Fréttir
Samningar um potta í Munaðarnes undirritaðir
16.12.2003
![]() |
| Samningurinn um kaup á heitum pottum af Norm-X undirritaður. Á myndinni eru f.v. Rafn Kristjánsson frá Fjarhitun, Erling Auðunsson frá Norm-X og Jónas Magnússon gjaldkeri BSRB. |
Samningar hafa verið undirritaðir við Norm-X um kaup á heitum pottum í Munaðarnes eftir útboð. Pottarnir verða settir upp við orlofshús BSRB í Munaðarnesi og Stóru-Skógum og á því að verða lokið fyrir 15. júní nk.
Lögreglukonur með eigin vef
16.12.2003
Lögreglukonur á Íslandi hafa opnað heimasíðu, www.logreglukonur.is Á síðunni segir að stjórn Tengslanets íslenskra lögreglukvenna hafi að undanförnu unnið markvisst að því að betrumbæta samskipti við lögreglukonur svo og aðra lögreglumenn, þannig að mögulegt verði að miðla upplýsingum á landsvísu á sem aðgengilegastan og skilvirkastan hátt. Þáttur í því sé að opna heimasíðuna.
Nýjar úthlutunarreglur Styrktarsjóðs BSRB
15.12.2003
Úthlutunarreglur Styrktarsjóðs BSRB breytast um áramótin. Helstu nýmælin eru að nú er ættleiðing, glasafrjóvgun og tæknisæðing styrkt. Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 6 mánuði af síðustu 12 fær styrk til ættleiðingar barns 200.000 kr. í eitt skipti, til glasafrjóvgunar 100.000 kr. í eitt skipti og til tæknisæðingar 21.000 kr. einu sinni á ári.
Ríkislögreglustjóri braut stjórnsýslu- og starfsmannalög
15.12.2003
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt ríkislögreglustjóra til að greiða fertugri konu tvær milljónir króna fyrir ólögmæta uppsögn í starfi og að ósekju. Þá var ríkislögreglustjórinn dæmdur til að greiða konunni hálfa milljón króna í málskostnað. Það var Gísli Guðni Hall hrl sem rak málið fyrir SFR en konan er félagi í Starfsmannafélagi ríkisstofnana.
Fjölmenni á starfslokanámskeiði
5.12.2003
Starfslokanámskeið BSRB var haldið dagana 1., 2. og 4. desember og sóttu það um 70 manns. Þátttakendur höfðu bæði gagn og gaman af námskeiðinu og ljóst að full þörf er á þessari þjónustu. Námskeiðið var fyrir félagsmenn í BSRB og maka þeirra og þátttakendum að kostnaðarlausu. Ekki komust allir að þegar skráð var á námskeiðið og um 40 manns á biðlista. Annað námskeið verður því haldið eftir áramót og verður það auglýst síðar.
Meirihluti þjóðarinnar andvígur einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
2.12.2003
Mikill meirihluti þjóðarinnar er andvígur auknum einkarekstri í heilbrigðiskerfinu samkvæmt skoðanakönnun sem Gallup hefur gert. Tæplega 52% þjóðarinnar eru andvíg auknum einkarekstri í heilbrigðiskerfinu, 35% eru hlynnt og rúmlega 13% eru hvorki hlynnt né andvíg.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit

























