Fréttir
Ánægja með niðurstöðu Hæstaréttar
28.12.2000
BSRB lýsir ánægju með niðurstöðu Hæstaréttar í nýuppkveðnum dómi í málefnum öryrkja. Mikilvægt er að öryrkjum verði þegar í stað greitt það sem þeim ber.
Viðbótarframlag í séreignarsjóð
21.12.2000
BSRB, BHM og KÍ hafa samið við fjármálaráðuneytið um að ríkið greiði aukið viðbótarframlag í séreignarsjóð til lífeyrissparnaðar þegar starfsmaður greiðir sjálfur viðbótarframlag í sjóðinn.
Samið við Flugfélag Íslands
18.12.2000
Samvinnuferðir Landsýn hafa samið við Flugfélag Íslands um fargjöld innanlands fyrir félagsmenn í BSRB, ASÍ og fleiri samtökum launafólks.
Kennarar fá 2 milljónir frá BSRB
15.12.2000
Stjórn Vinnudeilusjóðs BSRB ákvað á fundi í dag, 15. desember, að veita Vinnudeilusjóði Kennarasambands Íslands 2.000.000 krónur vegna yfirstandandi vinnudeilu og verkfalls framhaldsskólakennara.
Stjórnsýslulög gilda um meðferð starfsmannamála sveitarfélaga
13.12.2000
Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm í máli sem fyrrverandi vagnstjóri hjá Strætisvögnum Reykjavíkur höfðaði gegn Reykjavíkurborg og SVR vegna uppsagnar vagnstjórans án þess að ástæða uppsagnar væri tilgreind.
Skattheimta verði ekki aukin á launafólk
28.11.2000
Í tilefni af fyrirhuguðum skattabreytingum ríkisstjórnarinnar leggur BSRB höfuðáherslu á eftirfarandi.
Stjórnskipulagi BSRB gjörbreytt
29.10.2000
39. þing BSRB ákvað að gjörbreyta stjórnskipulagi bandalagsins. Nú er stjórn skipuð formönnum allra aðildarfélaga bandalagsins, sem eru 34 talsins, en auk þess kaus þingið fimm menn í framkvæmdanefnd sem mun starfa í umboði stjórnar.
Samkomulag í réttindamálum
24.10.2000
BSRB, BHM og KÍ undirrituðu í dag, 24. október 2000, samkomulag við fjármálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg um veikindarétt og ýmis önmnur réttindi starfsmanna þessara samtaka.
Nýtt félag á Suðurnesjum
5.10.2000
Nýtt starfsmannafélag varð til 4. október þegar fjölmennur sameiginlegur fundur félagsmanna í Starfsmannafélagi Suðurnesjabyggðar og Starfsmannafélagi Reykjanesbæjar ákvað að stofna nýtt sameiginlegt félag, Starfsmannafélag Suðurnesja.
Átt þú rétt á foreldraorlofi?
31.8.2000
Nú geta foreldrar sótt um foreldraorlof hjá sínum vinnuveitenda. Gildir þessi réttur vegna barna sem eru fædd 1. janúar 1998 eða síðar.
Aukinn séreignarsparnaður
24.7.2000
Vegna lagabreytinga geta lífeyrissjóðfélagar nú lagt allt að 4% launa í séreignarsparnað í stað 2% áður og fengið á móti 0,4% mótframlag frá launagreiðanda í stað 0,2% fyrir breytingu.
Trúnaðarmannaráðstefna á Ísafirði
19.6.2000
Um 30 manns sóttu trúnaðarmannaráðstefnu BSRB á Hótel Ísafirði förstudaginn 2. júní.
Um BSRB
Á döfinni
8. júní 2012
24. ágúst 2012
21. september 2012
Leit
























