Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Ályktun BSRB vegna yfirvofandi neyðarástands í heimahjúkrun

27.2.2004

"BSRB lýsir fullri ábyrgð á hendur heilbrigðisyfirvöldum vegna þess neyðarástands sem fyrirsjáanlegt er að skapist, náist ekki samkomulag um fyrirkomulag heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu. BSRB hafði aðkomu að samningum um kjör starfsmanna við yfirfærslu heimahjúkrunar frá sveitarfélögum til ríkisins á sínum tíma og var undirritaður sérstakur samningur um það efni og hefur honum aldrei verið sagt upp gagnvart bandalaginu" segir í ályktun sem stjórn BSRB samþykkti á fundi í dag 27. febrúar 2004.

Hækkar rafmagn um 30% eða 1%?

26.2.2004

Það vakti eðlilega mikla athygli þegar Guðmundur Þóroddsson forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur staðhæfði opinberlega að mestar líkur væru á því að raforkuverð til Reykvíkinga myndi hækka á milli 20-30% yrði álit meirihluta 19 manna nefndarinnar að veruleika. Orkustofnun hefur í dag sent frá sér eigin útreikninga á því hverjar hugsanlegar breytingar verði á raforkuverði í kjölfar nýrra raforkulaga og niðurstöðu þessarar sömu 19 manna nefndar. Er skemmst frá því að segja að Orkustofnun álítur að að hækkun á svæði OR nemi 1% (ekki 30%), hækkun hjá Hitaveitu Suðurnesja verði 2,5% , hækkun hjá Orkubúi Vestfjarða verði 1,5%, Norðurorka hækki um 1,4% en lækkun verði hjá Rarik upp á 2,6%. Hér er að vísu gert ráð fyrir 3% arðsemismörkum, sem eiga að gilda fyrstu fimm árin, en ekki 6% eins og reyndin á að verða, þó svo að margir reikni með að þau arðsemismörk eigi eftir að hækka enn frekar.

Sjúkraliðar harma aðför stjórnvalda að LSH

26.2.2004

Stjórn Sjúkraliðafélags Íslands samþykkti ályktun 25. febrúar sl. þar sem síendurteknar aðfarir stjórnvalda og Alþingis Íslendinga að grundvelli hátækniþjónustu landsmanna,  Landspítalanum háskólasjúkrahúsi eru harmaðar og varað við afleiðingum af þeim. Metnaðarleysi heilbrigðisráðuneytisins er mótmælt og sagt að árangri af markvissri uppbyggingu Landspítala – háskólasjúkrahúsi sé stefnt í hættu með vanhugsuðum skammtímaaðgerðum að kröfu fjárveitinganefndar Alþingis.

Hagræðing í mjólkuriðnaði skili sér til neytenda

24.2.2004

„Hagræðingaraðgerðir í mjólkuriðnaðinum hafa skilað umtalsverðum árangri sem að stærri hluta hefur farið til innleggjenda.  Til að tryggja samkeppnisstöðu mjólkurvaranna er nauðsynlegt að neytendur njóti í meira mæli þessa ávinnings.  Stuðla má að slíkri þróun með þeim aðhaldsskilyrðum sem fjallað er um í verðlagningarkaflanum hér að ofan, og eðlilegt er að fulltrúar samtaka launafólks komi þar að ásamt fulltrúum ríkisins og atvinnugreinarinnar, sbr. núverandi skipan Verðlagsnefndar,“ segir m.a. í skýrslu sem nefnd á vegum landbúnaðarráðherra um stefnumótun í landbúnaðarframleiðslu hefur sent frá sér. Fulltrúi BSRB í nefndinni er Elín Björg Jónsdóttir formaður FOSS.

Átta starfsmannafélög sameinast í Kili

23.2.2004


Skrifað var undir samkomulag um sameiningu átta starfsmannafélaga innan BSRB sl. laugardag, 21. febrúar. Á fundinum voru einnig staðfest drög að lögum fyrir hið nýja félag og kosið um nafn á félaginu. Félagið mun bera nafnið Kjölur. Á myndinni eru formenn félaganna sem stefna að sameiningu

Stór hópur undanskilinn í frumvarpi um hlutastörf

23.2.2004

BSRB leggst gegn frumvarpi til laga um hlutastörf eins og það liggur nú fyrir Alþingi. Með frumvarpinu er verið að innleiða tilskipun um hlutastörf og er markmiðið að uppræta mismunun gagnvart launþegum í hlutastörfum og til að auka möguleika á hlutastörfum á forsendum sem eru viðunandi fyrir bæði atvinnurekendur og starfsmenn. Frumvarpið er ekki látið ná til starfsmanna sem fá greitt fyrir vinnu sína með tímavinnukaupi. BSRB hefur harðlega mótmælt þessu og telur að þessi undanþága brjóti gegn tilskipun EES um hlutastörf.

Framsetning á útgjaldatölum heilbrigðiskerfisins

23.2.2004

Páll H. Hannesson starfsmaður BSRB hefur tekið saman upplýsingar um framsetningu útgjaldatalna heilbrigðiskerfisins sem hann kynnti á fundi með aðgerðahópi vegna málefna LSH. Í úttekt Páls eru bornir saman ýmsir staðlar sem notaðir eru í skýrslum OECD og annarra samantekta um heilbrigðisútgjöld í heiminum. Staðlar þessir eru mjög mismunandi en niðurstaða Páls er sú að Hagstofan telji rétt fram til OECD þegar útgjöldum er skipt milli heilbrigðis- og félagsmála.

Réttindavefur opnaður á heimasíðu BSRB

23.2.2004

BSRB hefur opnað réttindavef á heimasíðu sinni. Réttindavefurinn hefur að geyma ítarlegar upplýsingar um réttindamál félagsmanna í bandalaginu auk ýmissa annarra upplýsinga sem varða vinnumarkaðinn.

Sérálit BSRB og ASÍ um flutningskerfi raforku

19.2.2004

Heildarsamtökin BSRB og ASÍ hafa sent frá sér sameiginlegt sérálit vegna starfa 19 manna nefndarinnar svokölluðu, en hún var skipuð af Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra til að gera tillögur um tilhögun á flutningi raforku um aðalflutningskerfi og dreifiveitur landsins. Afstaða ASÍ og BSRB til þessa máls byggist á þeirri grundvallarsýn að vatns- og gufuorka sem nýtist til raforkuframleiðslu sé auðlind sem allir landsmenn eigi rétt á að njóta sameiginlega og með sem jöfnustum hætti. Lög sem snerta nýtingu þessarar auðlindar verða því að taka mið af þessu grundvallarsjónarmiði.

Niðurstaða Hæstaréttar veldur vonbrigðum

18.2.2004

Hæstiréttur sýknaði Landsbankann hf. af kröfum tveggja starfsmannanna bankans til biðlauna og komst þar að annarri niðurstöðu en héraðsdómur. Niðurstaða Hæstaréttar veldur vonbrigðum. Að mati BSRB var löggjafinn að tryggja þau réttindi sem starfsmenn Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands höfðu áunnið sér þegar bönkunum var breytt í hlutafélag með 8. gr. og 10. gr. laga nr. 50/1997.  Þykir BSRB það hart að verið sé að hafa af starfsmönnunum áunninn rétt. Hefði þurft að taka það sérstaklega fram í lögunum að starfsmennirnir ættu ekki rétt til biðlauna tækju þeir starfi hjá Landsbanka Íslands hf.

Framkvæmdir í fullum gangi í Munaðarnesi

17.2.2004


Hitaveituframkvæmdir eru nú í fullum gangi í Munaðarnesi og Stóru Skógum og því jarðrask töluvert á svæðinu. Þrátt fyrir það eru húsin leigð út í allan vetur en öll leiga fer í gegnum skrifstofu BSRB því einungis eru leigð út hús þar sem framkvæmdir eru ekki í gangi í hvert skipti. Stefnt er að því að hleypa heitu vatni á kerfið um mánaðarmótin apríl maí og fara næstu vikur þar á eftir í að tengja húsin við kerfið. 11. júní nk. taka svo félögin sjálf við útleigu húsanna en þá á að vera búið að ganga frá öllu jarðraski á svæðinu og koma heitu vatni í húsin og pottum við þau. Þangað til eru orlofshúsaleigjendur beðnir að hafa það í huga þegar þeir fara í Munaðarnes að umhverfið utandyra beri þess merki að framkvæmdir eru á fullu.

Meirihlutaálit 19 manna nefndarinnar liggur enn ekki fyrir

13.2.2004

Síðasti fundur 19 manna nefndarinnar svokölluðu, sem iðnaðarráðherra fékk til að gera tillögur um hvernig flutningi raforku skuli háttað og er sá hluti nýrra raforkulaga sem enn er ófrágenginn, var haldinn fimmtudaginn 5. febrúar. Líkega verður það síðasti fundur nefndarinnar jafnvel þó flestir fulltrúar í nefndinni og þar með talinn fulltrúi BSRB hafi fengið frest fram í miðja næstu viku til að skila inn álitum sínum og athugasemdum við fyrirliggjandi drög. Það er því mjög svo orðum aukið að fyrir liggi meirihlutaálit þessara 19 aðila, jafnvel þó svo fulltrúar iðnaðarráðuneytisins hafi skilað iðnaðarráðherra tillögum eins og þær stóðu eftir síðasta fund.

Trúnaðarmannanámskeið BSRB í Munaðarnesi

12.2.2004

Fræðslunefnd BSRB hefur ákveðið að efna til trúnað­armannanámskeiðs í Munaðarnesi dagana 17. – 18. mars nk. verði næg þátttaka. Rúta fer frá BSRB-húsinu, Grettisgötu 89 kl. 10.00 miðvikudaginn 17. mars. Námskeiðið hefst svo kl. 13 eftir hádegisverð og lýkur síðdegis 18. mars. Rútan fer frá Munaðarnesi kl. 17.00. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku eru beðnir að hafa samband við skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89, í síma 525 8300 eða á netfang: bsrb@bsrb.is í síðasta lagi 12. mars.

Fjölmenni á starfslokanámskeiði

11.2.2004


Yfir 70 manns hafa undanfarna daga sótt starfslokanámskeið á vegum BSRB. Undanfarin ár hefur BSRB staðið fyrir slíkum námskeiðum á haustin en í haust var ljóst að mun fleiri höfðu áhuga á námskeiðinu en komust að og því var ákveðið að vera með nýtt námskeið nú í febrúar. Mjög vel er látið af þessum námskeiðum enda fjallað um flesta þætti sem skipta máli varðandi starfslok.

Deilt um hlut hins opinbera í hagvexti

6.2.2004

Samtök atvinnulífsins hafa að undanförnu gagnrýnt þá þróun að hlutur hins opinbera sé að stækka og einkageirinn er að minnka hlutfallslega sem þýðir að þeirra mati að að hagvöxtur hljóti að minnka eða allavega verða minni en ella til langtíma séð. Ögmundur Jónasson formaður BSRB hefur svarað þessari gagnrýni á heimasíðu sinni og sagt sér sé næst að líta á þennan málatilbúnað af hálfu SA gagnvart opinberri starfsemi og um starfsfólki í almannannaþjónustu sem hreinan rógburð. Eða ef til vill sé þetta bara rugl? Sennilega hvort tveggja. Ögmundur leggur jafnframt nokkrar spurningar fyrir SA varðandi afstöðuna til almannaþjónustu. Á heimasíðu SA er grein Ögmundar svarað fullum hálsi en spurningunum ekki svarað efnislega.

SA hrapar að ályktunum

6.2.2004

Samtök atvinnulífsins hafa fullyrt að opinberum starfsmönnum hafi fjölgað um 17% á árunum 1997 til 2002, en starfsmönnum á almennum vinnumarkaði ekki nema um 8% á sama tíma. Fjálmálaráðuneytið leiðréttir þessa fullyrðingu SA í Vefriti ráðuneytisins frá 22. janúar sl. og segir að ætla megi að heildarfjölgun opinberra starfa, hjá ríki og sveitarfélögum, sé um 13,5% á þessu árabili.

Ný heimasíða hjá Starfsmannafélagi Suðurnesja

5.2.2004

Starfsmannafélag Suðurnesja hefur sett upp nýja heimasíðu. Slóðin á síðuna er www.stfs.is Þar er að finna ýmsar upplýsingar um félagið, fréttir, kjaramál, orlofshús, fræðslumál o.m.fl.

Ríkisstjórn afhent ályktun um málefni LSH

4.2.2004


Aðstandendur baráttufundarins í Austurbæ um málefni Landspítala háskólasjúkrahúss fóru á fund forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra 3. febrúar og afhentu þeim ályktun fundarins. Davíð lýsti því yfir á fundinum að ábyrgðin á sparnaðinum hjá LSH væri stjórnvalda og að þau skoruðust ekki undan þeirro ábyrgð sem þau hefðu á málinu. Hins vegar væri ljóst að endurskoðun stæði ekki til. Einar Oddsson formaður starfsmannaráðs LSH sem fór fyrir hópnum sagði að þeir sem hefðu óskað eftir fundinum væru fulltrúar á samtaka sem hefðu á annað hundrað þúsund manna innan sinna vébanda og með fjölskyldum þeirra væru þeir því fulltrúar meginþorra landsmanna.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


kjaramál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta