Fréttir
Verkalýðshreyfingin í Evrópu andvíg tilskipun um þjónustu á innri markaði ESB
29.10.2004

BSRB stóð fyrir vel heppnuðum fundi með framkvæmdastjóra og varaformanni EPSU, Evrópusambands starfsfólks í almannaþjónustu, þeim Carola Fischbach-Pyttel og Anne-Marie Perret, þar sem fjallað var um drög að tilskipun um þjónustu á innri markaði ESB. Fram kom í máli þeirra að verkalýðshreyfingin í Evrópu, jafnt á opinbera markaðinum sem á almenna vinnumarkaðinum er mjög andvíg þessari tilskipun enda yrði grundvallarbreyting á velferðarkerfinu í Evrópu ef tilskipunin næði fram að ganga.
Umræða um ESB og alþjóðavæðingu knýjandi
28.10.2004
Innan BSRB er nú lögð mikil áhersla á umræðu um alþjóðamál og Evrópusambandið "ekki með það fyrir augum að
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar styrkir kennara
28.10.2004
Innri markaður ESB á sviði þjónustu
25.10.2004
Föstudaginn 29. október kl. 9.15 mun BSRB efna til fundar með framkvæmdastjóra og varaformanni EPSU, Evrópusambands starfsfólks í almannaþjónustu, þeim Carola Fischbach-Pyttel og Anne-Marie Perret. EPSU, Evrópusamband starfsfólks í almannaþjónustu, er málsvari 193 stéttarfélaga og sambanda í 33 löndum Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins. EPSU kemur fram fyrir hönd starfsfólks í almannaþjónustu gagnvart valdastofnunum ESB. Meginefni fundarins er hin nýja umdeilda tillaga að tilskipun Evrópusambandsins um Innri markað á sviði þjónustu.
Almannaþjónusta og stjórnarskrárþing Evrópusambandsins
25.10.2004
Starfsmannafélag Reykjavíkur gagnrýnir áform um skattabreytingar
22.10.2004
"Draga verður í efa þá fyllyrðingu að nú sé svigrúm til skattalækkana. Enn býr heilbrigðiskerfið við fjársvelti, komugjöld á heilsugæslustöðvar eiga að hækka, innritunargjöld í Háskóla Íslands eiga að stórhækka, sveitarfélögin skortir fjármagn til að greiða starfsmönnum sínum viðunandi laun og áfram mætti telja. Þá hefur einnig verið sýnt fram á að í hagstjórnarlegu tilliti eru skattalækkanir nú afar hæpnar," segir í ályktun stjórnar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar um áform ríkisstjórnarinnar til skattabreytinga.
Karlar með 17% hærri heildarlaun en konur
20.10.2004

Frá blaðamannafundi þar sem könnun Hasla var kynnt. F.v. Elna Katrín Jónsdóttir KÍ, Ögmundur Jónasson BSRB, Halldóra Friðjónsdóttir BHM, Heiður Hrund Jónsdóttir og Kristjana Stella Blöndal frá Félagsvísindastofnun HÍ.
Ef að þú ert karl í fullu starfi og ert jafnaldri konu, sem hefur sömu menntun og þú, vinnur sambærilegt starf og jafnlangan vinnutíma, þá eru mestar líkur á að þú fáir 17% hærri heildarlaun á mánuði en hún. Ef tekinn er raunverulegur launamunur kynjanna, án þess að leiðrétt sé vegna vinnutíma, menntunar, aldurs og starfs, þá eru heildarlaun karla 28% hærri en kvenna. Þessar niðurstöður er að finna í könnun sem HASLA gerði meðal félagsmanna í BSRB, BHM og KÍ sem kynnt var í morgun.
Sjúkraliðar styðja kennara
18.10.2004
Sjúkraliðafélag Íslands lýsti yfir fyllsta stuðningi við baráttu grunnskólakennara og styrkti verkfallssjóð þeirra um eina milljón króna 11. október sl. þegar baráttufundur kennara stóð yfir í Háskólabíói.
SFR styður verkfallssjóð kennara
8.10.2004

Jens Andrésson formaður SFR og Svala Nordahl varaformaður afhenda Eiríki Jónssyni formanni KÍ styrk vinnudeilusjóðs SFR til kjarabaráttu grunnskólakennara.
Jens Andrésson formaður SFR afhenti grunnskólakennurum 10 milljónir króna í verkfallssjóð kennaranna, en verkfall kennara hefur nú staðið í þrjár vikur. Jafnframt var grunnskólakennurum afhent ályktun stjórnar SFR þar sem eindregnum stuðningi er lýst við kjarabaráttu þeirra. Styrkurinn var afhentur í verkfallsmiðstöð grunnskólakennara í Borgartúni kl. 14. Fjölmenni var í verkfallsmiðstöðinni og hafði Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, orð á því að slíkur stuðningur frá félögum í stéttarfélagsbaráttunni væri ómetanlegur.
Er teymisvinna í heilbrigðiskerfinu tímasóun?
8.10.2004
Málþing Samtaka heilbrigðisstétta (www.heilbrigdisstettir.is) verður haldið í Setrinu á Grand Hótel 14. október 2004 kl. 16:15 til 19:00
Þátttökugjald er 1000. kr. ATH Málþingið verður túlkað yfir á táknmál
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn
7.10.2004
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn verður haldinn lkaugardaginn 9. október og er þema dagsins tengslin milli líkamlegrar og andlegrar heilsu. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá víða í Reykjavík, fyrirlestur um þunglyndi í Háskólabíói, geðhlaup í Nauthólsvík og göngu frá Hlemmi að Ráðhúsinu þar sem dagskrá verður í Tjarnarsalnum.
Málþing um jafnréttisáætlanir
4.10.2004
Jafnréttisráð stendur fyrir Málþingi um jafnréttisáætlanir á Grand - Hótel 26. október nk. Fjallað verður um gildi jafnréttislaga, jafréttisáætlanir, fyrirtæki og jafnrétti, jafnréttisstefnu Reykjavíkurborgar o.fl.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























