Efnahagsþrengingar
Greiðslujöfnun og skuldaaðlögun
5.11.2009
Í fréttum BSRB 28. október s.l. var fjallað um ný lög sem sett hafa verið með það að markmiði að draga úr skuldavanda heimilanna. Í kjölfarið voru undirritaðir samningar 31. okt s.l. til að lækka greiðslubyrði einstaklinga af fasteignaveðlánum, bílalánum og bílasamningum. Einstaklingar og fjölskyldur geta nú sótt um greiðslujöfnun þessara lána og samninga þannig að greiðslubyrðin mun lækka frá og með gjalddaga í desember. Um greiðslujöfnun fasteignaveðlána í innlendri mynt þarf hins vegar ekki að sækja - hún gerist sjálfkrafa ef lán eru í skilum nema henni sé hafnað sérstaklega.
Lög sem taka á skuldavanda heimilanna
28.10.2009
23. október s.l. samþykkti Alþingi lög um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins haustið 2008. Lögunum er ætlað að hvetja til hraðrar endurreisnar íslensks efnahagslífs með endurskipulagningu fjárhags fyrirtækja og einstaklinga.
LSR og fjármálakreppan
8.4.2009
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins boðar til fundar með sjóðfélögum, miðvikudaginn 15. apríl. Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica hóteli, Suðurlandsbraut 2 og hefst hann kl. 16.30. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum.
Samstaða, samvinna og samráð
6.4.2009
Troðfullt var á fundi Ögmundar Jónassonar heilbrigðisráðherra með trúnaðarmönnum verkalýðsfélaga innan heilbrigðisþjónustunnar þar sem staða mála og framtíðarhorfur voru til umræðu. Í máli hans kom fram að aldrei hefur verið mikilvægara að standa vörð um heilbrigðisþjónustuna en nú og til þess þurfi samstöðu allra sem innan hennar vinna. Ögmundur sagði að sam- væri mikilvægasta forskeyti dagsins í dag og komandi framtíðar. Samstaða, samvinna og samráð ættu að vera leiðarljósið við þau verkefni sem framundan væru í heilbrigðisþjónustunni.
Námsstefna um vinnumarkaðsúrræði
23.3.2009
Nefnd á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytis er vinnur að vinnumarkaðsúrræðum stendur fyrir námsstefnu föstudaginn 3. apríl nk. á Hótel Sögu kl. 9 - 12. Á námstefnunni verður fjallað um tækifæri og úrræði fyrir einstaklinga sem hafa misst atvinnuna. Fjallað verður um breytingar á vinnumarkaðslöggjöfinni og hvaða möguleikar felast í þeim.
Vafasöm verðtrygging?
12.3.2009
Umdeilanlegt er hversu sanngjarn og réttur útreikningur á verðtryggingu lána vegna íbúðarhúsnæðis er nú um stundir. Eins og kunnugt er hækka verðtryggðar skuldir í takt við verðbólguna eins og hún mælist hverju sinni. En hvernig er verðbólgan mæld? Um þetta og t.d. skoðanir stjórnmálamanna á verðtryggingunni má lesa í grein Einars Árnasonar hagfræðings BSRB sem birtist í febrúarblaði SFR.
Spurt og svarað um uppsagnir o.fl.
2.3.2009
Hvenær hefst uppsagnarfrestur? Hvað er hann langur? Hver er réttur starfsmanna varðandi launalækkun? Má segja upp fastri yfirvinnu? Þetta eru örfáar spurningar sem starfsmenn BSRB hafa þurft að svara ítrekað að undanförnu vegna aðhaldsaðgerða og niðurskurðar stofnana og fyrirtækja. Sonja Ýr Þorbergsdóttir lögfræðingur BSRB hefur tekið saman ýmsar upplýsingar um réttarstöðu starfsmanna á vinnumarkaði þar sem ofangreindum spurningum og fleirum er svarað.
LL hvetur mótmælendur til að gæta hófs
23.1.2009
Landssamband lögreglumanna sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem framganga tiltekinna einstaklinga í mótmælunum að undanförnu er fordæmd og bent er á að hópur lögreglumanna sé slasaður eftir atburði undanfarinna daga. Í tilkynningunni er hvatt til þess að fólk gæti hófs við mótmælin. Þá er minnt á að það ástand sem uppi er í þjóðfélaginu bitni ekkert síður á lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra en öðrum landsmönnum.
Útifundur á Selfossi í hádeginu
18.12.2008
Grasrótarhreyfing óánægðra íbúa á Suðurlandi stendur fyrir útifundi við Landsbankann á Selfossi í hádeginu í dag kl 12:30. Frummælendur eru Elín Björg Jónsdóttir formaður Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi og varaformaður BSRB, Bjarni Harðarson bóksali og Sigríður Jónsdóttir kennari og ljóðskáld.
Málefni
Á döfinni
9. september 2010
14. september 2010
4. október 2010
Leit






















