Ísland og ESB
14.1.2010
Fulltrúar BSRB í samningahópum um aðildarviðræður við ESB
Stjórn BSRB hefur skipað fulltrúa í sjö samningahópa vegna samningaviðræðna ríkisins um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Auk þess hefur bandalagið skipað varamenn í þessa hópa. Samningahóparnir hafa þegar hafið störf.
20.3.2009
Sjávarútvegur og iðnaður hjá ESB
BSRB stóð fyrir opnum fundi um Evrópusambandið í dag. Þetta er annar fundurinn í röð funda sem BSRB hyggst standa fyrir um Ísland og ESB. Á fundinum var fjallað um afstöðu ESB til sjávarútvegs og iðnaðar. Framsögumenn voru Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
18.3.2009
Sjávarútvegur og iðnaður í ESB

Opinn fundur verður um Evrópusambandið á vegum BSRB föstudaginn 20. mars kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stefnu ESB í sjávarútvegi og iðnaði. Framsögu hafa Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
20.2.2009
Fróðlegur fundur um Ísland og ESB
BSRB stóð fyrir opnum fundi um Evrópusambandið í dag. Þetta var fyrsti fundurinn í röð funda sem BSRB hyggst standa fyrir um Ísland og ESB. Á fundinum var fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og hvaða áhrif aðild að sambandinu gæti haft á íslenskan landbúnað. Framsögumenn voru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.
18.2.2009
Ísland og Evrópusambandið

BSRB stendur fyrir opnum fundi um Evrópusambandið föstudaginn 20. febrúar kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og afstöðu sambandsins til landbúnaðarmála. Framsögumenn eru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal. Fundurinn er öllum opinn.
Málefni
Á döfinni
11. mars 2010
19. mars 2010
19. mars 2010
Leit





















