Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Gleðilega hátíð

20.12.2002


BSRB óskar landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar.

Áfangasigur BSRB í GATS-málinu

18.12.2002

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað kröfum BSRB þess efnis að utanríkisráðuneytið upplýsi um innihald kröfulista Japans, Bandaríkjanna og Indlands á hendur íslenskum stjórnvöldum. Utanríkisráðuneytið hefur hins vegar tilkynnt BSRB að innihald kröfulistanna verði gert opinbert á netinu, þó með þeim hætti að ekki komi fram hvaða kröfur koma frá hvaða landi. Þessi niðurstaða er því sigur fyrir BSRB, þar sem ljóst er að utanríkisráðuneytið er hér að verða við kröfum BSRB. Full ástæða er til að fagna ákvörðun utanríkisráðuneytisins sem hér fer að dæmi Svía, sem hafa haft þennan hátt á að birta kröfulista vegna GATS-samningaviðræðnanna.  Þessi nokkuð síðbúna afstaða ráðuneytisins er til eftirbreytni, þar sem að niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál var að leggja blessun sína yfir fyrri synjun ráðuneytisins um sömu upplýsingar. Það að nafn upprunalands kröfulistanna komi ekki fram er í raun bitamunur en ekki fjár.

Tölvufræðsla BSRB á vorönn 2003

13.12.2002

Fræðslunefnd BSRB hefur gengið frá samkomulagi við Nýja tölvu- og viðskiptaskólann um fyrirkomulag Tölvufræðslu BSRB á vorönn 2003. Námskeiðin verða með svipuðu sniði og undanfarnar annir.

SFR með nýtt merki og nýtt útlit á heimasíðu

6.12.2002

SFR hefur látið hanna fyrir sig nýtt merki og auk þess hefur heimasíða félagsins verið tekin til gagngerrar endurskoðunar og útlit hennar tekið stakkaskiptum. Slóðin á heimasíðu SFR er www.sfr.is

Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið

3.12.2002

Um 40 manns sóttu trúnaðarmannanámskeið BSRB í Munaðarnesi dagana 25. - 27. nóvember. Á sama tíma var hópur úr Landssambandi lögreglumanna á staðnum að undirbúa 200 ára afmæli lögreglunnar á Íslandi, en fyrstu lögregluþjónarnir hófu störf í Reykjavík árið 1803.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


innrimal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta