Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Áfangar í réttindamálum

22.12.2004

BSRB, BHM og KÍ undirrituðu í morgun samkomulag við ríki, Reykjavíkurborg og launanefnd sveitarfélaga um ýmis réttindamál. Ákveðið var að semja sameiginlega um réttindamálin en samningsrétturinn varðandi kaup og kjör er hjá einstökum aðildarfélögum þessara bandalaga og er ljóst að þau munu ekki semja í heildarsamfloti að þessu sinni.

BSRB leggst alfarið gegn þjónustutilskipun ESB

22.12.2004

BSRB hefur sent utanríkisráðherra umsögn um þjónustutilskipun ESB og óskað eftir því að hann kynni hana í ríkisstjórn. Í umsögninni er lagst alfarið gegn þjónustutilskipuninni enda vegur hún að undirstöðum velferðarkerfisins og grefur undan réttarstöðu launafólks.

Ný heimasíða hjá Landssambandi lögreglumanna

16.12.2004

Landssamband lögreglumanna hefur opnað nýja heimasíðu. Slóðin er sú sama og á gömlu heimasíðu landssambandsins: www.ll.bsrb.is/ Með þessum breytingum tekur heimasíða LL miklum stakkaskiptum. Útlitið er nútímalegra og allt aðgengi mun þægilegra. Í frétt á síðunni segir að það sé ætlun skrifstofunnar að halda henni lifandi með nýjustu upplýsingum.

SFR gerir tillögu um nýja launatöflu

16.12.2004

Samninganefnd SFR kom með nýtt útspil í kjaraviðræðum við samninganefnd ríkisins á fundi sem haldinn var 14. desember. Samninganefnd SFR lagði fram hugmynd að nýrri launatöflu þar sem gert er ráð fyrir að svokölluðum skilgreiningarömmum A,B,C og D verði fækkað úr fjórum í þrjá.

Samflotið leggur fram kröfugerð

16.12.2004

Samflotið lagði fram kröfugerð á fyrsta fundi þess með samninganefnd ríkisins sem haldinn var 9. desember sl. Í Samflotinu eru 15 starfsmannafélög sveitarfélaga.

Mikilvægur og langþráður áfangi í höfn

15.12.2004

Sjöfn Ingólfsdóttir formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og varaformaður BSRB sagði í dag við undirritun samkomulags sem náðst hefur við Reykjavíkurborg um viðbótarframlag borgarinnar í lífeyrissjóði starfsmanna hennar, að þetta væri mikilvægur og langþráður áfangi. Samkomulagið felur í sér að Reykjavíkurborg greiðir viðbótarframlag í lífeyrissjóð, allt að 2% framlag gegn jafnháu framlagi starfsmanns. Starfsmenn ríkisins hafa haft þetta ákvæði í samningum hjá sér en sveitarfélögin ekki.

Sameining hinnar alþjóðlegu verkalýðshreyfingar

10.12.2004

Miyazaki, Japan, 9. desember 2004
Á þriðja og fjórða degi heimsþings Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga (ICFTU) 7. og 8. des. snerist umræðan einkum um innra starf og skipulag Alþjóðasambandsins og samstarf þess við önnur alþjóðasambönd verkalýðsins.

Er stöðugleika ógnað?

10.12.2004

Umræður um launamál og samanburður á launum ríkisstarfsmanna annars vegar og launum á almenna markaðinum hins vegar er vinsælt umræðuefni þessa dagana. Þar er gjarnan staðhæft að ríkisstarfsmenn, faglærðir sem ófaglærðir, hafi fengið ríflegan skerf af hinu efnahagslega góðæri síðustu ára, umfram starfsmenn á almenna markaðinum.  Þessi söngur hefur hljómað bæði úr herbúðum félaga okkar í ASÍ, frá Samtökum atvinnulífsins og forsvarsmönnum fjárlaganefndar Alþingis. Í þessari umræðu er þó oftar en ekki hallað réttu máli því samanburðurinn er rangur. Það má segja að í þeim samanburði sé verið að bera saman epli og appelsínur, segir Jens Andrésson formaður SFR í leiðara nýs tölublaðs Félagstíðinda.

Hnattvæðing samstöðunnar

9.12.2004


Fulltrúar Íslands á þinginu: Þuríður Einarsdóttir PFÍ, Einar Ólafsson St.Rvk. og Gylfi Arnbjörnsson ASÍ.

18. þing Alþjóðasambands verkalýðsfélaga, Miyazaki, Japan, 6. desember 2003
Staða verkalýðshreyfingarinnar á tímum hnattvæðingar var meginþema 17. heimsþings Alþjóðasambands verkalýðsfélaga sem var haldið fyrir fjórum árum. Þeirri umræðu er haldið áfram á 18.heimsþinginu sem nú stendur yfir í Miyazaki í Japan.

Samningur um tungumálafræðslu BSRB undirritaður

9.12.2004


Frá undirritun samningsins: Inga Sigurðardóttir formaður Kvasir, samtaka símenntunarmiðstöðva, Birna Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri Framvegis, Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Elín Björg Jónsdóttir formaður fræðslunefndar BSRB.

BSRB og Framvegis miðstöð um símenntun, undirrituðu samning um tungumálafræðslu BSRB, í dag, fimmtudaginn 9. desember kl. 13.00, í BSRB-húsinu Grettisgötu 89. Hér er um að ræða afar metnaðarfullt átak í að efla tungumálakunnáttu félagsmanna í BSRB.  Boðið verður upp á námskeið í ensku, dönsku, spænsku, íslensku ritmáli, þýsku og frönsku fyrir félagsmenn BSRB árin 2005 og 2006. Í boði verður bæði einingabært nám fyrir framhaldsskóla, 60 kst. og einnig styttri námskeið þar sem höfuðáhersla verður lögð á talað mál, 30 kst.

Nýjar lánareglur hjá LSS

8.12.2004

Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga hefur nýverið samþykkt breytingar á lánareglum sjóðsins. Þessar breytingar koma öllum starfsmönnum sveitarfélaganna til góða, því nú veitir LSS lán til allra starfsmanna sveitarfélaga, óháð stéttarfélagsaðild eða því hvaða lífeyrissjóði þeir tilheyra. Lántakandi þarf einungis að vera starfsmaður sveitarfélags, stofnunar þess eða fyrirtækis, kjörinn í nefnd þess eða ráð. Aðrir sem greitt hafa iðgjöld til sjóðsins eða lífeyrissjóða með bakábyrgð sveitarfélags hafa ennfremur rétt til lántöku.

Vernharð Guðnason fyrsti formaður alþjóðadeildar sjúkraflutningamanna

7.12.2004

Vernharð Guðnason formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna var kjörinn formaður nýstofnaðrar alþjóðadeildar helstu samtaka sjúkraflutningamanna í Bandaríkjunum. Bandarísku samtökin nefnast National Association of Emergency Medical Technicians (NAEMT). Um er að ræða stærstu einstöku samtök sjúkraflutningamanna í Bandaríkjunum með um 14.500 félagsmenn, þar af 140 utan Bandaríkjanna.

Verkalýðssamband Íraks kallar eftir stuðningi

6.12.2004

Miyazaki, Japan, 5. desember 2004
Dagana 5.-10. desember stendur yfir í Miyazaki í Japan heimsþing Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga. Að sambandinu eiga aðild 233 verkalýðssambönd frá 152 löndum, þar á meðal BSRB og ASÍ. 20 sambönd frá 10 löndum hafa bæst við síðustu fjögur ár, m.a. nýlega stofnuð sambönd frá löndum sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum. Allmörg verkalýðsfélög og sambönd sem ekki eiga aðild að Alþjóðasambandinu eiga  áheyrnarfulltrúa á þinginu, sum nýstofnuð í löndum þar sem verkalýðshreyfingin hefur átt erfitt uppdráttar. Eitt nýjasta sambandið er Verkalýðssamband Íraks (kallast á ensku Iraqi Federation of Trade Unions – IFTU).

Aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum

6.12.2004

Vinnueftirlit ríkisins verður með morgunverðarfund á Grand Hóteli, Reykjavík, miðvikudaginn 8. desember kl. 8.30 til 10.00 undir yfirskriftinni Aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum. Fundurinn er liður í kynningu á reglugerð um aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum. Markmiðið með reglugerðinni er að stuðla að forvörnum og aðgerðum gegn einelti á vinnustöðum.

Stjórnarfundur PSI

3.12.2004

"Engin samtök í heiminum, leyfi ég mér að fullyrða, eru eins kröftugt mótvægi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Alþjóðabankann, Alþjóðaviðskiptastofnunina og aðrar valdastofnanir og valdatæki alþjóðafjármagnsins og einmitt þessi samtök," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB um PSI,  Public Service International eða Alþjóðasambandi starfsfólks í almannaþjónustu, en hann situr nú stjórnarfund samtakanna sem haldinn er í Genf.

Olíumengun í íslensku viðskiptalífi

3.12.2004

Neytendasamtökin halda opinn fund um ólögmætt verðsamráð olíufélaganna og afleiðingar þess á íslenskt efnahagslíf og fyrir neytendur. Fundurinn verður haldinn þriðjudagskvöldið 7. desember kl. 20:00 á Grand hótel Reykjavík við Sigtún.

SFR hefur áhyggjur af að skattalækkanir bitni á almannaþjónustu

29.11.2004

"Trúnaðarmannaráð SFR hefur áhyggjur af þeim skattalækkunum sem nú hafa verið boðaðar, þar sem líkur eru á að með þeim hagnast hinir best settu mest, en hinir tekjulægstu minnst. Boðaðar “aðhaldsaðgerðir” hins opinbera samfara þessari skattalækkun geta bara þýtt tvennt: að almannaþjónusta mun verða dregin saman og að gjaldtaka fyrir nauðsynlega almannaþjónustu verði aukin," segir m.a. í ályktun sem fundur trúnarmannaráðs SFR sendi frá sér 24. nóvember.

Skuldir íslenska þjóðarbúsins

26.11.2004

Samfara auknum hagvexti hafa skuldir íslenska þjóðarbúsins farið stigvaxandi og virðist lítið lát vera á þeirri þróun. Nú er svo komið að Íslendingar skulda meira en flestar aðrar þjóðir í heiminum. Þegar litið er til iðnþróaðra ríkja eru aðeins Finnar og Nýsjálendingar skuldugri en Íslendingar. Ef á heildina er litið hafa skuldir hins opinbera minnkað þótt ekki sé jafnt á komið með ríki og sveitarfélögum, því á sama tíma og dregið hefur verið úr skuldum ríkisins hafa skuldir sveitarfélaga aukist. Hins vegar hafa skuldir fyrirtækja og heimila margfaldast. Þannig hafa skuldir fyrirtækja frá árinu 1995 tvöfaldast og skuldir heimila frá árinu 1980 nífaldast, Þetta kemur m.a. fram í ítarlegri skýrslu sem Hildigunnur Ólafsdóttir og Ragnar Ingimundarson hagfræðingar BSRB hafa unnið og kynnt var á fréttamannafundi í dag.

Skýrsla um störf og starfssvið í heilbrigðis- og félagsgreinum

25.11.2004

Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur í samstarfi við starfsgreinaráð heilbrigðis- og félagsgreina tekið saman skýrslu um störf og starfssvið í heilbrigðis- og félagsgreinum. Um er að ræða greinargerð þar sem teknar eru fyrir 12 starfsgreinar í þessum flokki og lýst stöðu þeirra á vinnumarkaði, þróun, starfssviði, námsleiðum þjálfun og þörf fyrir þekkingu og hæfni. Skýrslan verður grundvöllur endurskoðunar eða nýritunar námskráa á þessu sviði á næstu árum.

Óbreytt verð á mjólk

23.11.2004

Verðlagsnefnd búvara hefur ákveðið að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, breytist ekki nú um áramótin. Verð til neytenda er því óbreytt 3. árið í röð. Hins vegar hækkar verð til bænda um 3,4% sem er í samræmi við hækkun á vísitölu neysluverðs. Fulltrúi BSRB í verðlagsnefnd búvara er Elín Björg Jónsdóttir en auk þess á ASÍ fulltrúa í nefndinni auk kúabænda og afurðastöðva í mjólkuriðnaði.

Ævintýrið um Augastein

23.11.2004

Leikhópurinn Á senunni býður BSRB tilboð á hina margrómuðu leiksýningu Ævintýrið um Augastein sem verður sýnd í desember í Tjarnarbíói í Reykjavík.  Barnabók með sama nafni fékk glimrandi viðtökur fyrir síðustu jól og seldist í þúsundum eintaka.  Sýningar á leikritinu verða aðeins fram til áramóta, enda um yndislega fallega jólasýningu að ræða. Almennt verð á sýninguna er 2.000 krónur en félagsmönnum í BSRB og börnum þeirra býðst miðinn á 1.600 krónur. 

Lögum á kjaradeilu kennara harðlega mótmælt

22.11.2004


Aðalfundur BSRB sem haldinn var föstudaginn 19. nóvember mótmælti harðlega lögum sem sett voru á kjaradeilu kennara og sveitarfélaga en jafnframt var lýst ánægju yfir því að KÍ hefði ákveðið að ganga til samninga frekar en að lúta vilja ríkisvaldsins um að hlíta niðurstöðum gerðardóms. Þá samþykkti aðalfundurinn ályktanir um launaleynd, auglýsingu starfa, niðurskurð á Landspítala háskólasjúkrahúsi og um kynbundinn launamun.

Evrópusamningur um varnir gegn vinnustreitu

16.11.2004

Þann 8. október sl. undirrituðu aðilar vinnumarkaðarins á Evrópuvísu, ETUC fyrir hönd verkalýðshreyfingarinnar og UNICE/CEEP af hálfu atvinnurekenda, samning um varnir gegn vinnustreitu (work -related stress) og þarf að gildistaka þennan samning hér á landi. Þarf að hrinda þessum samningi í framkvæmd hér á landi innan þriggja ár frá undirritun hans.

Yasser Arafat var boðberi sáttfýsi í heimi haturs

16.11.2004

Yasser Arafat lifði í heimi þar sem úlfur hatursins var alltaf vel nærður. Í slíkum heimi er sá afreksmaður sem hefur þrek til að gerast boðberi sáttfýsi. Slíkur maður var Yasser Arafat, sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. í ræðu sem hann flutti á samstöðufundi með Palestínumönnum í Borgarleikhúsi 15. nóvember.

Sjúkraliðar mótmæla lagasetningu

16.11.2004

Sjúkraliðafélag Íslands mótmælir "gerræðislegri  ákvörðun ríkisstjórnar og meirihluta Alþingis um að svipta grunnskólakennara lög- og stjórnarskrárbundnum réttindum til að semja um kaup og kjör." Þetta segir m.a. í ályktun sem fjölmennur félagsfundur Sjúkraliðafélags Íslands samþykkti í gær 15. nóvember. Í ályktuninni er einnig skorað á samtök launafólks að taka höndum saman í vörn um samningsrétt launafólks.

BSRB styrkir KÍ um 20 milljónir króna

15.11.2004


Garðar Hilmarsson formaður Vinnudeilusjóðs BSRB, Eiríkur Jónsson formaður KÍ og Ögmundur Jónasson formaður BSRB þegar KÍ voru færðar 20 milljónir króna frá BSRB.

Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Garðar Hilmarsson formaður Vinnudeilusjóðs BSRB afhentu Kennarasambandi Íslands 20 milljónir króna til ráðstöfunar vegna þeirrar erfiðu vinnudeilu sem staðið hefur yfir. Afhendingin fór fram á aðalfundi Kennarasambandsins á Grand hótel. Flutti Ögmundur kennurum baráttukveðjur frá BSRB og sagði að hér væri ekki aðeins um að ræða þrönga kjarabarátta heldur þjóðfélagsleg átök um skipulag og framtíð velferðarþjónustunnar í landinu. Það var Eiríkur Jónssaon formaður KÍ sem tók við framlaginu.

Starfsmenn undir smásjánni? Rafrænt eftirlit með einstaklingum á vinnustöðum

12.11.2004

Starfsmenn undir smásjánni? Rafrænt eftirlit með einstaklingum á vinnustöðum, er yfirskrift málþings sem Vinnueftirlitið, Landlænisembættið, Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, Rafiðnaðarsamband Íslands og Rannsóknastofa í vinnuvernd, standa að miðvikudaginn 17. nóvember kl. 8.00 - 10.30 á Grand Hóteli í Reykjavík.

Þjóð í þrengingum - samstöðufundur með Palestínu

12.11.2004

Þjóð í þrengingum - samstöðufundur með Palestínu er yfirskrift fundar sem Félagið Ísland-Palestína í samvinnu við samtök launafólks o.fl. stendur að í Borgarleikhúsinu  mánudagskvöld 15. nóvember kl. 20:00. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra flytur ávarp og Steingrímur Hermannsson fyrrum forsætisráðherra, Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður, Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur og Sveinn Rúnar Hauksson, formaður Félagsins Ísland-Palestína flytja stuttar ræður.

.

Starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu

9.11.2004

BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði í BSRB húsinu Grettisgötu 89 dagana 22., 24. og 29. nóvember. Námskeiðið hefst kl. 16.30 og lýkur kl. 19.00. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 19. nóvember. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra og er þeim að kostnaðarlausu.

Karlar og konur á norrænum vinnumarkaði

4.11.2004

Karlar og konur á norrænum vinnumarkaði er yfirskrift tveggja daga málsþings sem haldið verður á Grand Hótel dagana 11. og 12. nóvember. Fyrri daginn verður sjónum sérstaklega beint að körlum í "kvennastörfum" en þann seinni verður horft víðar á kynjaskiptingu á vinnumarkaði.

Verkalýðshreyfingin í Evrópu andvíg tilskipun um þjónustu á innri markaði ESB

29.10.2004


BSRB stóð fyrir vel heppnuðum fundi með framkvæmdastjóra og varaformanni EPSU, Evrópusambands starfsfólks í almannaþjónustu, þeim Carola Fischbach-Pyttel og Anne-Marie Perret, þar sem fjallað var um drög að tilskipun um þjónustu á innri markaði ESB. Fram kom í máli þeirra að verkalýðshreyfingin í Evrópu, jafnt á opinbera markaðinum sem á almenna vinnumarkaðinum er mjög andvíg þessari tilskipun enda yrði grundvallarbreyting á velferðarkerfinu í Evrópu ef tilskipunin næði fram að ganga.

Umræða um ESB og alþjóðavæðingu knýjandi

28.10.2004

Innan BSRB er nú lögð mikil áhersla á umræðu um alþjóðamál og Evrópusambandið "ekki með það fyrir augum að BSRB sem samtök taki afstöðu til hugsanlegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu heldur til þess að félagsmenn og þess vegna samfélagið allt eigi auðveldara með að móta sér skoðun á grundvelli upplýsinga og vitrænnar umræðu. Þá þurfa allir kostir að vera undir," sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. í ræðu sem hann flutti á ársfundi ASÍ sem nú stendur yfir.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar styrkir kennara

28.10.2004

Stjórn Vinnudeilusjóðs Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og stjórn félagsins hafa ákveðið að færa Vinnudeilusjóði  Kennarasambands Íslands  þrjár milljónir króna til styrktar kennurum í verkfalli.

Innri markaður ESB á sviði þjónustu

25.10.2004

Föstudaginn 29. október kl. 9.15 mun BSRB efna til fundar með framkvæmdastjóra og varaformanni EPSU, Evrópusambands starfsfólks í almannaþjónustu, þeim Carola Fischbach-Pyttel og Anne-Marie Perret. EPSU, Evrópusamband starfsfólks í almannaþjónustu, er málsvari 193 stéttarfélaga og sambanda í 33 löndum Evrópusambandsins og  Evrópska efnahagssvæðisins. EPSU kemur fram fyrir hönd starfsfólks í almannaþjónustu gagnvart valdastofnunum ESB. Meginefni fundarins er hin nýja umdeilda tillaga að tilskipun Evrópusambandsins um Innri markað á sviði þjónustu.

Almannaþjónusta og stjórnarskrárþing Evrópusambandsins

25.10.2004

Eftirfarandi texti er sameiginlegt álit nokkurra stærstu verkalýðsfélaga í almannaþjónustu í Evrópu og er innlegg þeirra fyrir svokallað stjórnarskrárþing Evrópu, þar sem kallað var eftir áliti aðila vegna gerðar nýrrar stjórnarskrár Evrópusambandsins.  Þó álitið sé frá 12.11.2002, sýnir það vel þær áherslur sem verkalýðshreyfingin innan ESB hefur lagt og er því mjög upplýsandi til aflestrar fyrir væntanlega gesti á opnum fundi BSRB með varaformanni og framkvæmdastjóra EPSU, sem ræða munu tillögu að tilskipun um þjónustu á innri markaði ESB. Sú tilskipun hefur verið gagnrýnd fyrir að sækja samtímis að almannaþjónustu sem og áunnum réttindum verkafólks. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum BSRB nk. föstudag 29. október og hefst kl. 9.15.

Starfsmannafélag Reykjavíkur gagnrýnir áform um skattabreytingar

22.10.2004

"Draga verður í efa þá fyllyrðingu að nú sé svigrúm til skattalækkana. Enn býr heilbrigðiskerfið við fjársvelti, komugjöld á heilsugæslustöðvar eiga að hækka, innritunargjöld í Háskóla Íslands eiga að stórhækka, sveitarfélögin skortir fjármagn til að greiða starfsmönnum sínum viðunandi laun og áfram mætti telja. Þá hefur einnig verið sýnt fram á að í hagstjórnarlegu tilliti eru skattalækkanir nú afar hæpnar," segir í ályktun stjórnar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar um áform ríkisstjórnarinnar til skattabreytinga. 

Karlar með 17% hærri heildarlaun en konur

20.10.2004


Frá blaðamannafundi þar sem könnun Hasla var kynnt. F.v. Elna Katrín Jónsdóttir KÍ, Ögmundur Jónasson BSRB, Halldóra Friðjónsdóttir BHM, Heiður Hrund Jónsdóttir og Kristjana Stella Blöndal frá Félagsvísindastofnun HÍ.

Ef að þú ert karl í fullu starfi og ert jafnaldri konu, sem hefur sömu menntun og þú, vinnur sambærilegt starf og jafnlangan vinnutíma, þá eru mestar líkur á að þú fáir 17% hærri heildarlaun á mánuði en hún. Ef tekinn er raunverulegur launamunur kynjanna, án þess að leiðrétt sé vegna vinnutíma, menntunar, aldurs og starfs, þá eru heildarlaun karla 28% hærri en kvenna. Þessar niðurstöður er að finna í könnun sem HASLA gerði meðal félagsmanna í BSRB, BHM og KÍ sem kynnt var í morgun.

Sjúkraliðar styðja kennara

18.10.2004

Sjúkraliðafélag Íslands lýsti yfir fyllsta stuðningi við baráttu grunnskólakennara og styrkti verkfallssjóð þeirra um eina milljón króna 11. október sl. þegar baráttufundur kennara stóð yfir í Háskólabíói.

SFR styður verkfallssjóð kennara

8.10.2004


Jens Andrésson formaður SFR og Svala Nordahl varaformaður afhenda Eiríki Jónssyni formanni KÍ styrk vinnudeilusjóðs SFR til kjarabaráttu grunnskólakennara.

Jens Andrésson formaður SFR afhenti grunnskólakennurum 10 milljónir króna í verkfallssjóð kennaranna, en verkfall kennara hefur nú staðið í þrjár vikur. Jafnframt var grunnskólakennurum afhent ályktun stjórnar SFR þar sem eindregnum stuðningi er lýst við kjarabaráttu þeirra. Styrkurinn var afhentur í verkfallsmiðstöð grunnskólakennara í Borgartúni kl. 14. Fjölmenni var í verkfallsmiðstöðinni og hafði Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, orð á því að slíkur stuðningur frá félögum í stéttarfélagsbaráttunni væri ómetanlegur.

Er teymisvinna í heilbrigðiskerfinu tímasóun?

8.10.2004

Málþing Samtaka heilbrigðisstétta (www.heilbrigdisstettir.is) verður haldið í Setrinu á Grand Hótel  14. október 2004 kl. 16:15 til 19:00
Þátttökugjald er 1000. kr. ATH  Málþingið verður túlkað yfir á táknmál

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn

7.10.2004

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn verður haldinn lkaugardaginn 9. október og er þema dagsins tengslin milli líkamlegrar og andlegrar heilsu. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá víða í Reykjavík, fyrirlestur um þunglyndi í Háskólabíói,  geðhlaup í Nauthólsvík og göngu frá Hlemmi að Ráðhúsinu þar sem dagskrá verður í Tjarnarsalnum.

Málþing um jafnréttisáætlanir

4.10.2004

Jafnréttisráð stendur fyrir Málþingi um jafnréttisáætlanir á Grand - Hótel 26. október nk. Fjallað verður um gildi jafnréttislaga, jafréttisáætlanir, fyrirtæki og jafnrétti, jafnréttisstefnu Reykjavíkurborgar o.fl.

Nýir sófar í Munaðarnes, Stóru Skóga og á Eiðar

27.9.2004


Endurnýjaðir hafa verið sófar í öllum orlofshúsum BSRB í Munaðarnesi, Stóru Skógum og á Eiðum. Þetta eru glæsilegir hornsófar úr leðri. Heitir pottar eru nú við öll húsin í Munaðarnesi og Stóru Skógum og hefur aðsókn því aukist mikið. Við minnum á að hægt er að leigja húsin um helgar á haustin og vorin.

Stjórn BSRB lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu kennara og sjómanna

24.9.2004

"Stjórn BSRB lýsir eindregnum stuðningi við kjarabaráttu kennara og sendir Kennarasambandi Íslands baráttukveðjur. Brýnt er að samningar takist hið allra fyrsta því langvinnt verkfall getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir alla hlutaðeigandi," segir í ályktun sem stjórn BSRB samþykkti á fundi í dag. Jafnframt var samþykkt ályktun þar sem lýst var stuðningi við Sjómannasamband Íslands í kjaradeilu sjómanna og varað við tilraunum útgerðamanna til að sundra samstöðu sjómanna með samningum á bak við samtök þeirra.

Aðför útvegsmanna að verkalýðshreyfingunni

21.9.2004

"En í ljósi söginnar og þeirrar stöðu sem LÍÚ er nú í gagnvart sjómönnum má hverju barni vera ljóst að kjarasamningurinn sem nú hefur verið gerður á bak við Sjómannasambandið er ekki gerður án vitundar og samþykkis heildarsamtaka útvegsmanna. Hann er gerður í skjóli þeirra og á ábyrgð þeirra: Á ábyrgð LÍÚ. Út frá þessu má ganga nema fram komi mjög hörð viðbrögð frá samtökum útvegsmanna," segir m.a. í harðorðri grein Ögmundar Jónassonar formanns BSRB á heimasíðu hans.

Samningaviðræður við ríkið um réttindamál hafnar

17.9.2004

Samningaviðræður BSRB,BHM og KÍ við ríkið um réttindamál eru hafnar. Samtökin leggja áherslu á að bæta stöðu trúnaðarmanna, tryggingar, bættan veikindarétt, eflingu styrktarsjóða, lífeyrisréttindi, rétt tímavinnufólks, lengingu uppsagnarfrests, vinnuumhverfismál og starfsmannastefnu.

Haustdagskrá Félagsmálaskóla alþýðu

14.9.2004

Að venju býður Félagsmálaskóli alþýðu upp á fjölbreytt námskeið haustið 2004. Meðal annars er boðið upp á namskeið fyrir trúnaðarmenn, námskeið um fjölþjóðlega menningu á vinnustað, ensku vinnumarkaðarins, velferðarkerfi verkalýðshreyfingarinnar o.fl.

Kröfugerð SFR tilbúin

13.9.2004

Trúnaðarmannaráð SFR samþykkti einróma kröfugerð félagsins fyrir komandi kjarasamninga , en kjarasamningar eru lausir frá og með 1. desember nk. Megináherslan er á 150.000 kr. lágmarkslaun og fjölskylduvæna kjarasamninga sem birtist í kröfu um styttingu vinnuvikunnar, aukinn rétt vegna veikinda barna o.fl. Einnig er lögð sérstök áhersla á að launamismunur kvenna og karla verði leiðréttur.

Trúnaðarmannanámskeið í Munaðarnesi

31.8.2004

BSRB mun líkt og undanfarin ár standa fyrir grunnnámskeiði fyrir trúnaðarmenn í Munaðarnesi nú á haustdögum. Námskeiðið verður haldið dagana 1. og 2. nóvember.

EKKI BARA HUGSA UM ÞAÐ!

31.8.2004

Vika símenntunar verður haldin dagana 12.-18. september en hún er nú haldin í fimmta sinn hér á landi. Um er að ræða kynningarátak þar sem athyglinni er að þessu sinni beint að ungu fólki undir slagorðinu EKKI BARA HUGSA UM ÞAÐ! Vika símenntunar er á vegum menntamálaráðuneytisins en Mennt - samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla sér um skipulagningu og framkvæmd hennar í samvinnu við símenntunarmiðstöðvarnar níu á landsbyggðinni.

Félagsmálaskóli á háskólastigi

30.8.2004


Sjöfn Ingólfsdóttir varaformaður BSRB, Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri og Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ undirrita samning um félagsmálaskóla á háskólastigi.
Sjöfn Ingólfsdóttir varaformaður BSRB, Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri og Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ undirrituðu samning um fjögurra anna félagsmálaskóla á háskólastigi föstudaginn 27. ágúst.

Jens Andrésson formaður NSO

19.8.2004

Jens Andrésson formaður SFR var kjörinn formaður NSO, Samtök norrænna ríkisstarfsmanna, til næsta árs á ráðstefnu samtakanna sem var haldin í Ouluborg í Finnlandi 11. – 14. ágúst sl.

Fréttabréf á vefnum

9.8.2004

Nokkur aðildarfélög BSRB hafa tekið upp þá nýbreytni að vera með félagsblöð sín og fréttabréf á vefnum. Á heimasíðum þessara félaga er hægt að nálgast ritin á pdf-formi en til að hægt sé að skoða blöðin þarf að hafa acrobat reader í tölvunni.

Úrskurður Félagsdóms í máli SFR gegn ríki og Eflingu

9.8.2004

Félagsdómur féllst á allar dómkröfur SFR í máli sem félagið höfðaði gegn ríkinu og Efíngu. Kröfur SFR í málinu voru þær að viðurkennt yrði að SFR færi með samningsaðild fyrir starfsfólk við gerð kjarasamninga vegna starfa þeirra hjá LSH.  Þá var þess einnig krafist að núgildandi kjarasamningur SFR og ríkisins gilti um laun og önnur kjör þeirra frá og með 1. janúar 2004, eða frá þeim tíma að þágildandi kjarasamningur Eflingar rynni út. Félagsdómur birti úrskurð sinn 12. júlí sl.

Ofsóknum gegn frjálsri verkalýðshreyfingu mótmælt

12.7.2004

Á fundi með varaforseta kínverska þingsins og öðrum kínverskum ráðamönum sem dvalist hafa á Íslandi undanfarna daga í boði Alþingis, gerði Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, mannréttindabrot í Kína að umræðuefni. Hann vísaði til skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International þar sem m.a. er fjallað ofsóknir á hendur fólki sem hefur beitt sér í verkalýðsbaráttu. Afhenti hann kínversku sendinefndinni skýrsluna og óskaði eftir skýringum. Um þetta fjallar Ögmundur Jónasson nánar á vefsíðu sinni, sjá hér.

BSRB og SLFÍ styðja málssókn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

9.7.2004

BSRB og Sjúkraliðafélag Íslands mótmæla harðlega þeirri yfirlýsingu forstjóra Heilsugæslunnar í Reykjavík í fjölmiðlum að ekki hafi átt sér stað „vinnudeila í venjulegum skilningi“ þegar starfsfólk heimahjúkrunar lagði niður vinnu í mars síðastliðnum, vegna uppsagnar stjórnenda á umsömdum ráðningarkjörum starfsmanna. BSRB kom að þessari kjaradeilu með SLFÍ og FÍH á grundvelli samkomulags frá 8. október 1990, undirrritað af fjármálaráðuneytinu annars vegar og BSRB hins vegar. Því var óvéfengjanlega um að ræða deilu um kjör sem byggði á samningi og með fulltingi stéttarfélaga og heildarsamtaka....

Vaxandi efasemdir um einkaframkvæmd í Bretlandi

8.7.2004

Bresku verkalýðssamtökin, Unison, hafa birt ítarlega skýrslu um einkaframkvæmd sem vakið hefur mikla umræðu í Bretlandi. Einkaframkvæmd (Private Finance Initiative, PFI) byggir á því að einkaaðilar reisa og reka opinberar stofnanir á borð við skóla, sjúkrahús og fangelsi. Á sama tíma og fréttir berast frá íslenskum sveitarfélögum um áhuga á einkaframkvæmd. Ögmundur Jónasson skrifar ítarlega grein um málið á heimasíðu sinni www.ogmundur.is

Kjölur kominn með heimasíðu

28.6.2004

Kjölur, stéttarfélag starfsfólks í almannaþjónustu, hefur opnað nýja heimasíðu. Slóðin á síðuna er http://kjolur.bsrb.is/ 

Húsfyllir á Menningarhátíð í Munaðarnesi

21.6.2004


Húsfyllir var á menningarhátíð BSRB þegar málverkasýning Valgarðs Gunnarssonar var opnuð í Munaðarnesi laugardaginn 19. júní. Að loknu ávarpi Ögmundar Jónassonar sungu Álftagerðisbræður sig inn í hjörtu áheyrenda og Anna Kristín Arngrímsdóttir las ljóð. Þá var málverkasýningin formlega opnuð og gestum boðið upp á veitingar. Er óhætt að fullyrða að menningarhátíðin hafi tekist með miklum ágætum og segja meðfylgjandi myndir dálitla sögu þar um.

Jafnréttismál EPSU í brennidepli

18.6.2004

„Við konur viljum ekki þurfa að eyða öllum okkar kröftum í að reka jafnréttismálin áfram, þessi mál varða alla, karla jafnt sem konur“, sagði Vera Morgenstern, formaður jafnréttisnefndar EPSU í ræðu þegar hún kynnti jafnréttisályktun EPSU á þingi samtakanna sem lauk þann 17. júní.

Úrslitastund fyrir almannaþjónustu í Evrópu

16.6.2004

"Nú er úrslitastund fyrir almannaþjónustuna í Evrópu. Þessi ráðstefna er ein sú allra mikilvægasta sem EPSU ( European Public Service Union, Samtök starfsfólks í almannaþjónustu innan ESB og EES) hefur staðið fyrir hingað til" sagði Anna Salfi forseti EPSU í opnunarræðu sinni á sjöunda þingi samtakanna sem nú stendur yfir í Stokkhólmi.

Íslendingar taka undir með Frökkum

16.6.2004

Ögmundur Jónasson formaður BSRB hélt tölu á þingi EPSU og fjallaði m.a. um breytingar á orkugeiranum. Ögmundur tók undir kröfu frönsku verkalýðssamtakanna um að verkalýðshreyfingin beitti sér af alefli fyrir þvi að tilskipanir ESB í raforkumálum yrðu endurskoðaðar og tryggt að öll grunnþjónusta verði undir stjórn og í eigu opinberra aðila.

Menningarhátíð í Munaðarnesi

15.6.2004

Myndlistarsýning Valgarðs Gunnarssonar verður opnuð á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi laugardaginn 19. júní kl. 14.00. Við opnunina munu Álftagerðisbræður syngja og Anna Kristín Arngrímsdóttir leikkona lesa upp. Þá mun Ögmundur Jónasson formaður BSRB flytja ávarp. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Átakshelgin í Munaðarnesi 5. – 6. júní

10.6.2004


Hreinsunarátak sem stjórn fulltrúaráðs orlofsheimila BSRB stóð fyrir um síðustu helgi tókst mjög vel. Eins og kunnugt er hafa staðið yfir miklar  framkvæmdir í orlofsbyggðinni í Munaðarnesi í vetur með tilheyrandi raski innan dyra sem utan. Til þess að hjálpa til á lokasprettinum skoraði stjórn fulltrúaráðsins á stjórnarmenn í BSRB, sjálfa sig, orlofsnefndir aðildarfélaga og yfirleitt alla þá sem vildu leggja góðu málefni lið að mæta í Munaðarnes og taka til hendinni dagana 5.-6. júní.

Barist um anda Evrópu

10.6.2004

Evrópusamband starfsfólks í almannaþjónustu, EPSU heldur 7. þing sitt í Stokkhólmi dagana 14.-17. júní. Er sambandið málsvari 189 stéttarfélaga og sambanda í 33 löndum Evrópusambandins og  Evrópska efnahagssvæðisins og eru félagar rúmlega átta milljónir. BSRB á aðild að EPSU og sendir fulltrúa sína á þingið.

Háskólanám fyrir talsmenn stéttarfélaga

8.6.2004

Félagsmálaskóli alþýðu í samstarfi við Háskólann á Akureyri býður upp á rekstrar og stjórnunarnám sem er skipulagt með þarfir forystu og starfsmanna stéttarfélag í huga. Kennsla fer fram á vinnutíma og eru kennsluhættir og aðferðir sniðið að þörfum fólks sem vinnur samhliða námi.

Ráðstefna EPN í Eldborg við Bláa lónið

8.6.2004

Evrópusamband sjúkraliða EPN (European Council of  Practical Nurses) hélt ráðstefnu í Eldborgarsalnum við Bláa Lónið föstudaginn 4. júní. Ráðstefnan var haldin í tengslum við aðalþing sambandsins sem haldið var daginn áður þann 3. júní.

Stríðsglæpum Ísraelshers í Palestínu mótmælt

4.6.2004

Félagið Ísland-Palestína efnir til útifundar á Ingólfstorgi laugardaginn 5. júní kl 14. Fundurinn er haldinn til að mótmæla stríðsglæpum Ísraelshers í Rafah á Gazaströnd.

Skorað á ríkisstjórnina að mótmæla mannréttindabrotum Bandaríkjamanna í Guantanamo

2.6.2004


Frá fréttamannafundi þar sem áskorunin var kynnt. F,v. Bjarni Magnússon frá Deiglunni, Huginn Þorsteinsson frá Múrnum, Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Jóhanna K. Eyjólfsdóttir formaður Íslandsdeildar Amnesty International. Mynd Bára

 „Við undirrituð skorum á ríkisstjórn Íslands að koma mótmælum á framfæri með formlegum hætti við ríkisstjórn Bandaríkjanna vegna þeirra mannréttindabrota sem nú viðgangast í herstöðinni við Guantanamo flóa á Kúbu,“ segir í áskorun til ríkisstjórnarinnar frá Alþýðusambandi Íslands, BSRB, Deiglunni.com, Íslandsdeild Amnesty International, Múrnum, Sellunni, Skoðun, Tíkinni, Ungum frjálslyndum, Ungum vinstri grænum og Ungum jafnaðarmönnum.  Forsætisráðherra Davíð Oddsson og utanríkisráðherra Halldór Ásgrímsson hafa móttekið áskorunina vegna málefna fanganna í flotastöð Bandaríkjamanna við Guantanamo flóa á Kúbu.
Áskorunin var kynnt á fréttamannafundi í dag 2. júní kl. 14.00. Einnig var kynnt undirskriftasöfnun þessara aðila á vefslóðinni www.skodun.is/undirskrift

Sáttmáli Samflotsins undirritaður

2.6.2004


Fjórtán bæjarstarfsmannafélög undirrituðu sáttmála um samflot í komandi kjarasamningum á fundi sem haldinn var á Hótel Loftleiðum þann 1. júní. Félögin sem undirrituðu sáttmálann eru Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Starfsmannafélag Akraness, Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Starfsmannafélag Húsavíkurkaupstaðar, Starfsmannafélag Kópavogs,  Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, Starfsmannafélag Ólafsfjarðar,  Starfsmannafélag Seltjarnarness, Starfsmannafélag Skagafjarðar, Starfsmannafélag Sveitarfélagsins Árborgar, Starfsmannafélag Vestmannaeyja.

Áminningarfrumvarpinu frestað

28.5.2004

Alþingi ákvað að fresta frumvarpi um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins til haustsins. Hefði frumvarpið orðið að lögum hefði verður felld niður sú skylda forstöðumanns að áminna starfsmann með formlegum hætti áður en til uppsagnar úr starfi kemur. Þar með hefðu duttlungar stjórnenda getað ráðið starfsörygginu.

Staða neytenda í stækkuðu Evrópusambandi

27.5.2004

Neytendasamtökin halda opinn fund um stöðu neytenda í stækkuðu ESB.  Rasmus Kjeldal forstjóri dönsku neytendasamtakanna – Forbrugerrådet heldur fyrirlestur. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. Að fyrirlestri loknum eru fyrirspurnir og umræður.

Ársfundur LSR og LH

24.5.2004

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga verður haldinn þriðjudaginn 25. maí á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38 og hefst hann kl. 15:00.

KJÖLUR stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu stofnað

21.5.2004


KJÖLUR stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu var formlega stofnað laugardaginn 15. maí sl. á sameiningarfundi í Munaðarnesi. Í KILI sameinuðust fimm starfmannafélög sveitarfélaga en það eru STAK á Akureyri, Félag opinberra starfsmanna í Húnavatnssýslum, Starfsmannafélag Borgarbyggðar, Starfsmannafélag Dalvíkurbyggðar og Starfsmannafélag Siglufjarðarkaupstaðar.

Ónýt - ónýtt starfsorka

21.5.2004

Ónýt - ónýtt starfsorka var yfirskrift ráðstefnu um stöðu miðaldra fólks á vinnumarkaði sem haldin var miðvikudaginn 19. maí. Þeir sem stóðu að ráðstefnunni voru Vinnumálastofnun og aðilar vinnumarkaðarins, þar á meðal BSRB auk Landssamtaka lífeyrissjóða.

Komandi kjarasamningar settir í uppnám

13.5.2004


Erna Guðmundsdóttir hdl, lögfræðingur BSRB

Fjölmennur fundur BSRB, BHM og KÍ, sem haldinn var í BSRB húsinu 13. maí samþykkti ályktun þar sem breytingum á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins var harðlega mótmælt. Í ályktuninni segir m.a. að verði frumvarpið samþykkt sé verið að hverfa aftur til forneskjulegra stjórnarhátta þar sem geðþótti og einhliða hagsmunir húsbænda réðu. Einnig er bent á að með þessu sé verið að setja komandi kjarasamninga í uppnám.

Eiga duttlungar að ráða uppsögn?

12.5.2004

BSRB, BHM og KÍ efna til fundar um yfirvofandi breytingar á ráðningarréttindum starfsmanna ríkisins fimmtudaginn 13. maí kl. 17.00 í BSRB-húsinu Grettisgötu 89. Með frumvarpinu um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins er verið að afnema grundvallaratriði um starfsöryggi starfsmanna ríkisins en megintilgangur frumvarpsins er að gera forstöðumönnum ríkisstofnana auðveldara en nú er að segja starfsmönnum upp störfum.

Einkarekstur í heilbrigðisþjónustu: Afturhvarf til fortíðar

6.5.2004

Það er afdráttarlaus niðurstaða Görans Dahlgrens, prófessors og sérfræðings á sviði lýðheilsumála, að einkarekstur sjúkrahúsa sé dýrari en opinber rekstur. Þetta kom fram í fyrirlestri hans á ráðstefnu BSRB 5. maí s.l. um heilbrigðismál þar sem hann varaði eindregið við einkavæðingu á þessu sviði, sem og málflutningi þeirra sem vilja koma heilbrigðisþjónustunni í hendur einkafyrirtækja.

Með lýðræði gegn skrifræði

1.5.2004

Ögmundur Jónasson formaður BSRB, gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega, í ræðu sem hann flutti í Höfn á Hornafirði í tilefni af 1. maí, baráttudegi verkalýðshreyfingarinnar. Hann sagði að ríkisstjórnin hefði sýnt með verkum sínum, að hún hugsaði meira um hag fjármálamanna en almennings. Hvatti hann til samstöðu innan verkalýðshreyfingarinnar og varðstöðu um hag öryrkja og atvinnulausra. Hann gagnrýndi ennfremur frumvarp ríkisstjórnarinnar sem liggur fyrir Alþingi og kæmi til með að veita stjórnendum, rétt til að reka fólk úr starfi skýringalaust. Rauði þráðurinn í ræðu formanns BSRB, var þó gagnrýni á það sem hann kallaði eftirlitsþjóðfélagið. Hann sagði það góðra gjalda vert að stuðla að samkeppni þar sem hún ætti við en með einkavæðingu samfélagsþjónustunnar væri jafnt og þétt dregið úr lýðræðislegum áhrifum í þjóðfélaginu.

Dagskrá 1. maí 2004 í Reykjavík

29.4.2004

Safnast verður saman á Skólavörðuholti framan við Hallgrímskirkju kl. 13.30.
Gangan leggur af stað kl. 14.00.
Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur fara fyrir göngunni.
Gengið niður Njarðargötu, Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg, vestur Vonarstræti, norður Suðurgötu og Aðalstræti inn á Ingólfstorg.
Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14.35.
Fundartími áætlaður 45 mín.
Að loknum útifundi býður BSRB félagsmönnum upp á kaffi á 4. hæð í Félagamiðstöðinni að Grettisgötu 89.

Atvinna fyrir alla

29.4.2004

Atvinna fyrir alla er yfirskrift 1. maí ávarps Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, KHM, KÍ og Iðnnemasambands Íslands. Víða er komið við í ávarpinu. Áfangasigrum í kjarabaráttu fagnað og bent á mikilvægi þess að uppræta þurfi kynjabundinn launamun. Varað er við samþjöppun valds og fákeppni í efnahagslífinu. Bent er á að þjóðarsátt um gott heilbrigðiskerfi hafi verið rofin og þess krafist að heilbrigðiskerfið geti veitt öllum landsmönnum fullkomnustu þjónustu. Varað er við þeirri þróun sem átt hefur sér stað með aukinni hnattvæðingu og áhrifum óheftrar markaðsvæðingar sem leitt hefur til sívaxandi bils á milli ríkra þjóða og snauðra. Þá segir að mikilvægt sé að sett verði lög um erlendar vinnumiðlanir. Lagst er gegn útlendingafrumvarpinu sem nú liggur fyrir Alþingi.Varað er við því að aukið eftirlit þróist ekki upp í skerðingu á persónufrelsi og brjóti friðhelgi einkalífsins. Öllum stríðsrekstri og hryðjuverkum er mótmælt. Að lokum er hvatt til markvissrar umræðu um nýja atvinnustefnu sem hafi atvinnu fyrir alla að meginmarkmiði.

Reynslan af kerfisbreytingum og framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu

26.4.2004

Svíinn Göran Dahlgren prófessor verður fyrirlesari á málþingi BSRB sem haldið verður miðvikudaginn 5. maí kl. 09:00 til 11:00 á Hótel Loftleiðum. Fyrirlestur hans mun fjalla um heilbrigðisþjónustuna, reynslu af kerfisbreytingum og framtíðarsýn. Málþingið er öllum opið og hvetur BSRB alla sem láta sig heilbrigðismál varða til að koma til málþingsins. Göran mun svara  fyrirspurnum að loknum fyrirlestri.

Göran Dahlgren hefur síðan á níunda áratugnum verið áhrifamaður á alþjóðavettvangi á sviði heilbrigðis, – heilsugæslu, – og lýðheilsumála. Bók hans „Hjúkrunarmarkaður framtíðarinnar – hverjir vinna og hverjir tapa?“ sem kom út 1994 vakti mikla athygli, en þar dregur hann upp mynd af samspili heilbrigðiskerfisins og markaðarins. Honum hlotnuðust Norrænu lýðheilsuverðlaunin árið 2003 en í úrskurði dómnefndar sagði að framlag hans hefði brotið blað á sviði jafnréttismála, aðferðafræði, stefnumótunar og skoðanamyndunar í nútíma lýðheilsustarfi.

Rætt um tvískiptingu vinnumarkaðarins á Bifröst

19.4.2004

Fjölmenni var á ráðstefnu um tvískiptingu vinnumarkaðarins sem haldin var af Viðskiptaháskólanum á Bifröst föstudaginn 16. apríl. Fjölmörg erindi voru flutt á ráðstefnunni og komu bæði fram þau sjónarmið að sama löggjöf ætti að gilda um allan vinnumarkaðinn og einnig að ákveðin rök væru fyrir tvískiptingu hans.

Vel heppnuð ráðstefna um kjaramál ríkisstarfsmanna

16.4.2004


Hátt á þriðja hundrað manns troðfylltu Súlnasal Hótel Sögu í gær á ráðstefnu sem BHM, BSRB og Kennarasamband Íslands stóðu sameiginlega að. Yfirskrift fundarins var Hvert stefnir í kjarasamningum hjá ríkinu? Á ráðstefnunni var fjallað um hið nýja launakerfi ríkisins, sögulegan aðdraganda þess að því var komið á fót, hver reynslan af því væri og hvert stefndi. Fræðimenn og fulltrúar samningsaðila fluttu erindi og efnt var til almennra umræðna. Af hálfu BSRB fluttu þeir erindi Ögmundur Jónasson, formaður BSRB og Jens Andrésson, formaður SFR. Ráðstefnustjóri var Elna Katrín Jónsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara.

Fjölgun í Samflotinu

14.4.2004

Samflot sex bæjarstarfsmannafélaga hélt aðalfund sinn 1. apríl sl. Fundinn sátu auk fulltrúa þeirra félaga sem skipa Samflotið fulltrúar fimm annarra starfsmannafélaga. Vilji er fyrir auknu samstarfi þessara félaga og að vinna saman í komandi kjaraviðræðum. Þau félög sem mynda Samflotið eru FOSS, STAVEY, STÁ, STH, SfK og STAkranes. Félögin sem sátu auk þess aðalfundinn voru STAMOS, FOSA, Starfsmannafélag Dala- og Snæfellssýslu, Starfsmannafélag Ólafsfjarðar og Starfsmannafélag Húsavíkur.

Tvískipting íslensks vinnumarkaðar

13.4.2004

Lögfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst stendur fyrir ráðstefnu um Tvískiptingu íslensks vinnumarkaðar föstudaginn 16. apríl 2004 í Hriflu á Bifröst. Ráðstefnan er í samstarfi við ASÍ, BSRB, SA og Starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytis. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Meðal fyrirlesara eru Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB, Magnús Nordahl lögfræðingur ASÍ, Þórhallur Vilhjálmsson lögfræðingur starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Hrafnhildur Stefánsdóttir lögfræðingur SA, Ástráður Haraldsson dósent við lögfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst og Kristín Benediktsdóttir aðstoðarmaður hæstaréttardómara.

Fjölmennar aðgerðir í Evrópu

6.4.2004

Meira en 1.6 milljónir manna svöruðu kalli ETUC, Evrópusambands verkalýðsfélaga og sýndu vilja sinn með því að flykkjast út á götur og torg víðs vegar um Evrópu til að leggja áherslu á breytta stefnu Evrópusambandsins og aukið félagslegt réttlæti. Ein milljón manna söfnuðust saman í Róm til að mótmæla eftirlaunastefnu Berlusconis og í Þýskalandi gekk hálf milljón manna fyrir bjartari framtíð. Þá voru aðgerðir víða í Frakklandi sem og í Slóveníu, Ungverjalandi og Póllandi. Myndin er frá aðgerðum í Slóveníu.

Nýr formaður Starfsmannafélags Kópavogs

2.4.2004

Jófríður Hanna Sigfúsdóttir var kjörinn nýr formaður Starfsmannafélags Kópavogs á aðalfundi félagsins 31. mars. sl. en Jón Júlíusson fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Jón var formaður StKóp. í 12 ár.

Hvert stefnir í kjarasamningum hjá ríkinu?

2.4.2004

Hvert stefnir í kjarasamningum hjá ríkinu er yfirskrift ráðstefnu sem BSRB, BHM og KÍ standa fyrir í Súlnasal Hótel Sögu fimmtudaginn 15. apríl nk. Ráðstefnan hefst kl. 13 með setningarræðu Ögmundar Jónassonar, formanns BSRB og stendur til kl. 17. Ráðstefnan er öllum opin.

Tekist á um framtíðina

1.4.2004

Evrópusamband verkalýðsfélaga, (ETUC) stendur fyrir sameiginlegum aðgerðum dagana 2. og 3. apríl í borgum víðsvegar um Evrópu. Vill ETUC (European Trade Union Confederation) , en  BSRB er aðili að sambandinu, að Evrópusambandið geri hinum félagslega þætti í stefnu ESB mun hærra undir höfði og að ríkisstjórnir Evrópu beiti sér fyrir auknu réttlæti og félagslegri samþættingu í löndum sínum. Er áherslan í kröfum ETUC m.a. annars á aukna atvinnu, á vörn fyrir félagslegum réttindum og fyrir almannaþjónustu af bestu gæðum.

STÁ opnar heimasíðu

31.3.2004

Starfsmannafélag Sveitarfélagsins Árborgar hefur opnað heimasíðu. Slóðin á heimasíðuna er http://www.sta.is 

Fimm félög sameinast í Kili

30.3.2004

Fimm aðildarfélög BSRB hafa ákveðið að sameinast í stéttarfélaginu Kili eftir atkvæðagreiðslu á aðalfundum félaganna. Þetta eru Starfsmannafélag Akureyrar, Starfsmannafélag Dalvíkurbyggðar, Starfsmannafélag Siglufjarðarkaupstaðar, Félag opinberra starfsmanna í Húnavatnssýslum og Starfsmannafélag Borgarbyggðar. Þrjú félög felldu sameininguna en það voru Starfsmannafélag Skagafjarðar, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu. Stofnfundur Kjalar verður haldinn í Munaðarnesi 15. maí nk.

Heilbrigðiskerfið - Virkni, skilvirkni, jöfnuður, virðing

30.3.2004

Heilbrigðiskerfið - Virkni, skilvirkni, jöfnuður, virðing er yfirskrift ráðstefnu á vegum Blindrafélagsins, Félags aðstandenda Alzheimersjúklinga, Geð­hjálpar, Geðverndarfélags Íslands, Gigtarfélags Íslands, Heyrnarhjálpar, Lands­sam­takanna Þroska­­hjálpar og Umsjónarfélags einhverfra í samstarfi við LSH, Landlæknis­embætti og Félagsmálaráðuneytið, sem haldin verður fimmtudaginn 1. apríl kl. 13.00 í Hringsal Landsspítala Háskólasjúkrahúsi v/Hringbraut (gengið inn við Barnaspítalann). Ráðstefnan er öllum opin en heilbrigðsstarfsfólk er einkum hvatt til að koma.

Nýr formaður FOSVest

30.3.2004

Gylfi Guðmundsson var kjörinn nýr formaður Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum eftir að aðalfundur félagsins felldi tillögu um sameiningu félagsins við sjö önnur starfsmannafélög í stéttarfélaginu Kili.

Nýr formaður í Starfsmannafélagi Skagafjarðar

30.3.2004

Gunnar Björn Rögnvaldssonvar var kjörinn nýr formaður Starfsmannafélags Skagafjarðar á aðalfundi félagsins mánudaginn 29. mars. Fráfarandi stjórn gaf ekki kost á sér til endurkjörs eftir að fundurinn felldi tillögu um sameiningu félagsins við sjö önnur starfsmannafélög í stéttarfélaginu Kili.

Nýr formaður í Starfsmannafélagi Dala- og Snæfellsnessýslu

30.3.2004

Helga Hafsteinsdóttir var kjörinn nýr formaður Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu á aðalfundi félagsins sem haldinn var föstudaginn 26. mars. Á fundinum voru greidd atkvæði um sameiningu félagsins við sjö önnur starfsmannafélög en hún var felld.

Framkvæmdum miðar vel í Munaðarnesi

29.3.2004

Framkvæmdum miðar vel í Munaðarnesi. Í síðustu viku var fluttur vatnstankur frá Hafnarfirði, þar sem hann hafði verið smíðaður, til Munaðarness og honum komið fyrir mitt á milli orlofsbyggðarinnar í Munaðarnesi og í Stóru Skógum. Tankinum er ætlað að miðla vatni í Stóru Skóga.

Póstmenn fái hlut í hagnaði Íslandspósts

29.3.2004

Aðalfundur Póstmannafélags Íslands sendi frá sér ályktun þar sem bent er á að hagnaður Íslandspósts hf  sé tilkominn vegna  mikils aðhalds og sparnaðar í rekstri og þeirrar dapurlegu staðreyndar að störf hjá fyrirtækinu eru í flestum tilfellum láglaunastörf.  Er fyrirtækið hvatt til að greiða starfsfólki sómasamleg laun í stað þess að greiða ríkissjóði hálfan milljarð í hagnað.

Yfirlæknir Vinnueftirlitsins andvígur því að atvinnurekendur hafi heimild til að taka lífsýni úr starfsfólki – hvetur til umræðu um málið

26.3.2004

Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu, telur ekki heppilega þróun að stjórnendur fyrirtækja geti tekið sér vald til þess að framkvæma læknisskoðun á vinnustað hvenær sem þeim líkar. Tilefni þess að Kristinn er inntur eftir afstöðu sinni fyrir lesendur vefsíðu BSRB er eftirfarandi yfirlýsing sem starfsmönnum álversins í Straumsvík er gert að undirrita, sem hluta af ráðningarsamningi: "Það er stefna fyrirtækisins að hafa vinnustaðinn án allra vímu- og fíkniefna. Allir starfsmenn sem ráðnir eru þurfa að gangast undir læknisskoðun þar sem m.a. er prófað fyrir ólöglegum efnum auk þess sem fyrirtækið áskilur sér rétt til að kalla starfsmenn í rannsókn hvenær sem er á vinnutíma."

Fyrsti hópur forystufræðslunnar útskrifaður

25.3.2004

Fyrsti hópurinn í forystufræðslu BSRB útskrifaðist 24. mars. Námið hófst vorið 2003 og kom hópurinn þrisvar saman í Munaðarnesi á tímanum en stundaði fjarnám þess á milli. Staðbundna námið var í þrjá daga í hvert skipti. Var megin áhersla lögð á samningatækni, ræðumennsku, sjálfseflingu, verkefnastjórnun og samvinnuhæfni stjórnenda.

Vatnsveitustarfsmenn í verkfalli vegna svikinna samninga

23.3.2004

Starfsmenn Anglian Water Services í Bretlandi gengu út og fóru í verkfall í vikunni sem leið, þegar áform fyrirtækisins um að ganga á bak orða sinna um lífeyrisskuldbindingar starfsmanna urðu ljós. Forsaga málsins er sú, að verkalýðsfélög starfsmanna gerðu samkomulag við Anglian Water Services árið 2002 þegar fréttist að fyrirtækið ráðgerði að setja allt að 90% starfsemi sinnar í hendur verktakafyrirtækja. Gekk samkomulagið út á að þrátt fyrir að starfsmenn Anglian Water Services gerðust starfsmenn annarra fyrirtækja í kjölfar skipulagsbreytinganna, þá héldu þeir lífeyrisréttindum sínum sem þeir höfðu áunnið sér hjá fyrirtækinu.

Alþjóða vatnsdagurinn - Vatn og hörmungar

22.3.2004

Í dag 22. mars er alþjóðlegur vatnsdagur og hafa Sameinuðu þjóðirnar ákveðið að þema dagsins skuli vera “vatn og hörmungar” eða “Water and Disasters”. Í dag er staðan sú að einn og hálfur milljarður manna hefur takmarkaðan eða engan aðgang að hreinu drykkjarvatni og tvo og hálfan milljarð skortir vatn til hreinlætis. Kofi Annan aðalritari Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir einkavæðingu vatns í nýrri skýrslu, sem leggjast á fyrir 12. þing nefndar S.Þ. um sjálfbæra þróun sem haldið verður dagana 14. til 30. apríl nk..  

Metaðsókn á trúnaðarmannanámskeið

19.3.2004


Metaðsókn var á trúnaðarmannanámskeið í Munaðarnesi dagana 17. og 18. mars. Hátt í 80 manns sóttu námskeiðið og var það í alla staði mjög vel heppnað, enda hópurinn ánægður í námskeiðslok. Þátttakendur voru víða að úr starfsmannafélögum sveitarfélaga og einnig úr fagfélögum. Á myndinni er hópurinn á veröndinni við þjónustumiðstöðina í Munaðarnesi.

Lífeyrisskuldbindingar ríkis og sveitarfélaga

17.3.2004

BSRB telur ómálefnalegt hnútukast á milli forsvarsmanna samtaka launafólks ekki vera sameiginlegum málstað til góðs. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, virðist ekki sömu skoðunar ef dæma skal af ummælum hans síðustu daga um málefni lífeyrissjóða opinberra starfsmanna. Í bréfi, sem hann birti í DV, þriðjudaginn 16.mars, vísar hann í lífeyrissjóði sem byggja á kjarasmningum BSRB, BHM og Kennarasambands Íslands við viðsemjendur sína sem sjóða þar sem “opinberir embættismenn semja við sjálfa sig um kerfi þar sem ávöxtun skiptir engu máli og þaðan af síður hvort kerfið eigi fyrir skuldbindingum..” Grein sem Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, skrifar í Morgunblaðið til andsvars við yfirlýsingar framkvæmdastjóra Alþuýðusambandsins um stöðu opinberu lífeyrissjóðanna líkir hann við viðbrögð unglings “sem fær ábendingar um atferli sem ekki er í lagi “Æi, gasalega ertu leiðinlegur, ég nenni ekki að tala um þetta”. Þetta er það eina sem stendur í svari framkvæmdastjórans og það eru rök sem virðast ganga og passa vel hinum blaðrandi besservisserum...”

Lög um hlutastörf samþykkt þrátt fyrir andstöðu samtaka launafólks

12.3.2004

Alþingi hefur samþykkt lög um hlutastörf þrátt fyrir andstöðu BSRB og fleiri samtaka launafólks. BSRB lagðist gegn frumvarpinu til þar sem með því var verið að innleiða tilskipun um hlutastörf og er markmiðið að uppræta mismunun gagnvart launþegum í hlutastörfum og til að auka möguleika á hlutastörfum á forsendum sem eru viðunandi fyrir bæði atvinnurekendur og starfsmenn. Lögin ná ekki til starfsmanna sem fá greitt fyrir vinnu sína með tímavinnukaupi. BSRB hefur harðlega mótmælt þessu og telur að þessi undanþága brjóti gegn tilskipun EES um hlutastörf. Íhugar BSRB nú að kæra lögin til Eftirlitsstofnunar EFTA.

Samið í viðkvæmri deilu um heimahjúkrun

8.3.2004

Samið hefur verið í kjaradeilu Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu og sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga, en deilan stóð í viku. Deilt var um breytingar á fyrirkomulagi akstursgreiðslna, og þá hvernig staðið skyldi að breytingunni. BSRB kom að deilunni vegna samnings frá árinu 1990 sem bandalagið gerði þegar heimahjúkrun var færð frá sveitarfélögum til ríkis. Samningurinn sem undirritaður var í gær tryggir svokallað sólarlag fyrir núverandi kerfi og launahækkanir í nýju kerfi sem munu mæta kjaraskerðingu sem ella hefði orðið við kerfisbreytinguna.

Hvernig aukum við jafnrétti á vinnumarkaði?

8.3.2004

Ávarp á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars 2004
Nýverið var birt skýrsla nefndar sem forsætisráðherra skipaði til að gera úttekt á efnahagslegum völdum kvenna á Íslandi. Þar er enn einu sinni staðfest að konur hafa lægri laun en karlar fyrir jafn langan vinnudag og að umönnun barna og heimilisstörf hvíla að mestu á herðum kvenna. Þessar niðurstöður koma ekki á óvart og sýna að þrátt fyrir ágæta jafnréttislöggjöf er margt óunnið í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna.

Árásum á lífeyriskerfið verður hrundið

8.3.2004

„Eins og við mátti búast hefur lífeyrisumræða síðustu daga orðið til þess að Pétur H.Blöndal og aðrir andstæðingar samtryggingarlífeyrissjóða eru komnir á kreik. Í  sunnudagsútgáfu Fréttablaðsins gerir hann harða hríð að lífeyrissjóðum starfsmanna ríkis og sveitarfélaga. Pétur H.Blöndal skal af þessu tilefni minntur á, að menn skyldu hugsa sig tvisvar um áður en lagt er til atlögu gegn starfsmönnum ríkis og sveitarfélaga og reynt að hafa þeim lífeyrisréttindin eins og hann leggur til,“ segir í inngangi greinar eftir Ögmund Jónasson formann BSRB á heimasíðu hans og nefnist Villandi umræða um lífeyrismál.

Heildarsamtök opinberra starfsmanna á Norðurlöndum þinga í Reykjavík

5.3.2004


Mikko Mäenpää Finnlandi, Sture Nordh Svíþjóð, Randi Björgen Noregi, Ogmundur Jónasson Íslandi og Allan Bang Danmörku.

Formenn heildarsamtaka starfsmanna í almannaþjónustu komu saman til fundar ásamt öðrum kjörnum fulltrúum og sérfræðingum í alþjóðamálum fimmtudaginn 4. mars í húsakynnum BSRB. Fundir af þessu tagi eru haldnir árlega en á þeim bera menn saman bækur sínar og samræma áherslur eftir því sem við á. Á fundinum núna var fjallað um almannaþjónustuna og skipulagsbreytingar innan hennar.

Formaður BSRB gagnrýnir heilsugæsluna fyrir að biðla til verktakafyrirtækja – segir jafnframt stjórnvöld brjóta samninga

3.3.2004

„Ef samningurinn sem undirritaður var á milli BSRB og fjármálaráðuneytisins 8. okt. árið 1990 um akstur og launagreiðslur starfsmanna  í heimahjúkrun er ekki samningur um kjör og í þeim skilningi kjarasamningur þá veit ég ekki hvað hann er“, segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB vegna ummæla forsvarsmanna Heilsugæslunnar í Reykjavík um deilan út af heimahjúkrun flokkist ekki undir kjaradeilur. „Á grundvelli þessa samnings er BSRB og einnig Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélag Íslands við samningaborðið í þessari deilu.“

Alþjóðadagur kvenna fyrir friði og jafnrétti

2.3.2004

Opinn fundur mánudaginn 8.mars 2004  kl.17 í BSRB-salnum, Grettisgötu 89 í tilefni alþjóðadags kvenna fyrir friði og jafnrétti. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá. Eftirtaldir aðilar standa að fundinum: Menningar- og friðarsamtök ísl. kvenna, Bandalag háskólamanna, BSRB, Barnaheill, Félag ísl. hjúkrunarfræðinga, Kennarasamband Íslands, Kvennakirkjan, Kvennasögusafn Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Starfsmannafélag ríkisstofnana, Stígamót, Upplýsing, Vera, Öryrkjabandalag Íslands.

Lýst fullti ábyrgð á hendur stjórnvöldum í deilunni um heimahjúkrun

1.3.2004

Ögmundur Jónasson formaður BSRB lýsir furðu sinni á því að heilbrigðisyfirvöld eru reiðubúin að kaupa rándýrar einkalausnir í stað þess að einbeita sér að því að ná samkomulagi við starfsmenn heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu. „Mér finnst dapurlegt að þeir sem þarna eiga hlut að máli skuli taka þátt í tilraunum til að hrekja núverandi starfsfólk frá starfi. Öðrum augum er ekki hægt að líta það sem nú er að gerast. Þetta er ekkert annað en kjaradeila sem stéttarfélögin hafa komið að og sýnt fulla ábyrgð. Heilbrigðisráðherra hefur sagst vilja bíða átekta en það verður ekkert lengur beðið. Alvarlegt ástand er að skapast í heimahjúkruninni og ef ekkert verður aðhafst af hálfu stjórnvalda þá er ábyrgðin alfarið þeirra. Ef menn halda að þessi deila verði leyst með aðkeyptri íhlaupavinnu þá segir það mér eitt að menn eru að misskilja eðli þessara starfa. Við erum að tala um fólk og við erum að tala um mjög persónulega þjónustu. Eitt er nauðsynlegt að leggja áherslu á að stéttarfélögin eru þess mjög fýsandi að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að bæta þjónustuna og vilja að skipulagið sé allt sniðið að þörfum þeirra sem hennar eiga að njóta. Það er ekki þar með sagt að hagur starfsfólksins skuli fyrir borð borinn.“

Ályktun BSRB vegna yfirvofandi neyðarástands í heimahjúkrun

27.2.2004

"BSRB lýsir fullri ábyrgð á hendur heilbrigðisyfirvöldum vegna þess neyðarástands sem fyrirsjáanlegt er að skapist, náist ekki samkomulag um fyrirkomulag heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu. BSRB hafði aðkomu að samningum um kjör starfsmanna við yfirfærslu heimahjúkrunar frá sveitarfélögum til ríkisins á sínum tíma og var undirritaður sérstakur samningur um það efni og hefur honum aldrei verið sagt upp gagnvart bandalaginu" segir í ályktun sem stjórn BSRB samþykkti á fundi í dag 27. febrúar 2004.

Hækkar rafmagn um 30% eða 1%?

26.2.2004

Það vakti eðlilega mikla athygli þegar Guðmundur Þóroddsson forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur staðhæfði opinberlega að mestar líkur væru á því að raforkuverð til Reykvíkinga myndi hækka á milli 20-30% yrði álit meirihluta 19 manna nefndarinnar að veruleika. Orkustofnun hefur í dag sent frá sér eigin útreikninga á því hverjar hugsanlegar breytingar verði á raforkuverði í kjölfar nýrra raforkulaga og niðurstöðu þessarar sömu 19 manna nefndar. Er skemmst frá því að segja að Orkustofnun álítur að að hækkun á svæði OR nemi 1% (ekki 30%), hækkun hjá Hitaveitu Suðurnesja verði 2,5% , hækkun hjá Orkubúi Vestfjarða verði 1,5%, Norðurorka hækki um 1,4% en lækkun verði hjá Rarik upp á 2,6%. Hér er að vísu gert ráð fyrir 3% arðsemismörkum, sem eiga að gilda fyrstu fimm árin, en ekki 6% eins og reyndin á að verða, þó svo að margir reikni með að þau arðsemismörk eigi eftir að hækka enn frekar.

Sjúkraliðar harma aðför stjórnvalda að LSH

26.2.2004

Stjórn Sjúkraliðafélags Íslands samþykkti ályktun 25. febrúar sl. þar sem síendurteknar aðfarir stjórnvalda og Alþingis Íslendinga að grundvelli hátækniþjónustu landsmanna,  Landspítalanum háskólasjúkrahúsi eru harmaðar og varað við afleiðingum af þeim. Metnaðarleysi heilbrigðisráðuneytisins er mótmælt og sagt að árangri af markvissri uppbyggingu Landspítala – háskólasjúkrahúsi sé stefnt í hættu með vanhugsuðum skammtímaaðgerðum að kröfu fjárveitinganefndar Alþingis.

Hagræðing í mjólkuriðnaði skili sér til neytenda

24.2.2004

„Hagræðingaraðgerðir í mjólkuriðnaðinum hafa skilað umtalsverðum árangri sem að stærri hluta hefur farið til innleggjenda.  Til að tryggja samkeppnisstöðu mjólkurvaranna er nauðsynlegt að neytendur njóti í meira mæli þessa ávinnings.  Stuðla má að slíkri þróun með þeim aðhaldsskilyrðum sem fjallað er um í verðlagningarkaflanum hér að ofan, og eðlilegt er að fulltrúar samtaka launafólks komi þar að ásamt fulltrúum ríkisins og atvinnugreinarinnar, sbr. núverandi skipan Verðlagsnefndar,“ segir m.a. í skýrslu sem nefnd á vegum landbúnaðarráðherra um stefnumótun í landbúnaðarframleiðslu hefur sent frá sér. Fulltrúi BSRB í nefndinni er Elín Björg Jónsdóttir formaður FOSS.

Átta starfsmannafélög sameinast í Kili

23.2.2004


Skrifað var undir samkomulag um sameiningu átta starfsmannafélaga innan BSRB sl. laugardag, 21. febrúar. Á fundinum voru einnig staðfest drög að lögum fyrir hið nýja félag og kosið um nafn á félaginu. Félagið mun bera nafnið Kjölur. Á myndinni eru formenn félaganna sem stefna að sameiningu

Stór hópur undanskilinn í frumvarpi um hlutastörf

23.2.2004

BSRB leggst gegn frumvarpi til laga um hlutastörf eins og það liggur nú fyrir Alþingi. Með frumvarpinu er verið að innleiða tilskipun um hlutastörf og er markmiðið að uppræta mismunun gagnvart launþegum í hlutastörfum og til að auka möguleika á hlutastörfum á forsendum sem eru viðunandi fyrir bæði atvinnurekendur og starfsmenn. Frumvarpið er ekki látið ná til starfsmanna sem fá greitt fyrir vinnu sína með tímavinnukaupi. BSRB hefur harðlega mótmælt þessu og telur að þessi undanþága brjóti gegn tilskipun EES um hlutastörf.

Framsetning á útgjaldatölum heilbrigðiskerfisins

23.2.2004

Páll H. Hannesson starfsmaður BSRB hefur tekið saman upplýsingar um framsetningu útgjaldatalna heilbrigðiskerfisins sem hann kynnti á fundi með aðgerðahópi vegna málefna LSH. Í úttekt Páls eru bornir saman ýmsir staðlar sem notaðir eru í skýrslum OECD og annarra samantekta um heilbrigðisútgjöld í heiminum. Staðlar þessir eru mjög mismunandi en niðurstaða Páls er sú að Hagstofan telji rétt fram til OECD þegar útgjöldum er skipt milli heilbrigðis- og félagsmála.

Réttindavefur opnaður á heimasíðu BSRB

23.2.2004

BSRB hefur opnað réttindavef á heimasíðu sinni. Réttindavefurinn hefur að geyma ítarlegar upplýsingar um réttindamál félagsmanna í bandalaginu auk ýmissa annarra upplýsinga sem varða vinnumarkaðinn.

Sérálit BSRB og ASÍ um flutningskerfi raforku

19.2.2004

Heildarsamtökin BSRB og ASÍ hafa sent frá sér sameiginlegt sérálit vegna starfa 19 manna nefndarinnar svokölluðu, en hún var skipuð af Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra til að gera tillögur um tilhögun á flutningi raforku um aðalflutningskerfi og dreifiveitur landsins. Afstaða ASÍ og BSRB til þessa máls byggist á þeirri grundvallarsýn að vatns- og gufuorka sem nýtist til raforkuframleiðslu sé auðlind sem allir landsmenn eigi rétt á að njóta sameiginlega og með sem jöfnustum hætti. Lög sem snerta nýtingu þessarar auðlindar verða því að taka mið af þessu grundvallarsjónarmiði.

Niðurstaða Hæstaréttar veldur vonbrigðum

18.2.2004

Hæstiréttur sýknaði Landsbankann hf. af kröfum tveggja starfsmannanna bankans til biðlauna og komst þar að annarri niðurstöðu en héraðsdómur. Niðurstaða Hæstaréttar veldur vonbrigðum. Að mati BSRB var löggjafinn að tryggja þau réttindi sem starfsmenn Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands höfðu áunnið sér þegar bönkunum var breytt í hlutafélag með 8. gr. og 10. gr. laga nr. 50/1997.  Þykir BSRB það hart að verið sé að hafa af starfsmönnunum áunninn rétt. Hefði þurft að taka það sérstaklega fram í lögunum að starfsmennirnir ættu ekki rétt til biðlauna tækju þeir starfi hjá Landsbanka Íslands hf.

Framkvæmdir í fullum gangi í Munaðarnesi

17.2.2004


Hitaveituframkvæmdir eru nú í fullum gangi í Munaðarnesi og Stóru Skógum og því jarðrask töluvert á svæðinu. Þrátt fyrir það eru húsin leigð út í allan vetur en öll leiga fer í gegnum skrifstofu BSRB því einungis eru leigð út hús þar sem framkvæmdir eru ekki í gangi í hvert skipti. Stefnt er að því að hleypa heitu vatni á kerfið um mánaðarmótin apríl maí og fara næstu vikur þar á eftir í að tengja húsin við kerfið. 11. júní nk. taka svo félögin sjálf við útleigu húsanna en þá á að vera búið að ganga frá öllu jarðraski á svæðinu og koma heitu vatni í húsin og pottum við þau. Þangað til eru orlofshúsaleigjendur beðnir að hafa það í huga þegar þeir fara í Munaðarnes að umhverfið utandyra beri þess merki að framkvæmdir eru á fullu.

Meirihlutaálit 19 manna nefndarinnar liggur enn ekki fyrir

13.2.2004

Síðasti fundur 19 manna nefndarinnar svokölluðu, sem iðnaðarráðherra fékk til að gera tillögur um hvernig flutningi raforku skuli háttað og er sá hluti nýrra raforkulaga sem enn er ófrágenginn, var haldinn fimmtudaginn 5. febrúar. Líkega verður það síðasti fundur nefndarinnar jafnvel þó flestir fulltrúar í nefndinni og þar með talinn fulltrúi BSRB hafi fengið frest fram í miðja næstu viku til að skila inn álitum sínum og athugasemdum við fyrirliggjandi drög. Það er því mjög svo orðum aukið að fyrir liggi meirihlutaálit þessara 19 aðila, jafnvel þó svo fulltrúar iðnaðarráðuneytisins hafi skilað iðnaðarráðherra tillögum eins og þær stóðu eftir síðasta fund.

Trúnaðarmannanámskeið BSRB í Munaðarnesi

12.2.2004

Fræðslunefnd BSRB hefur ákveðið að efna til trúnað­armannanámskeiðs í Munaðarnesi dagana 17. – 18. mars nk. verði næg þátttaka. Rúta fer frá BSRB-húsinu, Grettisgötu 89 kl. 10.00 miðvikudaginn 17. mars. Námskeiðið hefst svo kl. 13 eftir hádegisverð og lýkur síðdegis 18. mars. Rútan fer frá Munaðarnesi kl. 17.00. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku eru beðnir að hafa samband við skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89, í síma 525 8300 eða á netfang: bsrb@bsrb.is í síðasta lagi 12. mars.

Fjölmenni á starfslokanámskeiði

11.2.2004


Yfir 70 manns hafa undanfarna daga sótt starfslokanámskeið á vegum BSRB. Undanfarin ár hefur BSRB staðið fyrir slíkum námskeiðum á haustin en í haust var ljóst að mun fleiri höfðu áhuga á námskeiðinu en komust að og því var ákveðið að vera með nýtt námskeið nú í febrúar. Mjög vel er látið af þessum námskeiðum enda fjallað um flesta þætti sem skipta máli varðandi starfslok.

Deilt um hlut hins opinbera í hagvexti

6.2.2004

Samtök atvinnulífsins hafa að undanförnu gagnrýnt þá þróun að hlutur hins opinbera sé að stækka og einkageirinn er að minnka hlutfallslega sem þýðir að þeirra mati að að hagvöxtur hljóti að minnka eða allavega verða minni en ella til langtíma séð. Ögmundur Jónasson formaður BSRB hefur svarað þessari gagnrýni á heimasíðu sinni og sagt sér sé næst að líta á þennan málatilbúnað af hálfu SA gagnvart opinberri starfsemi og um starfsfólki í almannannaþjónustu sem hreinan rógburð. Eða ef til vill sé þetta bara rugl? Sennilega hvort tveggja. Ögmundur leggur jafnframt nokkrar spurningar fyrir SA varðandi afstöðuna til almannaþjónustu. Á heimasíðu SA er grein Ögmundar svarað fullum hálsi en spurningunum ekki svarað efnislega.

SA hrapar að ályktunum

6.2.2004

Samtök atvinnulífsins hafa fullyrt að opinberum starfsmönnum hafi fjölgað um 17% á árunum 1997 til 2002, en starfsmönnum á almennum vinnumarkaði ekki nema um 8% á sama tíma. Fjálmálaráðuneytið leiðréttir þessa fullyrðingu SA í Vefriti ráðuneytisins frá 22. janúar sl. og segir að ætla megi að heildarfjölgun opinberra starfa, hjá ríki og sveitarfélögum, sé um 13,5% á þessu árabili.

Ný heimasíða hjá Starfsmannafélagi Suðurnesja

5.2.2004

Starfsmannafélag Suðurnesja hefur sett upp nýja heimasíðu. Slóðin á síðuna er www.stfs.is Þar er að finna ýmsar upplýsingar um félagið, fréttir, kjaramál, orlofshús, fræðslumál o.m.fl.

Ríkisstjórn afhent ályktun um málefni LSH

4.2.2004


Aðstandendur baráttufundarins í Austurbæ um málefni Landspítala háskólasjúkrahúss fóru á fund forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra 3. febrúar og afhentu þeim ályktun fundarins. Davíð lýsti því yfir á fundinum að ábyrgðin á sparnaðinum hjá LSH væri stjórnvalda og að þau skoruðust ekki undan þeirro ábyrgð sem þau hefðu á málinu. Hins vegar væri ljóst að endurskoðun stæði ekki til. Einar Oddsson formaður starfsmannaráðs LSH sem fór fyrir hópnum sagði að þeir sem hefðu óskað eftir fundinum væru fulltrúar á samtaka sem hefðu á annað hundrað þúsund manna innan sinna vébanda og með fjölskyldum þeirra væru þeir því fulltrúar meginþorra landsmanna.

Troðfullt á baráttufundi um málefni LSH í Austurbæ

28.1.2004


Fjölmenni var á opnum fundi um málefni Landspítala háskólasjúkrahúss sem Geðhjálp, Landssamband eldri borgara, Landssamtök hjartasjúkra, Umhyggja, Öryrkjabandalag Íslands, ASÍ, BHM, BSRB og Læknafélag Íslands stóðu að í Austurbæ 27. janúar. Almannahagur í húfi - Krefjumst endurskoðunar á fjárveitingum til LSH, var yfirskrift fundarins og var gerður góður rómur að ræðum talsmanna samtakanna.

Almannahagur í húfi - Krefjumst endurskoðunar á fjárveitingum til LSH

26.1.2004

Almannahagur í húfi - Krefjumst endurskoðunar á fjárveitingum til LSH, er yfirskrift opins fundar um málefni Landspítalans Háskólasjúkrahúss sem haldinn verður í Austurbæ þriðjudaginn 27. janúar kl. 17.00. Aðstandendur fundarins eru Geðhjálp, Landssamband eldri borgara, Landssamtök hjartasjúkra, Umhyggja, Öryrkjabandalag Íslands, ASÍ, BHM, BSRB og Læknafélag Íslands.

Samtök opinberra starfsmanna með sameiginlega umsögn um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

20.1.2004

Heildarsamtök opinberra starfsmanna, BHM, BSRB og KÍ sendu frá sér í gær, 19. janúar, sameiginlega umsögn til Alþingis um frumvarp til laga um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Í umsögninni er lagst alfarið gegn því að frumvarpið verði að lögum. Frumvarpið felur í sér breytingar á grundvallarréttindum ríkisstarfsmanna hvað varðar starfsöryggi þar sem ekki þarf lengur að áminna ríkisstarfsmenn áður en að uppsögn kemur nái þetta frumvarp í gegn. Þá felur þetta frumvarp í sér að lágmarksréttindi samkvæmt stjórnsýslulögum eru tekin af ríkisstarfsmönnum, m.ö.o. þeir njóta ekki andmælaréttar, reglunnar um jafnræði, meðalhófsreglunnar o.fl.

Starfsmenn sveitarfélaga fái mótframlag frá atvinnurekendum vegna séreignalífeyrissparnaðar

16.1.2004

"Stjórn BSRB krefst þess að starfsmenn sveitarfélaga innan BSRB verði látnir njóta sömu kjara og aðrir landsmenn varðandi framlag atvinnurekenda í séreignasjóð lífeyrisréttinda," segir í ályktun sem stjórn BSRB samþykkti á fundi 16. janúar 2004.

Niðurskurður á LSH er sóun á fjármunum

16.1.2004

"Stjórn BSRB mótmælir harðlega þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að þröngva LSH til niðurskurðar á þeirri þjónustu sem spítalinn veitir landsmönnum," segir m.a. í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi 16. janúar. 

Áskorun samtaka launafólks vegna LSH verður rædd í ríkisstjórn

16.1.2004

Fulltrúar BSRB, ASÍ, BHM,  Læknafélags Íslands og starfsmannaráðs Landspítala háskólasjúkrahúss fóru á fund Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra í dag 16. janúar og afhentu honum ályktun sem samþykkt var á sameiginlegum fundi trúnaðarmanna á LSH og starfsmannaráðs spítalans 15. janúar. Á fundinum lýsti Jón því yfir að hann myndi kynna ályktunina í ríkisstjórn. Fulltrúar ofangreindra samtaka fögnuðu því að áskorun þeirra um að fallið yrði frá niðurskurðaráformum yrði tekin til umfjöllunar í ríkisstjórn.

Fjölmennur fundur trúnaðarmanna á LHS

15.1.2004


Fjölmenni var á  sameiginlegum fundi starfsmannaráðs og trúnaðarmanna allra stéttarfélaga sem eiga félagsmenn á Landspítalanum háskólasjúkrahúsi vegna fjöldauppsagna á spítalanum. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem segir m.a.: "Sameiginlegur fundur trúnaðarmanna félaga innan ASÍ, BHM, BSRB og Læknafélags Íslands, haldinn fimmtudaginn 15. janúar á Landspítala háskólasjúkrahúsi mótmælir harðlega niðurskurði á þjónustu og uppsögnum innan heilbrigðisþjónustunnar og varar við afleiðingum þeirra til skemmri og lengri tíma..."

Starfslokanámskeið á Akureyri

14.1.2004

Starfslokanámskeið verður haldið Fiðlaranum Skipagötu 14 3. hæð. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum BSRB og mökum þeirra og er þeim að kostnaðarlausu. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu STAK sími 461 1599 eða stak@stak.bsrb.is fyrir 23. janúar.

Starfslokanámskeið endurtekið

9.1.2004

Starfslokanámskeið verður haldið í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89 dagana 9. - 11. febrúar. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum BSRB og mökum þeirra og er þeim að kostnaðarlausu. Í desember sl. hélt BSRB starfslokanámskeið fyrir félagsmenn á höfuðborgarsvæðinu og komust færri að en vildu. Þegar rúmlega 70 manns höfðu skráð sig á námskeiðið var ákveðið að stoppa skráningu en taka niður fólk á biðlista. Um 40 manns skráðu sig á biðlista og hefur því verið ákveðið að endurtaka námskeiðið nú í febrúar. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 6. febrúar.

Sumar í Munaðarnesi

7.1.2004


Yfir sumartímann annast aðildarfélög BSRB leigu á orlofshúsunum í Munaðarnesi, Stóru skógum og á Eiðum. Oft verða forföll með stuttum fyrirvara og er hægt að skrá sig á biðlista á skrifstofu BSRB. Síminn á skrifstofu BSRB er 5258300. Netfang bsrb@bsrb.is  Nú eru komnir heitir pottar við öll hús í Munaðarnesi og í Stóru Skógum. Nánari upplýsingar á orlofshúsavefnum. Vikuleigan í Munaðarnesi og Stóru Skógum er 18.000 fyrir stór hús og 13.000 kr. fyrir smærri húsin í Munaðarnesi. Vikuleiga fyrir hús á Eiðum er 15.000 kr.

 

Langtímahagsmunir sjúklinga verði hafðir að leiðarljósi við lausn deilunnar

6.1.2004

"Stjórn BSRB telur mjög mikilvægt að deila sérfræðilækna og Tryggingastofnunar ríkisins verði leyst hið fyrsta og hvetur deiluaðila til að ganga að samningaborðinu tafarlaust og að langtímahagsmunir sjúklinga verði hafðir að leiðarljósi við lausn deilunnar. Nauðsynlegt er að því óvissuástandi sem sjúklingar búa við í dag linni," segir m.a. í ályktun frá stjórn BSRB sem samþykkt var í dag 7. janúar 2004.

Hagrannsóknarstofnun samtaka launafólks í almannaþjónustu

5.1.2004

Fyrir áramót tókst samkomulag á milli BSRB, BHM, KÍ og SÍB um stofnun Hagrannsóknarstofnunar samtaka launafólks í almannaþjónustu, HASLA. HASLA er ætlað að stuðla að því að hagrannsóknir og aðrar rannsóknir í þágu og frá sjónarhóli launafólks í almannaþjónustu séu stundaðar reglulega með stuðningi ríkisins þannig að betra jafnvægi náist í upplýsingastreymi og þjóðfélagsumræðu.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


fræðslumál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta