Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Dagskrá 1. maí 2004 í Reykjavík

29.4.2004

Safnast verður saman á Skólavörðuholti framan við Hallgrímskirkju kl. 13.30.
Gangan leggur af stað kl. 14.00.
Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur fara fyrir göngunni.
Gengið niður Njarðargötu, Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg, vestur Vonarstræti, norður Suðurgötu og Aðalstræti inn á Ingólfstorg.
Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14.35.
Fundartími áætlaður 45 mín.
Að loknum útifundi býður BSRB félagsmönnum upp á kaffi á 4. hæð í Félagamiðstöðinni að Grettisgötu 89.

Atvinna fyrir alla

29.4.2004

Atvinna fyrir alla er yfirskrift 1. maí ávarps Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, KHM, KÍ og Iðnnemasambands Íslands. Víða er komið við í ávarpinu. Áfangasigrum í kjarabaráttu fagnað og bent á mikilvægi þess að uppræta þurfi kynjabundinn launamun. Varað er við samþjöppun valds og fákeppni í efnahagslífinu. Bent er á að þjóðarsátt um gott heilbrigðiskerfi hafi verið rofin og þess krafist að heilbrigðiskerfið geti veitt öllum landsmönnum fullkomnustu þjónustu. Varað er við þeirri þróun sem átt hefur sér stað með aukinni hnattvæðingu og áhrifum óheftrar markaðsvæðingar sem leitt hefur til sívaxandi bils á milli ríkra þjóða og snauðra. Þá segir að mikilvægt sé að sett verði lög um erlendar vinnumiðlanir. Lagst er gegn útlendingafrumvarpinu sem nú liggur fyrir Alþingi.Varað er við því að aukið eftirlit þróist ekki upp í skerðingu á persónufrelsi og brjóti friðhelgi einkalífsins. Öllum stríðsrekstri og hryðjuverkum er mótmælt. Að lokum er hvatt til markvissrar umræðu um nýja atvinnustefnu sem hafi atvinnu fyrir alla að meginmarkmiði.

Reynslan af kerfisbreytingum og framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu

26.4.2004

Svíinn Göran Dahlgren prófessor verður fyrirlesari á málþingi BSRB sem haldið verður miðvikudaginn 5. maí kl. 09:00 til 11:00 á Hótel Loftleiðum. Fyrirlestur hans mun fjalla um heilbrigðisþjónustuna, reynslu af kerfisbreytingum og framtíðarsýn. Málþingið er öllum opið og hvetur BSRB alla sem láta sig heilbrigðismál varða til að koma til málþingsins. Göran mun svara  fyrirspurnum að loknum fyrirlestri.

Göran Dahlgren hefur síðan á níunda áratugnum verið áhrifamaður á alþjóðavettvangi á sviði heilbrigðis, – heilsugæslu, – og lýðheilsumála. Bók hans „Hjúkrunarmarkaður framtíðarinnar – hverjir vinna og hverjir tapa?“ sem kom út 1994 vakti mikla athygli, en þar dregur hann upp mynd af samspili heilbrigðiskerfisins og markaðarins. Honum hlotnuðust Norrænu lýðheilsuverðlaunin árið 2003 en í úrskurði dómnefndar sagði að framlag hans hefði brotið blað á sviði jafnréttismála, aðferðafræði, stefnumótunar og skoðanamyndunar í nútíma lýðheilsustarfi.

Rætt um tvískiptingu vinnumarkaðarins á Bifröst

19.4.2004

Fjölmenni var á ráðstefnu um tvískiptingu vinnumarkaðarins sem haldin var af Viðskiptaháskólanum á Bifröst föstudaginn 16. apríl. Fjölmörg erindi voru flutt á ráðstefnunni og komu bæði fram þau sjónarmið að sama löggjöf ætti að gilda um allan vinnumarkaðinn og einnig að ákveðin rök væru fyrir tvískiptingu hans.

Vel heppnuð ráðstefna um kjaramál ríkisstarfsmanna

16.4.2004


Hátt á þriðja hundrað manns troðfylltu Súlnasal Hótel Sögu í gær á ráðstefnu sem BHM, BSRB og Kennarasamband Íslands stóðu sameiginlega að. Yfirskrift fundarins var Hvert stefnir í kjarasamningum hjá ríkinu? Á ráðstefnunni var fjallað um hið nýja launakerfi ríkisins, sögulegan aðdraganda þess að því var komið á fót, hver reynslan af því væri og hvert stefndi. Fræðimenn og fulltrúar samningsaðila fluttu erindi og efnt var til almennra umræðna. Af hálfu BSRB fluttu þeir erindi Ögmundur Jónasson, formaður BSRB og Jens Andrésson, formaður SFR. Ráðstefnustjóri var Elna Katrín Jónsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara.

Fjölgun í Samflotinu

14.4.2004

Samflot sex bæjarstarfsmannafélaga hélt aðalfund sinn 1. apríl sl. Fundinn sátu auk fulltrúa þeirra félaga sem skipa Samflotið fulltrúar fimm annarra starfsmannafélaga. Vilji er fyrir auknu samstarfi þessara félaga og að vinna saman í komandi kjaraviðræðum. Þau félög sem mynda Samflotið eru FOSS, STAVEY, STÁ, STH, SfK og STAkranes. Félögin sem sátu auk þess aðalfundinn voru STAMOS, FOSA, Starfsmannafélag Dala- og Snæfellssýslu, Starfsmannafélag Ólafsfjarðar og Starfsmannafélag Húsavíkur.

Tvískipting íslensks vinnumarkaðar

13.4.2004

Lögfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst stendur fyrir ráðstefnu um Tvískiptingu íslensks vinnumarkaðar föstudaginn 16. apríl 2004 í Hriflu á Bifröst. Ráðstefnan er í samstarfi við ASÍ, BSRB, SA og Starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytis. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Meðal fyrirlesara eru Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB, Magnús Nordahl lögfræðingur ASÍ, Þórhallur Vilhjálmsson lögfræðingur starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Hrafnhildur Stefánsdóttir lögfræðingur SA, Ástráður Haraldsson dósent við lögfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst og Kristín Benediktsdóttir aðstoðarmaður hæstaréttardómara.

Fjölmennar aðgerðir í Evrópu

6.4.2004

Meira en 1.6 milljónir manna svöruðu kalli ETUC, Evrópusambands verkalýðsfélaga og sýndu vilja sinn með því að flykkjast út á götur og torg víðs vegar um Evrópu til að leggja áherslu á breytta stefnu Evrópusambandsins og aukið félagslegt réttlæti. Ein milljón manna söfnuðust saman í Róm til að mótmæla eftirlaunastefnu Berlusconis og í Þýskalandi gekk hálf milljón manna fyrir bjartari framtíð. Þá voru aðgerðir víða í Frakklandi sem og í Slóveníu, Ungverjalandi og Póllandi. Myndin er frá aðgerðum í Slóveníu.

Nýr formaður Starfsmannafélags Kópavogs

2.4.2004

Jófríður Hanna Sigfúsdóttir var kjörinn nýr formaður Starfsmannafélags Kópavogs á aðalfundi félagsins 31. mars. sl. en Jón Júlíusson fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Jón var formaður StKóp. í 12 ár.

Hvert stefnir í kjarasamningum hjá ríkinu?

2.4.2004

Hvert stefnir í kjarasamningum hjá ríkinu er yfirskrift ráðstefnu sem BSRB, BHM og KÍ standa fyrir í Súlnasal Hótel Sögu fimmtudaginn 15. apríl nk. Ráðstefnan hefst kl. 13 með setningarræðu Ögmundar Jónassonar, formanns BSRB og stendur til kl. 17. Ráðstefnan er öllum opin.

Tekist á um framtíðina

1.4.2004

Evrópusamband verkalýðsfélaga, (ETUC) stendur fyrir sameiginlegum aðgerðum dagana 2. og 3. apríl í borgum víðsvegar um Evrópu. Vill ETUC (European Trade Union Confederation) , en  BSRB er aðili að sambandinu, að Evrópusambandið geri hinum félagslega þætti í stefnu ESB mun hærra undir höfði og að ríkisstjórnir Evrópu beiti sér fyrir auknu réttlæti og félagslegri samþættingu í löndum sínum. Er áherslan í kröfum ETUC m.a. annars á aukna atvinnu, á vörn fyrir félagslegum réttindum og fyrir almannaþjónustu af bestu gæðum.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


innrimal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta