Fréttir
Nýir sófar í Munaðarnes, Stóru Skóga og á Eiðar
27.9.2004

Endurnýjaðir hafa verið sófar í öllum orlofshúsum BSRB í Munaðarnesi, Stóru Skógum og á Eiðum. Þetta eru glæsilegir hornsófar úr leðri. Heitir pottar eru nú við öll húsin í Munaðarnesi og Stóru Skógum og hefur aðsókn því aukist mikið. Við minnum á að hægt er að leigja húsin um helgar á haustin og vorin.
Stjórn BSRB lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu kennara og sjómanna
24.9.2004
"Stjórn BSRB lýsir eindregnum stuðningi við kjarabaráttu kennara og sendir Kennarasambandi Íslands baráttukveðjur. Brýnt er að samningar takist hið allra fyrsta því langvinnt verkfall getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir alla hlutaðeigandi," segir í ályktun sem stjórn BSRB samþykkti á fundi í dag. Jafnframt var samþykkt ályktun þar sem lýst var stuðningi við Sjómannasamband Íslands í kjaradeilu sjómanna og varað við tilraunum útgerðamanna til að sundra samstöðu sjómanna með samningum á bak við samtök þeirra.
Aðför útvegsmanna að verkalýðshreyfingunni
21.9.2004
"En í ljósi söginnar og þeirrar stöðu sem LÍÚ er nú í gagnvart sjómönnum má hverju barni vera ljóst að kjarasamningurinn sem nú hefur verið gerður á bak við Sjómannasambandið er ekki gerður án vitundar og samþykkis heildarsamtaka útvegsmanna. Hann er gerður í skjóli þeirra og á ábyrgð þeirra: Á ábyrgð LÍÚ. Út frá þessu má ganga nema fram komi mjög hörð viðbrögð frá samtökum útvegsmanna," segir m.a. í harðorðri grein Ögmundar Jónassonar formanns BSRB á heimasíðu hans.
Samningaviðræður við ríkið um réttindamál hafnar
17.9.2004
Samningaviðræður BSRB,BHM og KÍ við ríkið um réttindamál eru hafnar. Samtökin leggja áherslu á að bæta stöðu trúnaðarmanna, tryggingar, bættan veikindarétt, eflingu styrktarsjóða, lífeyrisréttindi, rétt tímavinnufólks, lengingu uppsagnarfrests, vinnuumhverfismál og starfsmannastefnu.
Haustdagskrá Félagsmálaskóla alþýðu
14.9.2004
Að venju býður Félagsmálaskóli alþýðu upp á fjölbreytt námskeið haustið 2004. Meðal annars er boðið upp á namskeið fyrir trúnaðarmenn, námskeið um fjölþjóðlega menningu á vinnustað, ensku vinnumarkaðarins, velferðarkerfi verkalýðshreyfingarinnar o.fl.
Kröfugerð SFR tilbúin
13.9.2004
Trúnaðarmannaráð SFR samþykkti einróma kröfugerð félagsins fyrir komandi kjarasamninga , en kjarasamningar eru lausir frá og með 1. desember nk. Megináherslan er á 150.000 kr. lágmarkslaun og fjölskylduvæna kjarasamninga sem birtist í kröfu um styttingu vinnuvikunnar, aukinn rétt vegna veikinda barna o.fl. Einnig er lögð sérstök áhersla á að launamismunur kvenna og karla verði leiðréttur.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























