Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

STÁ opnar heimasíðu

31.3.2004

Starfsmannafélag Sveitarfélagsins Árborgar hefur opnað heimasíðu. Slóðin á heimasíðuna er http://www.sta.is 

Fimm félög sameinast í Kili

30.3.2004

Fimm aðildarfélög BSRB hafa ákveðið að sameinast í stéttarfélaginu Kili eftir atkvæðagreiðslu á aðalfundum félaganna. Þetta eru Starfsmannafélag Akureyrar, Starfsmannafélag Dalvíkurbyggðar, Starfsmannafélag Siglufjarðarkaupstaðar, Félag opinberra starfsmanna í Húnavatnssýslum og Starfsmannafélag Borgarbyggðar. Þrjú félög felldu sameininguna en það voru Starfsmannafélag Skagafjarðar, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu. Stofnfundur Kjalar verður haldinn í Munaðarnesi 15. maí nk.

Heilbrigðiskerfið - Virkni, skilvirkni, jöfnuður, virðing

30.3.2004

Heilbrigðiskerfið - Virkni, skilvirkni, jöfnuður, virðing er yfirskrift ráðstefnu á vegum Blindrafélagsins, Félags aðstandenda Alzheimersjúklinga, Geð­hjálpar, Geðverndarfélags Íslands, Gigtarfélags Íslands, Heyrnarhjálpar, Lands­sam­takanna Þroska­­hjálpar og Umsjónarfélags einhverfra í samstarfi við LSH, Landlæknis­embætti og Félagsmálaráðuneytið, sem haldin verður fimmtudaginn 1. apríl kl. 13.00 í Hringsal Landsspítala Háskólasjúkrahúsi v/Hringbraut (gengið inn við Barnaspítalann). Ráðstefnan er öllum opin en heilbrigðsstarfsfólk er einkum hvatt til að koma.

Nýr formaður FOSVest

30.3.2004

Gylfi Guðmundsson var kjörinn nýr formaður Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum eftir að aðalfundur félagsins felldi tillögu um sameiningu félagsins við sjö önnur starfsmannafélög í stéttarfélaginu Kili.

Nýr formaður í Starfsmannafélagi Skagafjarðar

30.3.2004

Gunnar Björn Rögnvaldssonvar var kjörinn nýr formaður Starfsmannafélags Skagafjarðar á aðalfundi félagsins mánudaginn 29. mars. Fráfarandi stjórn gaf ekki kost á sér til endurkjörs eftir að fundurinn felldi tillögu um sameiningu félagsins við sjö önnur starfsmannafélög í stéttarfélaginu Kili.

Nýr formaður í Starfsmannafélagi Dala- og Snæfellsnessýslu

30.3.2004

Helga Hafsteinsdóttir var kjörinn nýr formaður Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu á aðalfundi félagsins sem haldinn var föstudaginn 26. mars. Á fundinum voru greidd atkvæði um sameiningu félagsins við sjö önnur starfsmannafélög en hún var felld.

Framkvæmdum miðar vel í Munaðarnesi

29.3.2004

Framkvæmdum miðar vel í Munaðarnesi. Í síðustu viku var fluttur vatnstankur frá Hafnarfirði, þar sem hann hafði verið smíðaður, til Munaðarness og honum komið fyrir mitt á milli orlofsbyggðarinnar í Munaðarnesi og í Stóru Skógum. Tankinum er ætlað að miðla vatni í Stóru Skóga.

Póstmenn fái hlut í hagnaði Íslandspósts

29.3.2004

Aðalfundur Póstmannafélags Íslands sendi frá sér ályktun þar sem bent er á að hagnaður Íslandspósts hf  sé tilkominn vegna  mikils aðhalds og sparnaðar í rekstri og þeirrar dapurlegu staðreyndar að störf hjá fyrirtækinu eru í flestum tilfellum láglaunastörf.  Er fyrirtækið hvatt til að greiða starfsfólki sómasamleg laun í stað þess að greiða ríkissjóði hálfan milljarð í hagnað.

Yfirlæknir Vinnueftirlitsins andvígur því að atvinnurekendur hafi heimild til að taka lífsýni úr starfsfólki – hvetur til umræðu um málið

26.3.2004

Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu, telur ekki heppilega þróun að stjórnendur fyrirtækja geti tekið sér vald til þess að framkvæma læknisskoðun á vinnustað hvenær sem þeim líkar. Tilefni þess að Kristinn er inntur eftir afstöðu sinni fyrir lesendur vefsíðu BSRB er eftirfarandi yfirlýsing sem starfsmönnum álversins í Straumsvík er gert að undirrita, sem hluta af ráðningarsamningi: "Það er stefna fyrirtækisins að hafa vinnustaðinn án allra vímu- og fíkniefna. Allir starfsmenn sem ráðnir eru þurfa að gangast undir læknisskoðun þar sem m.a. er prófað fyrir ólöglegum efnum auk þess sem fyrirtækið áskilur sér rétt til að kalla starfsmenn í rannsókn hvenær sem er á vinnutíma."

Fyrsti hópur forystufræðslunnar útskrifaður

25.3.2004

Fyrsti hópurinn í forystufræðslu BSRB útskrifaðist 24. mars. Námið hófst vorið 2003 og kom hópurinn þrisvar saman í Munaðarnesi á tímanum en stundaði fjarnám þess á milli. Staðbundna námið var í þrjá daga í hvert skipti. Var megin áhersla lögð á samningatækni, ræðumennsku, sjálfseflingu, verkefnastjórnun og samvinnuhæfni stjórnenda.

Vatnsveitustarfsmenn í verkfalli vegna svikinna samninga

23.3.2004

Starfsmenn Anglian Water Services í Bretlandi gengu út og fóru í verkfall í vikunni sem leið, þegar áform fyrirtækisins um að ganga á bak orða sinna um lífeyrisskuldbindingar starfsmanna urðu ljós. Forsaga málsins er sú, að verkalýðsfélög starfsmanna gerðu samkomulag við Anglian Water Services árið 2002 þegar fréttist að fyrirtækið ráðgerði að setja allt að 90% starfsemi sinnar í hendur verktakafyrirtækja. Gekk samkomulagið út á að þrátt fyrir að starfsmenn Anglian Water Services gerðust starfsmenn annarra fyrirtækja í kjölfar skipulagsbreytinganna, þá héldu þeir lífeyrisréttindum sínum sem þeir höfðu áunnið sér hjá fyrirtækinu.

Alþjóða vatnsdagurinn - Vatn og hörmungar

22.3.2004

Í dag 22. mars er alþjóðlegur vatnsdagur og hafa Sameinuðu þjóðirnar ákveðið að þema dagsins skuli vera “vatn og hörmungar” eða “Water and Disasters”. Í dag er staðan sú að einn og hálfur milljarður manna hefur takmarkaðan eða engan aðgang að hreinu drykkjarvatni og tvo og hálfan milljarð skortir vatn til hreinlætis. Kofi Annan aðalritari Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir einkavæðingu vatns í nýrri skýrslu, sem leggjast á fyrir 12. þing nefndar S.Þ. um sjálfbæra þróun sem haldið verður dagana 14. til 30. apríl nk..  

Metaðsókn á trúnaðarmannanámskeið

19.3.2004


Metaðsókn var á trúnaðarmannanámskeið í Munaðarnesi dagana 17. og 18. mars. Hátt í 80 manns sóttu námskeiðið og var það í alla staði mjög vel heppnað, enda hópurinn ánægður í námskeiðslok. Þátttakendur voru víða að úr starfsmannafélögum sveitarfélaga og einnig úr fagfélögum. Á myndinni er hópurinn á veröndinni við þjónustumiðstöðina í Munaðarnesi.

Lífeyrisskuldbindingar ríkis og sveitarfélaga

17.3.2004

BSRB telur ómálefnalegt hnútukast á milli forsvarsmanna samtaka launafólks ekki vera sameiginlegum málstað til góðs. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, virðist ekki sömu skoðunar ef dæma skal af ummælum hans síðustu daga um málefni lífeyrissjóða opinberra starfsmanna. Í bréfi, sem hann birti í DV, þriðjudaginn 16.mars, vísar hann í lífeyrissjóði sem byggja á kjarasmningum BSRB, BHM og Kennarasambands Íslands við viðsemjendur sína sem sjóða þar sem “opinberir embættismenn semja við sjálfa sig um kerfi þar sem ávöxtun skiptir engu máli og þaðan af síður hvort kerfið eigi fyrir skuldbindingum..” Grein sem Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, skrifar í Morgunblaðið til andsvars við yfirlýsingar framkvæmdastjóra Alþuýðusambandsins um stöðu opinberu lífeyrissjóðanna líkir hann við viðbrögð unglings “sem fær ábendingar um atferli sem ekki er í lagi “Æi, gasalega ertu leiðinlegur, ég nenni ekki að tala um þetta”. Þetta er það eina sem stendur í svari framkvæmdastjórans og það eru rök sem virðast ganga og passa vel hinum blaðrandi besservisserum...”

Lög um hlutastörf samþykkt þrátt fyrir andstöðu samtaka launafólks

12.3.2004

Alþingi hefur samþykkt lög um hlutastörf þrátt fyrir andstöðu BSRB og fleiri samtaka launafólks. BSRB lagðist gegn frumvarpinu til þar sem með því var verið að innleiða tilskipun um hlutastörf og er markmiðið að uppræta mismunun gagnvart launþegum í hlutastörfum og til að auka möguleika á hlutastörfum á forsendum sem eru viðunandi fyrir bæði atvinnurekendur og starfsmenn. Lögin ná ekki til starfsmanna sem fá greitt fyrir vinnu sína með tímavinnukaupi. BSRB hefur harðlega mótmælt þessu og telur að þessi undanþága brjóti gegn tilskipun EES um hlutastörf. Íhugar BSRB nú að kæra lögin til Eftirlitsstofnunar EFTA.

Samið í viðkvæmri deilu um heimahjúkrun

8.3.2004

Samið hefur verið í kjaradeilu Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu og sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga, en deilan stóð í viku. Deilt var um breytingar á fyrirkomulagi akstursgreiðslna, og þá hvernig staðið skyldi að breytingunni. BSRB kom að deilunni vegna samnings frá árinu 1990 sem bandalagið gerði þegar heimahjúkrun var færð frá sveitarfélögum til ríkis. Samningurinn sem undirritaður var í gær tryggir svokallað sólarlag fyrir núverandi kerfi og launahækkanir í nýju kerfi sem munu mæta kjaraskerðingu sem ella hefði orðið við kerfisbreytinguna.

Hvernig aukum við jafnrétti á vinnumarkaði?

8.3.2004

Ávarp á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars 2004
Nýverið var birt skýrsla nefndar sem forsætisráðherra skipaði til að gera úttekt á efnahagslegum völdum kvenna á Íslandi. Þar er enn einu sinni staðfest að konur hafa lægri laun en karlar fyrir jafn langan vinnudag og að umönnun barna og heimilisstörf hvíla að mestu á herðum kvenna. Þessar niðurstöður koma ekki á óvart og sýna að þrátt fyrir ágæta jafnréttislöggjöf er margt óunnið í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna.

Árásum á lífeyriskerfið verður hrundið

8.3.2004

„Eins og við mátti búast hefur lífeyrisumræða síðustu daga orðið til þess að Pétur H.Blöndal og aðrir andstæðingar samtryggingarlífeyrissjóða eru komnir á kreik. Í  sunnudagsútgáfu Fréttablaðsins gerir hann harða hríð að lífeyrissjóðum starfsmanna ríkis og sveitarfélaga. Pétur H.Blöndal skal af þessu tilefni minntur á, að menn skyldu hugsa sig tvisvar um áður en lagt er til atlögu gegn starfsmönnum ríkis og sveitarfélaga og reynt að hafa þeim lífeyrisréttindin eins og hann leggur til,“ segir í inngangi greinar eftir Ögmund Jónasson formann BSRB á heimasíðu hans og nefnist Villandi umræða um lífeyrismál.

Heildarsamtök opinberra starfsmanna á Norðurlöndum þinga í Reykjavík

5.3.2004


Mikko Mäenpää Finnlandi, Sture Nordh Svíþjóð, Randi Björgen Noregi, Ogmundur Jónasson Íslandi og Allan Bang Danmörku.

Formenn heildarsamtaka starfsmanna í almannaþjónustu komu saman til fundar ásamt öðrum kjörnum fulltrúum og sérfræðingum í alþjóðamálum fimmtudaginn 4. mars í húsakynnum BSRB. Fundir af þessu tagi eru haldnir árlega en á þeim bera menn saman bækur sínar og samræma áherslur eftir því sem við á. Á fundinum núna var fjallað um almannaþjónustuna og skipulagsbreytingar innan hennar.

Formaður BSRB gagnrýnir heilsugæsluna fyrir að biðla til verktakafyrirtækja – segir jafnframt stjórnvöld brjóta samninga

3.3.2004

„Ef samningurinn sem undirritaður var á milli BSRB og fjármálaráðuneytisins 8. okt. árið 1990 um akstur og launagreiðslur starfsmanna  í heimahjúkrun er ekki samningur um kjör og í þeim skilningi kjarasamningur þá veit ég ekki hvað hann er“, segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB vegna ummæla forsvarsmanna Heilsugæslunnar í Reykjavík um deilan út af heimahjúkrun flokkist ekki undir kjaradeilur. „Á grundvelli þessa samnings er BSRB og einnig Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélag Íslands við samningaborðið í þessari deilu.“

Alþjóðadagur kvenna fyrir friði og jafnrétti

2.3.2004

Opinn fundur mánudaginn 8.mars 2004  kl.17 í BSRB-salnum, Grettisgötu 89 í tilefni alþjóðadags kvenna fyrir friði og jafnrétti. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá. Eftirtaldir aðilar standa að fundinum: Menningar- og friðarsamtök ísl. kvenna, Bandalag háskólamanna, BSRB, Barnaheill, Félag ísl. hjúkrunarfræðinga, Kennarasamband Íslands, Kvennakirkjan, Kvennasögusafn Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Starfsmannafélag ríkisstofnana, Stígamót, Upplýsing, Vera, Öryrkjabandalag Íslands.

Lýst fullti ábyrgð á hendur stjórnvöldum í deilunni um heimahjúkrun

1.3.2004

Ögmundur Jónasson formaður BSRB lýsir furðu sinni á því að heilbrigðisyfirvöld eru reiðubúin að kaupa rándýrar einkalausnir í stað þess að einbeita sér að því að ná samkomulagi við starfsmenn heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu. „Mér finnst dapurlegt að þeir sem þarna eiga hlut að máli skuli taka þátt í tilraunum til að hrekja núverandi starfsfólk frá starfi. Öðrum augum er ekki hægt að líta það sem nú er að gerast. Þetta er ekkert annað en kjaradeila sem stéttarfélögin hafa komið að og sýnt fulla ábyrgð. Heilbrigðisráðherra hefur sagst vilja bíða átekta en það verður ekkert lengur beðið. Alvarlegt ástand er að skapast í heimahjúkruninni og ef ekkert verður aðhafst af hálfu stjórnvalda þá er ábyrgðin alfarið þeirra. Ef menn halda að þessi deila verði leyst með aðkeyptri íhlaupavinnu þá segir það mér eitt að menn eru að misskilja eðli þessara starfa. Við erum að tala um fólk og við erum að tala um mjög persónulega þjónustu. Eitt er nauðsynlegt að leggja áherslu á að stéttarfélögin eru þess mjög fýsandi að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að bæta þjónustuna og vilja að skipulagið sé allt sniðið að þörfum þeirra sem hennar eiga að njóta. Það er ekki þar með sagt að hagur starfsfólksins skuli fyrir borð borinn.“

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


althjodamal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta