Fréttir
BSRB krefst þess að verktakar brjóti ekki á launafólki
25.9.2003
Stjórn BSRB krefst þess að verktakafyrirtæki sem vinna við stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi virði í hvívetna kjarasamninga og lög og reglur sem gilda á íslenskum vinnumarkaði. Stjórnvöldum ber skylda til að grípa í taumana ef brotið er á launafólki eða ekki sinnt kröfum sem almennt eru gerðar hér á landi um aðbúnað á vinnustað.
Þannig hefst ályktun sem stjórn BSRB samþykkti á fundi í dag 25.september
Þannig hefst ályktun sem stjórn BSRB samþykkti á fundi í dag 25.september
BSRB tekur undir með heilbrigðisráðherra
25.9.2003
Stjórn BSRB samþykkti ályktun um stöðuna á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Í inngangi hennar segir: Stöðugar hótanir stjórnarnefndar Landspítala-Háskólasjúkrahúss um niðurskurð og brottrekstur starfsfólks valda óöryggi og vanlíðan og grafa þannig undan starfsemi stofnunarinnar. Sú spurning gerist áleitin að verið sé að búa í haginn fyrir einkavæðingu innan sjúkrahússins.
Samið um tölvufræðslu við NTV
1.9.2003
BSRB og Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn hafa gert með sér samkomulag um sérstakan afslátt fyrir félagsmenn í BSRB á tölvunámskeiðum NTV. Samningurinn byggir á eldri samstarfssamningum bandalagsins og NTV.
Fjölbreytt dagskrá viku símenntunar
1.9.2003
Vika símenntunar verður sett sunnudaginn 7. september kl. 13.30 í Kennaraháskóla Íslands og í Egilshúsi í Stykkishólmi. Að venju verður margt í boði þessa viku en hápunkturinn er vafalítið Málþing um fjarnám á Hótel Loftleiðum þriðjudaginn 9. september þar sem aðalfyrirlesari er Dr. Gilly Salmon sem kennir m.a. við Open University Business School í Bretlandi. Gilly er sérfræðingur í kennslu í fjarnámi og sendi árið 2002 frá sér bókina E-tivitis - the key to active online learning.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























