Gleðilega hátíð
20.12.2002

BSRB óskar landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar.
18.12.2002
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað kröfum BSRB þess efnis að utanríkisráðuneytið upplýsi um innihald kröfulista Japans, Bandaríkjanna og Indlands á hendur íslenskum stjórnvöldum. Utanríkisráðuneytið hefur hins vegar tilkynnt BSRB að innihald kröfulistanna verði gert opinbert á netinu, þó með þeim hætti að ekki komi fram hvaða kröfur koma frá hvaða landi. Þessi niðurstaða er því sigur fyrir BSRB, þar sem ljóst er að utanríkisráðuneytið er hér að verða við kröfum BSRB. Full ástæða er til að fagna ákvörðun utanríkisráðuneytisins sem hér fer að dæmi Svía, sem hafa haft þennan hátt á að birta kröfulista vegna GATS-samningaviðræðnanna. Þessi nokkuð síðbúna afstaða ráðuneytisins er til eftirbreytni, þar sem að niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál var að leggja blessun sína yfir fyrri synjun ráðuneytisins um sömu upplýsingar. Það að nafn upprunalands kröfulistanna komi ekki fram er í raun bitamunur en ekki fjár.
13.12.2002
Fræðslunefnd BSRB hefur gengið frá samkomulagi við
Nýja tölvu- og viðskiptaskólann um fyrirkomulag Tölvufræðslu BSRB á vorönn 2003. Námskeiðin verða með svipuðu sniði og undanfarnar annir.
6.12.2002

SFR hefur látið hanna fyrir sig nýtt merki og auk þess hefur heimasíða félagsins verið tekin til gagngerrar endurskoðunar og útlit hennar tekið stakkaskiptum. Slóðin á heimasíðu SFR er
www.sfr.is3.12.2002

Um 40 manns sóttu trúnaðarmannanámskeið BSRB í Munaðarnesi dagana 25. - 27. nóvember. Á sama tíma var hópur úr Landssambandi lögreglumanna á staðnum að undirbúa 200 ára afmæli lögreglunnar á Íslandi, en fyrstu lögregluþjónarnir hófu störf í Reykjavík árið 1803.
28.11.2002
BSRB hefur sent frá sér dreifibréf til samtaka kennara og skólafólks þar sem vakin er athygli á að Bandaríkjamenn hafa gert kröfur á ýmis lönd um að þau opni á erlenda samkeppni á ákveðnum sviðum fræðslu. Þar er þess krafist að opnað sé á slíka samkeppni í framhaldsmenntun, fullorðinsfræðslu, starfsnámi og endurmenntun. Ekki er vitað hvort Bandaríkjamenn hafa gert slíkar kröfur á Íslendinga en kröfulisti hefur borist frá Bandaríkjunum til íslenska utanríkisráðuneytisins vegna GATS-samninganna en ráðuneytið hefur neitað að upplýsa BSRB um innihald listans. BSRB hefur kært þá afstöðu ráðuneytisins til úrskurðarnefndar í upplýsingamálum. Niðurstöðu nefndarinnar er að vænta á næstu vikum.
18.11.2002

Á aðalfundi BSRB 15. nóvember afhenti Ögmundur Jónasson formaður BSRB Óla H. Þórðarsyni framkvæmdastjóra Umferðarráðs 500 þúsund krónur til sameiginlegs umferðarátaks, en peningarnir voru gefnir í minningu Helga Andréssonar fyrrverandi stjórnarmanns BSRB en hann lést í umferðarslysi 15. maí sl.
18.11.2002
Aðalfundur BSRB sem haldinn var föstudaginn 15. nóvember 2002 samþykkti fjórar ályktanir. Það voru ályktanir um heilbrigðismál, húsnæðismál, persónuvernd og skattamál.
14.11.2002
BSRB hefur kært til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál synjun utanríkisráðuneytisins á beiðni BSRB um upplýsingar um kröfulista Japans og Bandaríkjanna o.fl. á hendur Íslandi, í tilefni af yfirstandandi samningalotu um útfærslu á GATS-samningnum.
14.11.2002
Leiðari í Fréttamiðlun BSRB
Aðalfundur BSRB er haldinn árlega og er mikilvægasta samkoma á vegum bandalagsins að undanskildu þingi BSRB sem haldið er þriðja hvert ár. Að þessu sinni er fjallað um Evrópumálin og kynnt sjónarmið með og á móti aðild Íslendinga að Evrópusambandinu.
14.11.2002

Ögmundur Jónasson formaður BSRB afhendir Valdimar Þorvaldssyni formanni Starfsmannafélags Akraness málverk eftir Braga Ásgeirsson að gjöf frá BSRB til starfsmannafélagsins.
Laugardaginn 2. nóvember hélt Starfsmannafélag Akraness upp á hálfrar aldar afmæli félagsins með veglegu kaffisamsæti.
14.11.2002

Oft hefur verið kvartað undan því “á þessum síðustu og verstu tímum” að áhugi almennings á stjórnmálum fari dvínandi og er þá oft tekið til marks minnkandi þátttaka í starfi hefðbundinna stjórnmálaflokka. Hitt er sennilega réttara að almenningur hefur fundið sér aðrar leiðir til að finna pólitískum áhuga sínum farveg og er fundur European Social Forum, sem haldinn var í Flórens á Ítalíu dagana 6. til 10. október eitt skýrasta dæmið þar um. Fjöldi áhugahópa, formlegra sem óformlegra, verkalýðsfélaga og frjálsra félagasamtaka alþjóðlegra sem þjóðlegra, sem þar mættu til að kynna máladagskrá sína og taka þátt í almennum samræðum var vel á fimmta hundrað og fjöldi skráðra þátttakenda á “ráðstefnunni” var um fjörtíu þúsund. Talið er að um 450 þúsund manns hafi á laugardeginum tekið þátt í einni stærstu göngu seinni tíma í Evrópu, þar sem kröfuna um stöðvun væntanlegs stríðs í Írak bar einna hæst.
13.11.2002
Aðalfundur BSRB verður haldinn föstudaginn 15. nóvember. Auk venjulegra aðalfundarstarfa eru lífeyrissjóðsmál og Ísland og Evrópusambandið á dagskrá fundarins. Aðalfundur BSRB er haldinn árlega og sitja hann um 80 manns.
5.11.2002

BSRB hefur gefið út bæklinginn Réttindi á vinnumarkaði í samantekt Sigurðar Á. Friðþjófssonar. Bæklingurinn er ætlaður trúnaðarmönnum og er í honum fjallað um réttindi jafnt á opinbera- sem almenna vinnumarkainum, auk þess sem birt eru lög og reglugerðir sem varða réttindi á vinnumarkaði í ritinu. Steinmark prentaði. Meðal efnis í ritinu er umfjöllun um vinnumarkaðinn. Farið er í ýmsa þætti se varða réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, fjallað er um orlofsréttinn og veikindaréttinn , auk þess sem fæðingar- og foreldraorlofi er gerð skil og umfjöllun er um vinnutímatilskipunina.
4.11.2002
Tölvufræðsla BSRB verður í samvinnu við Spyrni með tölvunámskeið í Grunnskólanum á Eskifirði og hefst það 12. nóvember. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í aðildafélögum BSRB.
23.10.2002
Félagsmálaskóli alþýðu heldur námskeið í Reykholti í Borgarfirði dagana 18. - 22. nóvember undir yfirskriftinni Til hvers stéttarfélög í dag. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa þátttakendur í vinnuaðferðum og virkri þátttöku.
23.10.2002
Ögmundur Jónasson formaður BSRB hefur opnað eigin heimasíðu. Slóðin á heimasíðuna er:
www.ogmundur.is 15.10.2002
Vinna gegn streitu er yfirskrift Evrópsku vinnuverndarvikunnar sem stendur dagana 21. - 25. október. Í tilefni vinnuverndarvikunnar efnir Vinnueftirlit ríkisins til morgunvarðarfundar á Grand hótel mánudaginn 21. október kl. 8.30 - 10.00.
8.10.2002
BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði í BSRB húsinu í nóvember nk. Námskeiðið er frítt fyrir alla félaga í aðildarfélögum BSRB og maka þeirra. Námskeiðið verður haldið dagana 18.nóvember, 19. nóvember og 20. nóvember frá klukkan 20.00 til 22.30 öll þjú kvöldin. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 14. nóvember.
2.10.2002
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur svarað bréfi BSRB þar sem óskað var eftir því að ráðherrann beitti sér fyrir þríhliða viðræðum stjórnvalda, stjórnar Íslandspósts hf og fulltrúa félagasamtaka og héraðsfréttablaða um hvernig koma megi í veg fyrir að félagsleg útgáfa í landinu leggist af. Ráðherra segir að á skipaður hafi verið starfshópur til þess að skoða þessi mál og muni starfshópurinn ræða við fulltrúa þeirra aðila sem málið snerta mest, m.a. fulltrúa þeirra samtaka sem nefndir eru í bréfi BSRB
24.9.2002
'BSRB hefur ritað Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra bréf þar sem óskað er eftir að ráðherrann beiti sér fyrir þríhliða viðræðum stjórnvalda, Íslandspósts hf og fulltrúa frjálsra félagasamtaka og héraðsfréttablaða, en ljóst er að breytingar á gjaldskrá Íslandspósts hf geta gengið að félagslegri útgáfu og útgáfu héraðsfréttablaða dauðri.
24.9.2002
Fréttamiðlun BSRB er nýr rafrænn fréttamiðill sem koma mun út mánaðarlega. Fréttamiðlunin mun miðla fréttum og upplýsingum um BSRB og málefni sem tengjast bandalaginu og verkalýðshreyfingunni til áskrifenda miðilsins. Hægt er að gerast áskrifandi að Fréttamiðlun BSRB með því að senda netpóst á
safi@bsrb.is 24.9.2002
Opnum umræðuna-höfnum laumuspili
Þegar eru hafnar á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar viðræður sem kenndar eru við GATS (General Agreement on Trade in Services). Þær fara fram á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO). Þessar viðræður ganga út á að kanna hve langt ríkisstjórnir vilja ganga í að markaðsvæða þjónustustarfsemi. Það hefur komið fram að margar ríkisstjórnir vilja ganga mjög langt að þessu leyti og færa jafnvel velferðarþjónustu og stoðkerfi samfélagsins inn á markaðstorgið. Fráleitt er að ráðist verði í grundvallarbreytingar á samfélaginu án þess að áður hafi farið fram um þær upplýst lýðræðisleg umræða. Það er sjálfsögð og eðlileg krafa og á þeirri kröfu verður staðið.
24.9.2002
BSRB hefur ritað Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra bréf þar sem farið er fram á að bandalagið fái afrit af kröfulistum þeirra landa sem þegar hafa skilað þeim til ráðuneytisins. Vitað er að Japan og USA hafa skilað slíkum kröfulistum og að ekki er ólíklegt að gerð sé krafa til að hlutar menntageirans og orkugeirans verði felldir undir ákvæði GATS og þar með að erlend fyrirtæki fái að hasla sér völl á þessum sviðum með sama rétti og innlend. Nú hefur BSRB farið þess á leit við utanríkisráðuneytið með tilvísun í upplýsingalög að það upplýsi um alla þá kröfulista sem borist hafa, enda almannahagsmunir í húfi þar sem þröng viðskiptasjónarmið GATS-sáttmálans eiga ekki að hafa forgang. Vonast er eftir jákvæðum undirtektum ráðuneytisins enda meti það nauðsyn lýðræðislegrar umræðu að verðleikum.
24.9.2002
Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga ICFTU hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans sem haldinn verður 28.-29. september. Þar er bent á þá óvanalegu staðreynd að nú séu það bandarísk alþjóðafyrirtæki sem eru meginuppspretta óvissu á alþjóða fjármálamörkuðum. Þau hneykslismál sem riðið hafa yfir bandarísk stórfyrirtæki, þar sem stjórnendur hafa orðið uppvísir af svindli og gróðabraski í eigin þágu, ættu að verða stjórnendum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans umhugsunarefni
20.9.2002
Tölvufræðsla BSRB er komin á fullan skrið og skráning á námskeið hafin. Líkt og sl. vetur annast Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn námskeiðin auk símenntunarmiðstöðva og annarra fræðsluaðila á landsbyggðinni. Boðið er upp á TÖK námskeið auk ýmissa annarra tölvunámskeiða. Sjá
yfirlit yfir námskeiðin á höfuðborgarsvæðinu á heimasíðu NTV 20.9.2002
Um 80 manns sóttu mjög vel heppnaða fræðsluráðstefnu BSRB í BSRB-húsinu 19. september. Jón Torfi Jónasson prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands flutti erindi um Símenntun og verkalýðshreyfinguna, Garðar Gíslason félagsfræðingur fjallaði um Tölvufræðslu BSRB, Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri Fræðslusetursins Starfsmennt fjallaði um Fræðslusetrið, Sjöfn Ingólfsdóttir formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sagði frá Starfsmenntunarsjóði félagsmálaráðuneytisins og Rannveig Einarsdóttir skólastjóri Félagsmálaskóla alþýðu fjallaði um Félagsmálaskólann.
12.9.2002
Dreifingarkostnaður blaða- og tímarita sem nota útburð Íslandspósts hf tvö og þrefaldaðist í júlí sl. og er ljóst að ýmis félagsleg útgáfustarfsemi og útgáfa héraðsfréttablaða mun
eiga undir högg að sækja og jafnvel leggjast af. Fjallað er um þessa gjaldskrárbreytingu póstsins í BSRB-tíðindum sem nýkomin eru út. Þar kemur í ljós að félagsleg sjónarmið hafa vikið við hlutafélagsvæðingu fyrirtækisins og talsmenn öryrkja og eldri borgara og fultrúar héraðsfréttablaða telja að þetta geti gengið að þessari útgáfu dauðri.
Sjá grein í BSRB-tíðindum.
12.9.2002
BSRB-tíðindi fjalla að þessu sinni um GATS-samninginn og áhrif hans. Þar er m.a. bent á að líklegt er að íslensk stjórnvöld standi frammi fyrir kröfum frá Japan og Bandaríkjunum um að opna orkugeirann og menntageirann fyrir erlendri samkeppni. Og Evrópubandalagið hefur gert kröfur um að vatnsveitur verði opnaðar fyrir evrópskum risafyrirtækjum. En um þetta er ekki hægt að segja til um með vissu, þar sem utanríkisráðuneytið segir þessa kröfugerð ekki koma íslenskum almenningi við að svo komnu máli og neitar að upplýsa BSRB um í hverju kröfur þessara landa felast. BSRB fer fram á að umræðan um GATS verði opnuð og leggur sitt lóð á vogarskálarnar með umfjöllun um samninginn í BSRB-tíðindum. Við hvetjum alla til að kynna sér málið! Sjá greinaflokk um GATS í BSRB-tíðindum:
GATS Frá vöggu til grafar
Stöðvum GATS-árásirnar núna!
Vatn, orkugeirinn og skólar settir undir GATS á Íslandi?
9.9.2002
Málþing um símenntun í atvinnulífinu verður haldið á Hótel Loftleiðum miðvikudaginn 11. september frá kl. 13 til 16. Meðal fyrirlesara á málþinginu er breski fræðimaðurinn Alan Tuccet forstöðumaður NIACE. Aðgangur er ókeypis.
30.8.2002
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar hefur opnað heimasíðu. Á heimasíðunni er að finna ýmsar upplýsingar fyrir félagsmenn, t.d. varðandi kjaramál, fræðslu orlofsmál o.fl. Slóðin á heimasíðu STAMos er http://www.islandia.is/stamos/
26.8.2002
Sjúkraliðafélag Íslands verður með námskeið fyrir trúnaðar- og stjórnarmenn sína í september. Þetta eru tveggja daga námskeið og hefst það fyrsta 9. september og lýkur því 10. september.
7.8.2002

Námskrá tölvufræðslu BSRB á höfuðorgarsvæðinu og á Selfossi fyrir haustið 2002 er nú tilbúin. Lýsingu á námskeiðunum er hægt að nálgast
hér og dagskrá og tímasetningar
hér Námskeið á landsbyggðinni verða kynnt síðar.
29.7.2002
Heimasíða Viku símenntunar hefur verið opnuð. Slóðin þangað er: www.mennt.net/simenntun/ Vika símenntunar verður haldin 8.-14. september í ár og er yfirskriftin Símenntun í atvinnulífinu.Ýmsir viðburðir tengdir þema átaksins verða í gangi alla Vikuna auk þess sem Vika símenntunar er ætluð til að vekja athygli fólks á mikilvægi þess að afla sér þekkingar allt lífið. BSRB tekur virkan þátt í undirbúningi Viku símenntunar og styður framtakið eins og sl. ár.
25.6.2002
BSRB hefur samið við Nýja tölvu- og viðskiptaskólann um að skólinn sjái áfram um Tölvufræðslu BSRB, en NTV sá um tölvufræðsluna sl. vetur. Boðið verður upp á fjölbreytt námskeið á næsta vetri líkt og sl. vetur. Alls sóttu 1690 félagsmenn í BSRB tölvunámskeið sl. vetur.
13.6.2002
Stundum er hægt að fá leigð hús í Munaðarnesi með litlum fyrirvara ef húsum hefur verið skilað inn vegna forfalla. Til að kanna hvort hús eru laus hafið samband við skrifstofu BSRB í síma 525 8300 eða með tölvupósti:
bsrb@bsrb.is 12.6.2002
Heimasíða Starfsmannafélags ríkisstofnanna hefur tekið miklum stakkaskiptum. Hún hefur fengið nýtt útlit og notendaviðmót og er vefurinn allur hinn glæsilegasti. Slóðin á heimasíðu SFR er
www.sfr.is 11.6.2002

Menningarhátíðin í Munaðarnesi laugardaginn 8. júní var mjög vel heppnuð. Á annað hundrað manns nutu söngs Snorra Wium við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og upplesturs Guðrúnar Þ. Stephensen leikkonu á ljóðum Guðmundar Böðvarssonar. Ögmundur Jónasson formaður BSRB opnaði síðan myndlistarsýningu Hlífar Ásgrímsdóttur sem gleðja mun augu gesta í Munaðarnesi í allt sumar og fram á haust. Veðurguðirnir léku við hvurn sinn fingur og var almenn ánægja með hátíðina.
6.6.2002
Stjórn BSRB tekur undir með samtökum íslenskra sjómanna og krefst þess að íslensk stjórnvöld tryggi að Atlantsskip ehf fylgi ákvæðum samnings vegna flutninga fyrir bandaríska herinn á Íslandi og fari um leið að samkomulagi aðila á íslenskum vinnumarkaði, segir í upphafi ályktunar BSRB um málefni Atlandsskip.
6.6.2002
Heilbrigðishópur BSRB lýsir þungum áhyggjum vegna sífellt lengri biðlista á sjúkrastofnunun og hvetur til þess að fjármagn og mannafli verði tryggður hið bráðasta til að ráða bót á þeim vanda sem við blasir, segir í ályktun frá helbrigðishóp BSRB
29.5.2002
Kristinn Ívarsson tók við formennsku í Starfsmannafélagi Fjarðabyggðar á aðalfundi félagsins 28. maí en Margrét Björnsdóttir fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
29.5.2002
Það er alltaf skemmtilegt og upplífgandi að koma í Þingeyjarsýslur. Ég veit að Þingeyingar telja sig vera nokkuð sérstaka og sannast sagna hallast ég að því sjálfur að svo sé. Enda er það svo að ef menn hafa einlæga sannfæringu fyrir eigin getu þá opnast ýmsar leiðir sem öðrum eru lokaðar. Þannig hófst 1. maí ræða Ögmundar Jónassonar sem hann flutti á Húsavík og Kópaskeri.
28.5.2002
Póstmannafélag Íslands hefur opnað heimasíðu. Slóðin á síðuna er
www.pfi.is Á síðunni er að finna ýmsar upplýsingar um Póstmannafélagið, kjarasamninga, réttindamál, orlofsmál og fleira.
28.5.2002

Menningarhátíð BSRB verður haldin í Munaðarnesi laugardaginn 8. júní og hefst kl. 14. Á Menningarhátíðinni verður opnuð sýning á verkum Hlífar Ásgrímsdóttur. Snorri Wium syngur við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og Guðrún Stephensen leikkona les ljóð. Menningarhátíðin er opin öllum og aðgangur ókeypis.
15.5.2002
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar efnir til opins fundar í Álfafelli við Strandgötu um afstöðu stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram til bæjarstjórnar til einkavæðingar og launastefnu. Fundurinn hefst. kl. 20.00 15. maí.
13.5.2002
Þótt sumarúthlutun á orlofshúsum í Munaðarnesi og Stóru-Skógum hefjist 17. maí er iðulega hægt að fá hús leigð frá skrifstofu BSRB út maí og fyrstu vikurnar í júní. Hægt er að panta hús í síma 525 8300 eða með því að senda netpóst
bsrb@bsrb.is Sé pantað í gegnum netið þarf að koma fram hvernig hús viðkomandi óskar eftir og hvenær. Einnig er hægt að skrá sig á biðlista yfir sumartímann með því að senda netpóst.
30.4.2002
BSRB hvetur félagsmenn sína um allt land að fjölmenna á baráttufundi verkalýðshreyfingarinnar sem haldnir eru um allt land. Að venju hefur fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og Iðnnemasamband Íslands sent frá sér 1. maí ávarp þar sem fjallað er um helstu baráttumál hreyfingarinnar og áherslur í dag.
9.4.2002
BSRB lýsir yfir fullum stuðningi við afstöðu fulltrúa BSRB í nefnd um endurskoðun á verðlagningu grænmetis um að beingreiðslurnar eigi aöð fara til framleiðenda en ekki til söluaðila.
2.4.2002
Ferðanefnd stéttarfélaganna hefur gert samkomulag við ýmsa aðila í ferðaþjónustu um sértilboð fyrir félagsmenn í stéttarfélögum, þar með talið félagsmenn í BSRB. Tilboðin varða flug, gistingu og bílaleigur innanlands.
12.3.2002
Rannsóknir sýna að hin efnahagslega hnattvæðing hefur breytt lífsskilyrðum ótal kvenna. Samdráttur í ríkisafskiptum og einkavæðing nauðsynlegrar þjónustu kemur hart niður á konum sem bera ábyrgð á heimili og heilbrigði fjölskyldna sinna. Milljónir kvenna og unglingsstúlkna vinna við ömurlegar aðstæður á launum sem duga tæplega til framfærslu og mansal viðgengs á konum og börnum til þrælkunar í kynlífsiðnaði, segir m.a. í ályktun sem opinn fundur um áhrif hnattvæðingar á stöðu kvenna sendi frá sér. Fundurinn var haldinn í BSRB húsinu á alþjóðabaráttudegi kvenna 8. mars. Að fundinum stóðu Menningar- og friðarsamtök ísl. kvenna, Bandalag háskólamanna, BSRB, Barnaheill, Félag einstæðra foreldra, Félag ísl. hjúkrunarfræðinga, Félag leikskólakennara, Íslandsdeild Amnesty International, Jafnréttisnefnd Háskóla Íslands, Kennarasamband Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennasögusafn Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Samtök um Kvennaathvarf, Sjúkraliðafélag Íslands, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Starfsmannafélag ríkisstofnana, Stéttarfélag ísl. félagsráðgjafa, Stígamót, Vera, Öryrkjabandalag Íslands.
6.3.2002
Heilbrigðishópur BSRB hefur sent frá sér ályktun þar sem varað er við áformum um einkavæðingu innan heilsugæslunnar. Í ályktuninni segir m.a. að hvarvetna sem einkavæðing innan heilbrigðiskerfisins hafi verið reynd hafi hún reynst kostnaðarsamari fyrir greiðendur og veitt verri þjónustu fyrir notendur.
5.3.2002
Úthlutunarreglur Styrktarsjóðs BSRB eru nú tilbúnar og því hægt að sækja um styrk í sjóðinn. Auk veikindadagpeninga styrkir sjóðurinn m.a. þjálfun, forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir auk útfararstyrks og er kveðið nánar á um það í úthlutunarreglunum.
15.2.2002
BSRB hefur ráðið Þorleif Óskarsson sagnfræðing til að skrá sögu samtakanna í tilefni þess að 60 ár eru liðin frá stofnun BSRB 14. febrúar 1942.
8.2.2002
BSRB fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka komugjöld á heilsugæslustöðvar og tekur undir þá yfirlýsingu heilbrigðisráðherra að það sé mikilvægt heilbrigðispólitískt markmið að ná þessum gjöldum niður, segir í ályktun frá BSRB 1. febrúar sl.
31.1.2002
BSRB hefur ásamt öðru samtökum opinberra starfsmanna og viðsemjenda þeirra gefið út bækling um skipulag vinnutímans. Í bæklingnum eru leiðbeiningar samráðsnefndar um vinnutíma, samningur fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga annars vegar og ASÍ, BHM, BSRB og KÍ hins vegar frá 23. janúar 1997 og að lokum tilskipun Evrópusambandsins frá 23. nóvember 1993.
31.1.2002
Námskeið á vegum Tölvufræðslu BSRB verður haldið í Fjarðabyggð. Námskeiðið verður í Nesskóla í Neskaupstað og hefst 18. febrúar. Skráning í síma 477-1124
30.1.2002
Vinnueftirlit ríkisins gengst fyrir málþingi um kulnun í starfi í Norræna húsinu 8. febrúar kl. 13-17. Aðalfyrirlesari er Wilmar Schaufeli, prófessor í félags- og skipulagssálfræði við háskólann í Utrecht í Hollandi. Prófessor Shaufeli er heimsþekktur fyrir rannsóknir og skrif um þetta efni.
22.1.2002
Starfslokanámskeið verður haldið í BSRB-húsinu dagana 25., 27. og 28. febrúar kl. 20 - 22.30. Námskeiðið er ætlað BSRB félögum á höfuðborgarsvæðinu sem eru að nálgast starfslok og mökum þeirra og er frítt. Skrásetning á námskeiðið er á skrifstofu BSRB, í síma 525 8300 og þarf að skrá sig fyrir 22. febrúar.
8.1.2002
Sjúkraliðafélag Íslands skrifaði undir kjarasamning við SÁÁ að kvöldi 7. janúar, en verkfall átti að skella á á miðnætti. Deilan snérist um það hvort 13 sjúkraliðar sem starfa á Vogi fengju að vera í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og var gengið að þeirri kröfu sjúkraliða.
8.1.2002
Athygli er vakin á að hægt er að leigja hús í Munaðarnesi yfir vetrarmánuðina og annast skrifstofa BSRB útlleigu húsanna. Hægt er að panta húsin í síma 525 8300.
3.1.2002
BSRB mótmælir harðlega hækkunum í heilbrigðisþjónustunni um áramótin og telur að nær væri að lækka gjöld á sjúklinga.