Fréttir
Áhrifamikill leikþáttur um einelti
31.10.2003

Sigríður Eyrún Friðriksdóttir leikkona sló í gegn þegar hún flutti einþáttunginn Fjóla á ströndinni á þingi BSRB í síðustu viku. Einþáttungurinn fjallar um einelti en á undanförnum misserum hafi orðið vakning í þjóðfélaginu um einelti og alvarlegar afleiðingar þess. Fórnarlömb eineltis í skóla og á vinnustað hafa sýnt aðdáunarvert hugrekki með því að stíga fram og segja frá reynslu sinni.
Skýr skilaboð frá BSRB
29.10.2003
Á meðal þeirra málaflokka sem fjallað var um á nýafstöðnu þingi BSRB voru húsnæðismál. Á því sviði hefur bandalagið markað skýra stefnu þar sem gert er ráð fyrir samvinnu ríkis, sveitarfélaga og lífeyrissjóðanna í landinu en eignir þeirra munu innan fjögurra ára nema um eitt þúsund milljörðum króna. Fráleitt er annað en að þessi sparnaður, sem samfélagið hefur komið sér saman um, verði nýttur í uppbyggileg verkefni. Þar er húsnæðiskerfið ofarlega á blaði, segir m.a. í grein eftir Ögmund Jónasson formann BSRB sem birtist í Fréttablaðinu 29. október 2003
Forysta BSRB endurkjörin
27.10.2003
40. þingi BSRB lauk föstudaginn 24. október með kjöri formanna, ritara og gjaldkera BSRB, en saman mynda þessir aðilar framkvæmdanefnd bandalagsins. Kjörnefnd lagði til að fráfarandi forysta yrði endurkjörin og voru allir í framkvæmdanefndinni kosnir með lófataki. Formaður BSRB er Ögmundur Jónasson, 1. varaformaður Sjöfn Ingólfsdóttir, 2. varaformaður Jens Andrésson, ritari Elín Björg Jónsdóttir og gjaldkeri Jónas Magnússon.
Ályktanir 40. þings BSRB
24.10.2003
40. þing BSRB hefur sent frá sér fjölda ályktana sem taka jafnt til stefnumótunar samtakanna og ýmissa brýnna þjóðfélagsmála. Má þar nefna skattamál, húsnæðismál, jafnréttismál, fæðingarorlof, atvinnuleysisbætur og ýmis fleiri mál. Á þinginu hefur verið rætt um skipulag almannaþjónustunnar og er harðlega lagst gegn einkavæðingu í henni.
Lífeyrisgreiðslur lífeyrissjóðanna hærri en lífeyrisbætur almannatrygginga
23.10.2003
Eignir lífeyrissjóðanna í árslok í fyrra námu alls 679 milljörðum krónar og munu fara yfir 700 milljarða í lok þessa árs. Ef svo heldur sem horfir eru líkur á að eignir sjóðanna verði komnar yfir 1000 milljarða fyrir lok árs 2007.
Þetta kom m.a. fram í erindi sem Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða hélt á þingi BSRB.
Þar kom einnig fram að lífeyrisgreiðslur lífeyrissjóðanna nema hærri fjárhæðum en lífeyrisbætur almannatrygginga. Lífeyrissjóðirnir greiða mánaðarlega um tvo og hálfan milljarð króna í lífeyri til sjóðfélaga sinna eða um 30 milljarða króna á þessu ári. Hlutur lífeyrissjóðanna í lífeyrisgreiðslum hefur aukist um 1,3% af landsframleiðslu frá árinu 1990 en hlutur almannatrygginga í lífeyrisgreiðslum um hálft prósentustig á sama tíma. Þannig fer æ stærri hluti af innstreymi til sjóðanna í lífeyrisgreiðslur til landsmanna.
Þetta kom m.a. fram í erindi sem Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða hélt á þingi BSRB.
Þar kom einnig fram að lífeyrisgreiðslur lífeyrissjóðanna nema hærri fjárhæðum en lífeyrisbætur almannatrygginga. Lífeyrissjóðirnir greiða mánaðarlega um tvo og hálfan milljarð króna í lífeyri til sjóðfélaga sinna eða um 30 milljarða króna á þessu ári. Hlutur lífeyrissjóðanna í lífeyrisgreiðslum hefur aukist um 1,3% af landsframleiðslu frá árinu 1990 en hlutur almannatrygginga í lífeyrisgreiðslum um hálft prósentustig á sama tíma. Þannig fer æ stærri hluti af innstreymi til sjóðanna í lífeyrisgreiðslur til landsmanna.
Ræða Ögmundar Jónassonar við opnun 40. þings BSRB
22.10.2003
Við höldum þetta þing undir kjörorðinu Réttlátir skattar – undirstaða velferðar. Með þessu viljum við undirstrika tvennt: Annars vegar minna á að til þess að geta rekið öfluga og góða velferðarþjónustu er þörf á að afla ríki og sveitarfélögum skatttekna og hins vegar viljum við leggja áherslu á hve mikilvægt er að það skattkerfi sem við búum við sé réttlátt – menn séu skattlagðir eftir efnum og ástæðum. BSRB hefur lagt mikla vinnu í að þróa nýjar hugmyndir í skattamálum.
Landssamband lögreglumanna hafnar úrsögn úr BSRB
16.10.2003
Landssamband lögreglumanna hafnaði úrsögn úr BSRB í atkvæðagreiðslu sem fram fór dagana 6. til 13. október. Atkvæði voru talin í dag 16. október og voru 44% með áframhaldandi aðild en 43% með úrsögn. Auðir og ógildir seðlar voru 13%. Tvo þriðju hluta greiddra atkvæða þurfti til að úrsögn væri samþykkt. Lögreglufélag Reykjavíkur samþykkti hinsvegar úrsögn úr BSRB en félagið hefur haft sjálfstæða aðild að bandalaginu þótt félagsmenn séu áfram í BSRB þar sem þeir eru í Landssambandi lögreglumanna.
Réttlátir skattar - undirstaða velferðar
13.10.2003
40. þing BSRB verður haldið dagana 22. til 24. október í Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni). Yfirskrift þingsins er Réttlátir skattar - undirstaða velferðar. Til að nálgast dagskrá þingsins þarf að smella á sjá nánar.
Vatn fyrir alla
2.10.2003
Hér á heimasíðu BSRB hefur verið opnuð síða þar sem finna má tengla inn á síður sem fjalla um vatn í víðu samhengi, rannsóknarskýrslur og úttektir af ýmsu tagi ásamt samþykkt nefndar Sameinuðu þjóðanna þar sem vatn er skilgreint sem grunnmannréttindi og ríkjum heims er lögð sú skyldu á herðar að allir geti notið þeirra réttinda. Auk þess er á síðunni að finna tillögur BSRB sem lagðar voru fram í tilefni lagafrumvarps ríkisstjórnarinnar um hlutafélagavæðingu vatnsveitna á Íslandi. Hægt er að nálgast síðuna í veftrénu hér til vinstri eða með því að smella hér.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























