp úr hádegi í dag á þingi bandalagsins. Eins og kunnugt er hefur Ögmundur Jónasson ákveðið að hætta sem formaður eftir að hafa gegnt starfinu í 21 ár. Fjórir hafa gefið kost á sér til formennsku en til þess að vera réttkjörinn formaður þarf viðkomandi að njóta stuðnings meira en helmings þingfulltrúa.

Staða mála í heiminum. Hvað er til ráða?

Pall-Skulason-42.-thing-09sÁ þingi BSRB í dag flutti Páll Skúlason prófessor fyrirlestur sem nefndist: „Staða mála í heiminum. Hvað er til ráða?" Í fyrirlestrinum fjallaði hann um orsakir kreppunnar og hvert bæri að stefna í framtíðinni.

Glæsilegur hátíðarfundur með Ögmundi

Ogmundur-avarp-loksvuntaHátíðardagskrá til heiðurs Ögmundi Jónassyni formanni BSRB sem haldin var í Háskólabíói í gær var mjög fjölsótt og vel heppnuð. Hátíðin var haldin í tilefni af því að Ögmundur hættir nú sem formaður BSRB eftir að hafa gegnt því starfi í 21 ár.

Okkar hlutverk er að toga fyrir þá sem standa höllum fæti

OJ-svunta„Við eigum að horfast í augu við það að í þjóðfélaginu ríkir togstreita - það er okkar hlutverk að toga fyrir þá sem standa höllum fæti gagnvart fjármagni og valdi. Það breytir því ekki að togstreitunni á jafnan að beina í eins jákvæðan og uppbyggilegan farveg og kostur er. Ég vil að við séum sem ein fjölskylda. En þá verðum við líka að vera það í reynd," sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. þegar hann ávarpaði þing BSRB við setningu  þess kl. 11 í morgun á Grand hóteli. Ögmundur hættir nú sem formaður BSRB eftir að hafa gegnt því starfi í 21 ár og var honum þökkuð störf með því að þingheimur reis úr sætum og ætlaði lófaklappi aldrei að linna.

Dagskrá til heiðurs Ögmundi Jónassyni

hatidojlitilHátíðardagskrá til heiðurs Ögmundi Jónassyni formanni BSRB verður haldin í Háskólabíói miðvikudaginn 21. október kl. 17.30. Húsið er opnað kl. 17.

42. þing BSRB

42. þing BSRB verður haldið dagana 21. til 23. október á Grand Hóteli í Reykjavík. Yfirskrift þingsins er: Framtíð byggð á jöfnuði, atvinnu, velferð og réttlæti. Þingsetning er kl. 11.00 miðvikudaginn 21. október.

Dagskrá 42. þings BSRB

42. þing BSRB                                                                                               
21. - 23. október 2009            

Miðvikudagur 21. október

11:00   Þingsetning á Grand Hóteli               
12:30   Hádegisverður á Grand Hóteli                       
13:30   Nafnakall þingfulltrúa
Kjörbréf lögð fram til úrskurðar
14:00   Kosning starfsmanna þingsins
a) forseta og tveggja varaforseta
b) tveggja þingritara og tveggja til vara
c) kosning þingnefnda           
14:15   Lögð fram skýrsla stjórnar
15:00   Umræður um skýrslu stjórnar
Lögð fram þingmál og vísað til nefnda
17:00   Þingstörfum frestað til 22. október
17:30   Hátíðardagskrá í Háskólabíó              

Fimmtudagur 22. október

08:30   Nefndastörf
12:00   Hádegisverður á Grand Hóteli
13:00   Gestafyrirlesari
14:00   Nefndaálit, umræður og afgreiðsla þingmála
16:00   Framhald afgreiðslu mála       
19:00   Kvöldverður á Grand Hóteli
20:30   Kvöldfundur ef þörf krefur

Föstudagur 23. október

08:30   Nefndaálit, umræður og afgreiðsla þingmála
12:00   Hádegisverður á Grand Hóteli
13:00   Önnur mál
14:00   Kosningar       
18:00   Þingslit

42. þing BSRB

42. þing BSRB verður haldið á Grand hótel dagana 21. - 23. október nk. Áætlaður fjöldi þingfulltrúa er um 260 og verða þeim send öll gögn sem varða þingið fyrir lok september.

42. þing BSRB

42. þing BSRB verður haldið á Grand hótel dagana 21. - 23. október nk. Áætlaður fjöldi þingfulltrúa er um 260 og verða þeim send öll gögn sem varða þingið fyrir lok september.


Málefni

Póstlistaskráning


Á döfinni


felagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta