Aðalfundur
Styrkjum innviðina - sannleikann í ljós
17.10.2008
Aðalfundur BSRB hafnar því að almennt launafólk beri allan herkostnað af bruðli og óhófi undangenginna ára. Þá krefst fundurinn ítarlegrar rannsóknar sem leiði í ljós hverjir eru ábyrgir fyrir skuldsetningu bankakerfisins og þar með þjóðarinnar. Einnig þarf að upplýsa um hvernig þessum fjármunum hefur verið ráðstafað í einkaþágu gæslumanna fjárins. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar BSRB sem haldinn var í dag, 17. október, en ályktunin ber yfirskriftina Styrkjum innviðina - sannleikann í ljós.
Ályktunin birtist orðrétt hér
Mikil umræða varí tengslum við ályktunina um stöðuna í efnahags- og fjármálum þjóðarinna og það ástand sem skapast hefur vegna skipbrots bankanna . Þá voru málefni lífeyrissjóðanna í brennidepli og fluttu þeir Haukur Hafsteinsson frá LSR, Guðmundur Pálsson frá Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda, Kristján Sigurlaugsson frá LSS og Hrafn Magnússon frá Landssambandi lífeyrissjóða erindi um stöðu mála í einstökum sjóðum og almennt hjá lífeyrissjóðunum.
Málefni
Á döfinni
9. september 2010
4. október 2010
14. október 2010
Leit






















