21.12.2001
BSRB óskar öllum nær og fjær gleði og friðar um hátíðarnar.
20.12.2001
Í fjölmiðlum hefur mönnum orðið tíðrætt um að nú sé komin á þjóðarsátt og þar vísað í ákvörðun Alþýðusambands Íslands og Samtaka Atvinnulífsins að segja ekki upp kjarasamningum að sinn, segir Ögmundur Jónassson formaður BSRB í upphafi greinar um samkomulag ASÍ, SA og ríkisstjórnarinnar.
17.12.2001
BSRB hefur nú lagt grunninn að því sem mætti þróa í átt til nýrrar vísitölu þar sem mælt yrði hvernig kostnaðarþátttaka sjúklinga þróast borið saman við annað verðlag. Grunninn að þessari nýju heilbrigðisvísitölu BSRB, þó enn sé langt í land að hún verði að veruleika, mynda sjö einstaklingar sem hrjáðir eru af mismunandi heilsubresti, segir í grein eftir Ögmund Jónasson formann BSRB.
14.12.2001
"Í könnun sem gerð var á vegum landlæknisembættisins fyrir fáeinum árum kom í ljós að efnalítið fólk var farið að veigra sér við að leita læknis einfaldflega vegna þess að það hafði ekki ráð á þjónustunni. Einnig hafa borist fregnir af því að fólk komi í apótek til þess að kaupa lyf samkvæmt lyfseðli en snúi frá þegar það heyri hver kostnaðurinn er," segir m.a. í grein eftir Ögmund Jónasson formann BSRB um heilbrigðisútgjöld heimilanna.
12.12.2001
Könnun sem unnin var af hagfræðingi BSRB í samráði við lækna og kynnt var á aðalfundi BSRB 7. desember leiðir í ljós að lyfjakostnaður sjúklinga og kostnaður þeirra vegna komugjalda hefur stóraukist á árunum 1990 - 2001.
6.12.2001
Starfsmannafélag Sjónvarpsins hefur sameinast Starfsmannafélagi Ríkisútvarpsins og hefur verið lagt niður formlega. Endanlega var gengið frá þessu á framhaldsaðalfundi Starfsmannafélags Ríkisútvarpsins 5. desember sl. Ragnheiður Valdimarsdóttir er formaður nýrrar stjórnar félagsins.
4.12.2001
Sveigjanleg starfslok er yfirskrift málstofu BSRB sem haldin verður fimmtudaginn 6. desember kl. 16.00 í BSRB-húsinu Grettisgötu 89. Málstofan er opin öllum. Tryggvi Þór Herbertsson forstöðumaður hagfræðistofnunar Háskóla Íslands flytur erindi og Ólafur Ólafsson fyrrum landlæknir og Helga Dögg Sverrisdóttir sjúkraliði eru með viðhorf. Fundarstjóri er Arna Jakobía Björnsdóttir formaður STAK.
3.12.2001
STAK skrifaði undir kjarasamning við launanefnd sveitarfélaga vegna tónlistarkennara á Akureyri 30. nóvember sl. Samningurinn er sambærilegur við samning launanefndarinnar við Félag tónlistarkennara.
3.12.2001
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur opnað heimasíðu. Slóðin á heimasíðuna er http://www.lsssamtok.is/
26.11.2001
Sjúkraliðafélag Íslands og Launanefnd sveitarfélaga undirritaði kjarasamning á sjöunda tímanum mánudagsmorgun 26. nóvember. Verkfalli sem hafði hafist á miðnætti hjá stofnunum á vegum sveitarfélaga var aflýst við undirritunina.
23.11.2001
Sjúkraliðafélag Íslands samdi við Reykjavíkurborg skömmu ffyrir miðnætti 22. nóvember. Samningurinn við borgina er á svipuðum nótum og samningurinn við ríkið utan að ekki er um vinnustaðasamning að ræða heldur miðlægan samning.
22.11.2001
Sjúkraliðafélag Íslands undirritaði nýjan kjarasamning við samninganefnd ríkisins á miðnætti aðfararnótt 22. nóvember. Boðuðu verkfalli hjá ríki og sjálfseignastofnunum sem hefjast átti 26. nóvember hefur því verið frestað. Viðræður við launanefnd sveitarfélaga og Reykjavíkurborg halda áfram hjá Sáttasemjara ríkisins.
14.11.2001
Aðalfundur BSRB verður haldinn 7. desember nk. í BSRB-húsinu Grettisgötu 89. Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Erna Indriðafóttir flytja erindi um opinberan rekstur og starfsmannahald. Þá verður fjallað um skattamál og tilkostnað í heilbrigðiskerfinu.
14.11.2001
Málstofa um sveigjanleg starfslok verður haldin í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, 6. desember nk. kl. 16.00 til 17.45
12.11.2001
Þriggja daga allsherjarverkfall Sjúkraliðafélags Íslands hófst á miðnætti mánudagsins 12. nóvember. Verkfallið nær til sjúkraliða hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögunum og sjálfseignastofnunum. Eina undantekningin er Styrktarfélag vangefinna en samið hefur verið við það.
12.11.2001
"Föstudaginn 9. nóvember hófst fjórði ráðherrafundur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) í Doha í Qatar. Í tilefni af því lýsti Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga (ICFTU) þennan dag alþjóðlegan baráttudag, en verkalýðshreyfingin hefur gagnrýnt þá þróun efnahagskerfis heimsins sem kennd er við hnattvæðingu og hlutverk Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í henni. Stofnunin er gagnrýnd fyrir að sniðganga hagsmuni og réttindi launafólks og ganga erinda nýfrjálshyggjunnar sem stuðlar að aukinni misskiptingu og niðurrifi velferðarkerfisins." Þannig hefst grein eftir Einar Ólafsson stjórnarmann í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar.
12.11.2001
Ólafur B. Baldursson var kjörinn formaður FOSVest á aðalfundi félagsins í byrjun nóvember. Þorbjörn J. Sveinsson fráfarandi formaður verður áfram í stjórn félagsins.
9.11.2001
"Í dag vekur verkalýðshreyfingin um víða veröld athygli á þeim forsendum sem hún vill að alþjóðavæðingin byggist á. Dagsetningin er valin með tilliti til þess að nú er að hefjast ráðherrafundur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO)," segir í upphafi greinar eftir Ögmund Jónasson formann BSRB.
9.11.2001
Sjúkraliðafélag Íslands og Styrktarfélag vangefinna skrifuðu undir skammtíma kjarasamning 9. nóvember.
8.11.2001
Landssamtök lífeyrissjóða hafa gefið út upplýsingarit um lífeyrismál sem nefnist Lífeyrissjóðurinn þinn. Ritið er hægt að nálgast
hér.
8.11.2001
BSRB hefur sent Valgerði Sverrisdóttur viðskiptaráðherra bréf þar sem athygli er vakin á yfirlýsingu Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga (ICFTU) vegna 4. ráðherrafundar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO)
8.11.2001
"Nú er helmingur jarðarbúa (um 3 milljarðar manna) neyddur til að lifa af minna en tveim dollurum á dag. Af heildarþjóðartekjum heimsins renna aðeins 20% til 80% íbúanna og innan hvers lands er gífurlegt misvægi milli ríkra og fátækra. Á næstu 25 árum mun íbúum jarðarinnar fjölga um 2 milljarða og þessi fjölgun mum nær öll verða í þróunarlöndunum. Við munum lifa í heimi með 8 milljörðum manna og af þeim munu 6,5 milljarðar búa í þróunarlöndunum. Hversu stór hluti þeirra mun verða dæmdur til að lifa af minna en tveim dollurum á dag? Svar alþjóðasamfélagsins við þeirri spurningu ræður mestu um hvort börn okkar munu lifa í friðsamlegum heimi eða veröld vaxandi átaka," sagði Hans Engelberts, aðalritari Alþjóðasambands starfsfólks í almannaþjónustu, (PSI) á þingi Alþjóðasambands kennara (EI) sl. sumar.
8.11.2001

Búið er að skipuleggja Tölvufræðslu BSRB á Höfuðborgarsvæðinu fyrir vorönn 2002 og er hægt að skrá sig á þau námskeið núna. Yfirlit yfir námskeiðin er að fynna ef þrýst er á merki Tölvufræðslu BSRB
7.11.2001
"Háskóli Íslands er fjármagnaður með skattfé. Þar eru að sjálfsögðu meðtalin laun prófessora. Á meðal prófessora við Háskóla Íslands hefur um langt árabil verið Gunnar G. Schram. Oft hefur mér fundist hann hafa haft gott til mála að leggja í íslenskri þjóðmálaumræðu. Kjallaragrein hans í DV fimmtudaginn 1. nóvember var þar þó undantekning." Þannig hefst grein eftir Ögmund Jónasson formann BSRB.
7.11.2001
"Fyrir fáeinum dögum ritaði ég grein í Morgunblaðið til þess að vekja athygli á nauðsyn þess að atvinnurekendur misbeittu ekki valdi sínu gegn fólki sem komið er á miðjan aldur og þar yfir. Á Alþingi er til umfjöllunar þingmál þar sem lagt er til að kanna hvort unnt er með lagasetningu að styrkja stöðu þessa fólks," segir í grein eftir Ögmund Jónasson formann BSRB.
6.11.2001

Vinnudeilusjóður BSRB hefur styrkt Sjúkraliðafélag Íslands um 10 milljónir króna vegna yfirstandandi kjaradeilu félagsins og verkfallsátaka. Upphæðin var afhent í BSRB húsinu 6. nóvember og mætti öll samninganefnd félagsins til að taka við styrknum.
2.11.2001
Í morgunútvarpi Rásar 2 föstudagsmorgun 2. nóvember fór fram umræða um verkföll á Íslandi og lög og reglur sem um þau gilda. Í umræðunum þótti mér sumt ágætlega sagt, annað ekki, eins og gerist og gengur þegar við leggjum okkar persónulega mat á umræðu um umdeild efni, segir í grein eftir Ögmund Jónasson formann BSRB
26.10.2001
Stjórnarfundur BSRB sem haldinn var 26. október lýsir yfir eindregnum stuðningi við kjarabaráttu sjúkraliða og krefst þess að þegar í stað verði gengið til samninga við félagið.
26.10.2001
Stjórnarfundur BSRB haldinn 26. október lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu tónlistarkennara og krefst þess að þegar í stað verði gengið til samninga við þá.
26.10.2001
Stjórnarfundur BSRB 26. október lýsir yfir stuðningi við þann ásetning heilbrigðisráðherra að standa gegn einkavæðingu í heilbrigðisþjónustunni.
19.10.2001
Fundur trúnaðarmanna SFR sem haldinn var fimmtudaginn 18. október sendi Sjúkraliðafélagi Íslands baráttukveðjur og skoraði á viðsemjendur félagsins að sýna ábyrgð og ganga þegar til samninga við félagið.
17.10.2001
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hefur sent Sjúkraliðafélagi Íslands baráttukveðjur og skorar á viðsemjendur félagsins að sýna ábyrgð og ganga þegar til samninga við félagið.
16.10.2001
Starfsmannafélag Akureyrarbæjar hefur sent Sjúkraliðafélagi Íslands baráttukveðjur vegna verkfalls sjúkraliða.
16.10.2001
Vinnueftirlit ríkisins stendur fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Varnir gegn vinnuslysum. Ráðstefnan er haldin í tilefni evrópsku vinnuverndarvikunnar og er á Grand hótel við Sigtún í Reykjavík fimmtudaginn 18. október frá kl. 12.50 til 17.00. Þátttaka er ókeypis.
11.10.2001
Fjölmennur félagsfundur Sjúkraliða ákvað einróma miðvikudaginn 10. október að boða til atkvæðagreiðslu um þrjú þriggjadaga verkföll til viðbótar við þau þrjú verkföll sem þegar hafa verið boðuð. Þau verkföll myndu ná til sjúkraliða bæði hjá ríki og sveitarfélögum, en þau þrjú verkföll sem þegar hafa verið boðuð ná einungis til sjúkraliða sem starfa hjá ríkinu auk tveggja sjálfseignastofnana.
11.10.2001
Varnir gegn vinnuslysum er yfirskrift vinnuverndarvikunnar 2001 sem hefst sunnudaginn 14. október og stendur til 20 október. Þetta er í annað skipti sem Íslendingar taka þátt í evrópsku samstarfi um vinnuverndarviku.
11.10.2001
Náðst hefur samkomulag um grunnnámskeið á tölvur á Höfn í Hornafirði. Námskeiðið er haldið í Fjölbrautaskóla A-Skaftafellssýslu og hefst fimmtudaginn 18. október. Kennt er tvisvar í viku, mánudaga og fimmtudaga frá kl. 19.30-22.00. Innritun er í síma 487 1870.
8.10.2001
Starfsmannafélag Garðabæjar hefur opnað heimasíðu félagsins. Slóðin á heimasíðuna er
www.stag.is 8.10.2001
Tónlistarkennarar innan STAK hafa boðað verkfall sem skellur á 22. október, á sama tíma og Félag tónlistarkennara og Félag íslenskra hljómlistamanna fer í verkfall hafi samningar ekki náðst.
8.10.2001
Guðbjörg Antonsdóttir hefur tekið við sem formaður Starfsmannafélags Dalvíkurbyggðar, en Einar Emilsson hætti þar sem hann er ekki lengur félagsmaður í félaginu.
3.10.2001
Tölvunámskeið á vegum Tölvufræðslu BSRB hefjast á Egilsstöðum 17. október nk. Það er Tölvuskóli Spyrnis sem sér um námskeiðin á Austurlandi fyrir BSRB. Þar með hafa náðst samningar við aðila um allt land til að annast Tölvufræðslu BSRB.
Nemendur geta skráð sig í síma 470-2203 eða 860-3519 eða á netinu í póstfang sigurdur@austurland.is , og síðan látið senda staðfestingu frá starfsmenntasjóði í fax 470-2201 og þá verður skráningin bindandi. Eftir áramót verða auglýst námskeið víðar á Austurlandi.2.10.2001
Trúnaðarmannanámskeið verður haldið í Munaðarnesi dagana 30. október til 1. nóvember. Slík námskeið hafa verið haldin á vegum fræðslunefndar BSRB undanfarin ár og mælst mjög vel fyrir. Dagskrá námskeiðsins verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Meðal fyrirlesara eru Kristín Á. Ólafsdóttir leikari og Hugo L. Þórisson sálfræðingur, starfsmenn BSRB og Ögmundur Jónasson formaður bandalagsins. Þáttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB fyrir 25. október.
1.10.2001
Verkfall Sjúkraliðafélags Íslands hjá ríki og sjálfseignastofnununum Ás-Ásbyrgi og hjúkrunarheimilinu Grund hófst á miðnætti 1. október eftir árangurslausar viðræður við samninganefnd ríkisins um helgina. Verkfallið stendur í þrjá sólarhringa en auk þess hafa sjúkraliðar boðað til frekari verkfallsaðgerða síðar í mánuðinum hafi samningar ekki náðst þá. Þá hættu um 100 sjúkraliðar störfum sem sögt höfðu upp.
24.9.2001
Starfsmannafélag Siglufjarðarkaupstaðar hefur opnað nýja heimasíðu. Slóðin á heimasíðuna er
http://www.nett.is/stjor/ 14.9.2001
Afgerandi meirihluti sjúkraliða í Sjúkraliðafélagi Íslands hafa samþykkt verkfallsboðun félagsins. Yfir 90% þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hjá ríkinu sögðu já við verkfalli.
14.9.2001
ASÍ, BHM, BSRB, KÍ og Samband íslenskra bankamanna hvetja launafólk til að taka þátt í sorgarathöfn sem Evrópubúar hafa sameinast um vegna fórnarlamba hryðjuverkanna í Bandaríkjunum.
12.9.2001
"Fundur lífeyrisþegadeildar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar varar við því að lífeyrissjóðum landsmanna verði stefnt í tvísýnu í þágu stóriðjuáforma," segir í ályktun sem samþykkt var á fundi lífeyrisþegadeildar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar miðvikudaginn 12. september.
10.9.2001
Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Jens Andrésson formaður SFR opnuðu þekkingarmiðstöðin
Símennt.is með því að skrá sig sem fyrstu nemendur í fjarnám á fræðsluvefnum mánudaginn 10. september.
7.9.2001
Sjúkraliðafélag Íslands hefur sent út kjörseðla til félagsmanna sinna sem starfa hjá ríkinu til að kjósa um verkfallsboðun. Niðurstaða mun liggja fyrir föstudaginn 14. september og verði hún sú að félagsmenn vilji grípa til verkfallsvopnsins skellur fyrsta lota verkfalls hjá ríki á mánudaginn 1. október.
7.9.2001
Tölvufræðsla BSRB verður með kynningu á tölvunámskeiðum bandalagsins í samvinnu við Nýja Tölvu- og viðskiptaskólann í Kringlunni laugardaginn 8. september. Kynningin hefst kl. 10 og lýkur kl. 18. Kynningin er í tengslum við
Viku símenntunar6.9.2001
Vetrarleiga orlofshúsa BSRB í Munaðarnesi og Stóru Skógum hefst 14. september. Tilvalið er að skreppa í haustblíðunni upp í Borgarfjörð, njóta náttúrufegurðarinnar og skreppa t.d. í berjamó. Helgarleigan til félagsmanna er 5.500 kr. fyrir stór hús og 4.000 kr. fyrir lítil hús. Verð fyrir utanfélagsmenn er örlítið hærra. Það er skrifstofa BSRB, Grettisgötu 89 Reykjavík , sem sér um útleiguna. Sími 525 8300. Netfang:
bsrb@bsrb.is 5.9.2001

Fyrstu tölvunámskeið BSRB hófust við setningu Viku símenntunar sem fram fór í Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum í Hafnarfirði, en skólinn hefur umsjón með Tölvufræðslu BSRB. Aðsókn hefur verið mjög góð en enn er hægt að skrá sig á námskeið á haustönn. Þá hefur verið samið við tölvuskóla í öllum landshlutum utan Austurlands. Tölvufræðsla BSRB verður með kynningu á námskeiðunum í Kringlunni laugardaginn 8. september frá kl. 10 - 18.
5.9.2001
Sá skilningur er orðinn mjög almennur í þjóðfélaginu að námi ljúki ekki með skólagöngu. Þetta er ekki ný hugsun á Íslandi – svo lengi lærir sem lifir segir gamalt orðtak. En vegna þeirrar viðhorfsbreytingar sem orðið hefur í seinni tíð er ekki fjarri lagi að snúa þessu orðtaki við til þess að fanga þá hugsun sem nú svífur yfir vötnum. Þá myndi orðtakið hljóma : Svo lengi lifir sem lærir. Sá sem ekki fylgist með þeim öru breytingum sem eiga sér stað á nánast öllum sviðum þjóðlífsins dagar fljótlega uppi, sagði Ögmundur Jónasson í ávarpi sínu við upphaf Viku símenntunar
5.9.2001
Tölvufræðsla BSRB og NTV hafa samið við tölvuskóla í öllum landshlutum utan Austurlands um tölvunámskeið fyrir félagsmenn BSRB. Um leið og samið hefur verið við tölvuskóla á Austurlandi verður það kynnt.
24.7.2001
Vika símenntunar er komin með vefsíðu undir mennt.is Á heimasíðunni er að finna helstu upplýsingar um viku símenntunar en BSRB er virkur aðili að undirbúningi hennar.
13.7.2001
Landssamband lögreglumanna og samninganefnd ríkisins undirrituðu kjarasamning í bítið föstudaginn 13. júlí.
13.7.2001
BSRB og Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn (NTV) hafa undirritað samning um að NTV taki að sér að halda 100 tölvunámskeið fyrir BSRB – tölvufræðslu veturinn 2001 - 2002. Þetta er stærsta verkefni sem samtök launafólks hafa ráðist í til að efla tölvulæsi félagsmanna sinna.Af þessum 100 námskeiðum verða 75 á höfuðborgarsvæðinu og 25 á landsbyggðinni og gefst 1.500 félagsmönnum BSRB kostur á að sækja þessi námskeið sér að kostnaðarlausu.
12.7.2001
STÁ, Starfsmannafélag Sveitarfélagsins Árborgar, gekk frá nýjum kjarasamningi við Launanefnd sveitarfélaga 18. júní sl, en áður hafði félagið fellt samninga við Launanefndina.
11.7.2001
BSRB og Reykjavíkurborg hafa gert með sér samkomulag um breytingar á vakta- og vinnutímaákvæðum kjarasamninga.
2.7.2001
Nýr formaður tók við í Starfsmannafélagi Garðabæjar á aðalfundi félagsins í byrjun júní en Gísli Valdimarsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
2.7.2001
Tollvarðafélag Íslands samþykkti nýgerðan kjarasamning við ríkið í atkvæðagreiðslu sem fram fór dagana 26. og 27. júní.
21.6.2001
Starfsmannafélag Suðurnesja samþykkti á fundi 19. júní nýgerðan kjarasamning við ríkið.
21.6.2001
Heimasíða STAK, Starfsmannafélags Akureyrarbæjar, sem legið hefur niðri um nokkra hríð, hefur nú verið endurræst með uppfærðum fréttum úr starfi félagsins.
19.6.2001
Starfsmenn Orkubús Vestfjarða samþykktu einróma nýjan kjarasamning sem FOSVest undirritaði við Orkubúið í maí sl.
14.6.2001
Starfsmannafélag Suðurnesja undirritaði kjarasamning við launanefnd ríkisins miðvikudaginn 13. júní og aflýsti í kjölfarið verkfalli sem félagið hafði boðað 17. júní.
11.6.2001
Stórkostleg stemmning var á Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi 3. júní þegar myndlistarsýning Guðbjargar Lindar Jónsdóttur var opnuð.
11.6.2001
Starfsmannafélag Suðurnesja hefur samþykkt að boða verkfall fyrir hönd ríkisstarfsmanna í félaginu.
11.6.2001
Tollvarðafélag Íslands undirritaði kjarasamning við ríkið 31. maí.
11.6.2001
STAK, Starfsmannafélag Akureyrarbæjar, hefur samþykkt kjarasamninga sem félagið hefur gert við Launanefnd sveitarfélaga og launanefnd ríkisins en áður hafði félagið fellt samninga við þessa aðila.
31.5.2001
Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins hefur gengið frá styrkveitingum á þessu ári fyrir alls 43 milljónir króna. Hæstu styrkirnir, sem veittir voru, námu þremur milljónum króna og fóru til BSRB annars vegar og Fræðsluráðs málmiðnaðarins hins vegar. BSRB hlaut styrk til þess að fræða félagsmenn um upplýsingatæknina og Fræðsluráð málmiðnaðarins til að skoða og meta framtíðar þekkingarþörf í greininni. Aðrir styrkir voru að upphæð frá 300 þúsund krónur að 2,5 milljónum króna.
29.5.2001
Gísli Ársæll Snorrason var kjörinn formaður Starfsmannafélags Mosfellsbæjar á aðalfundi félagsins 15. maí sl.
28.5.2001
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti kjarasamning sem gerður var við Launanefnd sveitarfélaga föstudaginn 18. maí sl.
25.5.2001
Aðalfundur STÁ var haldinn á Selfossi þriðjudaginn 22. maí. Sigurbjörg K. Schiöth sagði af sér formennsku í félaginu og hefur verið boðað til framhaldsaðalfundar þann 5. júní.
23.5.2001
Starfsmannafélag Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt kjarasamning milli samninganefndar ríkisins og Kjarna, félaga opinberra starfsmanna.
23.5.2001
Starfsmannafélag Húsavíkur hefur samþykkt kjarasamning milli samninganefndar ríkisins og Kjarna, félaga opinberra starfsmanna.
22.5.2001
Starfsmannafélag Akureyrarbæjar felldi kjarasamning milli samninganefndar ríkisins og Kjarna, félaga opinberra starfsmanna.
22.5.2001
STAVEY, Starfsmannafélag Vestmannaeyja hefur samþykkt kjarasamning SSB við ríkið.
21.5.2001
FOSVest, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, hefur samþykkt kjarasamning milli samninganefndar ríkisins og Kjarna, félaga opinberra starfsmanna.
21.5.2001
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna skrifaði undir kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga föstudaginn 18. maí.
18.5.2001
FOSHún, Félag opinberra starfsmanna í Húnavatnssýslu, hefur samþykkt kjarasamning milli samninganefndar ríkisins og Kjarna, félaga opinberra starfsmanna.
18.5.2001
Starfsmannafélag Skagafjarðar hefur samþykkt kjarasamning milli samninganefndar ríkisins og Kjarna, félaga opinberra starfsmanna.
18.5.2001
Starfsmannafélag Borgarbyggðar samþykkti kjarasamning milli samninganefndar ríkisins og Kjarna, félaga opinberra starfsmanna, á fundi sem ríkisstarfsmenn í félaginu héldu 16. maí sl.
17.5.2001
BSRB mótmælir harðlega lögum ríkisstjórnarinnar um bann við verkfalli sjómanna, í ályktun sem bandalagið hefur sent frá sér.
17.5.2001
Starfsmannafélag Garðabæjar hefur samþykkt samning félagsins við Launanefnd sveitarfélaga.
17.5.2001
Starfsmannafélag Suðurnesja samþykkti samning félagsins við Launanefnd sveitarfélaga 16. maí.
17.5.2001
Á félagsfundi Starfsmannafélags Sjónvarpsins og Starfsmannafélagi Ríkisútvarpsins, sem haldinn var 9. maí 2001, voru atkvæði greidd um kjarasamning þann sem undirritaður var með fyrirvara um samþykki félagsmanna 27. apríl 2001.
17.5.2001
FOSA, Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hefur samþykkt kjarasamning milli samninganefndar ríkisins og Kjarna, félaga opinberra starfsmanna.
16.5.2001
Starfsmannafélag Siglufjarðarkaupstaðar hefur samþykkt kjarasamning milli samninganefndar ríkisins og Kjarna, félaga opinberra starfsmanna.
16.5.2001
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar hefur hefur samþykkt kjarasamning milli samninganefndar ríkisins og Kjarna, félaga opinberra starfsmanna.
16.5.2001
Starfsmannafélag Ólafsfjarðar hefur samþykkt kjarasamning milli samninganefndar ríkisins og Kjarna, félaga opinberra starfsmanna.
16.5.2001
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur samþykkt kjarasamning SSB við ríkið.
15.5.2001
Atkvæðagreiðsla Starfsmannafélags Akraness um kjarasamning Launanefndar sveitarfélaga og Samflots sex bæjarstarfsmannafélaga hefur verið endurtekin og var kjarasamningurinn samþykktur naumlega.
14.5.2001
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur boðað verkfall frá og með 30. maí nk.
14.5.2001
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hefur opnað heimasíðu.
11.5.2001
FOSS, Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, samþykkti kjarasamning SSB og Samninganefndar ríkisins sem gildir frá 1. apríl 2001 – 30. nóvember 2004.
10.5.2001
Samningur Starfsmannafélags Akraness við ríkið var samþykktur með einungis eins atkvæðis meirihluta.
8.5.2001
Á annan tug kæra hafði borist til stjórnar Starfsmannafélags Garðabæjar vegna atkvæðagreiðslu um kjarasamning félagsins við Launanefnd sveitarfélaga.
8.5.2001
Þórveig Þormóðsdóttir var kjörinn nýr formaður Félags starfsmanna stjórnarráðsins á aðalfundi félagsins 26. apríl sl.
4.5.2001
Skrifað var undir nýjan kjarasamning á milli Starfsmannafélags Suðurnesja og Launanefndar sveitarfélaga aðfaranótt 4. maí.
4.5.2001
Atkvæðagreiðslan um kjarasamning Starfsmannafélags Akraness og Launanefndar sveitafélaga hefur verið kærð og hefur verið ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðsluna.
3.5.2001
Atkvæði voru greidd um nýgerðan kjarasamning hjá Starfsmannafélagi Mosfellsbæjar við Launanefnd sveitarfélaga 2. maí og var samningurinn samþykktur.
3.5.2001
Starfsmannafélag Akraness felldi kjarasamning Samflots sex bæjarstarfsmannafélaga og Launanefndar sveitarfélaga.
2.5.2001
Á baráttudegi verkalýðsins sendum við kveðjur til launafólks til lands og sjávar og sérstakar baráttukveðjur sendum við sjómannastéttinni, félögum okkar sem nú eiga í ströngum verkfallsátökum, sagði Ögmundur Jónasson í upphafi ræðu sinnar á útifundi á Ingólfstorgi í Reykjavík 1. maí.
2.5.2001
Atkvæðagreiðsla hefur farið fram um kjarasamning Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi FOSS og Launanefndar sveitarfélaga með gildistíma 1. febrúar 2001 – 31. mars 2005.
2.5.2001
Nýr kjarasamningur milli STAVEY, Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar og LN f.h. Vestmannaeyjabæjar hefur verið samþykktur.
2.5.2001
Nýr kjarasamningur milli STAVEY, Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar og LN f.h. Vestmannaeyjabæjar hefur verið samþykktur.
2.5.2001
STÁ, Starfsmannafélag Sveitarfélagsins Árborgar, hélt félagsfund mánudaginn 30. apríl þar sem kjarasamningur Launanefndar sveitarfélaga og Samflots sex bæjarstarfsmannafélaga, var kynntur félagsmönnum og greidd atkvæði um hann.
30.4.2001
BSRB sendir öllu launafólki baráttukveðjur á 1. maí og minnir á 1. maí kaffið í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, þegar baráttufundi er lokið. Í Reykjavík verður gengið frá Skólvörðuholti. Safnast verður saman við Hallgrímskirkju kl. 13.30 og leggur gangan af stað kl. 14.00. Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14.30. Ræðumenn verða Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Edda Heiðrún Backman les ljóð, Ólafur Kjartan Sigurðsson syngur við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og Guitar Islanco leikur íslensk þjóðlög. Fundarstjóri er Þórunn Sveinbjörnsdóttir 1, varaformaður Eflingar - Stéttarfélags. Lúðrasveit Verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur sjá um undirleik.
30.4.2001
Um 400 lögreglumenn víðs vegar af landinu héldu fund í Bíóborginni mánudaginn 30. apríl og héldu síðan í kröfugöngu niður Laugaveginn að Alþingishúsinu.
30.4.2001
Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins og Starfsmannafélag Sjónvarpsins undirrituðu kjarasamning við RÚV föstudaginn 27. apríl.
30.4.2001
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar undirritaði kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga 25. apríl.
29.4.2001
Starfsmannafélag Akureyrar skrifaði undir nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaganna snemma í morgun, þriðjudaginn 29. apríl.
27.4.2001
Stjórn BSRB samþykkti ályktun þar sem óskað er eftir samræmdum aðgerðum til að lækka verð á ávöxtum og grænmeti.
27.4.2001
Kjarni, stéttarfélög opinberra starfsmanna, undirritaði kjarasamning við launanefnd ríkisins 27. apríl.
27.4.2001
Framhaldsnámskeið fyrir trúnaðarmenn var haldið í Munaðarnesi 24. og 25. apríl.
26.4.2001
Heimasíða Samflotsins
www.samflot.is lá niðri vegna tæknilegra örðugleika í nokkra daga um síðustu helgi.
26.4.2001
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga fór fram 25. apríl hjá Starfsmannafélagi Kópavogs.
26.4.2001
Félag starfsmanna stjórnarráðsins samþykkti kjarasamning sem samninganefnd félagsins gerði við fjármálaráðuneytið.
26.4.2001
Samflot sex bæjarstarfsmannafélaga, auk Seltjarnarness og Garðabæjar, undirrituðu kjarasamning við launanefnd ríkisins laust upp úr miðnætti aðfaranótt 26. apríl.
20.4.2001
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar samþykkti nýgerðan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaganna á félagsfundi 18. apríl.
20.4.2001
SFR samþykkti kjarasamning félagsins við fjármálaráðherra.
20.4.2001
BSRB hefur fengið nýtt símanúmer og sömu sögu er að segja um aðildarfélögin í Félagamiðstöðinni, Grettisgötu 89.
10.4.2001
Póstmannafélag Íslands hefur samþykkt kjarasamning sem félagið gerði við Íslandspóst, en félagsmenn höfðu áður fellt kjarasamning sem félagið gerði upphaflega.
9.4.2001
Samflot sex bæjarstarfsmannafélaga og Launanefnd sveitarfélaganna undirrituðu kjarasamning kl. þrjú aðfaranótt mánudagsins 9. apríl.
6.4.2001
Starfsmannafélag Siglufjarðarkaupstaðar hefur gerst formlegur aðili að samkomulagi BSRB og fjármálaráðherra um ákveðna þætti í kjarasamningum sem varða breytingar á vinnutíma- og vaktaákvæðum kjarasamninga.
6.4.2001
Ingunn Hafdís Þorláksdóttir var kjörin formaður Starfsmannafélags Seltjarnarness á aðalfundi félagsins 4. apríl sl.
3.4.2001
Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi samþykkti kjarasamning við L.N.
2.4.2001
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins undirritaði kjarasamninga við ríkið aðfaranótt 29. mars og gekk frá samkomulagi við Flugmálastjórn í framhaldi af því.
2.4.2001
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og samninganefnd ríkisins undirrituðu nýjan kjarasamning aðfaranótt 29. mars.
2.4.2001
Undanfarna daga hafa félögin í Kjarna greitt atkvæði um kjarasamninga sem félögin 13 undirrituðu við Launanefnd sveitarfélaganna.
2.4.2001
Félag starfsmanna Stjórnarráðsins undirritaði kjarasamning við samninganefnd ríkisins aðfaranótt 29. mars.
28.3.2001
Starfsmannafélag Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt kjarasamninga sem Kjarni gerði við Launanefnd sveitarfélaganna.
28.3.2001
Kjarni, samstarfsvettvangur þeirra 13 starfsmannafélaga sveitarfélaganna, sem skrifuðu undir kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaganna er kominn með heimasíðu.
27.3.2001
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar hefur samþykkt samninga sem Kjarni gerði við Launanefnd sveitarfélaganna.
26.3.2001
Starfsmannafélag Akureyrar felldi samninga Kjarna við Launanefnd sveitarfélaga.
26.3.2001
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins hefur samþykkt verkfallsboðun með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
26.3.2001
SFR og samninganefnd ríkisins undirrituðu nýjan kjarasamning sunnudaginn 25. mars.
26.3.2001
Samtök opinberra starfsmanna á Norðurlöndum, NTR (Nordiskt tjenstemannaråd), þinguðu í Reykjavík dagana 23. og 24. mars. NTR leggur ríka áherslu á að örva umræðu um framtíð velferðarþjónustunnar á Norðurlöndum og hefur stofnað til viðræðna við viðsemjendur og stjórnvöld um hvernig henni sé best fyrir komið og hvernig megi bæta hana.
23.3.2001
Starfsmannafélag Seltjarnarness hefur samþykkt kjarasamning Kjarna við Launanefnd sveitarfélaganna.
23.3.2001
BSRB og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs hafa gert með sér samkomulag um ákveðna þætti í kjarasamningum sem varða breytingar á vinnutíma- og vaktaákvæðum kjarasamninga.
23.3.2001
Starfsmannafélag Siglufjarðarkaupstaðar samþykkti kjarasamning Kjarna við Launanefnd sveitarfélaga á almennum félagsfundi 22. mars.
22.3.2001
Starfsmannafélag Húsavíkur hefur samþykkt samninga sem Kjarni gerði við Launanefnd sveitarfélaganna.
22.3.2001
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hefur samþykkt kjarasamning Starfsmannafélagsins við Reykjavíkurborg sem undirritaður var 2. mars sl.
22.3.2001
Samflotið ákvað á fundi miðvikudaginn 21. mars að vinna ekki sameiginlega að kjarasamningum í nafni Samflotsins gagnvart Samninganefnd ríkisins.
22.3.2001
Póstmannafélag Íslands undirritaði nýjan kjarasamning við Íslandspóst miðvikudaginn 21. mars.
22.3.2001
Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun er í gangi hjá Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins.
22.3.2001
Fulltrúar SFR og samninganefndar ríkisins settu stafi sína við samkomulag um forsendur nýs kjarasamnings að kvöldi 21 mars.
18.3.2001
Fimmtudaginn 15. mars varð uppstytta í samningaviðræðum milli SFR og Samninganefndar ríkisins SNR.
13.3.2001
Starfsmannafélag Kópavogs hefur opnað heimasíðu.
12.3.2001
13 bæjarstarfsmannafélög innan Samflotsins sömdum við Launanefnd sveitarfélaganna aðfaranótt sunnudagsins 11. mars.
8.3.2001
Starfsmannafélag Suðurnesja hefur opnað heimasíðu og slóðinn er
www.stfs.is.
8.3.2001
Starfsmannafélag Suðurnesja undirritaði 31. janúar kjarasamning við Samtök atvinnulífsins vegna hópferðabílstjóra hjá SBK í Keflavík.
6.3.2001
Póstmannfélag Íslands felldi nýgerðan kjarasamning við Íslandspóst.
5.3.2001
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar undirritaði kjarasamning við Reykjavíkurborg 2. mars sl.
1.3.2001
Póstmannafélag Íslands mótmælir þeirri stefnu Íslandspósts hf. að loka útibúum á landsbyggðinni og fá póstþjónustuna í hendur örðum aðilum.
1.3.2001
Landssamband lögreglumanna lýsti yfir eindregnum stuðningi við orð formanns Landssambands lögreglumanna er fram komu í kvöldfréttatíma Ríkissjónvarpsins í gær þar sem rætt var um staðreyndir varðandi yfirvinnu hjá lögreglunni í Reykjavík á sl. ári.
1.3.2001
Undirritaður hefur verið kjarasamningur á milli Skýrr og B-hluta Starfsmannafélags Reykjavíkur.
27.2.2001
Starfsmenn Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hafa samþykkt kjarasamninga sem undirritaðir voru 17. febrúar sl. með miklum meirihluta.
27.2.2001
Skrifað hefur verið undir “Samkomulag Reykjavíkurborgar annars vegar og aðildarfélaga BSRB, BHM og Félags íslenskra leikskólakennara hins vegar um réttindi og skyldur starfsmanna Reykjavíkurborgar”.
23.2.2001
Stjórn BSRB mótmælti á fundi sínum föstudaginn 23. febrúar harðlega þeirri ákvörðun bæjarstjórnar Hafnarfjarðar að bjóða kennslu og rekstur grunnskóla í bæjarfélaginu út í einkaframkvæmd.
22.2.2001
Fræðslunefnd BSRB hefur ákveðið að leggja áherslu á námskeið í tölvu- og upplýsingatækni, einkum grunnnámskeið, fyrir félagsmenn sína til að efla tölvulæsi hjá þeim.
20.2.2001
SFR undirritaði kjarasamning fyrir starfsfólk Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar laugardaginn 17. febrúar.
13.2.2001
Póstmannafélag Íslands undirritaði kjarasamning í gær, 12. febrúar, við Íslandspóst og er þar með fyrsta aðildarfélag BSRB til að semja.
9.2.2001
Skrifstofa BSRB sér um útleigu á orlofshúsunum í Munaðarnesi yfir vetrartímann.
29.1.2001
Samflot starfsmannafélaga bæjarstarfsmanna er komið með heimasíðu þar sem fylgst verður með samningaviðræðum Samflotsins.
2.1.2001
Nú um áramótin tekur Fjölskyldu- og stryktarsjóður opinberra starfsmanna til starfa.