Aðalfundur
Grein formanns BSRB í Fréttablaðinu í dag
26.10.2011
Fréttablaðið birti í dag grein Elínar Bjargar Jónsdóttur, formanns BSRB, þar sem hún fjallar um stöðu Fæðingarorlofssjóðs og skatta á inngreiðslur séreignarlífeyrissparnaðar. Grein Elínar Bjargar fylgir þannig eftir ályktunum nýafstaðins aðalfundar BSRB þar sem fjallað var um báða málaflokkana.
„Félagsleg samheldni skilar samfélaginu meiru en einstaklingshyggja"
25.10.2011
Torben M. Andersen, prófessor við hagfræðideild Árósarháskóla, hélt á föstudag erindi á aðalfundi BSRB. Fjallaði Torben um velferðarkerfi Norðurlandanna í víðu samhengi og leiðrétti um leið margar rangfærslur sem haldið hefur verið fram um velferðarkerfið í íslenskri umræðu síðustu misseri.
Ályktun aðalfundar BSRB
21.10.2011
Aðalfundur BSRB fór fram í dag, föstudaginn 21. október, í BSRB-húsinu að Grettisgötu 89. Dagurinn hófst með erindi Torbens M. Andersen, hagfræðiprófessors við Árósaháskóla, og síðan tóku hefðbundin aðalfundarstörf við. Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundinum og send út að honum loknum.
Torben M. Andersen á opnum fundi hjá BSRB
20.10.2011
Torben M. Andersen, prófessor við hagfræðideild Árósaháskóla, heldur erindi um norrænu velferðarkerfin á tímum niðurskurðar í BSRB-húsinu að Grettisgötu 89 á morgun, 21. október kl.10:00. Erindið er öllum opið og að því loknu mun hann svara spurningum viðstaddra.
Aðalfundur BSRB, Torben M. Andersen sérstakur gestur
15.10.2011
Aðalfundur BSRB fer fram þann 21. október næstkomandi í BSRB-húsinu að Grettisgötu 89. Torben M. Andersen, hagfræði prófessor við Árósaháskóla, verður sérstakur gestur á fundinum og verður hann með erindi frá kl. 10 að morgni og fram að hádegi. Að matarhléi loknu munu svo hefðbundin aðalfundarstörf taka við.
Málefni
Á döfinni
8. júní 2012
24. ágúst 2012
21. september 2012
Leit
























