Stöðugleikasáttmáli
BSRB aðili að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
BSRB varð í dag aðili að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Samningur um það var undirritaður á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins í dag. Samninginn undirrituðu Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB, Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Inga Rún Ólafsdóttir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Guðrún Eyjólfsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins.
SA hvatt til áframhaldandi aðildar að stöðugleikasáttmálanum
Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra boðuðu í dag til fundar með aðilum stöðugleikasáttmálans. Fundinn sóttu fulltúar Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, BSRB, Kennarasambands Íslands, Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Bændasamtaka Íslands. Á fundinum var samþykkt að hvetja Samtök atvinnulífisins til þátttöku í áframhaldandi vinnu á grundvelli stöðugleikasáttmálans.
Málefni
Á döfinni
8. júní 2012
24. ágúst 2012
21. september 2012
Leit
























