24.9.2002
'BSRB hefur ritað Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra bréf þar sem óskað er eftir að ráðherrann beiti sér fyrir þríhliða viðræðum stjórnvalda, Íslandspósts hf og fulltrúa frjálsra félagasamtaka og héraðsfréttablaða, en ljóst er að breytingar á gjaldskrá Íslandspósts hf geta gengið að félagslegri útgáfu og útgáfu héraðsfréttablaða dauðri.
24.9.2002
Fréttamiðlun BSRB er nýr rafrænn fréttamiðill sem koma mun út mánaðarlega. Fréttamiðlunin mun miðla fréttum og upplýsingum um BSRB og málefni sem tengjast bandalaginu og verkalýðshreyfingunni til áskrifenda miðilsins. Hægt er að gerast áskrifandi að Fréttamiðlun BSRB með því að senda netpóst á
safi@bsrb.is 24.9.2002
Opnum umræðuna-höfnum laumuspili
Þegar eru hafnar á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar viðræður sem kenndar eru við GATS (General Agreement on Trade in Services). Þær fara fram á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO). Þessar viðræður ganga út á að kanna hve langt ríkisstjórnir vilja ganga í að markaðsvæða þjónustustarfsemi. Það hefur komið fram að margar ríkisstjórnir vilja ganga mjög langt að þessu leyti og færa jafnvel velferðarþjónustu og stoðkerfi samfélagsins inn á markaðstorgið. Fráleitt er að ráðist verði í grundvallarbreytingar á samfélaginu án þess að áður hafi farið fram um þær upplýst lýðræðisleg umræða. Það er sjálfsögð og eðlileg krafa og á þeirri kröfu verður staðið.
24.9.2002
BSRB hefur ritað Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra bréf þar sem farið er fram á að bandalagið fái afrit af kröfulistum þeirra landa sem þegar hafa skilað þeim til ráðuneytisins. Vitað er að Japan og USA hafa skilað slíkum kröfulistum og að ekki er ólíklegt að gerð sé krafa til að hlutar menntageirans og orkugeirans verði felldir undir ákvæði GATS og þar með að erlend fyrirtæki fái að hasla sér völl á þessum sviðum með sama rétti og innlend. Nú hefur BSRB farið þess á leit við utanríkisráðuneytið með tilvísun í upplýsingalög að það upplýsi um alla þá kröfulista sem borist hafa, enda almannahagsmunir í húfi þar sem þröng viðskiptasjónarmið GATS-sáttmálans eiga ekki að hafa forgang. Vonast er eftir jákvæðum undirtektum ráðuneytisins enda meti það nauðsyn lýðræðislegrar umræðu að verðleikum.
24.9.2002
Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga ICFTU hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans sem haldinn verður 28.-29. september. Þar er bent á þá óvanalegu staðreynd að nú séu það bandarísk alþjóðafyrirtæki sem eru meginuppspretta óvissu á alþjóða fjármálamörkuðum. Þau hneykslismál sem riðið hafa yfir bandarísk stórfyrirtæki, þar sem stjórnendur hafa orðið uppvísir af svindli og gróðabraski í eigin þágu, ættu að verða stjórnendum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans umhugsunarefni
20.9.2002
Tölvufræðsla BSRB er komin á fullan skrið og skráning á námskeið hafin. Líkt og sl. vetur annast Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn námskeiðin auk símenntunarmiðstöðva og annarra fræðsluaðila á landsbyggðinni. Boðið er upp á TÖK námskeið auk ýmissa annarra tölvunámskeiða. Sjá
yfirlit yfir námskeiðin á höfuðborgarsvæðinu á heimasíðu NTV 20.9.2002
Um 80 manns sóttu mjög vel heppnaða fræðsluráðstefnu BSRB í BSRB-húsinu 19. september. Jón Torfi Jónasson prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands flutti erindi um Símenntun og verkalýðshreyfinguna, Garðar Gíslason félagsfræðingur fjallaði um Tölvufræðslu BSRB, Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri Fræðslusetursins Starfsmennt fjallaði um Fræðslusetrið, Sjöfn Ingólfsdóttir formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sagði frá Starfsmenntunarsjóði félagsmálaráðuneytisins og Rannveig Einarsdóttir skólastjóri Félagsmálaskóla alþýðu fjallaði um Félagsmálaskólann.
12.9.2002
Dreifingarkostnaður blaða- og tímarita sem nota útburð Íslandspósts hf tvö og þrefaldaðist í júlí sl. og er ljóst að ýmis félagsleg útgáfustarfsemi og útgáfa héraðsfréttablaða mun
eiga undir högg að sækja og jafnvel leggjast af. Fjallað er um þessa gjaldskrárbreytingu póstsins í BSRB-tíðindum sem nýkomin eru út. Þar kemur í ljós að félagsleg sjónarmið hafa vikið við hlutafélagsvæðingu fyrirtækisins og talsmenn öryrkja og eldri borgara og fultrúar héraðsfréttablaða telja að þetta geti gengið að þessari útgáfu dauðri.
Sjá grein í BSRB-tíðindum.
12.9.2002
BSRB-tíðindi fjalla að þessu sinni um GATS-samninginn og áhrif hans. Þar er m.a. bent á að líklegt er að íslensk stjórnvöld standi frammi fyrir kröfum frá Japan og Bandaríkjunum um að opna orkugeirann og menntageirann fyrir erlendri samkeppni. Og Evrópubandalagið hefur gert kröfur um að vatnsveitur verði opnaðar fyrir evrópskum risafyrirtækjum. En um þetta er ekki hægt að segja til um með vissu, þar sem utanríkisráðuneytið segir þessa kröfugerð ekki koma íslenskum almenningi við að svo komnu máli og neitar að upplýsa BSRB um í hverju kröfur þessara landa felast. BSRB fer fram á að umræðan um GATS verði opnuð og leggur sitt lóð á vogarskálarnar með umfjöllun um samninginn í BSRB-tíðindum. Við hvetjum alla til að kynna sér málið! Sjá greinaflokk um GATS í BSRB-tíðindum:
GATS Frá vöggu til grafar
Stöðvum GATS-árásirnar núna!
Vatn, orkugeirinn og skólar settir undir GATS á Íslandi?
9.9.2002
Málþing um símenntun í atvinnulífinu verður haldið á Hótel Loftleiðum miðvikudaginn 11. september frá kl. 13 til 16. Meðal fyrirlesara á málþinginu er breski fræðimaðurinn Alan Tuccet forstöðumaður NIACE. Aðgangur er ókeypis.