Beint á leiðarkerfi vefsins

Ísland og ESB

20.3.2009

Sjávarútvegur og iðnaður hjá ESB

fyrirlesararlitilBSRB stóð fyrir opnum fundi um Evrópusambandið í dag. Þetta er annar fundurinn í röð funda sem BSRB hyggst standa fyrir um Ísland og ESB. Á fundinum var fjallað um afstöðu  ESB til sjávarútvegs og iðnaðar. Framsögumenn voru Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

18.3.2009

Sjávarútvegur og iðnaður í ESB

esb200309a
Opinn fundur verður um Evrópusambandið á vegum BSRB föstudaginn 20. mars kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stefnu ESB í sjávarútvegi og iðnaði. Framsögu hafa Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

20.2.2009

Fróðlegur fundur um Ísland og ESB

EURO-_-GESTIR-svuntaBSRB stóð fyrir opnum fundi um Evrópusambandið í dag. Þetta var fyrsti fundurinn í röð funda sem BSRB hyggst standa fyrir um Ísland og ESB. Á fundinum var fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og hvaða áhrif aðild að sambandinu gæti haft á íslenskan landbúnað. Framsögumenn voru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.

18.2.2009

Ísland og Evrópusambandið

esblitil
BSRB stendur fyrir opnum fundi um Evrópusambandið föstudaginn 20. febrúar kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og afstöðu sambandsins til landbúnaðarmála. Framsögumenn eru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal. Fundurinn er öllum opinn.

Málefni

Póstlistaskráning


Á döfinni


innrimal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta