Aðalfundur
BSRB varar við einhliða launalækkunum og vill endurskoðun vísitölugrunns lána
8.12.2008
Framhaldsaðalfundur BSRB á mánudag
5.12.2008
Fyrirlestrar fulltrúa lífeyrissjóðanna á aðalfundi BSRB
5.11.2008
Ögmundur formaður BSRB í 20 ár
22.10.2008
Í tilefni af því að tuttugu ár eru liðin síðan Ögmundur Jónasson var kjörinn formaður BSRB afhenti Þuriður Einarsdóttir honum blómvönd frá BSRB á aðalfundi bandalagsins 17. október sl. Ögmundur var formaður Starfsmannafélags Sjónvarpsins þegar hann var kjörinn formaður BSRB 21. október 1988. Hann tók við af Kristjáni Thorlacius sem þá hafði gegnt formennsku bandalagsins í 28 ár.
Styrkjum innviðina - sannleikann í ljós
17.10.2008
Aðalfundur BSRB hafnar því að almennt launafólk beri allan herkostnað af bruðli og óhófi undangenginna ára. Þá krefst fundurinn ítarlegrar rannsóknar sem leiði í ljós hverjir eru ábyrgir fyrir skuldsetningu bankakerfisins og þar með þjóðarinnar. Einnig þarf að upplýsa um hvernig þessum fjármunum hefur verið ráðstafað í einkaþágu gæslumanna fjárins. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar BSRB sem haldinn var í dag, 17. október, en ályktunin ber yfirskriftina Styrkjum innviðina - sannleikann í ljós.
Aðalfundur BSRB
16.10.2008
Aðalfundur BSRB verður haldinn á morgun, föstudaginn 17. október, og hefst hann kl. 9.00. Auk venjubundinna aðalfundarstarfa verður fjallað sérstaklega um stöðu lífeyrissjóða sem félagar í BSRB eiga aðild að og ástandið í efnahagsmálum óg áhrif þess á komandi kjarasamninga.
Málefni
Á döfinni
Leit
























