Beint á leiđarkerfi vefsins

Stöđugleikasáttmáli

Yfirlýsing forsćtis- og fjármálaráđherra um framgang stöđugleikasáttmálans

Forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa sent frá sér yfirlýsingu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar um framgang stöðugleikasáttmálans. BSRB hefur lýst sig reiðubúið að halda áfram samstarfi við ríkisstjórnina og aðra aðila um framgang sáttmálans á grundvelli þessarar yfirlýsingar.

Atkvćđagreiđslu um kjarasamninga lokiđ

Aðildarfélög BSRB sem gengu frá kjarasamningum við ríki og sveitarfélög í byrjun júní hafa lokið atvæðagreiðslu um samningana. Þrjú félög felldu samningana en önnur félög hafa samþykkt þá.

STAG semur viđ LN

Starfsmannafélag Garðabæjar undirritaði samkomulag við Launanefnd sveitarfélaga í gærmorgun, 8. júlí. Samningurinn er á sömu nótum og önnur Starfsmannafélög sveitarfélaga höfðu samið um deginum áður. Hækkanirnar eru þær sömu og horft til lægstu launa.

Samiđ viđ sveitarfélögin

ab eb gr svuntFlest aðildarfélög BSRB sem semja við Launanefnd sveitarfélaga skrifuðu undir nýjan kjarasamning fyrr í kvöld. Samningurinn er mjög á svipuðum nótum og kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem undirritaður var í gær og samningurinn við ríkið á föstudag. Megináhersla við gerð samninganna var lögð á að hækka launataxta sem eru undir 180.000 kr. og kemur sú hækkun í þremur áföngum.

Samiđ viđ borgina

strvsamn2009litilKjarasamningur milli Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var undirritaður á áttunda tímanum í kvöld, 6. júlí. Líkt og samningur aðildarfélaga BSRB við ríkið er áhersla lögð á að hækka lægstu laun félagsmanna. Laun undir 180 þúsund krónum hækka um 6.750 1. júlí og 1. nóvember og um 6.500 1. júní 2010. Laun upp að 210.000 krónum hækka árið 2009 en launahækkanir fara stiglækkandi eftir því sem launatalan hækkar.

Skrifađ undir samning viđ ríkiđ

Undirritað hefur verið samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðildarfélaga BSRB við ríkið. Gildistími er til 30. nóvember 2010. Í samkomulaginu felast leiðréttingar á lægstu launum eins og gert var ráð fyrir í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar frá 25. júní. Persónu- og orlofsuppbót hækka. Þá er í samningnum sérstakt ákvæði um Starfsendurhæfingarsjóð.Í bókunum er m.a. að finna nýtt ákvæði um aðkomu aðildarfélaga BSRB að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

Viđrćđur um kjarasamninga viđ ríkiđ hafnar

Viðræður aðildarfélaga BSRB og samninganefndar ríkisins um nýja kjarasamninga hófust í morgun. Viðræður við launanefnd sveitarfélaga og samninganefnd Reykjavíkurborgar hefjast á morgun.

Skrifađ undir stöđugleikasáttmála

Skrifað var undir stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningar-húsinu kl. 13:30. Markmið sáttmálans er að stuðla að endurreisn efnahagslífsins. Í framhaldi af undirskriftinni munu opinberir starfsmenn hefja samningaviðræður við ríki og sveitarfélög um nýja kjarasamninga en aðilar á almenna vinnumarkaðinum hafa náð samkomulagi um framlengingu kjarasamninga til haustsins 2010.

Ólíkar áherslur ađila vinnumarkađarins

„Það eru fleiri ljón í veginum en ég gerði ráð fyrir í byrjun vikunnar um að aðilar næðu saman," sagði Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB um hvernig þríhliða viðræðum aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar um stöðugleikasáttmálann miðaði. Ágreiningurinn snýst fyrst og fremst um hvernig skuli fara með ríkisfjármálin.

Stöđugleikasáttmálinn ađ fćđast

Fulltrúar BSRB og aðila vinnumarkaðarins áttu í gær fund með ríkisstjórninni þar sem hugmyndir um stöðugleikasáttmála voru ræddar áfram. Þessir aðilar hittust svo aftur í morgun. Í dag kl. 14 ætlar stóra samninganefndin að hittast og í framhaldi af því er fyrirhugaður nýr fundur með ríkisstjórninni þar sem stefnt er að því að ganga frá stöðugleikasáttmálanum.

Rekstri og ţjónustu ríkisins hlíft

Ríkisstjórnin lagði fram frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum í gær. Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB sagði að með þessum aðgerðum væri lögð megináhersla á tekjuhliðina og reynt að hlífa niðurskurði í rekstri og þjónustu ríkisins á næsta ári. Hann sagði það jákvætt en menn hefðu hins vegar áhyggjur af því hvað muni gerast árin 2011 og 2012.

Fundađ međ ráđherrum

Settir hafa verið á laggirnar nokkrir undirhópar í þríhliða viðræðum aðila vinnmarkaðarins og ríkisins. Í morgun átti hópur um heilbrigðismálin fund með heilbrigðisráðherra og á mánudag munu hópar um menntamál og samgöngumál hitta ráðherra mennta- og samgöngumála. Þá mun viðræðuhópur um málefni sveitarfélaga einnig hittast á mánudag.

Málefnahópar langt komnir međ störf sín

Viðræður um þríhliða stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisins hafa haldið áfram og eru málefnahópar um ríkisfjármál, efnahags- og atvinnumál að skila áfangaskýrslum. Stefnt er að því að ríkisstjórnin leggi fram bandorm um ríkisfjármálin í lok vikunnar þar sem kynntar verða aðgerðir til að ná fram 20 milljarða króna sparnaði á fjárlögum þessa árs. Upp úr 20. júní á síðan að liggja fyrir áætlun um aðgerðir í ríkisfjármálum til ársins 2013.

Jafnréttisnefnd BSRB hafnar atvinnustefnu á kostnađ kvenna

Jafnréttisnefnd BSRB beinir þeim eindregnu tilmælum til ríkisstjórnar og samningsaðila á vinnumarkaði að standa vörð um velferðarþjónustuna. Starfsfólk í velferðarkerfinu - á sjúkrahúsum, í heilsugæslunni, á stofnunum fyrir fatlaða og í skólum, er í yfirgnæfandi meirihluta konur. Samdráttur og skerðing í velferðarþjónustunni bitnar því harkalega á kvennnastéttum.

Viđrćđum um stöđugleikasáttmála haldiđ áfram

Á fundi fulltrúa heildarsamtaka launamanna, Samtaka atvinnulífsins, ríkisins og sveitarfélaga í morgun var ákveðið að halda áfram viðræðum um gerð stöðugleikasáttmála og kjarasamninga. Fulltrúar BSRB og annara samtaka launafólks á opinbera vinnumarkaðinum hittust síðan á fundi með fulltrúum samninganefndar ríkisins og Launanefndar sveitarfélaga til að ræða launalið kjarasamninga félaganna.

Viđrćđur um launaliđ opinberra starfsmanna halda áfram

Viðræður um þríhliða samkomulag samtaka launafólks, atvinnurekenda og ríkisins eru í ákveðinni óvissu eftir að Seðlabankinn tilkynnti um 1% lækkun stýrivaxta. Vinna í efnahagsnefnd samningsaðila hélt þó áfram eftir hádegi í dag og á morgun hafa verið boðaðir fundir í viðræðunefndinni sem fjallar um launalið opinberra starfsmanna. Þótt viðræður ASÍ og SA séu í uppnámi halda viðræður um launalið kjarasamninga opinberra starfsmanna áfram.

Nauđsynlegt ađ styrkja innviđi samfélagsins og efla grunnţjónustu

"Við þær aðstæður sem nú eru uppi er nauðsynlegt að styrkja innviði samfélagsins og efla grunnþjónustu þess. Öflugt velferðarkerfi gerir okkur kleift að standa af okkur verstu áföllin og með samstöðu mun þjóðinni takast að vinna bug á erfiðleikunum. Forsendur samstöðunnar eru jöfnuður og félagslegt réttlæti," segir m.a. í ályktun stjórnar BSRB sem samþykkt var í dag. 

Viđrćđum um stöđugleikasáttmálann ljúki 9. júní

Viðræður um þríhliða samkomulag samtaka launafólks, atvinnurekenda og ríkisins hófust í gær en stefnt er að því að viðræðum um stöðugleikasáttmála þessara aðila ljúki 9. júní nk.

Málefni

Póstlistaskráning


Á döfinni


almannaţjónusta

Stjórnborđ

English Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta