Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Gleðileg jól

21.12.2001

BSRB óskar öllum nær og fjær gleði  og friðar um hátíðarnar.

Á bak við þjóðarsátt þarf að vera þjóð

20.12.2001

Í fjölmiðlum hefur mönnum orðið tíðrætt um að nú sé komin á þjóðarsátt og þar vísað í ákvörðun Alþýðusambands Íslands og Samtaka Atvinnulífsins að segja ekki upp kjarasamningum að sinn, segir Ögmundur Jónassson formaður BSRB í upphafi greinar um samkomulag ASÍ, SA og ríkisstjórnarinnar.

Heilbrigðisvísitala að fæðast

17.12.2001

BSRB hefur nú lagt grunninn að því sem mætti þróa í átt til nýrrar vísitölu þar sem mælt yrði hvernig kostnaðarþátttaka sjúklinga þróast borið saman við annað verðlag. Grunninn að þessari nýju heilbrigðisvísitölu BSRB, þó enn sé langt í land að hún verði að veruleika, mynda sjö einstaklingar sem hrjáðir eru af mismunandi heilsubresti, segir í grein eftir Ögmund Jónasson formann BSRB.

Heilbrigðisútgjöld heimilanna margfaldast

14.12.2001

"Í könnun sem gerð var á vegum landlæknisembættisins fyrir fáeinum árum kom í ljós að efnalítið fólk var farið að veigra sér við að leita læknis einfaldflega vegna þess að það hafði ekki ráð á þjónustunni. Einnig hafa borist fregnir af því að fólk komi í apótek til þess að kaupa lyf samkvæmt lyfseðli en snúi frá þegar það heyri hver kostnaðurinn er," segir m.a. í grein eftir Ögmund Jónasson formann BSRB um heilbrigðisútgjöld heimilanna. 

Kostnaður sjúklinga hefur margfaldast á árunum 1990 - 2001

12.12.2001

Könnun sem unnin var af hagfræðingi BSRB í samráði við lækna og kynnt var á aðalfundi BSRB 7. desember leiðir í ljós að lyfjakostnaður sjúklinga og kostnaður þeirra vegna komugjalda hefur stóraukist á  árunum 1990 - 2001.

Starfsmannafélag Sjónvarpsins sameinast Starfsmannafélagi Ríkisútvarpsins

6.12.2001

Starfsmannafélag Sjónvarpsins hefur sameinast Starfsmannafélagi Ríkisútvarpsins og hefur verið lagt niður formlega. Endanlega var gengið frá þessu á framhaldsaðalfundi Starfsmannafélags Ríkisútvarpsins 5. desember sl. Ragnheiður Valdimarsdóttir er formaður nýrrar stjórnar félagsins.

Sveigjanleg starfslok - Málstofa BSRB

4.12.2001

Sveigjanleg starfslok er yfirskrift málstofu BSRB sem haldin verður fimmtudaginn 6. desember kl. 16.00 í BSRB-húsinu Grettisgötu 89. Málstofan er opin öllum. Tryggvi Þór Herbertsson forstöðumaður hagfræðistofnunar Háskóla Íslands flytur erindi og Ólafur Ólafsson fyrrum landlæknir og Helga Dögg Sverrisdóttir sjúkraliði eru með viðhorf. Fundarstjóri er Arna Jakobía Björnsdóttir formaður STAK.

STAK semur fyrir tónlistarskólakennara

3.12.2001

STAK skrifaði undir kjarasamning við launanefnd sveitarfélaga vegna tónlistarkennara á Akureyri 30. nóvember sl. Samningurinn er sambærilegur við samning launanefndarinnar við Félag tónlistarkennara.

LSS með heimasíðu

3.12.2001

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur opnað heimasíðu. Slóðin á heimasíðuna er http://www.lsssamtok.is/

 


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


atvinnumal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta