Beint á leiðarkerfi vefsins

Stöðugleikasáttmáli

Yfirlýsing forsætis- og fjármálaráðherra um framgang stöðugleikasáttmálans

Forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa sent frá sér yfirlýsingu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar um framgang stöðugleikasáttmálans. BSRB hefur lýst sig reiðubúið að halda áfram samstarfi við ríkisstjórnina og aðra aðila um framgang sáttmálans á grundvelli þessarar yfirlýsingar.

Atkvæðagreiðslu um kjarasamninga lokið

Aðildarfélög BSRB sem gengu frá kjarasamningum við ríki og sveitarfélög í byrjun júní hafa lokið atvæðagreiðslu um samningana. Þrjú félög felldu samningana en önnur félög hafa samþykkt þá.

STAG semur við LN

Starfsmannafélag Garðabæjar undirritaði samkomulag við Launanefnd sveitarfélaga í gærmorgun, 8. júlí. Samningurinn er á sömu nótum og önnur Starfsmannafélög sveitarfélaga höfðu samið um deginum áður. Hækkanirnar eru þær sömu og horft til lægstu launa.

Samið við sveitarfélögin

ab eb gr svuntFlest aðildarfélög BSRB sem semja við Launanefnd sveitarfélaga skrifuðu undir nýjan kjarasamning fyrr í kvöld. Samningurinn er mjög á svipuðum nótum og kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem undirritaður var í gær og samningurinn við ríkið á föstudag. Megináhersla við gerð samninganna var lögð á að hækka launataxta sem eru undir 180.000 kr. og kemur sú hækkun í þremur áföngum.

Samið við borgina

strvsamn2009litilKjarasamningur milli Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var undirritaður á áttunda tímanum í kvöld, 6. júlí. Líkt og samningur aðildarfélaga BSRB við ríkið er áhersla lögð á að hækka lægstu laun félagsmanna. Laun undir 180 þúsund krónum hækka um 6.750 1. júlí og 1. nóvember og um 6.500 1. júní 2010. Laun upp að 210.000 krónum hækka árið 2009 en launahækkanir fara stiglækkandi eftir því sem launatalan hækkar.

Skrifað undir samning við ríkið

Undirritað hefur verið samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðildarfélaga BSRB við ríkið. Gildistími er til 30. nóvember 2010. Í samkomulaginu felast leiðréttingar á lægstu launum eins og gert var ráð fyrir í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar frá 25. júní. Persónu- og orlofsuppbót hækka. Þá er í samningnum sérstakt ákvæði um Starfsendurhæfingarsjóð.Í bókunum er m.a. að finna nýtt ákvæði um aðkomu aðildarfélaga BSRB að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

Viðræður um kjarasamninga við ríkið hafnar

Viðræður aðildarfélaga BSRB og samninganefndar ríkisins um nýja kjarasamninga hófust í morgun. Viðræður við launanefnd sveitarfélaga og samninganefnd Reykjavíkurborgar hefjast á morgun.

Skrifað undir stöðugleikasáttmála

Skrifað var undir stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningar-húsinu kl. 13:30. Markmið sáttmálans er að stuðla að endurreisn efnahagslífsins. Í framhaldi af undirskriftinni munu opinberir starfsmenn hefja samningaviðræður við ríki og sveitarfélög um nýja kjarasamninga en aðilar á almenna vinnumarkaðinum hafa náð samkomulagi um framlengingu kjarasamninga til haustsins 2010.

Ólíkar áherslur aðila vinnumarkaðarins

„Það eru fleiri ljón í veginum en ég gerði ráð fyrir í byrjun vikunnar um að aðilar næðu saman," sagði Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB um hvernig þríhliða viðræðum aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar um stöðugleikasáttmálann miðaði. Ágreiningurinn snýst fyrst og fremst um hvernig skuli fara með ríkisfjármálin.

Stöðugleikasáttmálinn að fæðast

Fulltrúar BSRB og aðila vinnumarkaðarins áttu í gær fund með ríkisstjórninni þar sem hugmyndir um stöðugleikasáttmála voru ræddar áfram. Þessir aðilar hittust svo aftur í morgun. Í dag kl. 14 ætlar stóra samninganefndin að hittast og í framhaldi af því er fyrirhugaður nýr fundur með ríkisstjórninni þar sem stefnt er að því að ganga frá stöðugleikasáttmálanum.

Málefni

Póstlistaskráning


Á döfinni


ag

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta