Efnahagsþrengingar
Útifundur á Selfossi í hádeginu
18.12.2008
Réttur almennings til að mótmæla er ótvíræður
16.12.2008
"Réttur almennings til að mótmæla er ótvíræður og sýnir stjórn BSRB þeim mótmælum sem fram hafa farið að undanförnu mikinn skilning. Brotið hefur verið á almenningi og reiði fólks er mikil," segir í ályktun sem stjórn BSRB hefur sent frá sér.
Tekjutengdar lífeyrisgreiðslur Íslendinga erlendis miðaðar við gengi janúar 2008
15.12.2008
Atvinnuleysistryggingasjóður tæmist næsta haust
11.12.2008
Atvinnuleysis-tryggingasjóður tæmist í október á næsta ári gangi spár Vinnumálastofnunar eftir. Þetta kom fram í erindi Gissurar Péturssonar forstjóra Vinnimálastofnunar á opnum fundi sem BSRB hélt í gær. Auk Gissurar flutti Gylfi Dalmann dósent við Háskóla Íslands erindi um íslenska vinnumarkaðinn.
Vinnumarkaðurinn og atvinnuhorfur framundan
9.12.2008
Hvert stefnir í efnahagsmálum þjóðarinnar?
4.12.2008
Opinn fundur BSRB um framtíðarþróun efnahagsmála á Íslandi var afar fróðlegur. Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands og Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra ræddu aðdraganda kreppunnar og þá kosti sem væru í stöðunni til að vinna sig út úr henni en þar skiptir peningastefnan höfuðmáli.
Framtíðin - með eða án krónu
4.12.2008

Opinn fundur verður á vegum BSRB í dag kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Yfirskrift fundarins er Framtíðin - með eða án krónu. Framsögu hafa Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands og Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra.
Fróðlegur og upplýsandi fundur
26.11.2008
Fundur BSRB með fulltrúum viðskiptabankanna var mjög fróðlegur og upplýsandi um það hvernig bankarnir hyggjast bregðast við greiðsluvanda viðskiptavina sinna vegna efnahagsástandsins í landinu. Yfirskrift fundarins var „Hvað gerir bankinn fyrir þig?" og bentu frummælendur á þau úrræði sem í boði eru og fyrirhuguð eru á næstunni.
Hvað gerir bankinn fyrir þig?
25.11.2008
Fjölmenni á velheppnuðum útifundi á Ingólfstorgi
24.11.2008
Fjölmenni sótti útifund BSRB, Félags eldri borgara í Reykjavík, Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags Íslands, á Ingólfstorgi síðdegis í dag. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að beita öllum tiltækum ráðum til að verja velferðarkerfið sem byggt hefur verið upp af almenningi á undanförnum áratugum. Þegar kreppi að í samfélaginu sé mikilvægt að beita velferðarkerfinu til jöfnunar. Áralangri baráttu fyrir réttlátu þjóðfélagi megi ekki kasta á glæ.
Samstöðufundur á Ingólfstorgi - Verjum velferðina!
21.11.2008
BSRB, Félag eldri borgara í Reykjavík, Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands standa fyrir útifundi á Ingólfstorgi mánudaginn 24. nóvember nk. kl. 16:30. Tilefni fundarins er óvissuástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar, kjaraskerðing sem nú þegar blasir við mörgum og síðast en ekki síst hugmyndir stjórnvalda um stórkostlegan niðurskurð á útgjöldum til velferðar.
Líflegur fundur um kosti og galla verðtryggingar
20.11.2008
Opinn fundur BSRB um kosti og galla verðtryggingar var vel sóttur og sköpuðu erindi Ingólfs H. Ingólfssonar félagsfræðings og Péturs H. Blöndal alþingismanns líflegar umræður.
Verðtrygging til góðs eða ills?
20.11.2008

Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB í dag, fimmtudaginn 20. nóvember, kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um kosti og galla verðtryggingar og hvort æskilegt sé að afnema hana tímabundið eða til langframa. Framsögu hafa Ingólfur H. Ingólfsson félagsfræðingur og Pétur H. Blöndal alþingismaður. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB .
Frumvarp um greiðslujöfnun samþykkt
18.11.2008
Alþingi samþykkti í gær frumvarp félagsmálaráðherra um breytingar á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga. Greiðslujöfnunin felur ekki í sér eftirgjöf á skuldum heldur er um frestun á hluta afborgana að ræða. Viðskiptavinir allra viðurkenndra lánastofnana sem eru með verðtryggð fasteignalán geta óskað eftir greiðslujöfnun lána sinna ef þeir telja það henta aðstæðum sínum. Umsókn um greiðslujöfnun þarf að koma á framfæri við viðkomandi lánastofnun og verður hún fólki að kostnaðarlausu.
Jöfnuður og félagslegt réttlæti er forsenda samstöðu
13.11.2008
„Við þær aðstæður sem nú ríkja í íslensku samfélagi er mikilvægara en nokkru sinni að jafna kjörin í landinu og styrkja innviði samfélagsins. Tryggja þarf fulla atvinnu og efla alla grunnþjónustu. Öflugt velferðarkerfi gerir okkur kleift að standa af okkur áföllin og með samstöðu og samheldni mun þjóðinni takast að vinna bug á erfiðleikunum. Forsenda samstöðunnar er hins vegar jöfnuður og félagslegt réttlæti. Kjarabilið hefur farið ört breikkandi, þar með talið kynbundið launamisrétti. Á því þarf að taka af festu." Þannig hefst ályktun funndar fulltrúaráðs Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem haldinn var sl. þriðjudag.
Lærum af reynslu Færeyinga og Finna
12.11.2008
Opinn fundur BSRB um efnahagsþrengingar og kreppur sem gengu yfir Færeyjar og Finnland snemma á 10. áratug síðustu aldar var vel sóttur og góður rómur gerður að erindunum sem Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri héldu. Framsöguerindin fjölluðu um orsakir hrunsins hjá þessum þjóðum, hvernig ástand skapaðist og hvernig þær unnu sig út úr kreppunni. Þá var fjallað um hvað Íslendingar geti lært af reynslu þessara þjóða.
Efnahagsþrengingar nágrannaþjóða
11.11.2008

Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB á morgun, miðvikudaginn 12. nóvember, kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um hvernig Færeyingar og Finnar brugðust við efnahagsþrengingum á borð við þær sem Íslendingar upplifa nú. Framsögu hafa Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri. Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB.
NOFS sendir BSRB og íslensku þjóðinni samstöðukveðju
10.11.2008
NOFS (Nordens Offentliganställdas Fackliga Samorganisation) sem er norrænn samstarfsvettvangur Eurec og EPSU, og BSRB er aðili að, hefur sent BSRB samstöðukveðju vegna þeirra efnahagsþrenginga sem Íslendingar eiga nú við að glíma. Segir í kveðjunni að NOFS hafi verulegar áhyggjur af stöðunni hér á landi í kjölfar fjármálakreppunnar í heiminum.
Séreignarsjóðir
6.11.2008
Sálrænn stuðningur í efnahagsþrengingunum
6.11.2008
Fundurinn verður sendur í fjarfundarbúnaði til 6 staða á landinu. Það er til Ísafjarðar, Sauðárkróks, Akureyrar, Egilsstaða, Vestmannaeyja og Selfoss. Skráning á námskeiðið er á skrifstofu BSRB í síma 525 8300, eða í netfang bsrb@bsrb.is
Fjölmennur fundur um skuldirnar og heimilin
5.11.2008
Fjölmenni var á opnum fundi BSRB um skuldastöðu heimilanna og úrræði sem ákveðið hefur verið að grípa til vegna hækkandi lána. Framsögu á fundinum höfðu Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Svanhildur Guðmundsdóttir sviðsstjóri þjónustusviðs Íbúðalánasjóðs, Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri LSR og Ásta S. Helgadóttir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Fundarstjóri var Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum stuttum framsögum var opnað fyrir spurningar úr sal og sköpuðust líflegar og mjög fróðlegar umræður við það.
Skuldirnar og heimilin - Hvað er að gerast?
5.11.2008

Opinn fundur verður á vegum BSRB í dag miðvikudaginn 5. nóvember kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um skuldastöðu heimilanna og úrræði sem ákveðið hefur verið að grípa til vegna hækkandi lána.
Framsögu hafa: Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Svanhildur Guðmundsdóttir sviðsstjóri þjónustusviðs Íbúðalánasjóðs, Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri LSR og Ásta S. Helgadóttir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum stuttum framsögum verður opnað fyrir spurningar úr sal.
Sálrænn stuðningur í efnahagsþrengingunum
21.10.2008
Elín Jónasdóttir sálfræðingur Rauða krossins mun halda fyrirlestur á vegum BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu í sal 2 á jarðhæð BSRB - hússins föstudaginn 24. október kl. 8:00 - 9:30. Fyrirlesturinn fjallar um gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum og er hugsaður fyrir starfsmenn stéttarfélaga og trúnaðarmenn.
Upplýsingasíða félagsmálaráðuneytis um fjármálamarkaðinn
14.10.2008
Vinnuverndarstarf á óvissutímum
14.10.2008
Ótímabært að meta tjón lífeyrissjóðanna
9.10.2008
Málefni
Á döfinni
Leit
























