Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Samningar um potta í Munaðarnes undirritaðir

16.12.2003

Samningurinn um kaup á heitum pottum af Norm-X undirritaður. Á myndinni eru f.v. Rafn Kristjánsson frá Fjarhitun, Erling Auðunsson frá Norm-X og Jónas Magnússon gjaldkeri BSRB.

Samningar hafa verið undirritaðir við Norm-X um kaup á heitum pottum í Munaðarnes eftir útboð. Pottarnir verða settir upp við orlofshús BSRB í Munaðarnesi og Stóru-Skógum og á því að verða lokið fyrir 15. júní nk.

Lögreglukonur með eigin vef

16.12.2003

Lögreglukonur á Íslandi hafa opnað heimasíðu, www.logreglukonur.is  Á síðunni segir að stjórn Tengslanets íslenskra lögreglukvenna hafi að undanförnu unnið markvisst að því að betrumbæta samskipti við lögreglukonur svo og aðra lögreglumenn, þannig að mögulegt verði að miðla upplýsingum á landsvísu á sem aðgengilegastan og skilvirkastan hátt. Þáttur í því sé að opna heimasíðuna.

Nýjar úthlutunarreglur Styrktarsjóðs BSRB

15.12.2003

Úthlutunarreglur Styrktarsjóðs BSRB breytast um áramótin. Helstu nýmælin eru að nú er ættleiðing, glasafrjóvgun og tæknisæðing styrkt. Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 6 mánuði af síðustu 12 fær styrk til ættleiðingar barns 200.000 kr. í eitt skipti, til glasafrjóvgunar 100.000 kr. í eitt skipti og til tæknisæðingar 21.000 kr. einu sinni á ári.

Ríkislögreglustjóri braut stjórnsýslu- og starfsmannalög

15.12.2003

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt ríkislögreglustjóra til að greiða fertugri konu tvær milljónir króna fyrir ólögmæta uppsögn í starfi og að ósekju. Þá var ríkislögreglustjórinn dæmdur til að greiða konunni hálfa milljón króna í málskostnað. Það var Gísli Guðni Hall hrl sem rak málið fyrir SFR en konan er félagi í Starfsmannafélagi ríkisstofnana.

Fjölmenni á starfslokanámskeiði

5.12.2003

Starfslokanámskeið BSRB var haldið dagana 1., 2. og 4. desember og sóttu það um 70 manns. Þátttakendur höfðu bæði gagn og gaman af námskeiðinu og ljóst að full þörf er á þessari þjónustu. Námskeiðið var fyrir félagsmenn í BSRB og maka þeirra og þátttakendum að kostnaðarlausu. Ekki komust allir að þegar skráð var á námskeiðið og um 40 manns á biðlista. Annað námskeið verður því haldið eftir áramót og verður það auglýst síðar.

Meirihluti þjóðarinnar andvígur einkarekstri í heilbrigðiskerfinu

2.12.2003

Mikill meirihluti þjóðarinnar er andvígur auknum einkarekstri í heilbrigðiskerfinu samkvæmt skoðanakönnun sem Gallup hefur gert. Tæplega 52% þjóðarinnar eru andvíg auknum einkarekstri í heilbrigðiskerfinu, 35% eru hlynnt og rúmlega 13% eru hvorki hlynnt né andvíg.

Aðalfundur BSRB mótmælir breytingum á lögum um réttindi og skyldur og hvetur til að staðið sé við samkomulag við öryrkja

28.11.2003

Aðalfundur BSRB föstudaginn 28. nóvember hefur sent frá sér tvær ályktanir. Annars vegar er um að ræða ályktun þar sem frumvarpi fjármálaráðherra um breytingar á lögum um réttindi og skyldur er mótmælt og hins vegar ályktun þar sem ríkisstjórnin er hvött til að standa við samkomulag sem gert var við Öryrkjabandalag Íslands um hækkun á grunnlífeyri og breytingar á kerfi örorkulífeyris.

Kjarnafélögin samþykkja sameiningu

27.11.2003

Átta starfsmannafélög sveitarfélaga á Vesturlandi og Norðurlandi hafa samþykkt sameiningu í skoðanakönnun sem gerð var meðal félagsmanna þeirra. Þetta eru STAK á Akureyri, Starfsmannafélag Dalvíkurbyggðar, Starfsmannafélag Siglufjarðar, Starfsmannafélag Skagafjarðar, FOSHun, FOSVest, Starfsmannafélag Dala- og Snæfellssýslu og Starfsmannafélag Borgarbyggðar. Sameiningin var felld í Starfsmannafélagi Fjarðabyggðar, en alls tóku níu félög þátt í skoðanakönnuninni.

Fjármálaráðherra neitar að draga frumvarpið til baka

27.11.2003

Geir H. Haarde fjármálaráðherra féllst ekki á að draga til baka frumvarp um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisisins á fundi með fulltrúum BSRB, BHM og KÍ miðvikudaginn 26. nóvember, og hefja þess í stað viðræður við samtökin um hvernig best megi koma fyrir skýrum verklagsreglum um ráðningar og starfslok. Á fundinum var fjármálaráðherra afhent bréf þar sem afstaða samtakanna til frumvarpsins er skýrð. Með því að draga frumvarpið ekki til baka setur fjármálaráðherra í uppnám allt samstarf ráðuneytisins við heildarsamtökin m.a. um endurskoðun á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna sem nú stendur yfir.

Ágrip af sögu BSRB

26.11.2003


Bandalag starfsmanna ríkis og bæja var stofnað á kennarastofu Austurbæjarskólans í Reykjavík 14. febrúar 1942.

 Nú er komið á vefinn ágrip af sögu BSRB sem Þorleifur Óskarsson sagnfræðingur hefur tekið saman. Þar er stiklað á helstu viðburðum í sögu bandalagsins auk þess sem fjallað er um uppbyggingu þess, starfsemi og baráttumál.
Slóðin inn á Sögu BSRB er http://www.bsrb.is//page.asp?id=689

Ríki mennskunnar - Eitt samfélag fyrir alla. Siðferðileg áhersla 21. aldarinnar

25.11.2003

Rektor Háskóla Íslands heldur málþing í samstarfi við félagsmálaráðuneytið, Alþýðusamband Íslands, BSRB og Samtök atvinnulífsins, í tilefni af Evrópuári fatlaðra 2003. Yfirskrift málþingsins er: Ríki mennskunnar - Eitt samfélag fyrir alla. Siðferðileg áhersla 21. aldarinnar. Málþingið er haldið þriðjudaginn 2. desember 2003, kl. 15.00 – 17.30, í Hátíðasal Háskóla Íslands og er opið öllu áhugafólki um málefni fatlaðra.

Meginsjónarmið BSRB, BHM og KÍ varðandi atlögu að starfsöryggi ríkisstarfsmanna

18.11.2003

BSRB, BHM og KÍ hafa sent frá sér sameiginleg meginsjónarmið um frumvarp ríkisstjórnarinnar á breytingum á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins sem fela það í sér að afnema áminningarskyldu stjórnvalda og andmælarétt starfsmanna komi til uppsagnar þeirra. Hér er um að ræða breytingar á grundvallarréttindum ríkisstarfsmanna hvað varðar starfsöryggi varðar. Þessi meginsjónarmið heildarsamtakanna hafa verið send öllum þingmönnum enda á frumvarpið að koma til fyrstu umræðu á þinginu í dag.

Public Service International (PSI) – Alþjóðasamband starfsfólks í almannaþjónustu

14.11.2003

Ögmundur Jónasson skrifar frá Genf:
Frá þriðjudegi til föstudags hefur staðið yfir fundur í stjórn PSI en þar á ég sæti. Stjórnarmenn koma frá öllum heimshornum en samtals eiga aðild að samtökunum 20 milljónir, allt starfsmenn innan almannaþjónustunnar. Fundurinn er vel skipulagður, miklar upplýsingar eru settar fram á markvissan hátt.

Þingtíðindi komin út

14.11.2003

Þingtíðindi 40. þings BSRB eru komin út. Í þingtíðindum er að finna allar ályktanir þingsins, dagskrá þess, fulltrúatal, úrdrátt úr ræðu formanns BSRB, frásagnir af erindi Hrafns Magnússonar og einleiknum Fjóla á ströndinni, auk hins ómissandi Vísnaþáttar.

Árás ríkisstjórnar á grundvallarréttindi launafólks

13.11.2003

BSRB, BHM, KÍ mótmæla harðlega framkomnu frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Heildarsamtök opinberra starfsmanna hafa litið svo á að allar breytingar á þessum lögum skuli gerðar í fullu samráði við samtökin. Hér er hins vegar farið fram án alls samráðs og við slíkt verður ekki unað.

Starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu

12.11.2003

Undanfarna vetur hefur BSRB staðið fyrir starfslokanámskeiðum á höfuðborgarsvæðinu og reynst mikill áhugi fyrir þessum námskeiðum. Mikill fjöldi fólks hefur sótt námskeiðin og er látið mjög vel af þeim. Nú hefur verið ákveðið að vera með starfslokanámskeið í BSRB húsinu dagana 1., 2. og 4. desember.

Áhrifamikill leikþáttur um einelti

31.10.2003


Sigríður Eyrún Friðriksdóttir leikkona sló í gegn þegar hún flutti einþáttunginn Fjóla á ströndinni á þingi BSRB í síðustu viku. Einþáttungurinn fjallar um einelti en á undanförnum misserum hafi orðið vakning í þjóðfélaginu um einelti og alvarlegar afleiðingar þess. Fórnarlömb eineltis í skóla og á vinnustað hafa sýnt aðdáunarvert hugrekki með því að stíga fram og segja frá reynslu sinni.

Skýr skilaboð frá BSRB

29.10.2003

Á meðal þeirra málaflokka sem fjallað var um á nýafstöðnu þingi BSRB voru húsnæðismál. Á því sviði hefur bandalagið markað skýra stefnu þar sem gert er ráð fyrir samvinnu ríkis, sveitarfélaga og lífeyrissjóðanna í landinu en eignir þeirra munu innan fjögurra ára nema um eitt þúsund milljörðum króna. Fráleitt er annað en að þessi sparnaður, sem samfélagið hefur komið sér saman um, verði nýttur í uppbyggileg verkefni. Þar er húsnæðiskerfið ofarlega á blaði, segir m.a. í grein eftir Ögmund Jónasson formann BSRB sem birtist í Fréttablaðinu 29. október 2003

Forysta BSRB endurkjörin

27.10.2003

40. þingi BSRB lauk föstudaginn 24. október með kjöri formanna, ritara og gjaldkera BSRB, en saman mynda þessir aðilar framkvæmdanefnd bandalagsins. Kjörnefnd lagði til að fráfarandi forysta yrði endurkjörin og voru allir í framkvæmdanefndinni kosnir með lófataki. Formaður BSRB er Ögmundur Jónasson, 1. varaformaður Sjöfn Ingólfsdóttir, 2. varaformaður Jens Andrésson, ritari Elín Björg Jónsdóttir og gjaldkeri Jónas Magnússon.

Ályktanir 40. þings BSRB

24.10.2003

40. þing BSRB hefur sent frá sér fjölda ályktana sem taka jafnt til stefnumótunar samtakanna og ýmissa brýnna þjóðfélagsmála. Má þar nefna skattamál, húsnæðismál, jafnréttismál, fæðingarorlof, atvinnuleysisbætur og ýmis fleiri mál. Á þinginu hefur verið rætt um skipulag almannaþjónustunnar og er harðlega lagst gegn einkavæðingu í henni.

Lífeyrisgreiðslur lífeyrissjóðanna hærri en lífeyrisbætur almannatrygginga

23.10.2003

Eignir lífeyrissjóðanna í árslok í fyrra námu alls 679 milljörðum krónar og munu fara yfir  700 milljarða í lok þessa árs.  Ef svo heldur sem horfir eru líkur á að eignir sjóðanna verði komnar yfir 1000 milljarða fyrir lok árs 2007.
Þetta kom m.a. fram í erindi sem Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða hélt á þingi BSRB.
Þar kom einnig fram að lífeyrisgreiðslur lífeyrissjóðanna nema hærri fjárhæðum en lífeyrisbætur almannatrygginga.  Lífeyrissjóðirnir greiða mánaðarlega um tvo og hálfan milljarð króna í lífeyri til sjóðfélaga sinna eða um 30 milljarða króna á þessu ári.  Hlutur lífeyrissjóðanna í lífeyrisgreiðslum hefur aukist um 1,3% af landsframleiðslu frá árinu 1990 en hlutur almannatrygginga í lífeyrisgreiðslum um hálft prósentustig á sama tíma. Þannig fer æ stærri hluti af innstreymi til sjóðanna í lífeyrisgreiðslur til landsmanna.

Ræða Ögmundar Jónassonar við opnun 40. þings BSRB

22.10.2003

Við höldum þetta þing undir kjörorðinu Réttlátir skattar – undirstaða velferðar. Með þessu viljum við undirstrika tvennt: Annars vegar minna á að til þess að geta rekið öfluga og góða velferðarþjónustu er þörf á að afla ríki og sveitarfélögum skatttekna og hins vegar viljum við leggja áherslu á hve mikilvægt er að það skattkerfi sem við búum við sé réttlátt – menn séu skattlagðir eftir efnum og ástæðum. BSRB hefur lagt mikla vinnu í að þróa nýjar hugmyndir í skattamálum.

Landssamband lögreglumanna hafnar úrsögn úr BSRB

16.10.2003

Landssamband lögreglumanna hafnaði úrsögn úr BSRB í atkvæðagreiðslu sem fram fór dagana 6. til 13. október. Atkvæði voru talin í dag 16. október og voru 44% með áframhaldandi aðild en 43% með úrsögn. Auðir og ógildir seðlar voru 13%. Tvo þriðju hluta greiddra atkvæða þurfti til að úrsögn væri samþykkt. Lögreglufélag Reykjavíkur samþykkti hinsvegar úrsögn úr BSRB en félagið hefur haft sjálfstæða aðild að bandalaginu þótt félagsmenn séu áfram í BSRB þar sem þeir eru í Landssambandi lögreglumanna.

Réttlátir skattar - undirstaða velferðar

13.10.2003

40. þing BSRB verður haldið dagana 22. til 24. október í Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni). Yfirskrift þingsins er Réttlátir skattar - undirstaða velferðar. Til að nálgast dagskrá þingsins þarf að smella á sjá nánar. 

Vatn fyrir alla

2.10.2003

Hér á heimasíðu BSRB hefur verið opnuð síða þar sem finna má tengla inn á síður sem fjalla um vatn í víðu samhengi, rannsóknarskýrslur og úttektir af ýmsu tagi ásamt samþykkt nefndar Sameinuðu þjóðanna þar sem vatn er skilgreint sem grunnmannréttindi og ríkjum heims er lögð sú skyldu á herðar að allir geti notið þeirra réttinda. Auk þess er á síðunni að finna tillögur BSRB sem lagðar voru fram í tilefni lagafrumvarps ríkisstjórnarinnar um hlutafélagavæðingu vatnsveitna á Íslandi. Hægt er að nálgast síðuna í veftrénu hér til vinstri eða með því að smella hér.

BSRB krefst þess að verktakar brjóti ekki á launafólki

25.9.2003

Stjórn BSRB krefst þess að verktakafyrirtæki sem vinna við stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi virði í hvívetna kjarasamninga og lög og reglur sem gilda á íslenskum vinnumarkaði.  Stjórnvöldum ber skylda til að grípa í taumana ef brotið er á launafólki eða ekki sinnt kröfum sem almennt eru gerðar hér á landi um aðbúnað á vinnustað.
Þannig hefst ályktun sem stjórn BSRB samþykkti á fundi í dag 25.september

BSRB tekur undir með heilbrigðisráðherra

25.9.2003

Stjórn BSRB samþykkti ályktun um stöðuna á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Í inngangi hennar segir: Stöðugar hótanir stjórnarnefndar Landspítala-Háskólasjúkrahúss um niðurskurð og brottrekstur starfsfólks valda óöryggi og vanlíðan og grafa þannig undan starfsemi stofnunarinnar. Sú spurning gerist áleitin að verið sé að búa í haginn fyrir einkavæðingu innan sjúkrahússins.

Samið um tölvufræðslu við NTV

1.9.2003

BSRB og Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn hafa gert með sér samkomulag um sérstakan afslátt fyrir félagsmenn í BSRB á tölvunámskeiðum NTV. Samningurinn byggir á eldri samstarfssamningum bandalagsins og NTV.

Fjölbreytt dagskrá viku símenntunar

1.9.2003

Vika símenntunar verður sett sunnudaginn 7. september kl. 13.30 í Kennaraháskóla Íslands og í Egilshúsi í Stykkishólmi. Að venju verður margt í boði þessa viku en hápunkturinn er vafalítið Málþing um fjarnám á Hótel Loftleiðum þriðjudaginn 9. september þar sem aðalfyrirlesari er Dr. Gilly Salmon sem kennir m.a. við Open University Business School í Bretlandi. Gilly er sérfræðingur í  kennslu í fjarnámi og sendi árið 2002 frá sér bókina E-tivitis - the key to active online learning.

Sýn BSRB á GATS-samninginn

25.8.2003

Hér er  í örstuttu máli lýst afstöðu BSRB til GATS-samningins og hvað sýn samtökin hafa á hann. BSRB hefur í samræmi við áyktanir síðasta þings samtakanna kynnt sér eftir föngum helstu þætti alþjóðavæðingarinnar og þær stofnanir og helstu samninga þeirra sem þar eiga hlut að máli. Sérstaklega hefur GATS-samningurinn verið tekinn til skoðunnar.
Erindi Páls H. Hannessonar flutt á kynningarfundi utanríkisráðuneytisins í aðdraganda Kankún-fundarins 21.ágúst 2003.

Heimasíða Styrktarsjóðs BSRB

27.6.2003

Styrktarsjóður BSRB er kominn með heimasíðu. Slóðin á heimasíðuna er: http://styrktarsjodur.bsrb.is Á síðunni er hægt að nálgast úthlutunarreglur sjóðsins og umsóknareyðublöð, auk ýmissa annarra upplýsinga um sjóðinn.

Hafnarfjarðarbær skýri fyrirhugaðar skipulagsbreytingar

26.6.2003

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur sent frá sér ályktun þar sem þess er krafist að þær breytingar og tilfærslur sem fyrirhugaðar eru vegna skipulagsbreytinga hjá Hafnarfjarðarbæ komi upp á borð þannig að hægt sé að koma þessum málum í viðundandi horf hið fyrsta. Það geti ekki talist til góðra stjórnunarhátta að halda fjölda starfsmanna í óvissu vikum saman.

Ný heimasíða LSS

26.6.2003

Landsamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur opnað nýja heimasíðu og jafnframt breytt slóðinni á síðuna.Slóðin er http://www.lsos.is Á heimasíðunni er að finna fréttir úr starfi félagsins, upplýsingar um félagið, lög og reglugerðir, eldvarnarleik og margt fleira.

LL vann mál gegn ríkislögreglustjóra

26.6.2003

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í máli sem Landssamband lögreglunnar höfðaði gegn lögreglustjóraembættinu vegna túlkunar á bókun í stofnanasamningi um hvort taka ætti tillit til annarra starfa en lögreglustarfa. Úrskurðurinn var Landssambandinu í hag og ber að taka mið af starfsaldri utan lögreglu þegar raða á lögreglumönnum í launaflokka. Dómurinn var kveðinn upp 11. júní sl.

Fjarnám og aðrar óhefðbundnar leiðir til fjarnáms

26.6.2003

Vika símenntunar verður haldin dagana 7.-13. september nk. Vikan sem er á vegum menntamálaráðuneytisins, er nú haldin í fjórða sinn hér á landi og sér Mennt um skipulagningu og framkvæmd hennar í  samvinnu við símenntunarmiðstöðvar um land allt. Þema Viku símenntunar að þessu sinni er "Fjarnám" og aðrar óhefðbundnar leiðir til náms. Áhersla verður einnig lögð á almenna hvatningu og kynningu á mikilvægi símenntunar fyrir almenning. BSRB er aðili að Viku símenntunar ásamt ASÍ, BHM, Samtökum atvinnulífsins, símenntunarmiðstöðvum og ráðuneytum félagsmála og menntamála. Mennt sér um skipulagningu vikunnar.

Fjölmenn Menningarhátíð í Munaðarnesi

12.6.2003

Ögmundur, Anna, Pétur, Diddú og Jónas
Ögmundur Jónasson, Anna Gunnlaugsdóttir, Pétur Gunnarsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Jónas Ingimundarson við opnun sýningarinnar

Sýning á verkum Önnu Gunnlaugsdóttur myndlistarkonu var opnuð í þjónustumiðstöðinni í orlofsbyggðum BSRB í Munaðarnesi laugardaginn 7. júní. Í tengslum við opnunina var að venju efnt til Menningarhátíðar þar sem Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona – Diddú – söng við undirleik Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara og Pétur Gunnarsson rithöfundur ávarpaði gesti og las upp úr verkum sínum bæði í bundnu máli og óbundnu.. Húsfyllir var og hreif Diddú alla viðstadda með söng sínum og Jónas Ingimundarson fór á kostum í tali og tónum. Mjög góður rómur var einnig gerður af upplestri Péturs.  Þá ávarpaði Ögmundur Jónasson formaður BSRB gesti Menningarhátíðarinnar.

Evrópusamband verkalýðsfélaga vill aðgerðir gegn atvinnuleysi

12.6.2003


Jens Andrésson, Ögmundur Jónasson, Grétar Þorsteinsson, Gylfi Arnbjörnsson og Halldór Björnsson fyrir utan þingstaðinn. Halldór Grönvold tók myndina.

Á nýafstöðnu þingi Evrópusambands verkalýðsfélaga (ETUC – European Trade Union Confederation) sem haldið var í Prag í Tékklandi er þeim tilmælum beint til stjórnvalda í Evrópuríkjum að þau geri allt sem í þeirra valdi stendur til að sporna gegn vaxandi atvinnuleysi í álfunni.

Framhald á forystufræðslunni

11.6.2003

Ákveðið hefur verið að efna til auka námskeiðs í forystufræðslu BSRB í byrjun september. Þá er komin stundaskrá fyrir lotu 2 í forystufræðslu BSRB í Munaðarnesi næsta haust. Fyrirkomulaginu hefur verið breytt þannig að nú er farið upp eftir að mánudagsmorgni og hefst námskeiðið sjálft kl. 13. eftir að þátttakendur hafa nærst.

Kvennaslóðir.is – íslenskur kvennagagnabanki

11.6.2003

Nú í sumar verður opnaður við hátíðlega athöfn íslenskur kvennagagnabanki, www.kvennaslóðir.is .  Í gagnabankann verða skráðir kvensérfræðingar á ýmsum sviðum með það að markmiði að gera þekkingu og hæfni kvenna sýnilega og aðgengilega.

Tilboð Íslands vegna GATS gert opinbert

30.5.2003

Utanríkisráðuneytið hefur nú orðið við ósk BSRB og gert opinbert fyrsta tilboð Íslands vegna GATS-samningaviðræðnanna sem nú standa yfir. Ísland skilaði tilboði sínu þann 31. mars sl. til WTO og hefur BSRB síðan beðið eftir að fá þau gögn afhent. Utanríkisráðuneytið hefur lýst tilboði sínu þannig að ekki hafi verið opnað fyrir markaðsaðgang á nýjum sviðum en skuldbindingaskráin hafi verið uppfærð í samræmi við núgildandi lög og reglur. Í BSRB-tíðindum hefur þegar verið bent á að með því að færa innlend lög og reglugerðir inn í GATS-samninginn þá sé í raun verið að festa þau ákvæði endanlega í sessi, sama hvað seinni tíma ríkisstjórnum kann að finnast um inntak þeirra og áhrif á þjóðfélagið. Því sé í raun mjög varhugavert að leggja fram slíkt tilboð, sérstaklega þar sem ekkert mat hafi verið lagt á áhrif þessa samnings fyrir þjóðfélagið. Einnig hefur verið á það bent að þar sem Ísland leggur ekki fram neinar kröfur á hendur öðrum aðilum WTO í þessum samningaviðræðum, þá sé það undarleg ráðstöfun að leggja fram tilboð án þess að eiga von á að fá neitt í staðinn. Nánar mun verða farið í einstök efnisatriði tilboðs Íslendinga til WTO hér á þessum vef, áður en langt um líður.

Ný og endurbætt heimasíða LSS

27.5.2003

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitafélaga hefur opnað nýja og endurbætta heimasíðu www.lss.is Þar er hægt að fá allar nauðsynlegar upplýsingar í tengslum við sjóðinn.

FOSA fagnar niðurstöðu Kjaradóms

23.5.2003

Aðalfundur FOSA, Félags opinberra starfsmanna á Austurlandi, fagnar kjarabótum þeim sem Kjaradómur færði skjólstæðingum sínum daginn eftir Alþingiskosningar og væntir þess að sömu kjarabætur nái til annarra launamanna þegar kjarasamningar renna út.

Hugsum upp á nýtt - Skattahugmyndir BSRB

22.5.2003

Fyrir tæpu ári síðan tók stjórn BSRB ákvörðun um að ráðast í heildstæða úttekt á skattkerfinu. Stjórninni þótti ljóst að umræða um skattamál væri að mörgu leyti komin í öngstræti og þörf væri á nýrri nálgun af hálfu samtaka launafólks.

Heildstæð lausn - Viðtal við Gunnar Gunnarsson hagfræðing BSRB um skattahugmyndir bandalagsins

22.5.2003

Fyrir ári síðan fól stjórn BSRB Gunnari Gunnarssyni hagfræðingi bandalagsins að vinna að heildstæðri úttekt á skattkerfinu og gera tillögur til úrbóta. Árangurinn af starfi Gunnars er nú að líta dagsins ljós. Hann hefur lagt fram mjög athyglisverðar hugmyndir um nýsköpun í skattamálum. Fyrir liggja af hans hálfu drög að fullmótaðri skattastefnu samtakanna sem kynnt verður með nákvæmum hætti á ráðstefnu á komandi hausti.

Anna, Diddú og Pétur á Menningarhátíð í Munaðarnesi

19.5.2003

Árleg Menningarhátíð BSRB verður í Munaðarnesi laugardaginn 7. júní nk. Þar verður opnuð sýning á verkum Önnu Gunnlaugsdóttur. Diddú, Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona syngur við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og Pétur Gunnarsson rithöfundur mun lesa upp á hátíðinni. Þá flytur Ögmundur Jónasson formaður BSRB ávarp.

Sjúkraliðar mótmæla hækkunum kjaradóms

19.5.2003

Fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands, sem haldið var 14. maí, mótmælir harðlega því tvöfalda siðferði kjaradóms sem birtist í úrskurði hans um laun æðstu embættismanna, ráðherra og þingmanna. Með dómi sínum ákveður kjaradómur með ótrúlegum hætti  kjaralegan aðskilnað almennings og embættismanna,  þings og þjóðar. Úrskurður kjaradóms er ávísun á kröfu verkalýðshreyfingarinnar um sömu kjarabætur fyrir umbjóðendur sína. Kröfur sem leiða munu til ófriðar, óstöðugleika og harðvítuga kjarabaráttu launþega í komandi kjarasamningum.

Ný heimasíða hjá FOSS

12.5.2003


Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, FOSS, hélt 30. aðalfund sinn að Hótel Selfossi þriðjudaginn 8. maí og var hann mjög fjölmennur. Þá var opnuð ný heimasíða foss.bsrb.is  en þar er ályktun aðalfundarins ásamt skýrslu stjórnar og fleira að finna.

Framkoma í fjölmiðlum

7.5.2003

Það er mikilvægt í komandi kjarasamningum að talsmenn stéttarfélaga séu vel undirbúnir þegar að þeir þurfa að koma fram í fjölmiðlum. Þess vegna býður Félagsmálaskóli alþýðu upp á námskeiðið Framkoma í fjölmiðlum 20 maí frá kl. 9.00 til 17.00. Námskeiðið er markviss þjálfun í framkomu og samtalstækni. Enn er hægt að skrá sig í síma 588 722 eða mimir@mimir.is

Staða ungs fólks á vinnumarkaði

6.5.2003

Ráðstefna fyrir unga SFR-félaga, á aldrinum 18-35 ára, verður haldinn þann 15. maí nk. kl. 14-18 í Iðnó þar sem fjallað verður um stöðu ungs fólks á vinnumarkaði. Skráning er á sfr@bsrb.is eða í síma 525-8340.

BSRB-vefurinn fyrir sjónskerta

6.5.2003

BSRB - vefurinn hefur verið útbúinn þannig að sjónskertir eiga nú mun auðveldara með að lesa vefinn en fram til þessa. Með því að smella á merki fyrir sjónskerta til vinstri á síðunni fer vefurinn í ham fyrir þá.

Boðið í bíó

2.5.2003

Laugardaginn 3. maí, frumsýnir Ergis kvikmyndaframleiðasla heimildarmyndina Ég er arabi eftir þá Sigurð Guðmundsson og Ara Alexander á kvikmyndahátíðinni “Reykjavík Shorts and Docs”. Myndin verður sýnd í Háskólabíói kl. 20:00 og er aðgangur ókeypis á frumsýninguna fyrir félaga í BSRB. Kvikmyndin er heimildarmynd um andstöðu Íslendinga við stríðsrekstur bandarískra og breskra stjórnvalda í Írak og yfirlýstan stuðning íslenskra stjórnvalda við þetta stríð.

Lyftum fólki til flugs...

1.5.2003

Ávarp Ögmundar Jónassonar formanns BSRB í Ólafsfirði 1. maí.
Góðir félagar.
Til hamingju með daginn.
Ef til vill þarf börn til að sjá mjög skýrt muninn á réttu og röngu. Alla vega hefði það ekki vafist fyrir neinum í barnaafmælunum sem ég sótti forðum daga að sjá að ekki gengi í afmæli þar sem gestirnir væru tuttugu, að tveir þeirra borðuðu átján sneiðar af afmæliskökunni og skildu aðeins tvær eftir handa öllum hinum. Þá hefði án efa orðið mikið uppistand í afmælinu, foreldrar kallaðir til og sennilega hefðu hinir gráðugu óþekktarormar fengið tiltal.

Fjölmennum í göngur og á fundi 1. maí

29.4.2003

Göngur og fundir verða um allt land fimmtudaginn 1. maí og eru BSRB-félagar hvattir til að taka þátt í atburðunum. Í Reykjavík verður safnast saman framan við Hallgrímskirkju kl. 13.30 og leggur gangan af stað kl. 14 og verður gengið nður á Ingólfstorg þar sem útifundur verður haldinn. Virðing og velferð er yfirskrift 1. mái ávarps fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Aðalræðumenn útifundarins eru Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur og Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. Þá flytur Nína Kristjánsdóttir, formaður Iðnnemasambands Íslands ávarp.  Dagskrá fundarins og ávarp fulltrúaráðsins birtist ef fréttin er skoðuð nánar.

Friðarsamverur í Fríkirkjunni í Reykjavík

11.4.2003

BSRB og ASÍ ásamt Fríkirkjusöfnuðinum standa að friðarsamveru í Fríkirkjunni í Reykjavík föstudagskvöldin 11. og 18. apríl klukkan 20:30. Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ munu flytja ávörp og þjóðþekktir listamenn flytja efni tengt friði.

Hópuppsagnir og aðilaskipti að fyrirtækjum

4.4.2003

Félagsmálaskóli alþýðu stendur fyrir námskeiði um hópuppsagni starfsmanna og aðilaskipti að fyrirtækjum 28. apríl nk. að Grensásvegi 16a í Reykjavík

Ályktun aðalfundar SFR 2003: Samfélagsþjónustan sé á forræði ríkis og sveitarfélaga

31.3.2003

Á undanförnum árum hefur komið skýrt í ljós að íslenska þjóðin vill að samfélagsþjónustan sé á forræði ríkis og sveitarfélaga. Þannig verði best tryggt að hér þrífist það velferðarþjóðfélag sem byggir öllum þegnum sínum réttlátt samfélag, segir í upphafi ályktunar aðalfundar SFR sem haldinn var 29. mars.

List gegn stríði

26.3.2003

List gegn stríði er yfirskrift baráttufundar sem haldinn verður í Austurbæ við Snorrabraut fimmtudaginn 27. mars kl. 20.00. Það er Átak gegn stríði með stuðningi heildarsamtaka launafólks sem standa að baráttufundinum. Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ flytja ávörp á fundinum auk þess sem fjöldi listamanna kemur fram á honum.

Samtök launafólks á Íslandi sameinast gegn stríðsáformum gegn Írak

13.3.2003

"

Alþýðusamband Íslands, BSRB, BHM, Kennarasamband Íslands, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Samband íslenskra bankamanna, Félag bókagerðarmanna og Átak gegn stríði hvetja ríkisstjórn Íslands til að beita þeim áhrifum sem Ísland hefur á alþjóðavettvangi til að koma í veg fyrir stríðsátök," segir í áskorun sem þessi samtök hafa sent frá sér sameiginlega. Jafnframt er í áskoruninni íslenskt launafólk hvatt til umræðna á vinnustöðum í hádeginu föstudaginn 14. mars um það hættuástand sem skapast hefur vegna stríðsáforma Bandaríkjamanna.

Aðgerðir gegn stríði 14. mars

7.3.2003

ETUC, Evrópusamband verkalýðsfélaga hefur hvatt félög sín um alla Evrópu til aðgerða 14. mars til að leggja áherslu á andstöðu verkalýðsfélaga gegn stríði og að leitað verði allra friðsamlegra leiða við afvopnun Íraks. Engar ákvarðanir hafa verið teknar hér á landi en formenn stærstu heildarsamtakanna hafa komið saman til fundar til að ræða viðbrögð við stríðsógninni.

Áhrif atvinnumissis á líðan fólks

7.3.2003

Miðvikudaginn 12.mars kl. 13:30 verður haldinn fræðslu- og umræðufundur í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar, Lækjargötu 14a, (á horni Lækjargötu og Vonarstrætis) um atvinnumissi – áhrif hans á líðan fólks og hvernig skynsamlegt er að bregðast við.

ALÞJÓÐLEGUR BARÁTTUDAGUR KVENNA FYRIR FRIÐI OG JAFNRÉTTI

6.3.2003

Opinn fundur laugardaginn 8. mars 2003 klukkan 14 í sal Miðbæjarskólans, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík.

BSRB leggst gegn einkavæðingu vatnsveitna

28.2.2003

BSRB hefur skilað ítarlegri umsögn um frumvarp ríkisstjórnarinnar um vatnsveitur sveitarfélaga þar sem eindregið er lagst gegn einkavæðingu vatnsveitanna. BSRB leggur til að mið sé tekið af nýgerðri samþykkt Sameinuðu þjóðanna að vatn teljist grunnmannréttindi og forsenda annarra mannréttinda. Ekki skula líta á það sem verslunarvöru. Það verði fyrsta grein laganna. Tillaga BSBR bannar sölu vatnsveitna úr höndum sveitarfélaga, en fellst á tímabundið framsal einkaréttar sveitarfélagsins í hendur stofnunar eða fyrirtækis í meirihlutaeigu hins opinbera, jafnvel þó það fyrirtæki sé hlutafélag.

Markaðsvæðing raforkugeirans í Svíþjóð misheppnuð

26.2.2003

Markaðsvæðing raforkugeirans í Svíþjóð hefur misheppnast að áliti SEKO, verkalýðsfélags starfsmanna í almannaþjónustu, fjarskiptum og samgöngum. Krefst félagið þess að ríkið setji nú reglur sem tryggi aðgengi, gæði og hóflegt verð á rafmagni fyrir viðskiptavinina.

Öflug forystufræðsla að hefjast hjá BSRB

18.2.2003

Fræðslunefnd BSRB hefur skipulagt forystufræðslu fyrir stjórnarmenn og starfsmenn aðildarfélaga BSRB. Námskeiðin hefjast í mars nk. Námskeiðin eru þannig uppbyggð að þrjár tveggja daga staðbundnar lotur verða í Munaðarnesi. Fyrsta lotan hefst nú í vor, lota tvö næsta haust og lota þrjú vorið 2004. Á milli staðbundnu lotanna verður fjarnám í gangi og stendur hver fjarnámslota í þrjá mánuði.

Námskeið í verkefnastjórnun í kjarasamningnum

18.2.2003

Félagsmálaskóli alþýðu efnir til námskeiðs í Verkefnastjórnun í kjarasamningum dagana 17. og 18. mars nk og er námskeiðið sniðið að störfum lykilfólks við gerð kjarasamninga.

Farfuglarnir koma í Munaðarnesi

13.2.2003

Helgardvöl í Munaðarnesi er góð leið til að hlaða batteríin nú þegar dag er tekið að lengja. Fréttir hafa borist af því að fyrstu farfuglarnir séu komnir til landsins og því við hæfi að leggja land undir fót og skella sér í Munaðarnes og njóta náttúrunnar í kyrrðinni. Tilvalið era ð fá sér göngutúr í nánasta umhverfi orlofshúsanna. Göngukort er hægt að fá í þjónustumiðstöðinni. Skrifstofa BSRB sér um útleigu á orlofshúsunum yfir vetrarmánuðina. Helgarleigan yfir vetrarmánuðina er 6.500 kr. fyrir stór hús og 5.000 kr. fyrir lítil hús. Hægt er að panta húsin í síma 525 8300.

Útifundur gegn hernaðarárás á Írak

13.2.2003

Friðar- og mannréttindahópur BSRB vekur athygli á útifundi á Ingólfstorgi í Reykjavík til að mótmæla stríðsáætlunum Bandaríkjanna, Bretlands og fleiri ríkja gegn Írak, laugardaginn 15. febrúar kl. 14.00. Þennan dag hafa verið undirbúnar aðgerðir í nær öllum höfuðborgum Evrópu og ótal öðrum borgum og bæjum sem og í Bandaríkjunum og víða um heim.

Námskeið vorannar Félagsmálaskóla alþýðu

13.2.2003

Félagsmálaskóli alþýðu býður upp á fjölbreytt námskeið nú í vor. Meðal námskeiða má nefna verkefnastjórnun í kjarasamningum, framkomu í fjölmiðlun, samskipti við félagsmenn í vanda, hópuppsagnir og aðilaskipti að fyrirtækjum, samningatækni og notkun hagfræðsihugtaka í kjarasamningum.

Uppbyggingu í stað atvinnuleysis

12.2.2003

"BSRB lýsir yfir áhyggjum vegna þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað undanfarna mánuði á vinnumarkaði. Atvinnuleysi hefur aukist mjög mikið og eru nú skv. nýjustu tölum frá Vinnumálastofnun rúmlega 6000 manns án atvinnu," segir m.a. í ályktun frá BSRB um atvinnuástandið.

Norræni raforkumarkaðurinn

30.1.2003

„Norræni raforkumarkaðurinn er nú kominn að tímamótum þar sem neikvæðra áhrifa markaðsvæðingar er farið að gæta. Verð sl. fjóra mánuði hefur hækkað um 400% hjá Nord Pool sem er miðlunarfyrirtæki norrænna rafmagnsveitna. Að auki hefur sænska stjórnin hækkað skatta á rafmagn á sama tíma. Rafmagnskostnaður er því farinn að hvíla þungt á sænskum heimilum og útflutningsiðnaði.“  Þetta segir í  minnisblaði Bertils Dahlstens frá sænska verkalýðsfélaginu SEKO (Samtökum launafólks í þjónustu og samgöngum) til EPSU (Evrópusamtaka launafólks í almannaþjónustu). Og hann spyr hvernig standi á þessu?

Skráning á vorönn Tölvufræðslu BSRB hafin

29.1.2003

Skráning er hafin á námskeið Tölvufræðslu BSRB er hafin. Námskeiðin eru á vegum Nýja Tölvu- og viðskiptaskólans í Hafnarfirði, Kópavogi og á Selfossi. Yfirlit yfir námskeið á vorönn er hægt að nálgast á heimsíðu NTV .

Samningsgerð, samningstækni í Reykholti

27.1.2003

Félagsmálaskóli alþýðu stendur fyrir námskeiði í samningsgerð og samningstækni í Reykholti í Borgarfirði dagana 17. - 20. febrúar. Námskeiðið er hugsað fyrir samninganefndir, trúnaðarmenn, starfsmenn og stjórnir stéttarfélaga.

SFR vill að jafnréttislögum verði framfylgt

23.1.2003

Fundur trúnaðarmannaráðs SFR krefst þess að lögum nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna verði framfylgt og vísar þar sérstaklega til greina nr. 13 og 14 í lögunum, segir í ályktun frá fundi trúnaðarmannaráðs SFR sem haldinn var 17. janúar.

Hækkunum á læknisþjónustu og heilsugæslu mótmælt

23.1.2003

Fundur stjórnar og fulltrúaráðs Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem haldinn var 16. janúar mótmælti síendurteknum hækkunum á læknisþjónustu og heilsugæslu.

Sumarlokun leikskóla í Reykjavík mótmælt

23.1.2003

Fulltrúaráð Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar mótmælir þeirri fyrirætlun Reykjavíkurborgar að loka leikskólum borgarinnar í einn mánuð í sumar. Telur fundurinn að þetta muni hafa mikil óþægindi í för með sér fyrir bæði foreldra leikskólabarna svo og fyrirtæki og stofnanir.

BSRB-félagar fá afslátt á Kvetch í Borgarleikhúsinu!

21.1.2003

Leikhópurinn Á senunni býður félögum í BSRB tilboð á hina margrómuðu leiksýningu Kvetch sem sýnd hefur verið við frábærar undirtektir í Vesturportinu í vetur. Vegna mikillar aðsóknar hefur sýningin verið flutt yfir á Nýja sviðið í Borgarleikhúsinu og var hún frumsýnd þar 9. janúar.

Kveðja frá BSRB til útifundar gegn hernaðarárás á Írak

20.1.2003

BSRB mótmælir harðlega hvers kyns yfirgangi og hernaðarofbeldi og hvetur til þess að íslensk stjórnvöld beiti sér af öllu sínu afli í þágu friðar og mannréttinda.

Sænskunámskeið fyrir talsmenn stéttarfélaga

16.1.2003

Sænskunámskeið fyrir talsmenn aðildarfélaga BSRB og ASÍ verður haldið í mars og apríl og skiptist námskeiðið í fjarnám og staðbundið nám hér á landi og í Svíþjóð. Námið í Svíþjóð hefst 15. apríl og því lýkur 24. apríl. Hámarksfjöldi þátttakenda er 20 og tilkynnist þátttaka til Mímis - símenntunar í síma 533 1818.

Hækkunum fyrir læknisþjónustu mótmælt

6.1.2003

BSRB mótmælir hækkunum á læknisþjónustu og heilsugæslu sem taka gildi  15. janúar nk.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


innrimal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta