Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

SFR hefur áhyggjur af að skattalækkanir bitni á almannaþjónustu

29.11.2004

"Trúnaðarmannaráð SFR hefur áhyggjur af þeim skattalækkunum sem nú hafa verið boðaðar, þar sem líkur eru á að með þeim hagnast hinir best settu mest, en hinir tekjulægstu minnst. Boðaðar “aðhaldsaðgerðir” hins opinbera samfara þessari skattalækkun geta bara þýtt tvennt: að almannaþjónusta mun verða dregin saman og að gjaldtaka fyrir nauðsynlega almannaþjónustu verði aukin," segir m.a. í ályktun sem fundur trúnarmannaráðs SFR sendi frá sér 24. nóvember.

Skuldir íslenska þjóðarbúsins

26.11.2004

Samfara auknum hagvexti hafa skuldir íslenska þjóðarbúsins farið stigvaxandi og virðist lítið lát vera á þeirri þróun. Nú er svo komið að Íslendingar skulda meira en flestar aðrar þjóðir í heiminum. Þegar litið er til iðnþróaðra ríkja eru aðeins Finnar og Nýsjálendingar skuldugri en Íslendingar. Ef á heildina er litið hafa skuldir hins opinbera minnkað þótt ekki sé jafnt á komið með ríki og sveitarfélögum, því á sama tíma og dregið hefur verið úr skuldum ríkisins hafa skuldir sveitarfélaga aukist. Hins vegar hafa skuldir fyrirtækja og heimila margfaldast. Þannig hafa skuldir fyrirtækja frá árinu 1995 tvöfaldast og skuldir heimila frá árinu 1980 nífaldast, Þetta kemur m.a. fram í ítarlegri skýrslu sem Hildigunnur Ólafsdóttir og Ragnar Ingimundarson hagfræðingar BSRB hafa unnið og kynnt var á fréttamannafundi í dag.

Skýrsla um störf og starfssvið í heilbrigðis- og félagsgreinum

25.11.2004

Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur í samstarfi við starfsgreinaráð heilbrigðis- og félagsgreina tekið saman skýrslu um störf og starfssvið í heilbrigðis- og félagsgreinum. Um er að ræða greinargerð þar sem teknar eru fyrir 12 starfsgreinar í þessum flokki og lýst stöðu þeirra á vinnumarkaði, þróun, starfssviði, námsleiðum þjálfun og þörf fyrir þekkingu og hæfni. Skýrslan verður grundvöllur endurskoðunar eða nýritunar námskráa á þessu sviði á næstu árum.

Óbreytt verð á mjólk

23.11.2004

Verðlagsnefnd búvara hefur ákveðið að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, breytist ekki nú um áramótin. Verð til neytenda er því óbreytt 3. árið í röð. Hins vegar hækkar verð til bænda um 3,4% sem er í samræmi við hækkun á vísitölu neysluverðs. Fulltrúi BSRB í verðlagsnefnd búvara er Elín Björg Jónsdóttir en auk þess á ASÍ fulltrúa í nefndinni auk kúabænda og afurðastöðva í mjólkuriðnaði.

Ævintýrið um Augastein

23.11.2004

Leikhópurinn Á senunni býður BSRB tilboð á hina margrómuðu leiksýningu Ævintýrið um Augastein sem verður sýnd í desember í Tjarnarbíói í Reykjavík.  Barnabók með sama nafni fékk glimrandi viðtökur fyrir síðustu jól og seldist í þúsundum eintaka.  Sýningar á leikritinu verða aðeins fram til áramóta, enda um yndislega fallega jólasýningu að ræða. Almennt verð á sýninguna er 2.000 krónur en félagsmönnum í BSRB og börnum þeirra býðst miðinn á 1.600 krónur. 

Lögum á kjaradeilu kennara harðlega mótmælt

22.11.2004


Aðalfundur BSRB sem haldinn var föstudaginn 19. nóvember mótmælti harðlega lögum sem sett voru á kjaradeilu kennara og sveitarfélaga en jafnframt var lýst ánægju yfir því að KÍ hefði ákveðið að ganga til samninga frekar en að lúta vilja ríkisvaldsins um að hlíta niðurstöðum gerðardóms. Þá samþykkti aðalfundurinn ályktanir um launaleynd, auglýsingu starfa, niðurskurð á Landspítala háskólasjúkrahúsi og um kynbundinn launamun.

Evrópusamningur um varnir gegn vinnustreitu

16.11.2004

Þann 8. október sl. undirrituðu aðilar vinnumarkaðarins á Evrópuvísu, ETUC fyrir hönd verkalýðshreyfingarinnar og UNICE/CEEP af hálfu atvinnurekenda, samning um varnir gegn vinnustreitu (work -related stress) og þarf að gildistaka þennan samning hér á landi. Þarf að hrinda þessum samningi í framkvæmd hér á landi innan þriggja ár frá undirritun hans.

Yasser Arafat var boðberi sáttfýsi í heimi haturs

16.11.2004

Yasser Arafat lifði í heimi þar sem úlfur hatursins var alltaf vel nærður. Í slíkum heimi er sá afreksmaður sem hefur þrek til að gerast boðberi sáttfýsi. Slíkur maður var Yasser Arafat, sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. í ræðu sem hann flutti á samstöðufundi með Palestínumönnum í Borgarleikhúsi 15. nóvember.

Sjúkraliðar mótmæla lagasetningu

16.11.2004

Sjúkraliðafélag Íslands mótmælir "gerræðislegri  ákvörðun ríkisstjórnar og meirihluta Alþingis um að svipta grunnskólakennara lög- og stjórnarskrárbundnum réttindum til að semja um kaup og kjör." Þetta segir m.a. í ályktun sem fjölmennur félagsfundur Sjúkraliðafélags Íslands samþykkti í gær 15. nóvember. Í ályktuninni er einnig skorað á samtök launafólks að taka höndum saman í vörn um samningsrétt launafólks.

BSRB styrkir KÍ um 20 milljónir króna

15.11.2004


Garðar Hilmarsson formaður Vinnudeilusjóðs BSRB, Eiríkur Jónsson formaður KÍ og Ögmundur Jónasson formaður BSRB þegar KÍ voru færðar 20 milljónir króna frá BSRB.

Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Garðar Hilmarsson formaður Vinnudeilusjóðs BSRB afhentu Kennarasambandi Íslands 20 milljónir króna til ráðstöfunar vegna þeirrar erfiðu vinnudeilu sem staðið hefur yfir. Afhendingin fór fram á aðalfundi Kennarasambandsins á Grand hótel. Flutti Ögmundur kennurum baráttukveðjur frá BSRB og sagði að hér væri ekki aðeins um að ræða þrönga kjarabarátta heldur þjóðfélagsleg átök um skipulag og framtíð velferðarþjónustunnar í landinu. Það var Eiríkur Jónssaon formaður KÍ sem tók við framlaginu.

Starfsmenn undir smásjánni? Rafrænt eftirlit með einstaklingum á vinnustöðum

12.11.2004

Starfsmenn undir smásjánni? Rafrænt eftirlit með einstaklingum á vinnustöðum, er yfirskrift málþings sem Vinnueftirlitið, Landlænisembættið, Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, Rafiðnaðarsamband Íslands og Rannsóknastofa í vinnuvernd, standa að miðvikudaginn 17. nóvember kl. 8.00 - 10.30 á Grand Hóteli í Reykjavík.

Þjóð í þrengingum - samstöðufundur með Palestínu

12.11.2004

Þjóð í þrengingum - samstöðufundur með Palestínu er yfirskrift fundar sem Félagið Ísland-Palestína í samvinnu við samtök launafólks o.fl. stendur að í Borgarleikhúsinu  mánudagskvöld 15. nóvember kl. 20:00. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra flytur ávarp og Steingrímur Hermannsson fyrrum forsætisráðherra, Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður, Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur og Sveinn Rúnar Hauksson, formaður Félagsins Ísland-Palestína flytja stuttar ræður.

.

Starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu

9.11.2004

BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði í BSRB húsinu Grettisgötu 89 dagana 22., 24. og 29. nóvember. Námskeiðið hefst kl. 16.30 og lýkur kl. 19.00. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 19. nóvember. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra og er þeim að kostnaðarlausu.

Karlar og konur á norrænum vinnumarkaði

4.11.2004

Karlar og konur á norrænum vinnumarkaði er yfirskrift tveggja daga málsþings sem haldið verður á Grand Hótel dagana 11. og 12. nóvember. Fyrri daginn verður sjónum sérstaklega beint að körlum í "kvennastörfum" en þann seinni verður horft víðar á kynjaskiptingu á vinnumarkaði.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


nýsköpun

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta