Beint á leiðarkerfi vefsins

Efnahagsþrengingar

Útifundur á Selfossi í hádeginu

18.12.2008

Grasrótarhreyfing óánægðra íbúa á Suðurlandi stendur fyrir útifundi við Landsbankann á Selfossi í hádeginu í dag kl 12:30. Frummælendur eru Elín Björg Jónsdóttir formaður Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi og varaformaður BSRB, Bjarni Harðarson bóksali og Sigríður Jónsdóttir kennari og ljóðskáld. 

Réttur almennings til að mótmæla er ótvíræður

16.12.2008

"Réttur almennings til að mótmæla er ótvíræður og sýnir stjórn BSRB þeim mótmælum sem fram hafa farið að undanförnu mikinn skilning. Brotið hefur verið á almenningi og reiði fólks er mikil," segir í ályktun sem stjórn BSRB hefur sent frá sér.

Tekjutengdar lífeyrisgreiðslur Íslendinga erlendis miðaðar við gengi janúar 2008

15.12.2008

Tryggingastofnun ríkisins hefur ákveðið að við útreikning á tekjutengdum greiðslum til lífeyrisþega erlendis á árinu 2009 verði miðað við gengi íslensku krónunnar eins og það var í janúar 2008. Þetta kemur í framhaldi af því að BSRB barst bréf frá ellilífeyrisþega búsettum í Svíþjóð og var kveðja frá honum lesin upp á útifundinum á Ingólfstorgi 24. nóvember.

Atvinnuleysistryggingasjóður tæmist næsta haust

11.12.2008

Gissur-og-gylfi-s-SvuntaAtvinnuleysis-tryggingasjóður tæmist í október á næsta ári gangi spár Vinnumálastofnunar eftir. Þetta kom fram í erindi Gissurar Péturssonar forstjóra Vinnimálastofnunar á opnum fundi sem BSRB hélt í gær. Auk Gissurar flutti Gylfi Dalmann dósent við Háskóla Íslands erindi um íslenska vinnumarkaðinn.

Vinnumarkaðurinn og atvinnuhorfur framundan

9.12.2008

Opinn fundur verður á vegum BSRB fimmtudaginn 11. desember kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Yfirskrift fundarins er „Vinnumarkaðurinn og atvinnuhorfur framundan." Framsögur hafa Gylfi Dalmann dósent við Háskóla Íslands og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar.

Hvert stefnir í efnahagsmálum þjóðarinnar?

4.12.2008

framsogumenn---svuntustykkiOpinn fundur BSRB um framtíðarþróun efnahagsmála á Íslandi var afar fróðlegur. Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands og Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra ræddu aðdraganda kreppunnar og þá kosti sem væru í stöðunni til að vinna sig út úr henni en þar skiptir peningastefnan höfuðmáli.

Framtíðin - með eða án krónu

4.12.2008

framtidarfundurlitill
Opinn fundur verður á vegum BSRB í dag kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Yfirskrift fundarins er Framtíðin - með eða án krónu. Framsögu hafa Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands og Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra.


Málefni

Póstlistaskráning


Á döfinni


kjaramál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta