Fréttir
Heimasíða Styrktarsjóðs BSRB
27.6.2003
Styrktarsjóður BSRB er kominn með heimasíðu. Slóðin á heimasíðuna er: http://styrktarsjodur.bsrb.is Á síðunni er hægt að nálgast úthlutunarreglur sjóðsins og umsóknareyðublöð, auk ýmissa annarra upplýsinga um sjóðinn.
Hafnarfjarðarbær skýri fyrirhugaðar skipulagsbreytingar
26.6.2003
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur sent frá sér ályktun þar sem þess er krafist að þær breytingar og tilfærslur sem fyrirhugaðar eru vegna skipulagsbreytinga hjá Hafnarfjarðarbæ komi upp á borð þannig að hægt sé að koma þessum málum í viðundandi horf hið fyrsta. Það geti ekki talist til góðra stjórnunarhátta að halda fjölda starfsmanna í óvissu vikum saman.
Ný heimasíða LSS
26.6.2003
Landsamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur opnað nýja heimasíðu og jafnframt breytt slóðinni á síðuna.Slóðin er http://www.lsos.is Á heimasíðunni er að finna fréttir úr starfi félagsins, upplýsingar um félagið, lög og reglugerðir, eldvarnarleik og margt fleira.
LL vann mál gegn ríkislögreglustjóra
26.6.2003
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í máli sem Landssamband lögreglunnar höfðaði gegn lögreglustjóraembættinu vegna túlkunar á bókun í stofnanasamningi um hvort taka ætti tillit til annarra starfa en lögreglustarfa. Úrskurðurinn var Landssambandinu í hag og ber að taka mið af starfsaldri utan lögreglu þegar raða á lögreglumönnum í launaflokka. Dómurinn var kveðinn upp 11. júní sl.
Fjarnám og aðrar óhefðbundnar leiðir til fjarnáms
26.6.2003
Vika símenntunar verður haldin dagana 7.-13. september nk. Vikan sem er á vegum menntamálaráðuneytisins, er nú haldin í fjórða sinn hér á landi og sér Mennt um skipulagningu og framkvæmd hennar í samvinnu við símenntunarmiðstöðvar um land allt. Þema Viku símenntunar að þessu sinni er "Fjarnám" og aðrar óhefðbundnar leiðir til náms. Áhersla verður einnig lögð á almenna hvatningu og kynningu á mikilvægi símenntunar fyrir almenning. BSRB er aðili að Viku símenntunar ásamt ASÍ, BHM, Samtökum atvinnulífsins, símenntunarmiðstöðvum og ráðuneytum félagsmála og menntamála. Mennt sér um skipulagningu vikunnar.
Fjölmenn Menningarhátíð í Munaðarnesi
12.6.2003

Ögmundur Jónasson, Anna Gunnlaugsdóttir, Pétur Gunnarsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Jónas Ingimundarson við opnun sýningarinnar
Sýning á verkum Önnu Gunnlaugsdóttur myndlistarkonu var opnuð í þjónustumiðstöðinni í orlofsbyggðum BSRB í Munaðarnesi laugardaginn 7. júní. Í tengslum við opnunina var að venju efnt til Menningarhátíðar þar sem Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona – Diddú – söng við undirleik Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara og Pétur Gunnarsson rithöfundur ávarpaði gesti og las upp úr verkum sínum bæði í bundnu máli og óbundnu.. Húsfyllir var og hreif Diddú alla viðstadda með söng sínum og Jónas Ingimundarson fór á kostum í tali og tónum. Mjög góður rómur var einnig gerður af upplestri Péturs. Þá ávarpaði Ögmundur Jónasson formaður BSRB gesti Menningarhátíðarinnar.
Evrópusamband verkalýðsfélaga vill aðgerðir gegn atvinnuleysi
12.6.2003

Jens Andrésson, Ögmundur Jónasson, Grétar Þorsteinsson, Gylfi Arnbjörnsson og Halldór Björnsson fyrir utan þingstaðinn. Halldór Grönvold tók myndina.
Á nýafstöðnu þingi Evrópusambands verkalýðsfélaga (ETUC – European Trade Union Confederation) sem haldið var í Prag í Tékklandi er þeim tilmælum beint til stjórnvalda í Evrópuríkjum að þau geri allt sem í þeirra valdi stendur til að sporna gegn vaxandi atvinnuleysi í álfunni.
Framhald á forystufræðslunni
11.6.2003
Ákveðið hefur verið að efna til auka námskeiðs í forystufræðslu BSRB í byrjun september. Þá er komin stundaskrá fyrir lotu 2 í forystufræðslu BSRB í Munaðarnesi næsta haust. Fyrirkomulaginu hefur verið breytt þannig að nú er farið upp eftir að mánudagsmorgni og hefst námskeiðið sjálft kl. 13. eftir að þátttakendur hafa nærst.
Kvennaslóðir.is – íslenskur kvennagagnabanki
11.6.2003
Nú í sumar verður opnaður við hátíðlega athöfn íslenskur kvennagagnabanki, www.kvennaslóðir.is . Í gagnabankann verða skráðir kvensérfræðingar á ýmsum sviðum með það að markmiði að gera þekkingu og hæfni kvenna sýnilega og aðgengilega.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























