Fréttir
Starfsmannafélag Siglufjarðarkaupstaðar opnar heimasíðu
24.9.2001
Starfsmannafélag Siglufjarðarkaupstaðar hefur opnað nýja heimasíðu. Slóðin á heimasíðuna er http://www.nett.is/stjor/
Sjúkraliðar samþykkja verkfallsboðun
14.9.2001
Afgerandi meirihluti sjúkraliða í Sjúkraliðafélagi Íslands hafa samþykkt verkfallsboðun félagsins. Yfir 90% þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hjá ríkinu sögðu já við verkfalli.
Þriggja mínútna þögn í Evrópu
14.9.2001
ASÍ, BHM, BSRB, KÍ og Samband íslenskra bankamanna hvetja launafólk til að taka þátt í sorgarathöfn sem Evrópubúar hafa sameinast um vegna fórnarlamba hryðjuverkanna í Bandaríkjunum.
Varað við að lífeyrissjóðir fjárfesti í álveri
12.9.2001
"Fundur lífeyrisþegadeildar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar varar við því að lífeyrissjóðum landsmanna verði stefnt í tvísýnu í þágu stóriðjuáforma," segir í ályktun sem samþykkt var á fundi lífeyrisþegadeildar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar miðvikudaginn 12. september.
SFR í samstarf við Símennt.is
10.9.2001
Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Jens Andrésson formaður SFR opnuðu þekkingarmiðstöðin Símennt.is með því að skrá sig sem fyrstu nemendur í fjarnám á fræðsluvefnum mánudaginn 10. september.
Sjúkraliðar kjósa um verkfallsboðun
7.9.2001
Sjúkraliðafélag Íslands hefur sent út kjörseðla til félagsmanna sinna sem starfa hjá ríkinu til að kjósa um verkfallsboðun. Niðurstaða mun liggja fyrir föstudaginn 14. september og verði hún sú að félagsmenn vilji grípa til verkfallsvopnsins skellur fyrsta lota verkfalls hjá ríki á mánudaginn 1. október.
BSRB í Kringlunni
7.9.2001
Tölvufræðsla BSRB verður með kynningu á tölvunámskeiðum bandalagsins í samvinnu við Nýja Tölvu- og viðskiptaskólann í Kringlunni laugardaginn 8. september. Kynningin hefst kl. 10 og lýkur kl. 18. Kynningin er í tengslum við Viku símenntunar
Vetrarleiga orlofshúsa að hefjast
6.9.2001
Vetrarleiga orlofshúsa BSRB í Munaðarnesi og Stóru Skógum hefst 14. september. Tilvalið er að skreppa í haustblíðunni upp í Borgarfjörð, njóta náttúrufegurðarinnar og skreppa t.d. í berjamó. Helgarleigan til félagsmanna er 5.500 kr. fyrir stór hús og 4.000 kr. fyrir lítil hús. Verð fyrir utanfélagsmenn er örlítið hærra. Það er skrifstofa BSRB, Grettisgötu 89 Reykjavík , sem sér um útleiguna. Sími 525 8300. Netfang: bsrb@bsrb.is
Tölvunámskeið BSRB hafin
5.9.2001
Svo lengi lifir sem lærir
5.9.2001
Sá skilningur er orðinn mjög almennur í þjóðfélaginu að námi ljúki ekki með skólagöngu. Þetta er ekki ný hugsun á Íslandi – svo lengi lærir sem lifir segir gamalt orðtak. En vegna þeirrar viðhorfsbreytingar sem orðið hefur í seinni tíð er ekki fjarri lagi að snúa þessu orðtaki við til þess að fanga þá hugsun sem nú svífur yfir vötnum. Þá myndi orðtakið hljóma : Svo lengi lifir sem lærir. Sá sem ekki fylgist með þeim öru breytingum sem eiga sér stað á nánast öllum sviðum þjóðlífsins dagar fljótlega uppi, sagði Ögmundur Jónasson í ávarpi sínu við upphaf Viku símenntunar
Skráningarstaðir Tölvufræðslu BSRB
5.9.2001
Tölvufræðsla BSRB og NTV hafa samið við tölvuskóla í öllum landshlutum utan Austurlands um tölvunámskeið fyrir félagsmenn BSRB. Um leið og samið hefur verið við tölvuskóla á Austurlandi verður það kynnt.
Um BSRB
Á döfinni
8. júní 2012
24. ágúst 2012
21. september 2012
Leit
























