Aðalfundur
Fundargerð aðalfundar 15. október 2010
27.10.2010
Aðalfundur BSRB vill lagabreytingu
18.10.2010
Ríkisstjórnin vegur að velferðinni
15.10.2010
Aðalfundur BSRB telur að tillögur ríkisstjórnarinnar um niðurskurð í velferðarkerfinu vegi að því samfélagi sem gengnar kynslóðir hafa byggt upp. Velferðarkerfið er hornsteinn samfélagsins og Ísland getur ekki kennt sig við norræna velferð, nái tillögurnar fram að ganga. Í ályktun fundarins eru kjörnir fulltrúra minntir á ábyrgð sína, hvort heldur sem er í sveitarstjórnum eða á Alþingi.
Velferðarkerfið mildar áhrif kreppunnar
15.10.2010
Stefán Ólafsson prófessor segir að öflugt velferðarkerfi hafi valdið því að kreppan hitti Íslendinga ekki eins illa fyrir og margar aðrar þjóðir. Velferðarkerfið muni þannig nýtast til að milda höggið sem efnahagshrunið hafði í för með sér. Stefán hélt erindi á aðalfundi BSRB sem stendur nú yfir. Þar sýndi hann tölulegar staðreyndir um að lífskjör fólks eru best þar sem velferðarkerfið er sterkast, til að mynda á Norðurlöndunum.
Mikilvægi velferðarríkisins á aðalfundi BSRB
12.10.2010
Stefán Ólafsson prófessor mun halda erindi á aðalfundi BSRB á föstudag. Stefán mun þar fjalla um mikilvægi velferðarríkisins, en hann hefur safnað saman gögnum um lífskjör í hinum ýmsu þjóðfélögum víða um heim og bent á mikilvægi velferðarkerfisins þegar kemur að lífshamingju fólks. Í ljósi hugmynda ríkisstjórnarinnar um niðurskurð í velferðarkerfinu og komandi kjarasamninga, er ekki úr vegi að beina sjónum að því hvað það er sem gerir Ísland að velferðarríki.
Málefni
Á döfinni
Leit
























